Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 46

Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 Hrafnborg Guðniunds- dóttir - Minning Fædd 9. september 1938 Dáin 31. júlí 1988 Hún Bogga frænka er dáin. Við fréttina var sem köld hönd læsti sig um mig alla. Söknuðurinn er sárari en orð fá lýst. Mig langar til að minnast elsku Boggu með fáeinum orðum. Það er næstum því sama hvað ég rifja upp varðandi uppvaxtarárin á Akureyri, Bogga er alltaf inni í myndinni. Hún lét sér mjög annt um okkur systurnar og það leið varla sá dagur að við sæjum hana ekki. Okkur þótti óendanlega vænt um hana. Hún gætti okkar, hún huggaði okkur og hún tuktaði okk- ur líka til þegar þess var þörf. Hún sat stundum heilu dagana og saum- aði föt á brúðumar okkar. Brúðurn- ar fóru í „pössun" til hennar í nokkra daga og komu svo heim aftur ásamt fullri tösku af nýjum fötum. Ég man, að alltaf þegar hún kom heim í Byggðaveginn og fékk sér kaffisopa í eldhúsinu, fannst mér hún alltaf fylla herbergið — hún var svo sterkur og mikill persónu- leiki. Bogga var sú fölskvalausasta manneskja sem ég hef kynnst. Hún var alltaf hrein og bein og sjálfri sér samkvæm. Þess vegna var allt- af svo gott að leita til hennar og margur vandinn var farsællega leystur við eldhúsborðið í Austur- byggðinni. Bogga hafði mjög góða kímnigáfu og hún hló oft hátt og mikið svo tárin streymdu úr augun- um. Þessi smitandi hlátur kom öll- um í gott skap. Oft gerði hún í því að stríða okkur systrunum og þegar hún sá að við vorum orðnar vondar þá skellihló hún svo innilega að það var ekki hægt annað en hlæja líka. Bogga var mjög frændrækin og ræktarsöm. Hún sleppti ekki af okkur systrunum hendinni þó við flyttum allar hver á sitt landshom- ið. Hún hringdi alltaf í okkur ein- göngu til að athuga hvort ekki væri nú allt í lagi hjá okkur og hvemig okkur gengi í hinu daglega amstri. Hún var bömunum okkar einstaklega góð og þegar þau áttu afmæli þá átti hún það til að senda þeim kveðju í útvarpinu ásamt ein- hverju uppáhaldslagi. Bogga var vérðug fyrirmynd. Hún kenndi mér margt um lífið sjálft og tilveruna. Hún réð mér alltaf heilt. Því sem hún kenndi mér mun ég svo miðla áfram til bamanna minna, því þar er gott veganesti. Þannig munu þau líka kynnast henni þó hún sé nú farin frá okkur. Ég mun varðveita vel dýrmætar minningar um þessa glæsilegu og dásamlegu konu. Ég trúi því, að Bogga frænka mín sé nú komin á æðra tilverustig þar sem henni líður vel. Ég þakka henni fyrir allt og bið algóðan Guð að styrkja Halla og bömin í þeirra djúpu sorg. Blessuð sé minning hennar. Eva Sunnudaginn 31. júlí sl. andaðist á Landspítalanum Hrafnborg Guð- mundsdóttir eftir erfiða sjúkdóms- legu. Með henni féll í valinn sérstakur persónuleiki sem lengi verður minn- isstæður þeim er til þekktu. Foreldrar Hrafnborgar vom Guð- mundur húsasmíðameistari Tómas- son Pálssonar frá Bústöðum í Skagafirði og kona hans Ragna Lúðvíksdóttir Kemp verkstjóra og skálds er lengi bjó á Illugastöðum í Laxárdal. Þau fluttu til Akureyrar upp úr 1930 og varð Guðmundur, svo sem bræður hans, dugandi iðnaðar- og athafnamaður í bænum. Bogga var þriðja í aldursröð sex systkina, fædd 9. sept. 1938, og skorti því nokkrar vikur upp á að hún næði fimmtugsaldri. Hún ólst upp í foreldrahúsum og að loknu venjulegu unglinganámi gegndi hún ýmsum störfum hér á Akureyri, bæði við verslun og á símstöðinni. Eftir verslunarnám í Liverpool í Englandi kom hún heim og aðstoð- aði við fyrirtæki föður síns, Kex- verksmiðjuna Lorelei, eftir að heilsu hans fór að hraka. Hún kynntist ung að árum efnis- pilti, Pétri Hólm, nýstúdent frá Hrísey, og varð það henni mikið áfall að missa unnusta sinn þegar hann fórst, ásamt Stefáni bróður sínum, í flugslysi á Vaðlaheiði í ársbyrjun 1959. En engin ský eru svo dimm að sólin fái þar ekki brotist í gegn um síðir. Bogga kynntist Haraldi Val- steinssyni bankafulltrúa á Akureyri og reyndist hann hinn traustasti eiginmaður, sem mat kosti hennar að verðleikum. Hann hafði einnig orðið fyrir þeirri sáru lífsreynslu að missa maka sinn, Valgerði Val- týsdóttur, eftir stutt hjónaband og mun þetta mótlæti beggja hafa bundið þau enn traustari böndum skilnings og ástríkis. Syni þeirra Valgerðar og Haralds, Heimi, reyndi Bogga eftir mætti að koma í móðurstað. Haraldi og Boggu varð fjögurra bama auðið, elst er Halla Valgerð- ur, þá Guðmundur Pétur, Valsteinn og yngst er Ragna, nú 14ára. Arið 1979 fluttu þau til ísafjarð- ar, þegar Haraldi var falið þar starf útibússtjóra Landsbankans. Þau undu hag sínum vel vestra, en eftir 7 ára dvöl þar flutti fjölskyldan til Reykjavíkur er Haraldur hóf störf 1 aðalbankanum. En Bogga vann í hlutastarfi við útvarp Rásar 2 og fór hún oft vinsemdarorðum um samstarfsfólkið þar. Á saknaðar- og kveðjustundu hrannast upp í minningunni skyndi- myndir margra ánægjulegra stunda með henni og íjölskyldunni. Á Akureyrarárum þeirra var nær daglega samgangur milli íjöl- skyldna okkar, og oft var þá slegið á létta strengi yfir kvöldkaffinu, og ógleymanlegar verða mér skemmtilegar orðaskilmingar við mágkonu mína um hin margvísleg- ustu málefni, þegar hvort okkar stóð fast á sinni „réttu skoðun" og hvorugt vildi láta sinn hlut. Makar okkar. skemmtu sér hið besta og ætíð var skilið í fullri vinsemd. Böm okkar Elsu gengu þar um garða sem þau væru heima hjá sér og ætíð sýndi Bogga þeim skilning og þolinmæði, en einnig hæfilegar ábendingar, þegar ærslin keyrðu úr hófi fram. Hún var ör á hrós og viðurkenn- ingarorð þegar vel var gert, en hún hafði einnig til að bera þá hrein- skilni og einurð að tjá skoðanir sínar, hveijum sem var, umbúða- laust, í trausti þess að menn virtu sannleiksgildi orða hennar. Sú festa og myndarskapur sem henni lærðist í foreldrahúsum var síðar einkenn- andi í fa?i hennar. Ræktarsemi og vinsemd við unga sem aldna í ijöl- skyldunni var henni ofar öllu öðm og ættfræðispjall við eldri kynslóð- ina var henni ávallt ánægjustund. Þegar tíminn hefir dregið úr sár- ustu sorgum og trega, munum við sem til þekktum ávallt geyma í hugskoti okkar hugljúfa minningu um konu sem ætíð bar með sér góðvild, skilning og hjálpsemi. Megi sá er öllu ræður styðja og styrkja Harald, böm þeirra, móður hennar, og annað skyldulið á þess- ari sorgarstundu. Haraldur Sigurðsson aldeilis sérstöku tilboösveröi, eða kr. 74.200 stgr. (júlíverð var 96.200). NASHUA 6115 tekur 15 Ijósrit á mínútu og allt upp í A3 stærð. Gerið samanburð, og látið okkur vinsamlegast vita et þið getið gert betri kaup. OPTiMA ÁRMÚLA 8 - SÍMAR 84900, 688271 Birting afmælis- og minningargreina, Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð i Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins i Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að 'berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð •og með góðu línubili. Éj r&ir þú í fríinu?? 28-h7\ Nýr og spennandi kúr 'EFtTU /V7EÐ OG HFilNGDU STFtAXU IRITUNARSÍMIÁ BÁÐA STAÐI83730. 1 Líkamsrækt og megrun fyrir konur á ölium aldri flokkar sem hæfa öllum. Suðurveri, sími 83730 Hraunbergi, sími 79988

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.