Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 48

Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 t Móðir mín og amma okkar, ANNA LÁRENSÍA VIGFÚSDÓTTIR, Garðvangi, Garði, lést í Borgarsjúkrahúsinu 5. ágúst sl. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbergur Guöjónsson, Agnes, Guðjón og Anna Þóra. t Eiginkona mín og móðir okkar, GUÐLAUG HÖGNADÓTTIR, Austurgötu 9, Hafnarfirði, er látin. Gísli Guðmundsson og dœtur. t Útför systur okkar, GUÐRÚNARJÓNSDÓTTUR frá Ási, Lokastig 15, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10. ágúst kl. 13.30. Jónfna, Þuríður og Margrót. t MARÍA HELGADÓTTIR, frá Klettstíu, andaöist í Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 6. ágúst. Vandamenn. t MAGNÚS MAGNÚSSON, framkvœmdastjóri frá Eyrarbakka, andaðist aðfaranótt 7. ágúst. Fyrir hönd vandamanna, Kristfn Borghildur Thorarensen, Sigurður Magnús Magnússon. t Átkær eiginmaöur minn, ERLING NIELSEN bryti, Kv artsveien 3, Lambertseter, Oslo, lóst í Langerud sykehjem þann 4. ágúst sl. Kristfn Nielsen. t Elsku drengurinn okkar, STEINGRÍMUR ÖRN STEINGRÍMSSON, Hlíðargötu 13, Neskaupstað, verður jarösungin frá Fossvogskirkju i dag, 9. ágúst, kl. 13.30. Esther Hauksdóttir, Steingrfmur Örn Steingrímssor Magnús Ólafsson, Ásdís Sigurðardóttir. Legsteinar MARGAR GERÐIR Mamom/Gmit Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjöröur Asta Sigvaldadóttir Jónsson - Minning Fædd 10. maí 1911 Dáin 31. júlí 1988 Brotið er biað birta dvín reikar árroði rís ekki sól. Verður svo veröld í vina-augum er harmþrungnir horfa að hinsta beði. (Jenna Jensdóttir) Þetta er upphaf að ljóðlínum er urðu til eftir andlát Péturs Jónsson- ar læknis á Akureyri, eiginmanns Ástu Jónsson, en hann varð bráð- kvaddur í miðjum önnum dagsins á heimili þeirra í mars 1988 — 67 ára að aldri. Þeir Akureyringar sem nú eru komnir um og yfír miðjan aldur muna eflaust vel þessi glæsilegu hjón og ágætu manneskjur, sem eyddu ómældum starfstíma saman í að lina þjáningar meðbræðra sinna og reynast þeim sem best. En Ásta aðstoðaði Pétur jafnan við þær að- gerðir er hann framkvæmdi á lækn- isstofu sinni á þeim tíma. Hjálpsemi hennar, skilningi og alúð var við- brugðið. Heimilið var stórt — fimm Málfríður Sigurðar- dóttir - Minning Fædd 12. mars 1935 Dáin 2. ágúst 1988 í dag, þriðjudaginn 9. ágúst, verður kvödd frá Borgarneskirkju Málfríður Sigurðardóttir, eða Fía eins og hún var ætíð kölluð meðal vina og ættingja. Hún andaðist á Landspítalanum 2. ágúst eftir stutta sjúkdómslegu og kom fregn- in um veikindi hennar og síðar and- lát sem reiðarslag. Aðeins fyrir ör- fáum vikum komu þau hjónin við hjá mér á leið í ferðalag, hress og kát að vanda. En það sannaðist máltækið að enginn ræður sínum næturstað. Fía var fædd í Borgamesi 12. mars 1935, dóttir hjónanna Val- gerðar Kristjánsdóttur og Sigurðar Kristjánssonar og þar ólst hún upp ásamt systkinum sínum í skjóli góðra foreldra. Hér í Borgarnesi varð starfsvettvangur hennar alla tíð. Ung giftist hún mætum manni, Gísla Bjarnasyni, og eignuðust þau §ögur böm, Gunnþómnni, Jón, El- ías og Magnús en áður hafði Fía eignast soninn Sigurð Val Sveins- son. Frá því að ég var lítil stelpa og allar götur síðan var Fía mér afar kær, enda auðvelt að láta sér þykja vænt um hana. Hún var stórbrotin kona ertók hlutunum meðjafnaðar- geði og var kletturinn í fjölskyld- unni. Mikil vinátta var milli þeirra hjóna og móður minnar heitinnar og lýsir það Fíu vel er hún sendi bömum mínum afmælisgjafir eftir lát ömmu þeirra er á stóð „frá ömmu Fíu“. Þannig var hjartalag hennar. Mikill kærleikur var innan íjölskyldunnar og er nú söknuður- inn sár. Ég bið algóðan guð að styrkja þig, Gísli minn, og börnin ykkar, litlu bamabömin, tengdabörn, aldr- aðan föður og aðra vandamenn. Fíu mína kveð ég með söknuði og bið • • Steingrímur Orn Steingrímsson Fæddur 2. maí 1970 Dáinn 1. ágúst 1988 í dag er til moldar borinn systur- sonur minn, Steingrímur Örn Steingrímsson. Foreldrar hans eru Esther Hauksdóttir og Steingrímur Öm Steingrímsson. Þau slitu sam- vistir þegar Steini, eins og hann var venjulega kallaður, var 6 ára gamall. Steini fylgdi mömmu sinni. Steini var rólegt og ljúft barn þrátt fyrir óstöðugt heimiiishald. Ljúfmennskan fylgdi honum út lífíð. Hann var einkar bamgóður og hafði gott lag á börnum. Hann sendi dótt- ur minni uppáhaldsbarnabækurnar sínar, Perlu-bækurnar og Sögumar um Mola flugustrák, því hann vissi að hún hafði gaman af bókum. Mæðginin bjuggu á Neskaupstað í 3 ár og síðan á Stokkseyri um 6 ára skeið, þar til þau fluttu aftur til Neskaupstaðar fyrir 2 ámm. Þau bjuggu oftast í nábýli við Kollu, Einar og dætur. Hjá þeim átti t Móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR, til heimilis Gfgjulundi 2, Garðabæ, lést að kvöldi sunnudagsins, 7. ágúst. Árni Ólafur Lárusson, Valgerður Lárusdóttir, Kristín Lárusdóttir, Ólafía Lára Lárusdóttir, Guðrún Lárusdóttir, barnabörn Sólveig Hannam, Jón Þór Hannesson, Hannes Á. Wöhler, Guðmundur Axelsson, Ágúst G. Sigurðsson, barnabarnabörn. ofl t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURJÓNS GUÐJÓNSSONAR, Efri-Holtum Vestur-Eyjafjöllum. Jón Sigurjónsson, Unnur Jóna Sigurjónsdóttir, Oddur Sæmundsson, Kristbjörg Sigurjónsdóttir, Jóhann Bjarnason, barnabörn og barnabamabörn. strákar glaðir og fyrirferðarmiklir, mannvænlegir og geislandi af lífsíjöri. Sorgin gleymir engum. Sturla sonur þeirra hjóna lést af slysförum 1949 aðeins sex ára að aldri. Sjötti sonurinn, Pétur Stefán, bættist í hópinn þeirra árið 1950 — en einn- ig hann lést af slysförum 1974, sex árum eftir andlát föðurins. Það sló ekki fölva á þá reisn er var yfir Ástu alla tíð. Hún tók þungbæru mótlæti af stórmannlegu lundar- fari, sem einkenndist af æðruleysi og viljastyrk í því að sætta sig við hið óviðráðanlega. Og því naut hún þess að sjá synina sem eftir lifðu mannkosta- og athafnamenn, sem ásamt fjölskyldum þeirra færðu henni mikilvægari lífshamingju en ég held þá gruni. Ásta var gáfuð kona. Hún var víðlesin, vel að sér og rökföst í skoð- unum. Mörgum stundum eyddum henni guðs blessunar í nýjum heim- kynnum. Far þú í.friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með guði, guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) LiUa Steini alltaf öruggt athvarf. Voru þau honum sem fjölskylda. Steini var snyrtimenni og alltaf hugulsamur og góður við mömmu sína. Hann lagði sitt af mörkum til að gera heimili þeirra vistlegt. Sem unglingur var Steini mikið fyrir sveitina og eitt sumarið á Stokks- eyri ræktaði hann bestu gulrætur sem ég hef smakkað. Á Neskaupstað voru Esta og Steini búin að koma sér vel fyrir í eigin húsi. Framtíðin var björt, Esta búin að hitta nýjan lífsförunaut, Magnús Ólafsson. Magnúsi og Steina var vel til vina. Þeirra tal var sem maður við mann. Fjölskyldan ætlaði að flytja suður. Steini ætlaði í iðn- skólann og sinna öðrum áhugamál- um sínum. En vegir guðs eru órannsakan- legir. Steini var kallaður burt í skyndi. Það er huggun harmi gegn að þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Góði guð, gef Estu og öðrum nærstöddum styrk í sorg sinni. Hulda Hauksdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.