Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 60

Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 60
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Eskifjörður: Fyrsta skipið til loðnuveiða Töluvert selt fyrirfram af afurðunum HÓLMABORG SU, skip Hrað- frystihúss Eskifjarðar, hélt í gær á loðnuveiðar, fyrst islenskra skipa á þessari vertíð. „Loðnuafli Hólmaborgar verður bræddur hér á Eskifirði," sagði Aðalsteinn Jónsson, forstjóri hrað- frystihússins, í samtali við Morgun- blaðið. „Afurðaverðið hækkaði smátt og smátt í sumar og við erum búnir að selja töluvert af loðnuaf- urðum fyrirfram. Hins vegar hefur verðið fyrir tonn af lýsi fallið úr um 480 dölum í 420 dali vegna rign- inga á þurrkasvæðunum í Banda- ríkjunum að undanfömu. Mjölverðið hefur hins vegar haldist óbreytt, 9,80 dalir fyrir prótíneininguna," sagði Aðalsteinn. Norsk skip máttu veiða 40.000 tonn af loðnu í íslensku fískveiðilög- sögunni þar til á morgun, miðviku- dag, en hafa einungis veitt á milli 3.000 og 4.000 tonn og eru farin af miðunum, að sögn Landhelgis- gæsiunnar en flugvél hennar flaug yfir miðin í gær. Færeysku loðnu- skipin eru hins vegar að veiðum 10 til 20 sjómílum fyrir utan íslensku fískveiðilögsöguna norðvestur af Homi. Gjaldeyris- viðskipti meðeðli- legum hætti Gjaldeyrisviðskipti voru með eðlilegnm hætti í gær og engin vísbending um, að einstaklingar eða fyrirtæki reyndu að kaupa óeðlilega mikið af erlendum gjald- eyri. Sala á gjaldeyri til ferðamanna var rífleg en að öðru leyti hefur verið heldur meira um gjaldeyris- kaup en gjaldeyrissölu á undanförnum vikum, þann- ig að gjaldeyrisstaðan hefur batnað nokkuð. Lundavertíðin: Rokveiði á enda- sprettinum Vestmannaeyj um ROKVEIÐI hefur verið hjá bjarg- veiðimönnum í Vestmannaeyjum síðustu daga í orðsins fyllstu merkingu, því bæði hefur veiðst vel og hvassviðri hefur verið af stærri gráðunni. Lundaveiði í úteyjum Vestmannaeyja og á heimalandinu var í meðallagi í sumar, en leiðindaveður hefur frekar haldið lundanum niðri. Lundaveiðitímabilinu lýkur 15. ágúst, en síðustu daga hafa úteying- ar úr Álsey, Elliðaey, Bjamarey og fleiri eyjum komið með tugi kippa í land. í hverri kippu eru 100 fuglar. Síðustu daga hefur lundapysjan látið sjá sig í Vestmannaeyjabæ, frekar í seinna lagi eins og annað í lundabú- skapnum í sumar, en margir Eyja- menn dóla um í bílum sínum á kvöld- in og bjarga pysjunum af götunum. Það sem laðar pysjumar á nætur- bröltinu eru ljósin í bænum, en það skiptir öllu máli fyrir þær að komast til hafs. . á.j. Morgunblaðið/Kr.Ben. ________ í Keflavíkurhöfn liggja dragnótabátarnir vegna veðurs. Á meðan bíður norska tankskipið Gunnar Junior, efst til vinstri á mynd- l'ÍÍÉP' • inni, eftir lifandi lúðum sem fluttar verða til Skotlands. Á inn- ' ■WlPEM feldu myndinni er Peter Smith sjávarlíffræðingur. Lifandi lúður til Skotlands Grindavík. SKOSK tilraunastöð í eldi sjávarfiska, sem rekin er á vegum ríkisins á vesturströnd Skotlands, hefur fengið fjóra dragnótabáta í Keflavík til að veiða fyrir sig smálúðu og landa henni lifandi í norska tankskipið Gunnar Junior í Keflavíkur- höfn. Lúðan verður siðan flutt til Skotlands til eldis í sjókvíum og byggt á reynslu sem fengist hefur af lúðueldinu i Grindavík. Að sögn Peters Smiths sjávarlíffræðings, sem hér er staddur til að annast þessi lúðukaup, var þessi leið valin þar sem lúða er nánast uppurin á fískimið- um við Bretlandseyjar. „Fyrir fimm ámm var farinn mjög dýr leiðangur til lúðuveiða og tókst aðeins að fá 19 lúður á einni viku. Þessar lúður vom síðan notaðar til undaneldis sem gengið hefur mjög erfíðlega. í fyrra tókst hins vegar að halda fímm seiðum lifandi og náðu þau að vaxa upp í 20 sm, en þau dóu í vetur sem leið er eldishúsið brann. Þessi árangur varð þó til að sannfæra menn um að lúðueldi er mögulegt, en til að hægt sé að halda því áfram þarf að sannfæra þá um arðsemina og því hafa 23 laxeldisfyrirtæki sem áhuga hafa á lúðu- eldi sameinast um kostnaðinn við að ná lúðum frá Islandi til matfískeldis í Skotlandi. Ég reikna með að 1500 lúður veiðist í þessari viku og miðað við venjuleg afföll vegna sára eftir veiðarfæri þá er markmiðið að koma 1000 lúðum lifandi til Skotlands. Endanlegur kostnaður liggur ekki fyrir ennþá en áríðandi er að vel takist til því að kostnaður við tankskipið er 25 milljónir krónur," sagði Peter Smith og bætti við að nú hamlaði aðeins veðráttan því að hann fengi lúðumar því að öll leyfí og vottorð væru frágengin. Kr.Ben. Rafþéttar með eiturefnimi PCB: Átta tonn flutt utan til Bretlands í vikunni ÁTTA tonn af rafþéttum með eit- urefninu PCB verða flutt utan til Bretlands í þessari viku en í Bret- landi verður þeim eytt. Alls er hér um 123 rafþétta að ræða sem safnað hefur verið saman víða af landinu. Nú er unnið að heildarút- tekt á fjölda rafþétta og spennu- Skipaútgerð ríkisins: Ráðgj afarfyrirtæki ger- ir úttekt á rekstriniim Samgönguráðuneytið hyggst fá rekstrarráðgjafarfyrirtæki til þess að fara ofan í saumana á rekstri Skipaútgerðar ríkisins. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins mun fyrirhugað að skipta rekstrarúttekt þessari í tvo hluta. Annars vegar á að kanna núver- andi fyrirkomulag rekstrarins, umboðsmannakerfi, siglingar, þjónustuþörf og möguleika á því að draga úr kostnaði en halda uppi óbreyttri þjónustu við lands- byggðina. Hins vegar verða kann- aðir ýmsir nýir kostir, til dæmis að minnka umfang ríkisrekinna strandsiglinga en veittur verði stuðningur til þess að einkaaðilar geti haldið uppi slíkum flutning- um til afskekktra staða. Athugun þessi siglir í kjölfar tveggja skýrslna, sem gerðar hafa verið um Skipaútgerðina. Annars vegar er um að ræða skýrslu Ríkis- endurskoðunar frá því í vor, þar.sem gerð er grein fyrir miklum rekstrar- örðugleikum fyrirtækisins og stórum vanskilaskuldum, sem safnast hafa upp á árunum 1982-1987 og nema hundruðum milljóna. Hins vegar hefur Byggðastofnun unnið að könn- un á flutningamagni til ýmissa landshluta eftir mismunandi leiðum, og hvort bættar samgöngur á landi geti dregið úr þörfínni fyrir Strand- siglingar á einhverjum stöðum. Byggðastofnun hefur skilað bráða- birgðaskýrslu um þessar athuganir, en endanlegrar skýrslu er að vænta í september. Samkvæmt heimildum blaðsins eru í samgönguráðuneytinu meðal annars uppi hugmyndir um að draga úr umfangi starfsemi Skipaútgerð- arinnar en leysa þörf þeirra staða, sem ekki komist af án strandflutn- inga, til dæmis með því að einkarek- in skipafélög sjái um þá gegn greiðslu úr ríkissjóði í stað þess að ríkið haldi uppi umfangsmiklu og óhagkvæmu flutningakerfí. Stuðningur ríkisins til Skipaút- gerðarinnar á fjárlögum þessa árs nemur 155 milljónum króna. Rekstr- arúttektin mun væntanlega verða lögð fram við afgreiðslu fjárlaga á næsta þingi. breyta með PCB hérlendis og á þvi verki að vera lokið í næsta mánuði. í haust er síðan von á reglugerð frá heilbrigðisráðuneytinu þar sem innflutningur og notkun á rafþéttum og spennubreytum sem innihalda PCB verður bönnuð. Birgir Þórðar- son hjá Hollustuvemd ríkisins segir að allir rafþéttar og spennubreytar sem fínnist verði sendir til Bretlands til eyðingar. Mörg lönd banna nú þegar innflutning á þessum hlutum, þar á meðal Svíþjóð, en flestir þeirra hluta sem til eru hérlendis eru frá sænska fyrirtækinu ASEA. Sem kunnugt er af fréttum Morg- unblaðsins uppgötvaðist snemma í vor að eiturefnið PCB Askarell er notað víða í raforkuvirkjunum hér- lendis. Efni þetta er mjög hættulegt þó í litlu magni sé ef það kemst í snertingu við hörund eða brennur. Við bruna myndast af því lífshættu- legar eiturgufur. Efnið sest aðallega í fítuvefi líkamans en einnig í lifur og heila og er það flokkað sem krabbameinsvaldandi. Slys varð á Neskaupstað snemma í vor þar sem PCB kom við sögu. Olía sem inniheldur efnið fór í höfn- ina þar og tveir menn urðu fyrir eituráhrifum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.