Morgunblaðið - 08.09.1988, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
204. tbl. 76. árg._______________________________FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Schluter boðar
skattalækkanir
Enginn endirá hörmungunum
Reuter
Lítið lát er á flóðunum í Bangladesh og er nú talið,
að 25 milljónir manna hafí misst heimili sín. 10
milljónir manna eru einangraðar á landsbyggðinni
og hafast margir við uppi í tijám án matar og
vatns. Þeir, sem hafa slökkt þorstann í menguðu
flóðavatninu, hafa sýkst af ýmsum sjúkdómum.
Mörg erlend ríki hafa heitið aðstoð en matvæladreif-
ing getur ekki hafíst að gagni fyrr en vatnið hefur
sjatnað.
Búist við allsherjai'verk-
falli og uppgiöri í Burma
Kaupmannahöfn. Reuter.
POUL Schliiter f orsætisráðherra
og danska ríkisstjórnin hafa nú
brugðist við miklum uppgangi
Framfaraflokksins með fyrir-
heitum um skattalækkanir á ár-
inu 1990. Skýrði Schlilter frá
þessu í fyrrakvöld en í skoðana-
könnun, sem Berlingske Tidende
birti á sunnudag, kemur fram,
að Framfaraflokkurinn fengi 39
Sameinast
gegn IBM
New York. Reuter.
NOKKRIR kunnir framleiðendur
einkatölva hafa ákveðið að fylkja
Uði og gera sameiginlega atlögu
að IBM-fyrirtækinu og PS/2-
tölvum þess. Er búist við frétta-
mannafundi og formlegri til-
kynningu um það i næstu viku.
Markaðsfróðir menn segja, að
takist vel til hjá fyrirtækjunum
geti þau höggvið stórt skarð í einka-
tölvusölu IBM. PS/2 var kynnt í
apríl í fyrra og var ætlað að tryggja
stöðu IBM á markaðnum en hefur
ekki gengið sem skyldi. Er það
meðal annars talið stafa af því, að
gagnavegurinn, sem tengir örgjörv-
ann við aðra hluta tölvunnar, er
ekki samhæfður eldri einkatölvum
frá IBM. Mikil fjárfesting í alls
kyns fylgibúnaði kemur því oft að
litlum notum.
Þennan veikleika PS/2 ætla sam-
fylkingarmenn að nota sér en í far-
arbroddi fyrir þeim er fyrirtækið
Compaq Computer Corp. Önnur eru
t.d. Tandy Corp., Wyse Technology
Inc., Zenith Data Systems, AST
Research Inc., Hewlett-Packard
Co., NEC Corp., Epson America
Inc. og Ing. C. Olivetti Co.
þingsæti ef kosið væri nú og yrði
næststærsti stjórnmálaflokkur-
inn.
Algengt er, að Danir greiði
50-68% tekna sinna ' í skatt en
Framfaraflokkurinn vill afnema
tekjuskattinn á sex árum og láta
óbeina skatta bera velferðarkerfíð
uppi að mestu leyti. Schluter og
aðrir frammámenn stjómarflokk-
anna hafa hingað til lýst þessari
stefnu sem óábyrgri og út í hött en
í fyrrakvöld sagði hann, að stjómin
hygðist skera niður skattana í fjár-
lögum fyrir árið 1990. Að því til-
skildu þó, að unnt reyndist að skera
niður ríkisútgjöldin. Sagði Schluter,
að sem formaður fyrir minnihluta-
stjóm hlyti hann að leita pólitískra
málamiðlana. í fyrmefndri skoð-
anakönnun kom einnig fram, að
íhaldsflokkur Schluters fengi 23
þingsæti í kosningum nú og tapaði
12.
Danska stjómin hefur kynnt ráð-
stafanir til að lækka erlendar skuld-
ir ríkisins en um síðustu áramót
voru þær 38 milljarðar dollara, um
370.000 ísl. kr. á hvert mannsbam.
Rangoon. Reuter.
ALGJÖRT stjórnleysi ríkti i gær
í Rangoon, höfuðborg Burma, og
fóru borgarbúar um göturnar
með rupii og ránum. Hafði
stjórnarandstaðan gefið Maung
Maung forseta og rikisstjórn sós-
íalistaflokksins frest fram á
kvöldið til að segja af sér en því
var svarað með auknum her-
flutningum til borgarinnar. Er-
lendir stjórnarerindrekar segja,
að nú virðist stefna í uppgjör
milli valdhafanna og lands-
manna.
Borgarbúar í Rangoon létu í gær
greipar sópa um vöruhús og versl-
anir og víða vom miklar skemmdir
unnar, meðal annars á læknahá-
skólanum í borginni. Ríkisstjómin
stýrir ekki landinu nema að nafninu
til, efnahagslífíð er lamað og marg-
ir hafa ekki fengið nein laun í nokk-
um tíma. Gripdeildimar í gær em
því að sumu leyti raktar til þess,
að sulturinn sé farinn að sverfa að.
Stjómarandstaðan hafði skorað á
stjómina að segja af sér áður en
dagur væri að kvöldi kominn en hún
brást við með því að kalla til herlið
utan af landsbyggðinni. Hefur her-
mönnunum verið skipað að skjóta
þá, sem staðnir em að ránum.
í dag ætlar stjómarandstaðan
að efna til mikilla mótmæla og alls-
heijarverkfalls í landinu og segja
erlendir sendimenn, að nú stefni í
allsheijamppgjör. Ekki er ljóst hver
er afstaða hersins en stjómarand-
stæðingar segjast vissir um, að
hann muni snúast á sveif með þeim.
16 hermenn héldu blaðamannafund
í gær og skomðu á félaga sína að
beijast gegn sósíalistastjóminni,
sem farið hefur með völdin í aldar-
fjórðung. Á þeim tíma hefur tiltölu-
leg velmegun breyst í fátækt og
kúgunin aukist ár frá ári.
Fréttir hafa borist um mikil of-
beldisverk viða um landið og er
London. Reuter.
OLÍUVERÐIÐ lækkar enn og er
nú nærri eins lágt og fyrir tveim-
ur árum, eftir verðhrunið á
skyndimarkaðnum. Þá komst
olíufatið niður í níu dollara.
Gengi dollarans lækkaði einnig.
Bresk olía af Brent-svæðinu var
í gær seld á tæpa 13 dollara fatið
og hefur verðið ekki verið lægra
síðan í október 1986. Hefur það
lækkað um 1,5 dollara á einni viku.
Aðalástæðan fyrir verðlækkuninni
er offramboð og stóraukin fram-
leiðs'.a OPEC-ríkjanna. Við athugun
sagt, að þar eigi hlut að máli óaldar-
flokkar á snæmm stjómarinnar og
einnig hverfadómstólar, sem hafa
dæmt og tekið af lífí stuðningsmenn
stjómvalda. Bandaríska sendiráðið
í Rangoon hefur skipað starfsfólki
sinu að vera viðbúið brottflutningi
úr landinu og sendiráð annarra ríkja
em líka við öllu búin.
Reuter-fréttastofunnar kom í ljós,
að framleiðsla OPEC var 20 milljón-
ir olíufata í ágúst, einni milljón fata
meiri en í júlí. Sérfræðingar segja,
að verðið eigi eftir að lækka enn
og spá sumir sams konar hmni og
1986.
Gengi dollara féll nokkuð í gær
þegar japanski seðlabankastjórinn
sagði, að félli gengi jensins yrði
umsvifalaust gripið til aðgerða. Öllu
ummæli hans mikilli dollarasölu og
fengust í gær 133,45 jen fyrir doll-
arann.
Reuter
Póstlaustá Bretlandi
Póstdreifing liggur nú að mestu niðri á Bretlandi vegna verkfalla og
í gær var aðeins unnið í þremur af 82 póstflokkunarstöðvum. Hefur
verkfallið staðið í viku og var til þess boðið þegar yfirmenn póst-
þjónustunnar ákváðu að bjóða þeim, sem vildu bera út póst á Suðaust-
ur-Englandi, betri laun en öðmm. í þeim landshluta er atvinnulífið
með mestum blóma og erfítt að fá fólk í útburðinn. Á myndinni er
Graham Owen, yfírmaður einnar póststöðvarinnar í London, og á bak
við hann pokar með pósti frá útlöndum.
Spá verðhruni á
olíumarkaðnum