Morgunblaðið - 08.09.1988, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988
-4
Akranes:
Ráðherra í heimsókn
Akranesi.
Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra var í heim-
sókn á Akranesi i síðustu viku
og kynnti sér framkvæmdir á
staðnum og ræddi við forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins. Þessi
heimsókn var liður í ferð ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins í kjör-
dæmi landsins.
Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra skoðar hið nýja
íþróttahús ásamt Magnúsi Oddssyni formanni íþróttabandalags Akra-
ness.
Birgir ísleifur kynnti sér ýmsar
framkvæmdir á Akranesi, einkum
sem varða hans ráðuneyti. M.a.
skoðaði hann hin nýju íþróttamann-
virki, sundlaug og íþróttahús og
ræddi við forystumenn íþróttamála
á Akranesi. Þá kynnti hann sér
einnig framkvæmdir við nýbygg-
ingu Brekkubæjarskóla. Ráðherr-
ann ræddi einnig við ráðamenn á
staðnum. Með Birgi í för var Frið-
jón Þórðarson alþingismaður og
Sigurbjörn Magnússon fram-
kvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæð-
isflokksins.
Þessi ferð ráðherrans mæltist vel
fyrir, enda skapar hún betri tengsl
og eflir samskipti. Þetta er annar
ráðherrann sem kemur til Akranes
nú á nokkrum dögum. Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra var
hér fyrir skömmu og hafði við-
talstíma fyrir bæjarbúa og notuðu
sér margir þessa þjónustu. Þá fund-
aði ráðherrann einnig með bæjar-
stjóm og fleiri aðilum.
- JG
ESAB
<zr
RAFSUÐUVELAR
vírogfylgihlutir
HEÐINN
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Svæðið umhverfis Ytri-Njarðvíkurkirkju er meðal þeirra svæða sem
fegrunarátakið hefur náð til.
TOSHIBA
örbylgjuofnarnir;
10GERÐIR
Verð við allra hæfí
Einar Farestveit&Co.hf.
■ CHfAWTUW M. f»1| INN OO UMM - N— »
Leið 4 stoppar við dymar
Drifbúnaður
fyrir spil of I.
HEÐINN
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
Fegrunarátak
í Njarðvíkum
Vogum.
í Njarðvíkurkaupstað hefur
verið gert átak i fegrunarmálum,
en að sögn Odds Einarssonar
bæjarstjóra setti núverandi bæj-
arstjórn sér það markmið að
vinna skipulega og markvisst að
fegrun og snyrtingu bæjarins í
áföngum.
yngsta hverfið í Innri-Njarðvík,
Bakkahverfis, sem er íbúðar-, iðn-
aðar- og þjónustuhverfi í Ytri-
Njarðvík, auk nokkurra annarra
gatna og umhverfis Ytri-Njarðvík-
urkirkju. Auk þess voru steyptar
gangstéttir við nokkrar götur. Alls
var hér um framkvæmdir að ræða
í Njarðvík háttar þannig til að
bærinn skiptist í innra og ytra
hverfi og er Ytri-Njarðvík nú orðin
samvaxin Keflavík. Umhverfisátak
það sem nú stendur jrfir hófst í
fyrra með því að lokið var malbikun
og frágangi Seyluhverfís, sem er
fyrir yfir tuttugu milljónir krónar.
í sumar hefur verið haldið áfram
MARKAÐSÞEKKING
ÚTFI.UTNINGSKUNNATTA
VILTU VERDA KUNNATTUMADUR
í ÚTFLUTNINGIOG
MARKADSSÓKN?
Þér gefst færi á eins vetrar námi til að ná því marki,
-án þess að það komi niður á vinnunni.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANPS
m
v UTFLUTNINGS
OG MARKAÐSSKOLI ISLANDS
V ’ THE IC.f l ANUIC iNSfltUTF ÓF MARKETING ANO ÉXPORT
Ánanaustum 15-101 Reykjavík-Sími (91) 62-10*66
með lagningu kantsteina með þeim
götum sem malbikaðar voru í fyrra,
gangstéttarlagningu og frágangi
grænna svæða en á fjárhagsáætlun
bæjarins fyrir yfirstandandi ár voru
áætlaðar liðlega tíu milljónir króna
til þess.
Fegrunarátakið hefur verið unnið
af starfsmönnum bæjarins og
Vinnuskóla Njarðvíkur með aðstoð
nokkurra verktaka. Samkvæmt
upplýsingum bæjarstjóra mun ætl-
un bæjarstjómar að gera enn bet-
ur, og umhverfisátakið mun ná
hámarki á næsta ári. Unnið er að
breytingu á aðalskipulagi bæjarins
og meðal annars verður svokölluð-
um Njarðvíkurfitjum breytt úr iðn-
aðarsvæði í grænt svæði. Skipulögð
verða ný íbúðarhúsahverfi sem
tengja saman byggðimar í ytra og
innra hverfinu, og lokið verður við
gerð vegar milli hverfanna sem
liggur framhjá gróðrarstöðinni
Víkurblómum, sem ér eins konar
Eden þeirra Njarðvíkinga og hóf
starfsemi fyrir nokkru.
í hugum margra eru Suðumesin
Keflavík og einhverjir smáhreppar
í kring. „Þetta er ekki þannig,"
segir Oddur bæjarstjóri. „Keflavík
er að vísu langfjölmennasti bærinn,
til dæmis þrisvar sinnum stærri en
Njarðvík ef mælt er á þann mæli-
kvarða, en Keflavík er langminnsti
bærinn á Suðumesjum ef mælt er
með mælistiku. Keflavík hefur einn-
ig státað af því að vera fallegasti
bærinn á Suðumesjum ogþað hefur
hann svo sannarlega verið, en það
kann að breytast á næstunni. Það
er ekki svo að í Keflavík eigi sér
stað einhver öfugþróun í þeim mál-
um, þvert á móti, nú er að verða
vakning í hinum bæjunum og þeir
draga á með hverju árinu.“
- EG