Morgunblaðið - 08.09.1988, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988
Haustnámskeið hefst
12. september
Þaö er staðreynd að alvöru
líkamsþjálfun sem skilar fögrum
vexti verður aldrei létt.
Við hjá Dansstúdíói Sóleyjar
getum hins vegar lofað því að hjá
okkur verður hún skemmtileg og
hressandi.
Ásta Vala sjúkraþjálfi
verður með létta og góða leikfimi
fyrir barnshafandi konur og konur
með börn á brjósti. " —-
Bjargey
Eldhressir púltímar, 16 til 30 ára
Púltími fyrir stráka.
Árný
Teygjur og þrek eftir vinnu.
Framhaldshópar.
Birna
Teygjur og þrek í hádeginu og
eftir hádegi.
GROÐABRALL
Á HEIMAVIST
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Hamagangur á heimavist
(„Campus Man“). Sýnd í Regn-
boganum.
Bandarísk. Leikstjóri: Ron
Casden. Handrit: Matt Dorff.
Framleiðendur: Peggy Fowler
og John Landau. Kvikmynda-
taka: Francis Kenny. Helstu hlut-
verk: John Dye, Steve Lyon,
Morgan Fairchild og Miles
O’Keeffe.
Leggðu saman framtakssaman
og mjög efnilegan viðskiptafræð-
ing, glæsilegan dýfingameistara,
okrara og eyðimerkurrottu að nafni
Kaktus-Jack, dagatöl og leitina að
Manni níunda áratugarins að við-
bættum slægum blaðaútgefanda og
boðskap um hættur gróðabrasksins
og misnotkun vináttu og þá ertu
kominn með Hamagang á heimavist
(„Campus Man“), sem sýnd er í
Regnboganum.
Það er enn ein gamanmyndin
sem mölluð hefur verið fyrir ungl-
ingamarkaðinn og ef eitthvað er
þá er hún hressilegri og skemmti-
legri en margar hverjar af sama
meiði. Þegar markið er ekki sett
hátt er lítill vandi á ná því og þær
eru margar sem lagt hafa meira á
sig en þessi en náð minni árangri.
Hamagangi á heimavist er leik-
stýrt af Ron Casden með léttu,
galsafengnu yfirbragði eins og
tíðkast í þessum kátlegu unginga-
myndum, uppúr gamansömu en ein-
feldningslegu handriti Matt Dorffs
og segir frá framkvæmdunum sem
viðskiptafræðineminn Todd Barrett
(John Dye) neyðist útí þegar hann
þarf að bjarga sér um 10.000 doll-
ara fyrir skólagjöldum sem skulu
greiðast innan mánaðar. Hann fær
þá ljómandi hugmynd að búa til
dagatöl skreytt glæsilegum mynd-
um af fallegustu íþróttagörpunum
í skólanum og fær vin sinn, Brett
Wilson (Steve Lyon), fremsta dýf-
ingamann skólans, óviljugan í ráða-
bruggið með sér. Sá vill ekki standa
í svona vitleysu heldur stunda
íþróttina af kappi en lætur til leið-
ast fyrir vin sinn í gróðabraskinu
og veit ekki fyrr en hann er orðinn
miðpunkturinn í áformum blaðaút-
gefanda (Morgan Fairchild) og vin-
ar síns, sem kominn er með dollara-
merki í augun, um að gera hann
að Manni níunda áratugarins. Til
hvers eru vinir ef ekki til að græða
á þeim virðist vera mottó Barretts
en Wilson hugsar: Með vini eins og
þessa þarf maður ekki óvini.
Leikaravalið er lítt forvitnilegt,
það er eins og allir leiki aðeins
meira en þeir þurfa og sumir miklu
meira. Miles O’Keeffe, sem lék
Tarzan í samnefndri Bo Derek
mynd, er athyglisvert innlegg í
myndina í hlutverki okrarans Kakt-
us-Jacks, sem lánar Barrett pen-
inga.
Ron Casden hefur hvergi komið
nálægt gerð myndanna „Tootsie",
„Network", „The French Connecti-
on“ °g „The Exorcist" eins og gef-
ið er í skyn í auglýsingu Regn-
bogans. Hann vann hins vegar um
tíma við auglýsingagerð með kvik-
myndatökumanninum Owen Roiz-
man, sem kvikmyndaði áðurnefndar
myndir og fleiri.
Atriði úr kvikmyndinni Hamagangur á heimavist.
NEYTENDUR & KAUPMENN
í SEPTEMBER ER BANNAÐ AÐ SELJA VÖRUR Á
HÆRRA VERÐI EN SÍÐAST VAR í GILDI FYRIR
VERÐSTÖÐVUN.
ÞETTA GILDIR JAFNT UM NÝJAR SEM GAMLAR
VÖRUBIRGÐIR.
VERÐLAGSSTOFNUN