Morgunblaðið - 08.09.1988, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.09.1988, Blaðsíða 39
popt qTfCTM'írpcrqp p prrjn A GTJTMMF5 CTICfArT^TWJDJIOM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988 8B Lmð bréf til útvarps- stjóra Stjörnunnar eftirBraga Jósepsson Ólafur Hauksson, núverandi út- varpsstjóri Stjömunnar og fyrrver- andi ritstjóri Samúels, er hress og kraftmikill karl. Honum hefur á stuttum tíma tekist að gera Stjörn- una að vinsælli og áhrifamikilli út- varpsstöð. Þessa dagana er hann hins vegar í miklu uppnámi vegna þess að Markús Öm Antonsson hefur látið Skáís mæla fyrir sig útvarpshlustun. í þessari mælingu, sem gerð var 25. ágúst sl., kom í ljós að færri einstaklingar hlustuðu á Stjömuna en Bylgjuna. Einnig kom í ljós að hlustendur Rásar 1 og Rásar 2 vom fleiri en ætlað var, skv. könnunum sem Félagsvís- indastofnun hafði áður gert. Ólafur hefur nú skrifað mjög athyglisverða grein í Morgunblaðið, farið á kostum í sjónvarpsviðtali á Stöð 2 og sent út dreifíbréf um aðferðafræði. Gallinn er bara sá að Ólafur Hauksson þekkir hvorki haus né sporð á því sem hann er að tala um. Honum hefði verið í lófa lagið að afla sér upplýsinga hjá starfsmönnum Skáís, sem hafa meiri þekkingu, meiri menntun og lengri starfsreynslu á sviði fjöl- miðlamælinga en starfsmenn ann- arra fyrirtælqa eða stofnana hér á landi. Þessu til staðfestingar skal bent á eftirfarandi staðreyndir um rekst- ur og starfsemi Skáís undanfarin tvö ár: 1. Hjá fyrirtækinu hefur unnið að jafnaði einn fastráðinn starfs- maður, þ.e. ritari. 2. Við skoðanakannanir, fjölmiðla- kannanir og markaðskannanir hafa starfað hjá Skáís nálægt eitt hundrað einstaklingar, flest- ir námsmenn í framhaldsskólum og háskóla. 3. Meðal starfsmanna sem unnið hafa hjá Skáís á umræddu tíma- bili eru eftirtaldir sérfræðingar: tveir tölfræðingar, einn hag- fræðingur, einn félagsfræðingur með próf í aðferðafræði og einn uppeldisfræðingur, einnig með próf í aðferðafræði. Þeir tveir síðastnefndu hafa langa reynslu af skoðanakönnunum. Þessir 5 sérfræðingar hafa allir doktors- próf frá viðurkenndum háskól- um. Auk þess starfar hjá fyrir- tækinu tölvunarfræðingur, sem hefur umsjón með tölvuvinnslu. Bókhald er í höndum bókhalds- fyrirtækis. Frá 1. janúar 1988 hafa eftirfar- andi kannanir verið gerðar á vegum Skáís: — 5 skoðanakannanir um fylgi stjómmálaflokka o.fl. — 4 skoðanakannanir fyrir stjóm- málaflokka og samtök. — 3 kannanir fyrir sveitastjómir. — 2 kannanir fyrir auglýsingastof- ur. — 1 könnun fyrir ráðuneyti og stofnun. — 1 könnun fyrir erlendan inn- flutningsaðila. — 4 markaðskannanir fyrir ísl. fyr- irtæki. — 12 mælingar á sjónvarpsáhorfí fyrir RÚV og Stöð 2. — 3 mælingar á útvarpshlustun fyrir RÚV og Bylgjuna. — 2 tölfræðileg verkefni fyrir fyrir- tæki. Skal ég þá reyna í sem fæstum orðum að skýra nokkur grundvall- aratriði sem útvarpsstjóri Stjöm- unnar hefur ekki skilið. Einnig vænti ég þess að aðrir áhugamenn um fjölmiðlarannsóknir verði ein- hvers vísari. Mælingar Skáís á útvarpshlustun eru byggðar á úrtaki heimila og vinnustaða, þar sem útvarpstæki eru til staðar. Úrtakið er unnið upp úr tveim skrám (þ.e. skrá yfír síma- númer á öllum heimilum og skrá yfír símanúmer á öllum vinnustöð- um). Skrámar em unnar af Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar (SKÝRR) og með heimild tölvunefndar. í úrtak- inu er tekið mið af mannfjölda eft- ir svæðum, þ.e. úrtakið er í sam- ræmi við mannijöldadreifingu á landinu. Af augljósum ástæðum er þetta úrtak ekki leiðrétt fyrir kyni eða aldri eins og úrtök sem Skáís notar við skoðanakannanir, enda beinist mælingin ekki að einstaklingum (það getur verið karl eða kona á Bragi Jósepsson „Skal ég þá reyna í sem fæstum orðum að skýra nokkur grundvallarat- riði sem útvarpsstjóri Stjörnunnar hefur ekki skilið. Einnig vænti ég þess að aðrir áhuga- menn um fjölmiðla- rannsóknir verði ein- hvers vísari.“ mismunandi aldri) heldur að vinnu- staðnum eða heimilinu, og það án tillits til þess, hvort einn eða fímm einstaklingar eru að hlusta á útvarp eða hvort um er að ræða stóran vinnustað með 60 til 100 manns. Þessi aðferð við mælingu á útvarps- hlustun (og einnig sjónvarpsáhorfi) er í fullu samræmi við ábendingar og reynslu AGB-stofnunarinnar í London (stærstu alþjóðlegu rann- sóknarstofnunar í Evrópu á sviði útvarps- og sjónvarpsmælinga). Skáís hefur haft náið samstarf við AGB bæði að því er varðar útvarps- hlustun og sjónvarpsáhorf. Samanburður á þeirri aðferð sem hér er notuð og þeirri aðferð sem Félagsvísindastofnun beitir er vandasamur og einungis á færi manna með mikla reynslu og menntun á sviði fjölmiðlamælinga og aðferðafræði. Staðhæfingar um að aðferð sú sem Skáís beitir sé verri og ekki eins ábyggileg og aðferð Félagsvísindastofnunar eru gjörsamlega út í hött. Samanburður á úrtaki 800 ein- staklinga í könnun Félagsvísinda- stofnunar og úrtaki 190—280 heim- ila og vinnustaða, sem hringt er í á afmörkuðum hálftíma er dæmi um algert þekkingarleysi á þessu máli. I mælingum, eins og þeim sem Skáís framkvæmir, skiptir megin- máli að ná til útvarpshlustenda, þar sem þeir eru raunverulega að hlusta, m.ö.o. að standa þá að verki. Samanburður á reiknuðum skeklqumörkum þessara tveggja aðferða er að sjálfsögðu út í hött ef litið er framhjá öðrum grundvall- armun í aðferðafræði, þ.e.a.s. ann- ars vegar er verið að skrá raun- verulegt ástand, á þeim tíma sem það gerist (útvarpstækið er opið og það er stillt á ákveðna stöð eða það er lokað fyrir tækið), hins vegar er verið að skrá niður, eftir minni, upplýsingar tiltekins einstaklings (var hann að hlusta á útvarpið í gær eða fyrradag milli kl. 7 og 8, milli kl. 8 og 9, milli kl. 9 og 10 o.s.frv.). Það er staðreynd að fólk festir ekki nákvæmlega í minni hvaða útvarpsstöð það var að hlusta á fyrir einum eða tveimur dögum. Vitað er, að skekkja í slíkri mæl- ingu er veruleg. Hve mikil þessi skekkja er verður hins vegar ekki sagt með neinni vissu, enda liggja ekki fyrir neinar rannsóknir eða niðurstöður þar um. Skáís hefúr ekki fengið neinar upplýsingar um að aðferð sú, sem Félagsvísindastofnun beitir sé not- uð annars staðar. Sérfræðingar AGB, sem starfsmenn Skáis hafa unnið með, kannast ekki við að umræddri aðferð sé beitt í þeim 14 löndum, sem stofnunin starfar. Aðferð sú, sem Skáís beitir við mælingu á útvarpshlustun og áhorfí sjónvarps hefur vissulega sínar tak- markanir. Hún hefur hins vegar marga augljósa kosti, sem forsvars- menn sjónvarpsstöðva og útvarps- stöðva eru löngu famir að átta sig á. Höfundur er forstöðumaður Skáís. Ný námskeið! Fyrir börn 12 vikna námskeið fyrir börn 8-12 og 14-16 ára. Enskur leikskóli Morgun- og síðdegishópar Skrifleg enskunámskeið og sérstök framhaldsnámskeið á föstudögum. Allt námsefni innifalið HámarklO nemendurí bekk Fyrir % fullorðna 5 vikna námskeið hefjast 19. og 20. sept. Ath.: Gæsla barna undir skólaaldri á meðan morgun- og síðdegisnámskeið standa yfir. Kvöldnámskeið kl. 18.30 og 20.30. Lifandiog skemmtileg kennsia Viðskiptaenska í hádeginu Sérmenntaðir TEFLkennarar er opinn á kvöldin frá kl. 18:00 þríðjud. til laugard. Hverfisgötu 8—10 pantanasimi 18833 SPEOAL* Ódýrt en best Anda-hnetusúpa Kr. 225,- Rj óma-humarsúpa Kr. Camenbert pasta s^J^með tandoori-jógúrt sósu Kr. Grafsilung^Ós með hunangssósu Kr. 750,- Núðlur með kjúklingastrimlum í hvítlaukssósu Kr. 810,- Steikt hámeri „au gratin“ Kr- 695,- Smokkfiskur í japanskri kryddsósu Skötuselsragout með fersku?<^ilati Kr. Léttsteiktar lundabringur með melónusalati Kr. 695,- Að sjálfsögðu er einnig boðið uppá okkar rómaða „a la carte“. RBSTAURANT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.