Morgunblaðið - 08.09.1988, Blaðsíða 17
8861 siaaMaTqaa .8 .auoagutmmh .aiaAjaMUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988
Bf
17
Ihandknattleikur
Signrður Sveinsson og Auður dóttir hans. Morgunblaðið/Bjarni
Sigurður Sveinsson:
Hætti með landsliðinu
eftir Ólympíuleikana
SIGURÐUR Sveinsson, vinstri-
handarskytta í handboltalands-
liðinu, er með skothörðustu leik-
mönnum í heimi. Það kemur eng-
um á óvart sem séð hefur Sigurð
hleypa af í landsleikjum, en hins
vegar er það öllu undarlegra
þegar til þess er tekið að Sigurð-
ur fór ferða sinna í hjólastól
þegar hann var um fimm ára
gamall. Hver hefði búist við að
hann yrði íþróttamaður á heims-
mælikvarða á þeim árum?
Sigurður hefur leikið erlendis,
bæði í Sviþjóð og nú siðast í
Þýskalandi sem atvinnumaður í
handbolta en á næsta leiktíma-
bili fá islenskir áhorfendur að
njóta snilli hans þegar hann leik-
ur með Valsmönnum. Sigurður
segir hins vegar að hann hætti
að leika með landsliðinu eftir
Ólympiuleikana i Seoul. Hann
segir að það sé kominn timi til
að sinna fjölskyldunni betur en
hann hafi haft tima til að undan-
förnu. Kona Sigurðar er Sigríður
Héðinsdóttir.
Veikindi Sigurðar í æsku bar
fyrst á góma í spjalli á dögunum.
„Ég fékk arfgengan beinasjúk-
Morgunblaðið/Logi Bergmann
Þrumuskot frá Sigga Sveins.
dóm þegar ég var tveggja eða
þriggja ára gamall. Sjúkdómurinn
lýsir sér í því að beinin harðna ekki
almennilega og mjaðmarkúlan varð
fyrir barðinu. Hún er eins og epli
sem bitið hefur verið í. Þetta kemur
til með að ágerast og ætli ég endi
ekki með því að fá mér nýja mjaðm-
arkúlu úr plasti," sagði Sigurður
kæruleysislega.
- Hefur þetta ekki komið nið-
ur á íþróttaferli þinum?
„Nei, nei. Ég fæ stundum bak-
verk, annað er það ekki. Annars
er hægri fóturinn á mér af þessum
sökum tveimur og hálfum sentf-
metrum lengri en sá vinstri - en
það er bara betra upp á stökkkraft-
inn.“
Þegar Sigurður var 18 ára gam-
all fékk hann tilboð um að leika
með sænska liðinu Olympia og lék
hann handbolta þar f eitt ár. Síðan
lá leið hans í Pjölbrautaskólann f
Breiðholti þar sem Sigurður stund-
aði nám í tvö ár. Sigurður var á
þessum tíma með allra bestu leik-
mönnum á íslandi. Hann lék þá
með sínu gamla félagi, Þrótti,
ásamt Páli Ólafssyni og fleiri góðum
mönnum. Þess var ekki langt að
bíða að annað lið sýndi Sigurði
áhuga og 1982 fór hann til Þýska-
lands og lék með Nettelstedt.
„Það var ágætur tími en hins
vegar átti ég í basli með að fá laun-
in greidd. Það endaði líka þannig
að félagið var lýst gjaldþrota. Sfðan
hélt ég til Lemgo og með þeim lék
ég í 5 ár. Ég fékk vinnu við tölvufyr-
irtæki og vann 4 tíma á dag.
Auður dóttir mín fæddist þar, en
minnstu munaði að ég missti af
þeim atburði. Við vorum að spila í
Miinchen og eftir leikinn fórum við
á október-hátíðina. Ég kom heim
klukkan 5 um nóttina og þá lágu
til mín skilaboð um að Sigga væri
farin á sjúkrahúsið. Ég dreif mig
þangað og bamið kom í heiminn
klukkan 6. Ég náði því að taka á
móti hénni en ég segi það alveg
satt, að heilsan var ekki upp á það
besta.“
Þegar Sigurður var spurður um
framtíðaráform sín sagðist hann
lifa fyrir hvem dag í senn og gera
sér litla rellu út af framtíðinni. „En
ég er bjartsýnn á framtfðina þótt
óneitanlega taki það nokkum tíma
að ver\jast íslandi á nýjan leik.“
- GuGu.
Blómamerkja-
sala Hjálp-
ræðishersins
HAFIN er árleg blómamerkja-
sala Hjálpræðishersins. Verða
merkin seld f dag og á morgun.
Blómamerkjasalan er liður f
Qáröflun Hjálpræðishersins. Mun
ágóði sölunnar einkum renna til
styrktar bama- og unglingastarfí
hersins.
infotec
Semffiherrar
reiðubúnir í þína þjónustu-
borgu sig upp ú tveimur
múnuðum og þurfo engo
kuuphcekkun!
Heimilistæki' *
Tæknideild • Sætúni8
SÍMI: 69 15 00
ísanuuk^