Morgunblaðið - 08.09.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988
Ferðaskrifstofa tslands hf. stofnuð:
Oskandí að selja megi
allt hlutafé ríkisins
- segir Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra
FERÐASKRIFSTOFA íslands hf. var stofnuð síðdegis í gær á
fundi hluthafa og starfsmanna Ferðaskrifstofu ríkisins með sam-
gönguráðherra, starfsmönnum ráðuneytisins og fulltrúum Ferða-
málaráðs. Hið nýja félag tekur við rekstri Ferðaskrifstofu ríkis-
ins, sem lögð hefur verið niður, 1. október. Þá verður eignar-
hluti hvers hluthafa ljós en 24 starfsmenn Ferðaskrifstofu ríkisins
hafa undirritað kaupsamning um tvo þríðju hluta í fyrirtækinu.
Stofnfé hlutafélagsins er 21 miUjón króna en þar er um að ræða
eignir Ferðaskrifstofu ríkisins og fylgifé að frádregnum 7,4 milij-
óna skuldum.
Samgönguráðherra, Matthías
Á. Mathiesen, lýsti stofnun hins
nýja hlutafélags í samræmi við lög
frá 20. maí síðastliðnum og las
upp stofnskrá þess á fundinum. í
henni segir meðal annars að
starfsmenn Ferðaskrifstofu ríkis-
ins og hótelstjórar Edduhótela
hafí forkaupsrétt að þeim hluta-
bréfum sem samgönguráðuneyt-
inu er heimilt að selja, fyrir 14
milljónir króna. Einnig að starfs-
mönnum ferðaskrifstofunnar skuli
gefínn kostur á sambærilegum
störfum við hið nýja fyrirtæki.
Samgönguráðherra óskaði Ferða-
skrifstofu íslands góðs gengis og
sagði óskandi að í framtíðinni
mætti selja allt hlutafé ríkisins í
fyrirtækinu.
Kjartan Lárusson, forstjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins, sagði í
ávarpi sínu að stökkið úr lygnum
sjó ríkisgeirans yfír í öldusjó við-
skiptalífsins væri stórt. Hann
þakkaði samstarfsmönnum á
ferðaskrifstofunni, ráðherra og
starfsmönnum samgönguráðu-
neytisins. Líkur benda til að Kjart-
an gegni áfram sama starfí við
hið nýja fyrirtæki.
Aðalstjóm hlutafélagsins var
kosin á fundinum í gærdag en
hana skipa Hreinn Loftsson fyrir
hönd samgönguráðuneytisins,
Auður Birgisdóttir og Ingólfur
Pétursson fyrir hönd nýrra eig-
enda. Þá var kjörin varastjóm
þeirra Ragnhildar Hjaltadóttur,
Emu Þórarinsdóttur og Guðmund-
ar Kristinssonar.
VEÐURHORFUR íDAG, 8. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Skammt suður af Jan Mayen er 1000 mb lægð
og önnur áltka um 300 km suður af Hjörleifshöfða, báðar á hreyf-
ingu norðaustur. Hæðarhryggur yfir Grænlandshafi þokast norður-
átt. Á landinu verður 6—10 stiga hiti, en 10—15 stig að deginum
syöra.
SPÁ: Norðaustangola um allt land. Lítilsháttar súld á annesjum
Norðaustanlands, en víðast kaldi á Suðvesturlandi, annars staðar
skýjað en úrkomulaust.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG: Allhvöss suðaustanátt og víða rígning
um sunnan- og austanvert landiö, en úrkomuminna vestan- og
norðanlands. Hiti 8—12 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Vestan og norðvestanátt, kaldi eða
skinningskaldi, skúrir norðan- og vestanlands, en þurrt og bjart
suðaustan- og austanlands. Hiti 7—9 stig.
VEÐURVÍÐA UMHEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri S alskýjað
Reykjavík 10 léttskýjaó
Bergen 16 rignlng
Helsinki 19 léttskýjað
Kaupmannah. 20 léttskýjaó
Narssarssuaq vantar
Nuuk vantar
Osló 16 hálfskýjað
Stokkhólmur 20 léttskýjað
Þórshöfn 13súld
Algarvo 30 skýjað
Amsterdam 21 léttskýjað
Barcelona 28 heiðskírt
Chlcago 8 helðskfrt
Feneyjar 24 léttskýjað
Frankfurt 20 léttskýjað
Glasgow 18 mlstur
Hamborg 20 iéttskýjað
Las Palmas 26 heiðskfrt
London 26 heiðskfrt
Los Angeles 18 þokumóða
Lúxemborg 19 léttskýjað
Madrfd 36 mlstur
Malaga 28 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Montreal 10 skýjað
New York vantar
París 24 heiðskfrt
Róm 28 hálfskýjað
San Diego 21 alskýjað
Whmipeg 15 léttskýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra óskar Kjartani Lárussyni
til hamingju með nýtt hlutafélag en á milli þeirra stendur Birgir
Þorgilsson ferðamálastjórí.
Malshöfðun í Skagafirði:
Ábúandi telur sig
eiga fullvirðisrétt
BÓNDI í Skagafirði hefur höfðað mál til að fá það viðurkennt að
allur fullvirðisréttur jarðar þeirrar, sem hann er ábúandi á, tilheyrí
honum, en ekki eiganda jarðarinnar. Bendir bóndinn á að jörðin hafi
veríð í eyði er hann tók við henni og fullvirðisrétturinn eingöngu
skapast af vinnu hans, en ekki framlagi jarðareiganda. Bóndinn ráð-
gerir nú að hefja búskap á eigin jörð og telur höfuðnauðsyn að hann
geti flutt núverandi fullvirðisrétt
Tildrög máls þessa eru þau að
bóndinn, Sigurður Steingrímsson,
hóf ábúð á jörðinni Ysta-Mó í Haga-
neshreppi árið 1977. Þá hafði engin
búvöruframleiðsla verið á jörðinni í
eitt ár. Sumarið 1977 heyjaði Sig-
urður á jörðinni eftir því sem aðstæð-
ur leyfðu, en heyjaði jafnframt á
jörð þeirri sem hann var að flytja
frá. I stefnu málsins er bent á, að
árið 1977 er mjólkurframleiðsla á
Ysta-Mó talin vera rúmir 103 þúsund
lítrar, en sú framleiðsla fór að lang-
mestu leyti fram á þeirri jörð er
Sveit vaktar
stöðumæla
MIKIL brögð hafa verið að því í
Reykjavík undanfaríð að stöðu-
mælar hafa verið skornir af uppi-
stöðum og stolið. Vegna þessa
hefur borgin, í samráði við lög-
regluna, komið á fót sérstakrí
vaktsveit til að koma f veg fyrir
frekarí skemmdarverk af þessu
tagi.
Þetta kemur fram í frétt frá gat-
namálastjóra. Þar segir að um 80
stöðumælum hafí verið stolið til þess
að reyna að ná úr þeim peningum,
en eftir litlu sé að slægjast, þar sem
mælamir séu tæmdir daglega.
Kostnaður Reykjavíkurborgar við
uppsetningu og endumýjun mæla
vegna skemmdarverka þessara er á
bilinu ein til tvær milljónir króna.
Því hefur verið ákveðið að koma á
fót sérstakri sveit, sem fylgist með
mannaferðum við mælana. Til sama
bragðs var gripið sfðasta sumar,
þegar skemmdir á mælum vom al-
gengar.
með sér eða selt hann.
Sigurður bjó áður á, þar sem hann
flutti ekki bústofn sinn á Ysta-Mó
fyiT en í október 1977.
í stefnunni segir að þar sem bú-
vöruframleiðslu á jörðinni var hætt
1975 og var engin 1976 hefði ekki
verið hægt að miða búmark nema
út frá framleiðslu Sigurðar á jörð-
inni árið 1978, þar sem framleiðsla
ársins 1977 fór að langmestu leyti
fram á annarri jörð. Telur Sigurður
bóndi því að eigendur jarðarinnar
hafí ekki lagt neinn grunn að þeim
fullvirðisrétti til mjólkur- og kinda-
kjötsframleiðslu, sem nú er á jörð-
inni. í þessu tilviki sé fullvirðis- og
framleiðslurétturinn alls ekki hluti
hins stjómarskrárvemdaða eignar-
réttar jarðeiganda, heldur eins og
málið sé vaxið sjálfstæður réttur
framleiðandans og verðmæti sem
alfarið tilheyri honum og flölskyldu
hans. Áunninn fullvirðisréttur í land-
búnaði sé atvinnuréttur sem tilheyri
þeim, sem hann hefur skapað.
Sigurður hefur nú höfðað mál á
hendur eigendum jarðarinnar, hluta-
félaginu Ysta-Mó, sem er í eigu
nokkurra einstaklinga. Hann gerir
þær kröfur að viðurkennt verði að
allur fullvirðisréttur jarðarinnar til-
heyri sér. Til vara krefst hann að
staðfest verði með dómi að honum
tilheyri ákveðin hlutdeild í fullvirðis-
réttinum og til þrautavara að eig-
andi jarðarinnar greiði sér rúmar
2,5 milljónir, sem er 70% af kaup-
verði fullvirðisréttarins. Þá stefnir
bóndi einnig framleiðnisjóði land-
búnaðarins til réttargæslu, en gerir
ekki dómkröfur á hendur sjóðnum.
Málið verður tekið fyrir hjá sýslu-
manni Skagafjarðarsýslu á Sauðár-
króki.
Fengu bíla að
láni næturlangt
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
nýveríð upplýst mál tveggja 18
ára pilta sem játað hafa stuld á
fjórum bilum. Lyklar höfðu veríð
skildir eftir í bflunum og vissu
eigendur ekki að bilamir höfðu
verið fengnir að „láni".
Piltamir höfðu þann hátt á að
þeir gengu að kvöldlagi, oftast ölv-
aðir, um bílastæði við fjölfamar göt-
ur og leituðu að bílum þar sem ly-
klar höfðu verið skildir eftir í kveikj-
ulás. Þremur bílanna óku þeir víðs
vegar um bæinn og skiluðu þeim
aftur á fyrri stað. Urðu eigendurnir
aldrei varir við að bílar þeirra höfðu ur
larþe
i“. Ifi
verið fengnir að „láni“. í fjórða skip-
tið varð lögreglan á vegi piltanna
og hugðist hafa af þeim tal. Piltam-
ir voru þá ölvaðir og ekki á því að
ræða við iögreglu. Þeir reyndu að
komast undan en lentu í árekstri við
bíl lögreglumannanna.
Að sögn lögreglu hefur undanfar-
ið verið mikið um að bílum sé stolið
eftir að eigendur þeirra hafa í kæru-
leysi skilið eftir í þeim lykla. Hörmu-
legt slys varð á Skúlagötu í vor eft-
ir að ölvaður maður komst yfír bíl
með þessum hætti. Annað slys varð
á Austurbrún í fyrri viku er innbrots-
þjófur fékk bíl „að láni" meðan eig-
andinn fylgdist með slökkviliði að
störfum og um svipað leyti tók ölvað-
maður jeppa traustataki við
Kringluna og ienti á honum í árekstri
í miðbænum.