Morgunblaðið - 15.10.1988, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
A ugnablik
E ilífðarinnar
Laura Biagiotti
ROMA
P a r f u m s
CLARA Laugav.
NANA Fellag.
HYGEA Austurstr.
ANDORRA Hafnarf.
APÓTEK KEFLAVÍKUR
CLARA Krlnglunni
NANA Hólag.
TOPPTÍSKAN Aðalstr.
HOLTS APÓTEK
KRISMA ísafirði
HILMA Húsavík
Ódýrar
RAFMAGNS-
TALfUR
100kg-200kg.
fyrirvörulagera,
vericstæói,
byggingaverktaka,
bændurogfleiri.
Egumeinnig
fyririiggjandi:
Mótahreinsi vélar.
Steypuhrærivélar.
Rafstöðvar.
Flísasagir.
Ijoftþjöppur.
Verkstæðiskrana.
SALA-SALA-SALA-SALA
LEIGA-LEIGA-LEIGA-LEIGA
VÉLA- OG PALLALEIGAN
Sími687160.
Fosshálsi 27,
Reykjavík.
Nýir íslenskir
skrautveggir
á sýningu
sem
818.
20%
kynningarafsiáttur
um helgina
Idag ogámorgun frá kl.
14-18 verður sýning á THB
skilrúmum í Smiðsbúð 12 í
Garðabæ.
Hér er um að ræöa hilluveggi. skápa-
veggi. glerveggi og skrifstofuveggi.
Þetta eru skilrúm sem ýmist halda eða
brjóta sjónlinu i vistarveru. opin eða
lokuð.
Framleiðslan hentar sem skilrúm eða
skrautveggir, t.d. á milli eidhúss og
stofu eða gangs, þar sem stóru rými
er skipt niður, einnig i skrifstofur o.fl.
Morgunblaðið ÍW aldimar Kristinsson
Nýkjörin stjórn íþróttaráðs LH, fremri röð frá vinstri Hafliði Gísla-
son, Pétur Jökull formaður og Lísbet Sæmundsson, í aftari röð
Guðmundur Sveinsson, Jens Óli Jespersen, Guðmundur Einarsson
og Trausti Þór Guðmundsson.
11. Arsþing íþróttaráðs LH í Mosfellsbæ:
Pétur Jökull hlaut góða
kosningu á flölmennu þingi
_______Hestar_____________
Valdimar Kristinsson
Fjölmennasta ársþing íþrótta-
ráðs Landssambands hesta-
mannafélaga var haldið í Mos-
fellsbæ sl. laugardag þar sem
saman komu 91 fulltrúi íþrótta-
deilda víðsvegar að af landinu.
Nokkurrar spennu gætti fyrir
þingið þar sem vitað var að
Hallgrímur Jóhannesson úr
Keflavík myndi gefa kost á sér
í formannskjör á móti Pétri Jökli
Hákonarsyni. Var búist við
spennandi kosningum miili
þeirra.
Stuðningsmenn Hallgríms töldu
nokkuð líklegt að hann næði kjöri
sem þó fór á annan veg því Pétur
hlaut 54 atkvæði á móti 28 atkvæð-
um Hallgríms. Meðstjómendur voru
kjömir þau Lísbet Sæmundsson,
Trausti Þór Guðmundsson, Hafliði
Gíslason og Guðmundur Sveinsson.
í varastjóm vora kjömir þeir Jens
Óli Jespersen og Guðmundur Ein-
arsson. Athugasemd var gerð við
kosningu meðstjómenda þar sem
kosið var um fjögur sæti, en ýmsir
töldu að með réttu ætti að kjósa
um tvær stöður eins og tíðkast hef-
ur á undanfömum þingum. Guð-
mundur Jónsson, annar tveggja
þingforseta, stóð á því fastar en
fótunum að kjósa ætti um fjórar
stöður og las hann upp úr lögum
íþróttaráðs fyrir þingheim máli sínu
til stuðnings. Eftir þetta vaknaði
sú spuming hvers vegna kosningum
hafí verið háttað á annan veg und-
anfarin ár, en ekki fékkst við-
hlítandi svar á þinginu.
Fjórir gestir fluttu erindi um
ýmis mál viðkomandi hestaíþrótt-
um. Hæst bar að sjálfsögðu erindi
Sigurðar Magnússonar fram-
kvæmdastjóra ISI, en hann fræddi
menn um uppbyggingu íþrótta-
hreyfingarinnar í landinu og einnig
gerði hann grein fyrir hvað liði
stofnun sérsambands hestaíþrótta-
manna. Sem kunnugt er var fyrir-
hugað að sérsambandið yrði stofnað
fyrri hluta þessa árs. Sagði Sigurð-
ur ástæðumar fyrir þessum seina-
gangi einkum tvær, í fyrsta lagi
seinagangur hjá mörgum héraðs-
og ungmennasamböndum og það
missætti sem ríkt hefur meðal
hestamanna og átti hann þar við
úrsögn Eyfirðinga úr LH, og ailt
sem því hefur fylgt. Kári Amórsson
stjómarmaður í LH gerði grein fyr-
ir breytingum á keppnisreglum
FEIF (Evrópusamband eigenda
íslenskra hestaeigenda) sem sam-
þykktar voru á aðalfundi sambands-
ins. Þá gerði Sigurður Ragnarsson
varaforseti FEIF grein fyrir störf-
um stjómar samtakanna og ýmsum
málum viðkomandi þeim. Að
síðustu flutti Helgi Sigurðsson
dýralæknir erindi um fótaskoðun,
en hann sá um fótaskoðun á Is-
landsmótinu í sumar. Lagði Helgi
til að gerðar yrðu ýmsar breytingar
á reglum um fótabúnað, en hann
taldi þær ekki nógu aðgengilegar
til að vinna eftir.
Af þeim tillögum sem samþykkt-
ar voru má nefna að lágmarksstig
til þátttöku í íslandsmótum vom
afnumin, einnig var ákveðið að 150
og 250 metra skeið skyldu ekki
tekin inn sem fullgildar greinar á
íslandsmótum sem reiknaðar yrðu
með í stigasöfnun, heldur skyldu
áfram vera aukagreinar og verði
það í valdi framkvæmdaaðila mót-
anna hveiju sinni hvort önnur hvor
greinin verði með í dagskrá.
íþróttadeild Harðar, sem sá um
þinghaldið að þessu sinni, bauð
fram mótssvæði sitt fyrir úrtökuna
fyrir heimsmeistarakeppnina næsta
sumar og var samþykkt að þiggja
boðið. Þá var og samþykkt að þeir
sem tækju þátt í mótum fyrir ís-
lands hönd yrðu að hafa íslenskan
ríkisborgararétt sem þýðir að aðeins
íslenskir ríkisborgarar verði gjald-
gengir í úrtökunni. Þá var sam-
þykkt að auka vægi gæðingaskeiðs-
ins úr 100 stigum í 120 stig til jafns
við töltkeppnina og ennfremur var
samþykkt að leyfa písk á nýjan leik
í gæðingaskeiðinu. I úrslitum hindr-
unarstökks verða nú reiknuð tvö
refsistig fyrir hveija fellda hindmn
en áður gilti tímataka eingöngu.
Á síðasta ársþingi íþróttaráðs LH
sem haldið var á Húsavík var sam-
þykkt að leggja íþróttaráð LH niður
þegar til stofnunar sérsambandsins
kæmi og má ætla að sú ákvörðun
standi. Hinsvegar hefur sú spuming
vaknað hvort ekki verði að bera
slíka samþykkt undir ársþing LH
þar sem íþróttaráð var á sínum tíma
stofnað af LH og hefur starfað alla
tíð undir yfírstjóm þess. Ársþing
LH verður haldið dagana 4. og 5.
nóvember og kemur þá í ljós hvort
samþykkt íþróttaráðs verður borin
þar undir þingheim. Þá má minna
á aðra samþykkt frá þinginu á
Húsavík þar sem stjóm íþróttaráðs
var falið að leggja fram tillögu um
samræmingu á fótbúnaðarreglum
sem gilda í gæðingakeppni og
hestaíþróttum. I því felst að heimilt
verði að nota tíu millimetra skeifur
án plasts í gæðingakeppni eins og
leyfilegt er í íþróttakeppni.
Greinilegt er að hestaíþróttir era
í mikilli uppsveiflu ef marka má
góða þátttöku á þessu þingi og eins
metþátttöku á Islandsmótinu sem
haldið var í Mosfellsbæ í sumar.
íþróttadeildum hefur fjölgað vera-
lega og má vafalaust þakka það
inngöngu hestamanna í íþróttasarrt-
tökin.