Morgunblaðið - 15.10.1988, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
Ritstjóraskípti hjá
Frjálsu fratntaki hf.
RITSTJÓRASKIPTI hafa orðið á
tveimur tímaritum sem útgáfu-
fyrirtækið Frjálst framtak hf
gefúr út: Fijálsri verslun og
Sjónvarpsvísi Stöðvár 2. Kjartan
Stefánsson sem verið hefúr rit-
stjóri Frjálsrar verslunar frá
ársbyijun 1986 lætur af því starfi
Brutu rúðu og
kveiktu í bfl
BROTIST var inn í rauðan Volvo
og kveikt í honum við Kapla-
skjólsveg 11 aðfararnótt laugar-
dagsins. Bíllinn er talinn gjöró-
nýtur.
Bfllinn stóð fyrir utan húsið og
varð eigandinn einskis var fyrr en
að morgni föstudagsins er hann sá
að hliðarrúða hafði verið brotin og
kveikt í bflnum. Mælaborð, stýrir-
hjól og sæti og innréttingar voru
brunnin til ösku. Ekkert er vitað
um þá sem þarna voru að verki en
vitni sem gefið gætu upplýsingar
um málið eru beðin að snúa sér til
Rannsóknarlögreglunnar.
og við tekur Helgi Magnússon
viðskiptafræðingur.
Helgi Magnússon útskrifaðist frá
Viðskiptadeild Háskóla íslands vor-
ið 1974 og löggiltur endurskoðandi
varð hann vorið 1976. Á árunum
1976-1986 rak Helgi eigin endur- .
skoðunarskrifstofu í Reykjavík, en
síðasta hálfa annað árið hefur hann
gegnt forstjórastöðu hjá Ferðaskrif-
stofunni Útsýn.
Kjartan Stefánsson tekur við rit-
stjórn Sjónvarpsvísis Stöðvar 2 af
Steinari J. Lúðvíkssyni aðairitstjóra
Fijáls framtaks sem gegnt hafði
ritstjórastöðu frá því Fijálst fram-
tak tók við rekstri tímaritsins á
miðju síðastliðnu sumri. Kjartan á
að baki langan feril í blaða-
mennsku. Hann var um tíma frétta-
stjóri dagblaðsins Vísis, um tíma
var Kjartan blaðafulltrúi Verslunar-
ráðs íslands og sem fyrr greinir
varð hann ritsyóri Fijálsrar versl-
unar í ársbyijuh 1986.
Meðritstjóri Kjartans að Sjón-
varpsvísi Stöðvar 2 er Sighvatur
Blöndahl markaðsstjóri Stöðvar 2
en ritstjómarfulltrúi blaðsins er
Þorsteinn G. Gunnarsson. Ritstjóm-
arfulltrúi Fijálsrar verslunar er
Valþór Hlöðversson.
Nefiid Qallar um efl-
ingu Ríkisútvarpsins
Menntamálaráðherra hefúr
ákveðið að setja á fót starfsnefnd
til að gera tillögur um efiingu
Ríkisútvarpsins og kanna stöðu
þess sem hér segir:
1. Hvemig verður núverandi
flárhagsvandi Ríkisútvarpsins
leystur á afgerandi hátt?
2. Hvemig verður Qárhagur
Ríkisútvarpsins best tryggður til
frambúðar?
3. Hvert á að vera hlutverk
Ríkisútvarpsins með hliðsjón af
breyttri fjölmiðlalöggjöf og breyt-
ingum innan Ríkisútvarpsins á
síðustu árum?
4. í hveijum mæli verður sjálf-
stæði Ríkisútvarpsins eflt, í þágu
hverra og með hvaða markmið?
Nefndin á rétt á öllum nauðsyn-
legum upplýsingum. Nefndin skal
hafa lokið störfum fyrir lok nóv-
embermánaðar nk.
í nefndinni eiga sæti Amþrúður
Karlsdóttir fjölmiðlafræðingur, Eið-
ur Guðnason aiþingismaður, Ema
Indriðadóttir, svæðissljóri Rflrisút-
varpsins á Akureyri, Hörður Vil-
hjálmsson, Qármálastjóri Rfkisút-
varpsins, og Ögmundur Jónasson,
formaður Starfsmannafélags Sjón-
varps, og er hann formaður nefnd-
arinnar. Með nefndinni starfar enn-
fremur Þórhalldur Arason, skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneytinu.
# Morgunblaðið/Sverrir
Fjöldi gesta var viðstaddur á hátíðarfundi sem haldinn var í tilefoi af fímmtíu ára afaiæli SÍBS í
gær, og var forseti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir á meðal þeirra.
Hátíðardagskrá í tilefiii
af 50 ára aftnæli SÍBS
FIMMTÍU ára afinælis Sambands íslenskra berklasjúklinga var
minnst með hátíðardagskrá í Súlnasal Hótel Sögu í gær að viðstödd-
um forseta íslands, frú Vigdisi Finnbogadóttur. Fjöldi gesta var
viðstaddur hátiðarfúndinn og bárust SIBS margar gjafir f tilefni
afinælisins.
Hátíðardagskráin hófst með því
að blásarakvintett undir stjóm
Lárusar Sveinssonar lék, en að því
loknu voru flutt ávörp, og Oddur
Ólafsson fyrrverandi yfirlæknir og
alþingismaður greindi frá nokkrum
þáttum úr sögu SÍBS.
Kjartan Guðnason formaður
SÍBS gerði í ávarpi sínu á hátí-
ðarfundinum grein fyrir aðdrag-
andanum að stofnun SÍBS og
helstu sigmm sem hefðu unnist í
viðburðaríkri sögu samtakanna.
Færði hann síðan forseta íslands
fyrsta eintakið af bók sem Gils
Guðmundsson rithöfundur hefur
ekrifað um sögu SÍBS og út kom
í gær.
Guðmundur Bjamason heil-
brigðisráðherra gat þess I ávarpi
sínu að undanfarin fimmtíu ár
væru einhver mesti umbreytin-
gatími í heilbrigðismálum á ís-
landi. Benti hann á að uppbygging
vinnuheimilisins að Reykjalundi
hefði verið ótrúlega hröð, og eftir
því sem berklasjúklingum hefði
fækkað hér á landi hefði önnur
starfsemi Reykjalundar eflst, og
gegndi staðurinn nú tviþættu hlut-
verki. Annarsvegar væri þar rekin
fullkomnasta endurhæfingastöð
landsins, en hins vegar væri stað-
urinn miðstöð heilbrigðisþjónustu
í Mpsfellsbæ, auk þess sem þar
væri rekinn stóriðnaður. Nýjasti
þátturinn í starfsemi Reykjalundar
væri endurhæfing hjartasjúklinga,
en í rauninni mætti segja að hjarta-
sjúkdómar væru faraldur dagsins
í dag og væru nú í svipuðu sæti
hvað dánarorsakir varðar og ber-
klar voru áður. Sagði heilbrigðis-
ráðherra að undanfarið hafi staðið
yfir viðræður við forráðamenn
Reykjalundar um að þar rísi annað
af tveimur sambýlum fyrir mjög
fatlaða einstaklinga hér á landi,
en starfsemi SÍBS hefði allt frá
stofnun samtakanna aðlagast nýj-
um og breyttum aðstæðum og leit-
ast við að taka á þeim vanda sem
brýnastur væri hveiju sinni, og þá
ætíð í fullri samvinnu við stjóm
heilbrigðismála hveiju sinni.
Þing SÍBS verður haldið á
Reykjalundi nú um helgina.
Ríkisstjómin er ákveðin í að
leysa vanda fiskeldisstöðva
- segir forsætisráðherra
„RÍKISSTJÓRNIN er ákveðin I
að leysa gífurlegan rekstrar- og
afurðalánavanda fiskeldisstöðva.
Skipuð hefúr verið nefnd til að
gera tillögur um leiðir til þess
og hún á að skila tillögum sinum
innan tveggja vikna,“ sagði
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, í samtali við
Morgunblaðið. Fulltrúar fiskeld-
isfyrirtækja, banka og Qárfest-
ingalánasjóða voru boðaðir á
fúnd forsætisráðherra á fimmtu-
daginn og sagði hann að fúndur-
inn hefði verið nyög gagnlegur.
í fréttatilkynningu frá land-
búnaðarráðuneytinu segir að ráðu-
Samband íslenskra viðskiptabanka:
Útreikningar FII um vexti sagðir
rangir og tulkun talna ámælisverð
Morgunblaðinu barst í gær eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
Sambandi íslenskra viðskipta-
banka:
Samband íslenskra viðskipta-
banka vill vegna fréttaflutnings, sem
ættaður er frá Félagi ísienskra iðn-
rekenda og Verslunarráði um vaxta-
kjör viðskiptavíxla, taka eftirfarandi
fram:
1. Þær tölur sem gefnar eru upp
um raunvexti af viðskiptavixlum eru
rangar svo munar í sumum tilfellum
tug prósenta. Þegar lagt er upp með
rangar forsendur verður niðurstaðan
að g'álfsögðu röng.
2. Þegar einstökum bönkum barst
bréf Félags íslenskra iðnrekenda
voru þegar gerðar athugasemdir við
þessa útreikninga. Var það skilning-
ur bankanna að ekki yrði hlaupið
með þessar tölur í íjiilmiðla fyrr en
farið hefði verið ýfir útreikninga og
villur lagfærðar. Félag íslenskra iðn-
rekenda virðist hinsvegar hafa talið
það þjóna betur hagsmunum sínum
að þyrla upp moldviðri um þetta
mál þótt þeim hefði mátt vera ljóst
af samtölum við bankana að útreikn-
ingar væru rangir. Samband
íslenskra viðskiptabanka sem fengið
hefúr þetta mál formlega til um-
fjöllunar með bréfi viðskiptaráð-
herra, harmar þetta frumhlaup Fé-
lags íslenskra iðnrekenda. Það er
ámælisvert að stór samtök skuli við-
hafa svo óábyrgan málflutning.
Mikilvægt er að samskipti bank-
anna við hin ýmsu samtök atvinnu-
lífsins séu byggð á gagnkvæmu
trausti. í þessu máli sem og öðrum
er það grundvallaratriði að hafa það
sem sannara reynist.
3. Auk þess sem útreikningar eru
rangir er túlkun talnanna ámælis-
verð. Ávöxtun á viðskiptavíxlum
með öllum kostnaði er borin saman
við vexti af öðrum lánaformum án
kostnaðar og lántökugjalda.
4. Samanburður milli banka er
einnig vandasamur. Sumir bankar
kaupa víxla af þriðja aðila á gengi,
en inn í því gengi er allur kostnað-
ur. Skiptir þá hvorki tímalengd víxils
eða upphæð máli. Aðrir kaupa víxla
með hefðbundnum hætti og reikna
sérstaklega vexti og kostnað. Þama
getur verið mikill mismunur á, allt
eftir tímalengd og upphæð víxils.
5. Vilji menn á annað borð afla
sér réttra upplýsinga má benda á
útreikninga sem Seðlabanki gerir og
finna má á viðskiptasíðum dagblað-
anna.
6. Þá vill Samband íslenskra við-
skiptabanka mótmæla þeim stað-
hæfingum sem fram komu á ljöl-
miðlafundi Félags íslenskra iðnrek-
enda og Verslunarráðs að íslenskt
bankakerfi sé svo óhóflega dýrt í
rekstri að það hamli lækkun vaxta
og kostnaðar. Satnband íslenskra
viðskiptabanka er út af fyrir sig
sammála um að auka megi hag-
kvæmni í bankakerfinu sem og í
öðrum greinum atvinnulífs. Umræð-
ur og aðgerðir í þá veru hljóta þó
að byggjast á tölulegum staðreynd-
um og athugunum en ekki á órök-
studdum yfírlýsingum á fjölmiðla-
fundum.
Virðingarfyllst,
f.h. Sambands íslenskra
viðskiptabanka,
Stefán Pálsson.
neytið hafi, í samráði við forsætis-
ráðuneytið, ákveðið að skipa starfs-
hóp til að gera tillögur um hvemig
leyst verði úr þeim alvarlega rekstr-
arfjárskorti sem fiskeldi standi
frammi fyrir vegna takmarkaðra
möguleika greinarinnar á að fá veitt
afúrða- og rekstrarlán.
Starfshópinn skipa Guðmundur
G. Þórarinsson, formaður Lands-
sambands fiskeldis- og hafbeitar-
stöðva, Össur Skarphéðinsson, fisk-
eldisfræðingur, og Guðmundur Sig-
þórsson, skrifstofustjóri í land-
búnaðarráðuneytinu en hann er
jafnframt formaður starfshópsins.
„Ég sé enga aðra lausn á vanda
fiskeldisstöðvanna en að þær fái
hærri afurðalán," sagði Friðrik Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands fískeldis- og hafbeitar-
stöðva. „Bankamir em hins vegar
tregir að lána stöðvunum meira því
þeir telja sig ekki hafa nægileg
veð. Því þarf ríkið trúlega að
ábyrgjast endurgreiðslu ákveðins
hluta af afurðalánunum.
Það em 70 til 80 fískeldisfyrir-
tæki í landinu en einungis 32 þeirra
fá afurðalán. Flest þessara 32 fyrir-
tækja fá afurðalán sem em 37,5%
af vátryggingaverðmæti en örfá
þeirra fá 50%. Fyrirtækin þurfa
hins vegar að fá 65 til 75% afurða-
Ián til að þau hafi fyrir kostnaði
og lánin þurfa að hækka um 25%
að meðaltali. Lausafjárstaða fyrir-
tækjanna er mjög slæm og þau em
mörg hver í vandræðum með launa-
greiðslur. Ég geri mér hins vegar
vonir um að þegar í desember næst-
komandi verði bankamir famir að
veita hærri afurðalán," sagði Frið-
rik Sigurðsson.