Morgunblaðið - 15.10.1988, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
27
Margaret Thatcher slítur flokksþingi:
Ihaldsflokkurimi mynd-
ar nú þungamiðjuna í
breskum sljórnmálum
Brighton. Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Breta og leiðtogi íhalds-
flokksins, flutti lokaræðuna á ársþingi flokksins í Brighton í gær
og lýsti þar stefhumiðum næsta áratugar. Þetta var tíunda flokks-
þingið sem haldið er síðan Ihaldsflokkurinn náði völdum í Bretlandi
undir forystu Thatcher. Sagði hún, að íhaldsmenn mynduðu nú
þungamiðjuna i breskum stjómmálum. „Okkur hefúr verið treyst
til að leiða Bretland inn á lokatug aldarinnar og kannski lengur,"
sagði forsætisráðherrann. Að ræðunni lokinni risu fundarmenn úr
sætum og hylltu leiðtoga sinn með dynjandi lófataki er stóð í átta
mínútur.
Forsætisráðherrann sagði, að
undir forystu hennar hefðu Bretar
öðlast meira einstaklingsfrelsi, betri
lífskjör og meiri félagslega ábyrgð
sem „veitir einstaklingnum meiri
sjálfsvirðingu og styrkir þannig
samfélagið." Hún réðst harkalega
á þann málflutning talsmanna
Verkamannaflokksins, að ríkis-
syóm íhaldsflokksins hefði sett
græðgi og eiginhagsmuni í önd-
vegi. „Það er löngu tímabært að
eitthvað af því sem við höfum gert
sé metið að verðleikum. . . meiri
velmegun hefur ekki ýtt undir sér-
gæsku í þjóðfélaginu heldur ör-
læti.“ Hún lagði áherslu á, að auk-
ið frelsi einstaklingsins hefði í för
með sér ábyrgð og skuldbindingar,
í fyrsta lagi gagnvart flölskyld-
unni, í öðru lagi gagnvart nágrönn-
um og í þriðja lagi gagnvart þjóð-
inni allri.
Thatcher var klukkustund að
flytja ræðuna og varð oft að gera
hlé á máli sínu, á meðan fundar-
menn klöppuðu henni lof í lófa.
Bestar undirtektir fékk hún þegar
hún þakkaði víkingasveitinni SAS
fyrir að „sýna það hugrekki að fara
til Gíbraltar" en þar réðu menn úr
sveitinni niðurlögum irskra hryðju-
verkamanna fyrr á árinu og í
síðasta mánuði fóra fulltrúar sveit-
arinnar þangað til að bera vitni í
málaferlum vegna verknaðarins.
Var niðurstaða dómstólsins sú, að
aðgerðir S AS hefðu verið lögmætar.
Sagði forsætisráðherrann að
ríkisstjóm hennar myndi aldrei gef-
ast upp fyrir írska lýðveldishemum.
„Um allan heim ógna hryðjuverka-
menn frelsi. Þeirri ógn er aldrei
Reuter
Margaret Thatcher við lok ræðu
sinnar á flokksþingi íhaldsmanna
í gær, þegar fúndarmenn fögn-
uðu henni.
unnt að mæta með friðmælum.
Gefist menn upp fyrir hryðjuverka-
mönnum era þeir aðeins að ýta
undir fleiri hryðjuverk," sagði
Thatcher.
Afstaðan til EB
í ræðunni sagði Thatcher að
stjóm sín myndi leggja ríka áherslu
á umhverfisvemd. Hún vildi öflugt
Atlantshafsbandalag og náið sam-
starf við Bandaríkin og væri ein-
dregið fylgjandi evrópskri sam-
vinnu. Endurtók hún gagnrýni á
Evrópubandalagið, sem hún lét í
ljós í ræðu í Bragge í Belgíu fyrir
skömmu. Andmælti hugmyndum
um miðstýringu og reglugerðafarg-
an í nafni Evrópubandalagsins, sem
hún sagði að væri afturhvarf til
„lamandi áhrifa sósíalismans."
Bretar vildu, sagði hún, sjá „Evrópu
með sem mestu athafnafrelsi. Við
eram trú hinni sönnu Evrópuhug-
sjón.“
Hún taldi að stjóm sín hefði stað-
ið sig vel í efnahagsmálum og lýsti
stuðningi við þá ákvörðun Nigels
Lawsons, fjármálaráðherra, að
hækka vexti. Hún sneri sér að Law-
son og bætti við: „Það er aldrei
vinsælt að hækka þá — nema
kannski hjá sparifjáreigendum —
en hvort sem það er vinsælt eða
ekki þá hefur fjármálaráðherrann
gert hið eina rétta." Fyrr á þessu
ári greindi þau Thatcher og Lawson
á um ákvatðanir í efnahagsmálum.
Skömmu áður en hún flutti ræðu
sína í gær var frá því skýrt, að
verðbóiga væri nú meiri í Bretlandi
en nokkra sinni undanfarin sex ár
eða 5,9% á ári. Thatcher sagði: „Of
miklar lántökur hafa einnig haft í
för með sér, að verðbólga er of
mikil núna. En þið þurfið ekki að
vera í neinum vafa. Við ætlum að
ná verðbólgunni niður aftur.“
Hrósaði Reagan
Þegar hún ræddi samskipti aust-
urs og vesturs og vamarmál sagði
forsætisráðherrann: „Frelsi er að
festa rætur víðar um heim allan,
kommúnismi er á undanhaldi. Lýð-
ræði og fijálst framtak sýna að
aðeins í krafti þeirra er unnt að
fullnægja raunveralegum þörfum
fólks."
Thatcher fór lofsamlegum orðum
um Ronald Reagan, Bandarílqafor-
seta, og hrósaði honum sérstaklega
fyrir að endurreisa „styrk og sjálf-
straust Vesturlanda" og bætti við
og vísaði augljóslega til sjálfrar sín:
„En ýmsir lögðu honum að vísu
dálítið lið.“ Og hún sagði: „Það er
lífsnauðsynlegt fyrir Breta og
Bandaríkjamenn að standa ávallt
saman. Næsti forseti Bandaríkja-
manna getur þannig einnig litið á
Breta sem traustan bandamann.“
Nóbelsverðlaunahafínn Naguib Mahfouz:
Viðurkenning á bókmennt-
um og menningu araba
Höfðu stjórnmál áhrif á valið?
Bahrein, Stokkhólmi. Reuter.
Rithöfúndar og bókmenntagagnrýnendur í arabaheiminum
fögnuðu því almennt í gær að egypski skáldsagnahöfúndurinn
Naguib Mahfouz skyldi hfjóta bókmenntaverðlaun Nóbels í ár.
Flestir sögðu valið viðurkenningu á því að bókmenntir araba jöfii-
uðust á við það besta í heimsbókmenntum nútímans en þó veltu
nokkrír því fyrír sér hvort stjóramál hefðu halt áhrif á val
sænsku bókmenntaakademíunnar.
Jórdanski rithöfundurinn og
gagnrýnandinn Khaled al-Karaki
sagði að valið á Mahfouz væri
stórviðburður. „Við teljum að slíkt
val hljóti fyrst og fremst að vera
viðurkenning á bókmenntum
araba,“ bætti hann við. Hani al-
Amad, ráðuneytisstjóri menning-
arráðuneytis Jórdaníu, sagði að
Mahfouz ætti að hafa fengið verð-
launin fyrir tuttugu áram. „Verð-
launin era virðingarvottur við
verk hans og sanna arabíska
menningu. Hann hefur ratt braut-
ina og margir arabar munu feta
í fótspor hans,“ sagði al-Amad í
samtali við fréttaritara Reuters.
Abdul-Ruhman Yaghi, sem
kennir nútímabókmenntir við
Jórdaníu-háskóla, fór lofsamleg-
um orðum um verk Mahfouz en
velti því þó fyrir sér hvað lægi
að baki valinu. „Við teljum enn
að verðlaun sænsku bókmennta-
akademíunnar séu ekki viður-
kenning á ágæti verðlaunahafans,
heldur ráði þar stjómmálskoðanjr
hans og pólitíkin í landi hans
mestu. Væri Mahfouz ekki frá
landi sem hefur friðmælst við
ísraela hefði hann aldrei fengið
verðlaunin."
Ahmed al-Yabouri, formaður
rithöfundafélagsins í Marokkó,
sagði hins vegar að bókmennta-
verðlaun Nóbels hefðu öðlast trú-
verðugleika eftir að rithöfundur
sem skrifar á arabísku hefði orðið
fyrir valinu. Flest dagblöð á Mið-
Austurlöndum gerðu fréttinni um
valið góð skil á forsíðu þótt bæk-
ur hans hefðu fyrr á tímum verið
bannaðar í flestum arabalöndum
vegna stuðnings hans við friðar-
samninginn sem Egyptar gerðu
við ísraela árið 1979. Dagblöð í
írak greindu frá valinu en minnt-
ust hvorki á stuðning höfundaríns
við friðarsamninginn né gagnrýni
hans á uppgang hersins í Egyptal-
andi í nokkram verka hans.
Flest dagblöð arabaheimsins
lofuðu verðlaunahafann enda
sagði í marokkóska dagblaðinu
al-Alam: „Hvorki er sá arabfski
skólastrákur til, sem ekki hefur
lesið eitthvert verka hans, né sá
rithöfundur, sem ekki hefur orðið
fyrir áhrifum frá honum á einn
eða annan hátt.“ Enginn í sænsku
bókmenntaakademíunni, sem er
skipuð átján sænskum rithöfund-
um og menntamönnum, hafa þó
lesið verk Mahfouz á frammálinu,
því ritari akademíunnar viður-
kenndi í gær að eingöngu hefði
verið stuðst við þýðingar á verk-
unum, enda skildi enginn félag-
anna arabísku.
28áraamma
Concetta Pannucio (lengst til hægri) varð amma 28 ára að aldri
- og þar með yngsta amma á Italíu þegar ída, 15 ára gömul
dóttir hennar, ól dóttur á miðvikudag. Stúlkuhnoðrinn var skirð
Rósa eftir langömmu sinni fimmtugri, sem situr hér hægra meg-
in við rúm sængurkonunnar.
Sovétríkin:
Einkavæðing
heilsugæslunnar
Moskvu. Rcuter.
SOVÉSKI heilbrigðisráðherrann
hvatti í gær tíl nokkurrar einka-
væðingar í heilsugæslumálum til
að bæta upp það, sem á skortir
hjá hinu opinbera.
Jevgeníj Sjazov heilbrigðisráð-
herra sagði í viðtali við TASS-
fréttastofuna, að hann hefði hug á
bæta heilbrigðisþjónustuna með því
að hvetja suma lækna til að setja
upp einkastofur og aðra til að hafa
samvinnu um slíkan rekstur.
Sjazov, sem tók við embætti í febrú-
ar sl., sagði, að margt hefði farið
úrskeiðis í heilbrigðisþjónustunni
og skorti jafnt lyf sem læknabúnað
auk þess sem menntun starfsfólks-
ins væri í ýmsu áfátt.
Meðal þeirra umbóta, sem stjóm-
völd hafa beitt sér fyrir að undan-
fömu, má nefna, að fyrir sumar
augnaðgerðir verða sjúklingar að
greiða að ákveðnu marki og nú
þegar hafa nokkrir læknar tekið
höndum saman um samvinnurekst-
ur í Moskvu. Sjazov lagði áherslu
á, að einkavæðingunni væri alls
ekki ætlað að koma í stað núver-
andi fyrirkomulags og sagði, að
Qárframlög til heilbrígðismála yrðu
aukin.
Ferðaskrifstofur, flugfélög, hótel, bankar,
útflutningsfyrirtæki, ríkisstofnanir og
aðrir sem áhuga hafa á góðri landkynningu.
JÓLAKORT
og landkynningarbæklingur
Höfum fyrirliggjandi mikið úrval af jólakortum
með fallegum vetrarmyndum.
Einnig fallegan landkynningarbækling eftir
Dr. Hannes Jónsson, þar sem saga landsins
er rakin í máli og myndum.
Sérprentum texta eftir þörfum.
Offsetprentsmiðjan
Höfðatúni 12. Reykjavfk - Símar 22930
LITBRÁ
og 22865
VTOEWARSTOFA
Veitingasalur Viðeyjarstofu er opinn
á fóstudögum og laugardögum
íyeturfrákl. 18.00-23.30.
Borðapantanir í símum
91-681045 og 91 -28470.
Upplýsingarum
veislu- og ráðstefnuhald
eru veittar í síma 28470.