Morgunblaðið - 15.10.1988, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988
45
stöðum. Kaffið stóð á borðum mik-
inn hluta dagsins og allir sem litu
við fengu sopa og með því.
Síðustu þijú árin dvaldi amma
mestan hluta vetrar hjá dóttur sinni
og tengdasyni á Framnesi. Þegar
voraði og fólkinu fjölgaði á Sleitu-
stöðum fór hún þangað. Síðustu tvö
jól var amma á Framnesi. Á þessum
síðustu árum kynntumst við krakk-
amir á Framnesi ömmu enn betur
en áður. Við vorum meira með henni
og kynntumst því betur krafti henn-
ar og ekki síst yndislegum húmor
hennar sem oft fól í sér kaldhæðni
mikla, ekki síst í eigin garð. Amma
lét umhverfi sitt sig miklu varða.
Hún vildi hafa hreint og þrifalegt
úti jafnt sem inni. Og ófá vorin
gengum við krakkamir með ömmu
í nágrenni bæjarins og týndum msl
í poka.
Vorið 1986 fór amma í aðgerð á
Landspítalann vegna krabbameins
í brjósti. Amma hafði alla tíð verið
heilsuhraust og líklega hefur þetta
verið fyrsta vera hennar á sjúkra- '
húsi. Hún var ótrúlega fljót að ná
sér eftir þessa aðgerð. Næstu tvö
árin átti hún eftir að dvelja tíma
og tíma á sjúkrahúsi. Hún þurfti
að fara nokkrar ferðir til Reykjavík-
ur til að fara í rannsóknir. Að fara
til Reykjavíkur var fyrir ömmu jafn-
mikið mál eða meira og fyrir okkur
að fara til útlanda.
í júnílok fór amma á sjúkrahúsið
á Sauðárkróki. Hún var farin að
hafa stöðuga verki. Reynt var allt
sem hægt var til að finna orsök og
reyna að draga úr kvölunum. Þetta
bar því miður takmarkaðan árang-
ur. Þrátt fyrir vanlíðan hélt hún
góða skapinu sínu og húmomum.
Hún reyndi yfírleitt að gera lítið
úr verkjunum og bar ekki tilfínning-
ar sínar á torg. Henni leið vel á
sjúkrahúsinu, þó það hafí kannski
ekki verið sá staður sem hún hefði
helst kosið að eyða sumrinu á. Við
viljum þakka öllu hjúkmnarfólki og
læknum á sjúkrahúsinu á Sauðár-
króki fyrir alla hjálpina sem henni
var veitt. Sérstaklega viljum við
þakka Snorra Ingimarssyni lækni
fyrir hans þátt. Amma kunni svo
sannarlega vel að meta þegar
Snorri kom og settist hjá henni og
spjallaði við hana um allt milli him-
ins og jarðar. Hún minntist oft á
hann og við fundum vel hvað hún
mat hann mikils. Og mikið langaði
hana að heimsækja Snorra að Ás-
garði þó ekkert yrði úr því.
Þrátt fyrir slappleika ömmu í
sumar og dvöl á sjúkrahúsinu kom
dauðinn ekki upp í huga okkar.
Skyndilegt dauðsfall ömmu kom
okkur því í opna skjöldu. Við áttum
öll von á að hafa hana með okkur
áfram, á næstu jólum, næsta sum-
ar... og í hjörtum okkar bjó sú
ósk að hægt væri að finna bót á
kvölum hennar. Sú bót hefur nú
fengist, en á annan hátt en við
hefðum kosið. Söknuðurinn er sár
og mikill og eins og vant er kemur
eigingimin upp í huga okkar. Við
spyijum „af hveiju?“. En gerum
okkur jafnframt ljóst að „eitt sinn
verða allir menn að deyja" og senni-
lega ber okkur að þakka Guði það
að amma þurfti ekki að bera kvalir
sínar lengur, þar sem allt benti til
að þar væri á ferð eitthvað annað
og meira en það sem læknavísindi
nútímans ráða við.
Orð eru svo fátækleg þegar dauð-
inn er annars vegar, við verðum svo
vanmáttug andspænis honum. Við
vildum segja svo margt, þakka svo
margt, minnast svo margs.
Við þökkum Guði fyrir elsku
ömmu okkar og allt sem hún fyrir
okkur gerði og allt sem hún miðl-
aði okkur og kenndi. Það er okkur
dýrmætur Ijársjóður. Megi minn-
ingin um ömmu á Sleitustöðum lifa
og vera okkur gott vegnesti um
ókomin ár. Við biðjum Guð að varð-
Stolið frá Golf klúbbi
veita hana og afa. Þeirra er sárt
saknað en frá þeim höfum við feng-
ið mikinn lærdóm sem við munum
varðveita og miðla áfram.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð. (V.Briem)
Guð blessi minningu ömmu. Hvíl
í friði.
Sigrún, Hrafnhildur, Óskar,
Hjördís Edda og Birna Björk.
RLR var tilkynnt um innbrot i
álialdahús Golfklúbbsins Keilis á
miðvikudag. Þaðan hafði tals-
verðum verðmætum verið stolið
einhvem tímann frá því á sunnu-
dag.
Keilismenn sakna meðal annars
tveggja vélorfa, Flymo sláttuþyrlu,
loftpressu, skrúfstykkis og ýmiss
konar handverkfæra. Rannsókn
málsins stendur yfir.
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ GERA GÓÐ KAUI*
UNO er vinsælasti og mest seldi bíllinn í
Evrópu, enda einstaklega vel hannaður,
rúmgóður og lipur í akstri.
N ú býðst UNO 45 3ja dyra á sérstöku til-
boðsverði, kr. 328 þús. f*etta er einstakt
tækifæri til að að fá mikið fyrir peningana.
Tilboðið gildir fyrir síðustu bílana af árgerð
1988.
Staðgreiðsluverð kr. 380.000,-
Tilboðsverð kr. 328.000,-
50% útborgun, eftirstöövar lánaðar
í allt að 12 mánuði.
W'WÍFÍWFJB FRAMTÍÐ VIÐ SKEIFUNA
SÍMAR: 685100, 688850.
♦
ARNARHÓLL
RESTAURANT
HVERFISGATA S-IO 18833