Morgunblaðið - 01.12.1988, Page 20
Ttiknið h)i Tóm«i
*20
MORGUNBLAÐIÐ, FÍMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
LITGREINING
MEÐ
CROSFIELD
ER
LYKILLBNN
AÐ VANDAÐRI
LITPRENTUN
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • Sími 28300
Alþjóðaalnæmisdag'-
urinn 1. desember
ÞETTA ER HÚN...
„Dásamlegur
dugnaðarforkur!"
SIEMENS MK 4450 hrærivélin er engin venjuleg „hrærivél".
Hún hrærir, hnoðar, þeytir, blandar, brytjar, rífur, hakkar og
sker - bæði fljótt og vel.
Að hætti vestur-þýskra framleiðenda er hún einkar vel
hönnuð. Létt, lipur, hljóðlát og kröftug. Jafnauðveidlega og
að skipta um gír á vestur-þýskum sportbíl, skiptir þú henni úr
hakkavél í hrærivél og í grænmetiskvörn upp í blandara.
Hún^r draumaverkfæri í eldhúsinu. Fáðu þér (-eða
gefðu^^ ) fjölhæfan dugnaðarfork í eldhúsið.
9.650,- krónur er heldur ekki mikið verð fyrir þennan líka
bráðlaglega dugnaðarfork. ítarlegur leiðarvísir og uppskrifta-
hefti á íslensku fylgja með.
Tíu punktar sem skipta þig máli
í tilefni af Alþjóðaalnæmis-
deginum 1. desember 1988 hefur
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
(WHO) sent frá sér meðfylgjandi
tíu punkta um alnæmi:
1. Alnæmi er nýtt heilbrigðis-
vandamál sem snertir heims-
byggðina alla.
Meira en 120 þúsund tilfelli af
alnæmi (lokastig) hafa verið til-
kynnt Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
inni. Þessi tilfelli hafa greinst í 140
þjóðlöndum. Öll samfélög geta smit-
ast af alnæmisveirunni vegna þess
að veiran virðir engin landamæri,
landfræðileg né félagsleg. í dag er
talið að 5—10 milljónir manna séu
smitaðir af alnæmisveirunni um all-
an heim.
2. Við vitum hvernig alnæmi
smitast.
Til allrar hamingju getur alnæm-
isveiran eingöngu borist milli
manna með þrennum hætti:
★ Við samfarir.
★ Með blóðblöndun.
★ Frá sýktri móður til fósturs eða
nýfædds barns hennar.
3. Að þekkja smitleiðir al-
næmis er lykillinn að því að koma
í veg fyrir smit.
Alnæmisveiran getur borist milli
manna við kynmök, frá karlmanni
til konu, konu til karlmanns og frá
karlmanni til karlmanns. Alnæmis-
veiran getur einnig borist með blóði,
aðallega á tvo vegu: Ef notað er
blóð úr sýktum einstaklingi og ef
nálar eða sprautur eru notaðar án
þess að þær séu dauðhreinsaðar. í
nokkrum löndum er útbreiðsla al-
næmis aðallega meðal fíkniefna-
neytenda. Að lokum getur alnæmi
borist frá sýktri móður til fósturs
eða nýfædds barns við fæðingu eða
strax eftir fæðingu.
4. Það er hægt að koma í veg
fyrir útbreiðslu alnæmis.
Arangursríkasta aðferðin til að
koma í veg fyrir útbreiðslu alnæm-
is við kynmök er að hafa ekki sam-
farir eða að halda sig við einn trygg-
an og ósýktan maka. Að öðrum
kosti að fækka rekkjunautum eins
og frekast er kostur. í hvert skipti
sem hafðar eru samfarir við þann
sem hugsanlega gæti verið smitað-
ur af alnæmisveirunni á að nota
smokk. Smokkinn þarf að nota frá
upphafi til enda og á réttan hátt.
Forðast á samfarir við vændiskonur
og karla og aðra þá sem maður
veit eða hefur grun um að hafa
haft marga bólfélaga.
5. Blóðsmitun alnæmis er
unnt að stöðva á marga vegu.
Svo heppilega vill til að sýkt blóð
er hægt að flokka frá með mótefna-
mælingum og henda. Nálar og
sprautur er hægt að dauðhreinsa
eða nota einnota. Fíkniefnaneyt-
endur geta og eiga að hætta að
sprauta sig. Það þarf að hvetja þá
sem sprauta sig til að nota ekki
nálar og sprautur aftur og að deila
þeim áhöldum ekki með öðrum.
6. Það hefur þýðingu að vita
hvernig alnæmi smitast ekki.
Alnæmi smitast ekki við daglega
umgengni, á vinnustað, í skólanum,
við að takast í hendur, við snertingu
eða faðmlög. Alnæmi smitast ekki
með mat eða vatni, ekki við að
drekka úr sama bolla eða glasi, við
hósta eða hnerra, ekki með skor-
dýrum, ekki í sundlaugum né við
notkun salerna. Þekkingin á því
hvernig alnæmi smitast ekki hjálpar
almenningi að skilja að það fylgir
engin áhætta umgengni við smitaða
nema umgengni fylgi samfarir við
smitaðan einstakling, notkun á
sprautum eða blóðblöndun með öðr-
um hætti.
7. Það er engin ástæða að
óttast fólk sem er smitað.
Það á ekki að útskúfa þeim sem
eru smitaðir. Þeir þarfnast okkar
stuðnings til að geta tekist á við
líkamlegar og tilfinningalegar af-
leiðingar sýkingarinnar.
8. í ljósi þess að hvorki er til
bólusetning né lækning eru upp-
lýsingar og fræðsla lykilaðgerðir
í alnæmisvörnum.
Einn góðan veðurdag tekst
vísindamönnum að búa til lyf sem
læknar alnæmi eða bóluefni sem
kemur í veg fyrir sýkingu. Fram
til þess dags getum við heft út-
breiðslu alnæmis með upplýsingum,
fræðslu og breyttri hegðun —
ábyrgri hegðun hvers einstaklings.
9. Alheimsvandi — alheims-
átak.
Næstum öll ríki hafa brugðist við
alnæmi með skipulegum hætti.
Markmiðið er að upplýsa og fræða
almenning hvernig megi komast hjá
að sýkjast og hvernig megi verja
aðra. Aðgerðir í hverju einstöku
landi tengjast alþjóðaalnæmisverk-
efni Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar. Vegna þess að alnæmi er
alls staðar þá verður að stöðva út-
breiðslu þess alls staðar ekki aðeins
í einu landi.
10. Saman getum við stöðvað
alnæmi.
Þú getur lagt alnæmisvörnum lið
með því að ganga úr skugga um
að þú þekkir staðreyndirnar um
alnæmi og hjálpir öðrum til að
skilja þær. Hættan á að smitast af
alnæmi er ekki spurning um hver
þú ert eða hvar þú ert staddur held-
ur hvernig þú hegðar þér.
Alheimsdagur gegn alnæmi er
tækifæri fyrir alla til að tala saman
um alnæmi, þora að spyrja, ræða
og læra. Vertu með í alheimsátaki
gegn ainæmi.
(Frá landsncfnd um alnæmisvarnir)
Landbúnaðar-
ráðuneytið:
Gerð verði út-
tekt á fram-
kvæmd búvöru-
laganna
Landbúnaðarráðuneytið vill að
Rikisendurskoðun verði falið að
gera úttekt á þeim ákvæðum
búvörulaganna sem Qalla um
framkvæmd laganna og fjár-
hagsleg fyrirgreiðslu ríkissjóðs.
Þessi ákvæði eiga að tryggja að
staðið verði við samninga um
hámarksframleiðslu á afúrðum
sauðfjár og mjólkur, sem ríkis-
sjóður veitir fiilla verðábyrgð
fyrir.
í búvörulögunum er kveðið á um
að þessi ákvæði laganna skuli tekin
til endurskoðunar að fjórum árum
liðnum frá setningu laganna, en það
er í júní 1989.
í fréttatilkynningu frá land-
búnaðarráðuneytinu segir að um-
rædd úttekt á vegum Ríkisendur-
skoðunar muni leggja traustari
grunn undir framkvæmd búvöru-
laganna og að þeim ákvörðunum
sem taka þarf þegar þeir búvöru-
samningar sem nú eru í gildi renna
út, en þeir samningar gilda til árs-
ins 1992.
. . . . ■ .. . - ... . ...
ENGIN OÆSKILEG AUKEFNI
SÆNSK GÆÐAVARA
JUVEL ER ÁN ÓÆSKILEGRA AUKEFNA
S.S. BRÓMATS OG BLEIKIEFNA
bakstur og til
matargerðar.
2
kg
JUVEL í JÓLABAKSTURINN!
MYNDAMÓT HF