Morgunblaðið - 01.12.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
43
írar taka Ameríku
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó: U2 Rattle And Hum
— The Movie
Leikstjóri Phil Joanou. Hljóðupp-
tökustjóri Jimmy Iovine. Kvik-
myndatökustjórar svart/hvit:
Robert Brinkmann, lit: Jordan
Cronenweth. Hljómleikamynd.
Hljómsveitina U2 skipa Bono,
The Edge, Adam Clayton og
Larry Mullen Jr. Bandarísk. Par-
amount 1988. Spectral Record-
ing, (SR), Dolby Stereo.
sköpun U2. Hræddur er ég um að
þeir fari fyrir ofan garð og neðan
hjá mörgum þeim sem kunna þá
ekki utanbókar. Þar með missa
menn talsvert af bragðinu.
Rattle And Hum er einnig einns-
konar. pílagrímsferð hljómsveitar-
innar, leit hennar að rótum sínum.
Staldrað við í Graceland, á bökkum
Missisippi, í hinu sögufræga stúdíoi
Sun Records er hljóðritað lag með
aðstoð hornaflokksins The Memphis
Sound. Gamla blúströllið B.B. King
tekur lagið, söngur hans og gítar-
sláttur fellur eins og flís við rass
við tónlist íranna, það segir sína
sögu. Séra Martins Luthers Kings
er minnst, gospel-tónlistin og Harl-
em kóma við sögu, þó fyrst og
fremst rokk, þrumurokk þrumu-
hljómsveitar. Keyrslan er oft með
ólíkindum, hver einasti hljómsveit-
armeðlimur snjall á sínu sviði.
Synd væri að segja að frumleg-
heit einkenndu kvikmyndagerðina.
Innskotin á milli hljómleikaatriða
eru ósköp þreytuleg og lítils virði,
segja manni sáralítið af þessum
hreinskilnu listamönnum. Hinsveg-
ar eru tökurnar á hljómleikunum
líflegar og fylgja tónlistinni og flytj-
endum hennar vel eftir. Einkum í
svart/hvítu, sem á vel við innihald
og boðskap tónlistarinnar og yfir-
bragð meðlimanna. Þetta eru engar
teknikolordægurstjörnur, þeirra
U2. Stund milli stríða.
veröld er stálgrár veruleikinn. kærkomin aðdáendum U2, en færir
Rattle And Hum er fyrst og fremst þeim örugglega fjölda nýrra.
Við verðum vitni að landvinn-
ingareisu írsku gæðahljómsveitar-
innar U2 á íþróttavöllum og í hljóm-
leikahöllum um þvera og endilanga
Vesturálfu. Hér berst pólitísk jaðar-
tónlist þeirra að meginstraumnum.
U2 heftir hægt og bítandi verið að
vinna sér aukinna vinsælda og má
segja að The Joshua Tree hafi ver-
ið gegnumbrotsplata þeirra félaga,
en allt virðist benda til að hljóm-
leikaplatan Rattle And Hum, sem
tekin var upp samhliða myndinni,
ætli að gera enn betur.
Mest fer hér fyrir nýjum laga-
smíðum, nokkrar perlur af The Jos-
hua Tree fylgja með, Sunday, Blo-
ody Sunday af War, sem má segja
að sé hápunktur myndarinnar.
Þjóðfélagsgagnrýnin, baráttan fyrir
frelsi og jafnrétti til handa öllum
undirokuðum á okkar voluðu jarð-
kringlu hefur löngum verið og er
rauði þráðurinn í óvenju þroskaðri
og beinskeyttri textagerð hljóm-
sveitarinnar. En í annars fyrirtaks
hljóðupptöku, sem nýtur sín vel í
nýrri tækni í hljómflutningi (Spec-
tral Recording Dolby Stereo) vildi
söngurinn drukkna, en hafa ber í
huga að upptökurnar eru „live", á
hljómleikum. Því voru ekki textarn-
ir þýddir, svo mikið sem þeir hafa
að segja og eru snar þáttur í list-
Ásdís Skúladóttir
Rit um mál-
efiii aldraðra
ÁRÍN okkar, rit um málefini aldr-
aðra efltir Ásdisi Skúladóttur fé-
lagsfræðing, er komið út hjá
Alþýðusambandi íslands og
Menningar- og firæðslusambandi
alþýðu.
I bókinni er fjallað um margvís-
leg réttindi aldraðra og margt það
sem máli skiptir fyrir fólk sem kom-
ið er á miðjan aldur og þar yfir.
Pjallað er m.a. um ýmis einkenni
aldurs og breytingar sem verða á
lífi fólks á efri árum. Gefin eru góð
ráð varðandi mataræði og heilbrigt
líf, félagslíf og frístundir og rætt
um vinnu og verkalok og gefnar
margar ábendingar varðandi híbýli.
Meginefni bókarinnar er þó um rétt-
indi fólks samkvæmt almanna-
tryggingum, lögum um málefni
aldraðra og til lífeyris úr lífeyissjóð-
um. Gerð er grein fyrir ýmsu sem
snertir fjármál svo sem um skatta
og vegna kaupa og sölu íbúða.
Bókin, sem er 112 síður, skiptist
í 11 kafla og marga undirkafla, er
þannig greinargott rit og aðgengi-
legt. Lísa K. Guðjónsdóttir teiknaði
myndir í bókina og Lárus Karl Inga-
son tók ljósmyndir. Auglýsinga-
þjónusta GBB annaðist útlit og
hönnum. Bókin var sett í Guten-
berg, prentuð í Grafík en Félags-
bókbandið Bókfell sá um bókband.
JÓLATILBOÐ JAPIS
koma skemmtilega á óvart,
þar finnur þú vandaðar vörur á viðráðanlegu verði.
Nú kynnum við jólatilboð nr. 1,2 og 3.
TECHNICSX800 m/þráðlausri fjarstýringu
Þessa glæsilegu hljómtækjasamstæðu
bjóðum við á verði sem slær allar
aðrar sambærilegar stæður út.
Verö fyrir lækkun 46.950.-
Nú á jólatiiboðsverði
34,950,-
m/ skáp kr. 39.940,-st.gr.
SAMSUNG örbyigjuofn.
Fyrir þá sem vilja gera
góða eldamennsku enn
betri bjóðum við 17 lítra,
500 w Samsung
örbylgjuofn á frábæru
jólatilboðsverði. Samsung
örbylgjuofn gerir
eldamennskuna að
hreinum barnaleik----------
74-950,-
SAMSUNG 14 " sjónvaipstæki.
Fyrir þá sem vilja hafa fleiri en eitt sjónvarþs-
tæki á heimilinu, t.d. í barnaherberginu,
eldhúsinu eöa svefnherberginu.
Þá er 14" sjónvarpstækið
frá Samsung lausnin.
JAPIS8
• BRAUTARHOLT 2 ■ KRINGLAN ■
■ SÍMI 27133 ■
■ AKUREYRI ■ SKIPAGATA 1 ■
■ SÍMI 96-25611 ■
STUDEO, KEFLAVÍK O BÓKASKEMMAN, AKRANESI O RADÍÓVINNUSTOFAN, AKUREYRI O TÓNABÚÐIN, AKUREYRI O KJARNI SF„
VESTMANNAEYJUM O EINAR GUÐFINNSSON HF„ BOLUNGARVÍK O KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA, EGILSSTÖÐUM, SEYÐISFIRÐI,
ESKIFIRÐI O PÓLLINN HF„ ISAFIRÐI O HÁTÍÐNI, HÖFN, HORNAFIRÐI O RADlÓLÍNAN, SAUÐÁRKRÓKI O TÓNSPIL, NESKAUPSTAÐ
O BÓKAVERSLUN ÞÓRARINS STEFÁNSSONAR O KAUPFÉLAG ÁRNESINGA O KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA
KOMDU Á M0RCUN