Morgunblaðið - 01.12.1988, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
41
Akranes:
Haukur Hall-
dórsson sýnir
um 40 myndir
HAUKUR Halldórsson, mynd-
listamaður, sýnir um 40 myndir
i Bæjar- og héraðsbókasafninu á
Akranesi 26. nóvember til 12.
desember næstkomandi. Mynd-
irnar eru unnar með svokallaðri
heliografískri aðferð sem Hauk-
ur hefur þróað siðastliðin þrjú
ár, segir í fréttatilkynningu.
Myndirnar á sýningunni eru gerðar
í takmörkuðu upplagi. Þær eru
númerðar og áritaðar af listamann-
inum.
Sýningin er opin klukkan 15 til
18.30 virka daga og klukkan 14 til
20.30 um helgar.
Mynd af kútter Haraldi eftir Hauk Halldórsson.
• •
Maraþonlærdómur í Oldutúni
NEMENDUR níunda bekkjar
Öldutúnsskóla í Hafharfírði
sátu við lærdóminn samfleytt
frá klukkan átta í gærmorgun
til átta í morgun. Þetta mara-
þonnám stunda þau til að safna
áheitum og skal fénu varið til
að styrkja vorferð nemend-
anna.
72 nemendur tóku þátt í mara-
þonnáminu af 74 nemendum ár-
gangsins. í gær fór 15 nemenda
hópur á sjó. Þeir nemar eru í sjó-
vinnudeild. Nemendurnir sátu við
50 mínútur í senn og tóku sér tíu
mínútna hlé inn í milli. Framund-
Morgunblaðið/Bjami
an eru jólapróf í næstu viku og
gátu nemendumir valið greinar
til að undirbúa sig sérstaklega
fyrir prófin. Á myndunum em
nokkrir nemanna niðursokknir í
vinnuna síðdegis í gær, þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að
garði. Strákarnir voru á sjó og
ein bekkjardeildin í íþróttatíma.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 30. nóvember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 52,50 44,00 50,94 74,862 3.813.216
Ýsa 78,00 35,00 59,91 6,835 409.493
Lúöa 290,00 160,00 192,19 0,805 154.713
Keila 18,50 17,00 17,26 2,890 49.881
Samtals 51,84 85,392 4.427.303
Selt var aðallega úr Núpi ÞH, Ljósfara HF, Björgu HF, frá Is- bliki hf. á Akranesi og Nesveri hf. í dag verða meöal annrs seld 13 tonn af þorski, 1 tonn af ýsu og óákveðiö magn af keilu, löngu og lúðu úr Stakkavík ÁR, 9 tonn af þorski og 1 tonn af ýsu úr Lómi SH, 2 tonn af ýsu frá KASK og blandaðúr afli
frá Arnarstapa og Færabaki hf. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(ósl.) 45,00 39,00 43,51 1,776 77,272
Ýsa(ósL) 67,00 66,00 66,40 0,300 19.920
Lúða 150,00 150,00 150,00 0,005 750
Blandað 40,00 40,00 40,00 0,078 3.120
Samtals 46,81 2,159 101.062
Selt var úr bátum. i dag verður einnig selt úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 44,50 32,00 42,39 3,671 155.601
Ýsa 63,00 25,00 44,62 7,704 343.792
Ufsi 27,50 11,00 27,15 15,453 419.589
Karfi 24,50 15,00 22,36 46,041 1.029.262
Steinbítur 32,50 32,50 32,50 0,029 943
Langa 29,50 15,00 29,28 3,259 95.420
Lúða 175,00 115,00 153,26 0,563 86.214
Síld 8,07 8,07 8,07 5,970 48.178
Skata 66,00 57,00 64,06 0,070 4.452
Skötuselur 145,00 110,00 128,51 0,121 15.550
Samtals 26,53 82,880 2.199.001
Selt var aðallega úr Gnúpi GK, Ólafl GK og Þorsteini Gíslasyni GK. í dag verða meöal annars seld 45 tonn af karfa og óákveð-
ið magn af öðrum tegundum úr Hauki GK. Einnig verður selt
úr Eldeyjar-Boða GK og dagróðrabátum.
„Gestaboð
Babettu“ í
Regnboganum
Þau mistök urðu í kynningu á
kvikmyndinni „Gestaboð Babettu“
í Morgunblaðinu á þriðjudag að hún
var sögð sýnd í Háskólabíói. Það
er rangt — myndin er sýnd í Regn-
boganum.
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
VZterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Rás 2 heldur upp á
5 ára afinæli í dag
RÁS 2 heldur upp á fímm ára
afmæli sitt í dag, 1. desember
og verður tímamótanna minnst
með ýmsum hætti, meðal annars
með tónleikum i beinni útsend-
ingu þar sem fjölmargar hljóm-
sveitir og tónlistamenn leika.
Meðal þeirra sem koma í út-
varpssal má nefna Bítlavinafélag-
ið, Bjartmar Guðlaugsson, Bubba
og Megas, Centaur, Geira Sæm,
Herdísi og guilfiskana, Kamarorg-
hesta, Síðan skein sól, Svarthvítan
draum og Valgeir Guðjónsson.
Þá líta margir gamlir dagskrár-
gerðarmenn inn og brugðið verður
upp brotum úr dagskránni á liðn-
um árum.
í fyrstu sendi Rás 2 aðeins út
sex tíma á dag, auk næturútvarps
um helgar, en í dag sendir hún
út 24 tíma á sólarhring.
Til Rásar 2 var stofnað sem
tónlistarútvarps, en dagskráin hef-
ur smám saman orðið fjölbreyttari.
Fréttaflutningur var tekinn upp
1. apríl 1985 og síðar bæþtust við
framhaldsleikrit, barnaefni,
íþróttaefni, spurningaleikir, við-
talsþættir og samstarf var tekið
upp við deild Ríkisútvarpsins á
Akureyri.
I mars 1987 hófst sólarhrings-
útvarp á Rás 2 og í október sama
ár tók Dægurmáladeildin til
starfa.
V estmannaeyj ar:
Framkvæmdir
haftiar við við-
byggingn fram-
haldsskólans
Vestmannaeyjum.
FRAMKVÆMDIR við viðbygg-
ingu framhaldsskólans í Vest-
mannaeyjum hófúst fyrir
skömmu. Áformað er að byggja
álmu norðan við núverandi hús-
næði en í fyrsta áfanga verður
austurhluti þessarar álmu byggð-
ur.
Undirbúningur fyrir framkvæmd-
ina hefur staðið sl. ár og hefur teikni-
stofa Páls Sophoníussonar séð um
alla teiknivinnu. í fyrsta áfanga er
gert ráð fyrir að koma upp grunni
fyrir þann hluta álmunnar sem hýsa
mun verknámskennslu skólans í
framtíðinni.
Ekki hafa verið gerðar neinar
áætlanir um það hvenær lokið verður
við bygginguna enda erfitt um vik
þar sem framkvæmdir eru háðar fjár-
veitingum nkisins. — Grímur
t
Alúðarþakkir færum við öllum sem auðsýndu okkur samúð, hjálp
og vinarhug við andlát og jarðarför
ÞÓRUNNAR BÖÐVARSDÓTTUR
frá Butru.
Sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun og hjúkrun sendum við
að Dvalarheimilinu Kumbaravogi og á deild 13D, Landspítalanum.
Guð blessi ykkur öll.
Aðalheiður Ólafsdóttir,
Böðvar Kristjánsson.
t
Við þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGRÍÐAR KARÍTASAR GÍSLADÓTTUR
frá Ytra-Skógarnesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Elli- og hjúkrunarheimil-
inu Grund fyrir langa og góða umönnun.
Baldur Kristjánsson,
Jens Kristjánsson,
Unnur Kristjánsdóttir,
Auður Kristjánsdóttir,
Arndís Kristjánsdóttir,
Einar H. Kristjánsson,
Jóhanna Kristjánsdóttir,
Kristjana Ág. Kristjánsdóttir,
börn og
Unnur Sveinsdóttir,
Ingibjörg Þorvaidsdóttir,
Jón Skagfjörð,
Gisli Ágústsson,
Anna Sigurðardóttir,
Guðm. Rafn Ingimundarson,
barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúö við andlát og jarðarför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
JÓNÍNU SALVARAR HELGADÓTTUR,
Skaftahlfð 22.
Ingimar Karlsson,
Ernst Backman,
Elsa Backman,
Henning Backman,
Helga Backman,
Valgeir Backman,
Jóhanna Arnmundsdóttir
og
Guömunda Guönadóttir,
Ragnheiður Jónsdóttir,
Björn Emil Björnsson,
Dagmar Gunnlaugsdóttir,
Sverrir Jónsson,
Helga Ágústsdóttir,
barnabörn.
Erfidrykkjur í hlýju
ogvinalegu ’
umhverfi.
Salir fyrir 20-250 manna hópa í
Veitingahöllinni og Domus Medlca.
I Veitingahöllin Ifésl Versiunarínhar
S: 685018-33272.