Morgunblaðið - 01.12.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ; FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
Alþjóða þingmannasambandið:
Skýrsla íslands-
deildar lögð fram
íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins hefur gefið Alþingi
skýrslu um þátttöku deildarinnar í starfsemi sambandsins frá þvi á
síðasta hausti. A þeim tíma hafa Islendingar sótt þrjú regluleg þing á
vegum þess; í Bangkok í Tælandi, Gvatemala-borg og Sófiu í Búlg-
aríu. Engin þátttaka var hins vegar af hálfú Alþingis í aukaráðstefnum
á vegum samtakanna.
Alþjóðaþingmannasambandið var
stofnað á árinu 1889 og hefur Al-
þingi Islendinga tekiðþátt í starfsemi
þess um árabil. í Islandsdeildinni
sitja nú: Geir H. Haarde (S/Rvk),
Ólafur Þ. Þórðarson (F/Vf), Sig-
hvatur Björgvinsson (A/Vf), Geir
Gunnarsson (Abl/Rn), Júlíus Sólnes
(B/Rn) og Kristín Einarsdóttir
(Kvl/Rvk). Geir H. Haarde er form-
aður deildarinnar en ritari hennar
er Ólafur Ólafsson, deildarstjóri á
sknfstofu Alþingis.
I skýrslu íslandsdeildarinnar kem-
ur meðal annars fram, að norrænu
deildimar hafa með sér náið sam-
starf innan Alþjóðaþingmannasam-
bandsins. íslandsdeildin tekur einnig
þátt í samstarfi Vesturlanda innan
sambandsins, hins svonefnda Tólf
plús-hóps, sem samanstendur af full-
trúum flestra ríkja Vestur-Evrópu,
Bandaríkjanna, Kanada, Ástralíu og
Nýja Sjálands.
Haustið 1987 var reglulegt þing
Alþjóðaþingmannasambandsins
haldið í Bangkok. Meginumræðuefn-
in þar voru annars vegar mannrétt-
indamál og flóttamannavandamál í
tengslum við þau og hins vegar sjálf-
stæði nýlendna og barátta gegn kyn-
þáttaaðskilnaðarstefnunni. Einnig
var fjallað um hvernig binda mætti
enda á stríð írana og íraka. Sam-
staða var um ályktun um mannrétt-
indi og vandamál flóttamanna, en
hart var deilt um sjálfstæði nýlendna
og kynþáttaaðskilnað. ísiand sat hjá
við atkvæðagreiðsiu um tillögu varð-
andi þau mál.
í vor var haldið þing í Gvatemala-
borg og snerust umræðurnar þar
einkum um afvopnunarmál og um-
hverfisvemd. Einnig var nokkuð
rætt um horfur á friði, lýðræði og
efnahags- og félagslegri framþróun
í Mið-Ámeríku. Góð samstaða var
um ályktanir þingsins.
í lok september í ár var svo hald-
ið reglulegt þing í Sófíu. Þar var
aðallega rætt um alþjóðlegt samstarf
í mannréttindamálum og einnig um
afnám nýlendustefnu og kynþáttaað-
skilnaðar. Tillaga um mannréttinda-
mál var samþykkt án atkvæða-
greiðslu. Ályktun um síðara málið
var samþykkt með 878 atkvæðum
gegn 4. 011 atkvæði íslandsdeildar-
innar féllu með tillögunni.
íslandsdeiidin klofnaði hins vegar
í afstöðu sinni til ályktunar um upp-
reisnina gegn hernámi ísraelsmanna
á arabískum landsvæðum. Deildin
hafði 9 atkvæði og skiptust þau
þannig, að 5 atkvæði Geirs H. Ha-
arde féllu gegn tillögunni en Ólafur
Þ. Þórðarson, sem fór með 4 at-
kvæði, sat hjá.
Fleira kemur fram í skýrslu ís-
landsdeildar Alþjóðaþingmannasam-
bandsins. Til dæmis var á þingum
sambandsins ályktað um mannrétt-
indabrot gegn þingmönnum í ýmsum
löndum. Einnig kemur fram í skýrsl-
unni, að regluleg þing verða haldin
í Búdapest í mars og Londo'n í sept-
ember.
Myndin sýnir elztu hús Kaupfélags Þingeyinga, en vagga samvinnuverzlunar er í Þingeyjarsýslu.
Tvöföldun skattsins kemur verst við strjálbýlisverzlunina:
Skattastefiia stjórnarinnar
feerir verzlunina ót ór landinu
Þingmenn Sjálfstæðisflokks deila á tvöföldun sérstaks verzlunarskatts
Þingmenn Sjálfstæðisflokks deildu hart á sljórnarfrumvarp um
tvöföldun sérstaks skatts á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði á AI-
þingi í gær. Þeir sögðu skattinn koma þyngst við stijálbýlisverzlun,
sem stæði rekstrarlega mjög illa. Skatturinn gengi beint út í verð-
lag, sem samræmdizt illa verðstöðvun. Hærra vöruverð og útsala á
gjaldeyri færði verzlun Islendinga úr landi. Þannig tapaði ríkissjóð-
ur tekjum í vörugjöldum og söluskatti.
Skatturinn kemur verst við
stijálbýlisverzlunina
Matthias Bjarnason (S/Vf)
sagði að tvöföldun sérstaks eigna-
skatts á verzlunar- og skrifstofu-
húsnæði kæmi verst við verzlunar-
fyrirtæki í strjálbýli, bæði einka-
verzlun og kaupfélög, sem væru
undantekningarlítið rekin með
miklum halla. Verzlanir í strjálbýli,
bæði í einka- og samvinnurekstri,
hafa, margar hvetjar, farið á haus-
inn síðustu mánuði, aðrar berjizt. í
bökkum.
Verzlunin er ekki aðeins að fær-
ast frá strjálbýli til stórmarkaða á
höfuðborgarsvæðinu, heldur jafn-
framt frá þessum stórmörkuðum
út fyrir landsteina. Verzlunarferðir
til annarra landa, jafnvel dagsferð-
ir, standa í blóma sem aldrei fyrr.
Ýtt er undir slíkar ferðir með því
að selja gjaldeyri á útsölu. Og við
þessar aðstæður sér nýr fjármála-
ráðherra ekki annan kost vænlegri
en þann að hækka sérstakan skatt
á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði,
sem fer beint út í verðlagið, þrátt
fyrir alla verðstöðvun, og skekkir
enn stöðu innlendrar verzlunar,
ekki sízt stijálbýlisverzlunar.
Hvað heldur fjármálaráðherra að
ríkissjóður tapi stórum fjármunum
í vörugjaldi og söluskatti ef fólk
Ólafur G. Einarsson:
Skattur sem fer
beint út í verðlagið
— þráttfyrir
verðstöðvun
Ólafúr G. Einarsson (S/Rn)
spurði að því í umræðu um 100%
hækkun sérstaks skatts á verzlun-
arhúsnæði, sem hann staðhæfði
að gengi beint út í verðlagið, hvort
ekki væri verðstöðvun í landinu.
Spumingin var fram sett í um-
ræðu um frumvarp fjármálaráö-
herra um tvöföldun á sérstökum
skatti á verzlunar- og skrifstofú-
húsnæði
Ólafur sagði að verðstöðvun væri
í landinu, samkvæmt lögum, sem
ríkisstjórnin beri stjórnarfarslega
ábyrgð á. Kaup og kjör væru og fryst
samkvæmt lögum, sem þessi sama
ríkisstjórn bæri ábyrgð á. Þrátt fyrir
þetta sé fram komið stjórnarfrum-
varp um 100% hækkun sérstaks
skatts á verzlunar- og skrifstofuhús-
næði, sem allar líkur standi til að
gangi beint út í verðlagið.
Þar að auki komi þessi skatt-
heimta verst við stijálbýlisverzlun-
ina, sem beijist í bökkum.
leitar í vaxandi mæli kaupa á nauð-
synjum sínum utan landsteina?
Hefur hann látið fram fara athugun
á því, hver áhrif hækkun þessa
skatts verða á verðlag í landinu?
Hefur hann gengið úr skugga,
hvaða áhrif þessi sérstaki verzlun-
arskattur hefur á stöðu stijálbýlis-
verzlunar i landinu, eins og aðstæð-
ur hennar eru í dag?
Matthías spurði og viðskiptaráð-
herra, hvers vegna Alþýðuflokkur-
inn hefði skipt um skoðun í afstöðu
til þess skatts, einmitt þegar rekstr-
arstaða stijálbýlisverzlunar væri
verri en nokkru sinni?
Hann minnti og þingmenn Fram-
sóknarflokksins á hugmyndir
stjérnarformanns KEA.um sérstaka
aðstoð við stijálbýlisverzlun. Er tvö-
földun þessa skatts svar við því
kalli? Eða á að efna til einhvers
konar úreldingarsjóðs stijálbýlis-
verzlunar til að auðvelda SIS að
taka yfir alla stijálbýlisverzlun?
Skattastefha neikvæð
atvinnulífínu
Þorsteinn Pálsson (S/Sl) minnti
á það að margra milljarða halli
ríkissjóðs sýndi m.a., að tekjufor-
sendur sem fjárlagafrumvarp nýs
ljármálaráðherra væri byggt á,
væru brostnar. Hinsvegar skorti á
það að ríkisstjórnin hafi gert Al-
þingi grein fyrir skattastefnu sinni
fyrir komandi ár sem og tekjuáætl-
unum. Hann spurði, hvort til stæði
að skattleggja sérstaklega spamað
og ráðdeild fólks og hvort til stæði
að eyðileggja hið nýja tekjuskatts-
kerfi með nýju skattþrepi. Hann
spurði og í tilefni af yfirlýsingu fjár-
málaráðherra, hvort mismuna ætti
í skattlagningu sparnaðar, þann
veg, að sparnaður í bankakerfinu
verði skattlagður en ekki sparnaður
í ríkisskuldabréfum. Á að skatt-
leggja sparnað, sem þjónustar at-
vinnulffið, en ekki sparnað, sem
þjónustar ríkið? Styðja Alþýðu- og
Framsóknarflokkur slíka stefnu?
Þorsteinn sagði það rétt vera hjá
síðasta ræðumanni, að gengis- og
skattastefna ríkisstjórnarinnar ýtti
undir almenna verzlun utan land-
steina. Það væri ekki út í hött að
talað væri um það að hinn nýi fjár-
málaráðherra væri að vinna til heið-
ursborgaratitils í skozkri verzlunar-
borg.
En það er máski til marks um
vandræði ríkisstjórnarflokkanna í
skattamálum og stöðu ríkisstjórnar-
innar í þinginu, að nú talar formað-
ur Framsóknarflokksins og forsæt-
isráðherra, seint og um síðir, um
nauðsyn þess að taka upp viðræður
við stjórnarandstöðuflokka um
tekjuöflunarleiðir ríkissjóðs á kom-
andi ári, og það, að stjórn og stjórn-
arandstaða þurfi að mætast á miðri
leið í þessu efni.
Frestun virðisaukans
Olafúr Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra kvaðst þegar hafa
svarað öllum spurningum, sem fram
hafi komið í umræðu dagsins. Hann
fagnaði því að allir þingflokkar
hefðu lýst stuðningi við frestun
virðisaukaskatts 'um hálft ár, sem
þýddi 1.200 m.kr. fyrir ríkissjóð.
Fjármálaráðherra sagði það góða
hugmynd hjá forsætisráðherra að
ræða við stjórnarandstöðu um
tekjuöflunarleiðir. Þorsteinn Páls-
son væri hinsvegar ekki oddviti
stjórnarandstöðunnar, heldur að-
eins eins flokks af fleirum, sem
stæðu utan ríkisstjórnar.
Fjármálaráðherra sagði að tekju-
öflunarfrumvörp sín myndu koma
fram næstu daga, hvert af öðru. Í
kjölfar þeirra yrði skattastefna
stjómarinnar skýrð fyrir þingi og
þjóð.
Sökin ligfgur í liðnum árum
Guðmundur G. Þórarinsson
(F/Rvk) sagði rætur þess, hvern
veg komið væri í efnahags- og at-
vinnulífi þjóðarinnar, liggja í liðnum
árum. Þessvegna væri undarlegt
að hlusta á Þorstein Pálsson, fyrr-
verandi forsætisráðherra, tala eins
og hann hafi hvergi nærri komið
vandamálunum.
Guðmundur sagði og að gengis-
stefna, sem ekki tryggði rekstrar-
stöðu útflutningsatvinnuvega,
gengi ekki.
Skattstofnar takmörkuð
auðlind
Kristinn Pétursson (S/Af)sagði á
skorta að stjórnmálamenn gerðu sér
grein fyrir því að skattstofnar í
landinu væru takmörkuð auðlind.
Ríkið megi ekki sækja í þessa auð-
lind umfram nýtingarmörk.
Það er hægt að leysa stóran hluta
vanda útflutnings- og samkeppnis-
greina, sagði Kristinn, með því að
skrá gengið rétt. Útsala á gjaldeyri
ýtir hinsvegar bæði undir rekstrar-
vanda atvinnuveganna og eykur á
viðskiptahallann.
Aðgerðir, sem flytja verzlun fólks
úr landi, skerða síðan tekjur ríkis-
sjóðs, sem eru teknar að stórum
hluta í vöruverði, en auka þær ekki.
Skattar sem ganga út í verðlagið
samræmast ekki verðstöðvun. Og
skattar sem koma verst við stijál-
býlisverzlun samræmast ekki
byggðastefnu.
Forsendur hafa breytzt
Kristín Halldórsdóttir
(Kvl/Rn) sagði Kvennalistann ekki
hafa mótað afstöðu til málsins.
Kvennalistakonur hafi hingað til
stutt sérstakan skatt á verzlunar-
og skrifstofuhúsnæði, enda hafi
offjárfesting blasað við í verzlun,
einkum á höfuðborgarsvæðinu. En
aðstæður kunna að hafa breytzt.
Staða sttjálbýlisyerzlunar er slök.
Þessvegna þarf að kanna vel hvort
tvöföldun þessa skatts er tímabær
nú við ríkjandi aðstæður.
Stoppa þarf upp í
fjárlagagatið
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði það rétt vera að Al-
þýðuflokkurinn væri ekki hrifinn
af skattheimtu, sem ekki taki tillit
til rekstrarlegrar stöðu fyrirtækja.
Hinsvegar sé meginmál að reka
ríkisbúskapinn í jöfnuði. Tvöföldun
sérstaks verzlunarskatts væri eitt
skref af mörgum, sem stíga þurfi
að því marki. Þessvegna hafi Al-
þýðuflokkurinn fallizt á hann nú.
Hvar var Fram-
sóknarflokkurinn
Matthías Á. Mathiesen (S/Rn)
vék að ræðu Guðmundar G. Þórar-
inssonar, sem rakið hafi vanda at-
vinnu- og efnahagslífs þjóðarinnar
rakleiðis til Þorsteins Pálssonar.
Þingmaðurinn léti eins og Fram-
sóknarflokkurinn hafi verið utan
ríkisstjórnar um langt árabil. Svo
væri ekki. Samfelld seta Framsókn-
arflokksins í ríkisstjórnum væri
löng orðin. Sjávarútvegsmál hafi
t.d. heyrt undir ráðherra Framsókn-
arflokksins, fyrst Steingrím Her-
mannsson og síðan Halldór Ás-
grímsson, ailan þennan áratug.
Ekki væri vandinn minnstur í sjáv-
'arútvegi.
Matthías áréttaði og að skýrsla
sú, sem nú væri fram komin um
stöðu ríkissjóðs, sýndi ótvírætt, að
tekjuforsendur fjárlagafrumvarps
Ólafs Ragnars Grímssonar væru
brostnar. Þessvegna væri óhjá-
kvæmilegt að ríkisstjórnin gerði
Alþingi marktæka grein fyrir, hver
stjórnarstefnan væri í tekjuáætlun
og ríkisbúskap komandi árs. Hringl-
andaháttur sá, sem viðgengist hefði
næstliðnar vikur, varðandi þessi
mál, gengi ekki lengur.