Morgunblaðið - 01.12.1988, Síða 61
PQO r cr'jor*frr3r,9,3YT
r qrrrn AfiTT'TVMT^ .CWfth TflMTTrrqOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
oa
61
Stéttarsamband bænda harmar ummæli viðskiptaráðherra:
Atlaga gegn hrossa- og
kindakj ötsmarkaðnum
STJÓRN Stéttarsambands bænda hefur sent frá sér ályktun þar sem
hörmuð eru ummæli Jóns Sigurðssonar viðskiptaráðherra á flokks-
þingi Alþýðuflokksins. Þar varpaði hann fram þeirri hugmynd að
efna til herferðar meðaf almennings um að hætta að kaupa ákveðn-
ar kjöttegundir frá vissum svæðum landsins til að knýja fram bann
við lausagöngu búfjár og leggja áherslu á gróðurvernd.
í ályktuninni er vitnað til sam-
þykkta tveggja síðustu Stéttarsam-
bandsþinga um gróðurvemdarmál
og síðan talin upp fjögur atriði sem
fullyrt er að ráðherrann fari með
villandi eða rangt mál:
Sú tíð er liðin að hross séu í lausa-
göngu á umræddum afréttarsvæð-
um.
Hugmynd viðskiptaráðherra til
neytenda um að mismuna svæðum
við innkaup á kjöti er atlaga gegn
öllum kinda- og hrossakjötsmarkaði
landsins í heild, því kjöt í smásölu
er á engan hátt aðgreint eftir fram-
leiðslustað.
Ráðherra fullyrðir að „langlund-
argeð“ fólks sé á þrotum vegna
ríkisútgjalda sem tengjast kinda-
kjötsframleiðslu og að nú verði að
grípa til aðgerða. Hér er gefið í
skyn að ekkert sé aðhafst, sauð-
fjárrækt sé hömlulaus, hún taki
ekkert tillit til gróðurverndarsjónar-
miða og ríkisútgjöld vegna hennar
séu feiknarleg. Allt er þetta rangt.
Sannleikurinn er sá að varla hefur
orðið jafn mikil umbylting undan-
farið í nokkrum málum hérlendis
og í beitarmálum. Sauðfé hefur
fækkað um hvorki meira né minna
en um þriðjung, eða 272 þúsund
fjár á einum áratug.
Ríkisútgjöld tengd landbúnaði
hafa stöðugt farið lækkandi sem
hlutfall af öllum ríkisútgjöldum
undanfarin ár, ekki síst niður-
greiðslur, þar til tekinn var upp
söluskattur á matvæli og hann
síðan endurgreiddur að hluta. Nið-
urgreiðslur að frumverði búvara
samkvæmt Qárlagafrumvarpi 1989
eru 2,54% ríkisútgjalda, en útflutn-
ingsbætur 0,8% ríkisútgjaldanna.
Stórlega hefur dregið úr fjárfest-
ingum og vöruinnflutningi til land-
búnaðar.
I Ijósi þeirra atriða sem hér hafa
verið nefnd eru ummæli viðskipta-
ráðherra úr samhengi við raun-
veruleikann og virðast byggð á
ónógri þekkingu.
Heimur í
hnotskurn
Ný flölfræðibók
fyrir börn
og unglinga
Bókaútgáfan Forlagið hefur
sent frá sér Qölfræðibókina
Heimur í hnotskurn eftir Jane
Elliot.
Bókin hefur að geyma mikið al
hagnýtum fróðleik við hæfi barna
og unglinga. Hér er að finna ítarleg-
an kafla um jörðina, dýralíf oggróð-
ur á hnettinum, sögu mannkyns og
menningu, þjóðflokka um allan
heim og þróun vísindanna. Breski
myndlistarmaðurinn Colin King
myndskreytir bókina og myndir
—HiiMUi—
í HlfOTSKUftN
Fjóifræðí fytk bóm o9 ijnglinga
m |gjjg|
H Hi
(£* ■' , . ‘0
ö
Bííott og Cofin Ki«g«
hans eiga þátt í að gera flókna hluti
svo auðskilda að hvert barn getur
notið þeirra, segir í frétt frá Forlag-
inu.
Heimur í Hnotskurn er 128
blaðsíður. Bjarni Fr. Karlsson
þýddi. Bókin er ptentuð í Bretlandi.
Jolastjömur
Frásagnar-
sni
Ástogskuggar
eftir Isabel Allende
Önnur bókin frá höfundinum sem sló í
gegn með Húsi andanna. Full af kátleg-
um atvikum, skrautlegum karakterum, ást
og grimmd. Isabel Allende er sá suður-
ameríski höfundur sem einna mesta
athygli hefur vakið á vesturlöndum á síð-
ustu árum. Það er ekki að ósekju, því í
bókum sínum sameinar hún á eftirminni-
legan hátt frásagnarsnilli og félagslegt
raunsæi.
i ngapjOnustan / sl AI