Morgunblaðið - 01.12.1988, Síða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
Stjórn G-samtakanna afliendir
dómsmálaráðherra áskorun:
„Vanskilalistimi44
verði bannaður
STJÓRN G-samtakanna, samtaka gjaldþrota einstaklinga, gekk á
fimd Halldórs Ásgrímssonar, dómsmálaráðherra, 23. nóvember
síðastliðinn og afhenti honum áskorun, þar sem farið er meðal ann-
ars fram á að hann beiti sér fyrir því að „vanskilalistinn“ verði
bannaður.
í áskoruninni segir einnig, meðal
annars: Tryggt verði að þegar eign-
ir lenda á nauðungarsölu verði and-
virði þeirra ekki undir 80% af mark-
aðsverði. Séð verði til þess að fólk,
sem lendir í greiðsluerfiðleikum
með skuldir sem ekki stafa af kaup-
um á íbúðarhúsnæði, haldi íbúðum
sínum í öllum tilvikum ef það vill
semja um greiðslu skuldanna.
- sími 687733
Tryggt verði að fólk, sem lendir
í greiðsluerfiðleikum, fái lögfræði-
lega aðstoð. Að lögum um hlutafé-
lög verði breytt þannig að ábyrgð
stjórnenda þeirra verði aukin og
bannað verði algjörlega að hafa
réttarhöld og rekistefnur á heimil-
um fólks eða vinnustað, segir í
fréttatilkynningu.
. * BONDAX. BROCKWAY, CAVALIER. COLOROLL. CROSSLEY, GEORGIAN
> «1 /GOODACRE, IN-FLOOR, NEW FRANCO BELGE. SANDERSON, ULSTER,
^ K ■ '‘Jjj! j y jjf/y/'J
. ?! >
'!
\\ V
- -V
S
vo mjúkar að
helst líkist tjaðradýnu en missa þó
aldrei nóttúrulegt tjaðurmagn sitt.
Þetta er lýsingin á ullartrefjunum í
teppunum sem taka á móti þér jafnt
ó dimmum morgni sem og skamm-
degiskvöldi þegar þú kemur heim.
Ullarteppi er ó sinn hótt líkt tryggum
hundi; alltaf ó sínum stað og bíður
þess að auka þér þœgindi þegar þú
þarfnast þeirra mest.
Að sjálfsögðu er ýmislegt ólíkt.
Hundum er til að mynda alls ekki vel
við að einhver stígi ofan á þá. En
íðilfögru ullarteppin okkar eru á öðru
máli. Hvernig vœri að taka með.sér
sýnishorn í dag?
BARR
Ullargólfteppi fyrir varulláta
HÖFÐABAKKA 3. REYKJAVÍK. SÍMI: 685290
félk í
fréttum
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Suðureyingarnir i hressara lagi enda búnir að skella í sig dálitlu af „Suðureyjarvatni'
Heiðursforseti bjargveiðimannafélagsins, Tóti á Kirkjubæ, hylltur
af hátiðargestum.
LUNDABALL
Bj argveiðimenn
i ballskónum
V estmannaeyjum.
Bjargveiðimenn í Eyjum héldu
fyrir nokkru hina árlegu árs-
hátíð sína. Hátíð þessi er árviss
atburður í Eyjum og gengur hátíðin
venjulegast undir nafninu Lunda-
ballið.
Bjargveiðimenn sjá sjálfir um allan
undirbúning hátíðarinnar og skipt-
ast veiðifélög úteyjanna á um að
sjá um veisluhöldin frá ári til árs.
Að þessu sinni voru það veiðimenn
úr Suðurey sem sáu um fram-
kvæmdina og fórst þeim það vel
úr hendi.
Hermann Einarsson, sauðabóndi
og lundakarl úr Suðurey, var veislu-
stjóri og stjómaði fjörinu af mikilli
röggsemi. Þó truflaðist Hermann
örlítið í hátíðarræðu sinni, því rétt
eftir að hann hóf mál sitt gengu
nokkrir úteyingar í salinn og leiddu
sauð á milli sín. I broddi fylkingar
var gengið með spjald sem á stóð:
„Orginal Suðureyingur." Var sauð-
urinn leiddur á svið og stillt upp
við hlið veislustjórans, sem varð að
fella niður ræðuhöld sín vegna þess-
arar uppákomu.
Uppistaðan á matseðli Lunda-
ballsins er ætið sú sama. Lundi,
bæði reyktur og steiktur með til-
heyrandi meðlæti. Síðan sjá þeir er
hátíðinni stjórna um að koma með
nýjungar og tilbrigði á matseðilinn.
Að þessu sinni buðu þeir Suðurey-
ingar upp á lundapaté og kryddleg-
Víkingaskipið góða fiillhlaðið af reyktum og steiktum lunda. Þetta
skip hefiir fylgt lundaballi um áraraðir.
Veislustjórinn, Hermann Einars-
son, með tákn stjórnandans um
hálsinn.
ið sauðakjöt á melónu, með skarfa-
kálsjafning sem forrétt. Þá buðu
þeir einnig upp á reykt sauðakjöt
með lundanum í aðalrétt. Maturinn
þótti einstaklega góður og lofuðu
veislugestir hann mjög. Sumir
höfðu þau orð uppi að ef svo héldi
fram sem horfði myndi Lundaballið
verða orðið að „galadinner" innan
fárra ára.
Þeir Suðureyingar létu ekki
nægja að leggja sig fram við matar-
gerðina þvi eftir máltíðina tók við
skemmtidagskrá sem svo sannar-
lega kitlaði hláturtaugar veislu-
gesta. Leikþættir, sögur og brand-
arar, þar sem skotið var hárfínt á
viðstadda, fengu góðar undirtektir
hjá veislugestum. Að sjálfsögðu var
síðan lagið tekið undir stjórn
Bjamareyjaijarlsins, Arna Johnsen.
Að venju var síðan borin fram
„Lundasúpa" um miðnættið til þess
að auka orkuna og úthaldið. Lunda-
karlar og konur þeirra dönsuðu síð-
an fram undir morgun við undirleik
Eymanna og var ekki að sjá að all-
ir væru búnir að fá nóg þegar ball-
inu lauk.
Sigurgeir Alseyjargraddi var að
sjálfsögðu með myndavélina með
sér og smellti meðfylgjandi mynd-
um af á hátíðinni.
— Grímur