Morgunblaðið - 01.12.1988, Síða 72
72
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
ÍÞRÚmR
FOLK
■ SUNDFÓLKI Akraness var
vel fagnað á Akranesi eftir að það
hafði sigrað í bikarkeppni í sundi á
sunnudaginn. Bæjarstjórn Akra-
ness tók vel á móti sundfólkinu og
bauð því til kvöldverðar.
■ SIGURÐUR B. Jónsson var
kjörinn knattspyrnumaður Akra-
ness 1988 á uppskeruhátíð knatt-
spyrnumanna á Akranesi. Efnileg-
asti ungi leikmaðurinn var valinn
Sigursteinn Gíslason. Halldóra
Gylfadóttir var valin knattspyrnu-
kona Akraness.
■ RAGNAR Margeirsson var
útnefndur knattspymumaður ársins
í Keflavík. Gestur Gylfason var
útnefndur efnilegasti leikmaðurinn.
■ ÓLAFUR Haukur Ólafsson
hefur verið útnefndur glímumaður
ársins hjá GLI. Olafúr tók þátt í
íjölmörgum mótum á árinu og tap-
aði ekki glímu. Hann glímir af
krafti og reisn og er einkum sókn-
djarfur hábragðsamaður. Stjórn
GLÍ ákvað jafnfram að velja Ingi-
berg J. Sigurðsson, UV, efnileg-
asta glímumann ársins. Ingibergur
er 15 ára, en þegar orðinn fjöl-
hæfur glímumaður. Hann glímir af
krafti og öryggi og útfærir brögðin
vel.
■ SÆBJÖRN Guðmundsson og
Ágúst Már Jónsson voru á dögun-
um útnefndir bestu leikmenn KR
1988.
B GUNNAR Sigurðsson var
kjörinn formaður Knattspyrnufé-
lags IA á aðalfundi félagsins.
Gunnar tekur við starfi Harðar
Pálssonar sem ekki gaf kost á sér
til endurkjörs. Gunnar er sem
kunnugt er enginn nýgræðingur í
störfum knattspyrnuhreyfingarinn-
ar, hefur oft áður stýrt knatt-
spymustarfinu á Akranesi og er
nú einnig stjórnarmaður í Knatt-
spyrnusambandi íslands.
VALLARMAL / LAUGARDALUR
u
„Stúkubygging ekki áfórmuð
- sagði Jóhannes Óli Garðarsson, vallarstjóri Laugardalsvallarins
„STÚKUBYGGING umhverfis
aðalleikvanginn í Laugardal
er ekki áformuð," sagði Jó-
hannes Óli Garðarsson, vall-
arstjóri, í samtali við Morgun-
blaðið aðspurður um fyrir-
hugaðar f ramkvæmdir við
vellina í Laugardal.
Eins og fram kom í blaðinu í
gær hefur FIFA, alþjóða
knattspyrnusambandið, ákveðið
að áhorfendur á landsleikjum í
knattspyrnu verði að vera í sætum
frá og með undankeppni heims-
meistaramótsins í knattspyrnu
sem hefst árið 1992. Enginn
knattspyrnuvöllur á íslandi upp-
fýllir þessi skilyrði.
„Það er auðvitað hlýrra og
notalegra að vera í góðri stúku,
en að ráðast í svo flárfrekar fram-
kvæmdir fyrir eina grein er of
mikið. Hins vegar ráða stjórn-
málamennirnir þessu og ekki er
hægt að ætlast til að Reykjavíkur-
borg skapi slíka aðstöðu, sem um
er rætt, ef völlurinn á að vera
leikvangur þjóðarinnar allrar,“
sagði Jóhannes Óli.
Vallarstjóri sagði að unnið væri
að bættri aðstöðu fyrir fijáls-
íþróttafólk í Laugardal. „Prufur
hafa verið teknar við aðalleik-
vanginn og Valbjamarvöll og á
næstu dögum verður ákveðið á
hvorum staðnum brautir verða
lagðar," sagði hann.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA—DEILDIN
Charles Barkley sést hér glíma við A.C. Green hjá Lakers.
,ekki barf, hepPnl
Sala getraunaseðla lokar kl. 14:45 á laugardögum
48. LEIKVIKA - 3. DES. 1988 1 X 2
leikur 1. Aston Villa - Norwich
leikur 2. Everton - Tottenham
leikur 3. Luton - Newcastle
leikur 4. Millwalf - WestHam
leikur 5. Nott.For. - Middlesbro
leikur 6. Q.P.R. - Coventry
leikur 7. Sheff.Wed. - Derby
leikur 8. Wimbledon - Southampton
leikur 9. C.Palace - Manch.City
leikur 10. Portsmouth - W.B.A.
leikur 11. Stoke - Chelsea
leikur 12. Sunderland - Watford
Símsvari hjá getraunum eftir kl. á laugardögum er 91-84590 og 17:00 •84464.
NÚ ER POTTURINN
TVÖFALDUR HJÁ
GETRAUNUM
ÍÞRÚmR
FOLK
■ KNATTSPYRNUFÉLAG IA
hefur séð um rekstur íþróttavallar-
ins á Akranesi og hefur nú verið
gerður samnihgur við Akranes-
kaupstað til næstu tveggja ára um
áframhaldandi rekstur. Aformað er
að hefja á næsta ári frekari vallar-
framkvæmdir, en á síðasta ári
byggði félagið um 12000 fermetra
grasæfingarsvæði og tók auk þess
í notkun félagsaðstöðu.
■ MORTEN Olsen, leikmaður
Kölnar í v-þýsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu, mun líklega leggja
skóna á hilluna í vor og reyna fyrir
sér sem þjálfari.
FráJóni Meiðsli í nára hafa
H. Garðarssyni gert honum erfitt
i V-Þýskalandi fyrir en hann er 39
ára gamall. Honum
hefur verið boðið að taka við
danska liðinu Næstveld og líklegt
er að hann taki við þjálfun liðsins
næsta sumar.
■ AÐEINS 3.800 áhorfendur
mættu á leik Stuttgarter Kickers
og Bayer Uerdingen um helgina.
Áhorfendur hafa ekki verið svo fáir
á nokkrúm leik í v-þýsku úrvals-
deildinni í vetur.
■ LIÐ Kölnar heldur til Suður-
Ameríku í æfingabúðir um jólin.
Liðið mun leika íjölda leikja m.a.
við landslið Brasilíu.
■ LANDSLIÐ Fijieyja varð
fyrst til að skora mark í undan-
keppni HM á Ítalíu. Fiji vann Ástr-
alíu 1:0. Þess má geta að síðast
þegar þjóðirnar mættust unnu
Ástralíumenn 10:0 og 2:0.
Johnson með
tuttugu galdra-
sendingar
Los Angeles Lakers lagði Philadelp-
hia 76ers í spennandi leik
LOS Angeles Lakers sigraði
Philadelphia 76ers í hörku-
spennandi leik 109:104. Með
þessum sigri er Lakers komið
í efsta sæti vestur-deildarinnar
með níu sigra úrtólf leikjum.
Los Angeles hafði forystu allan
tímann en Philadelphia náði
nokkrum sinnum að minnka mun-
inn verulega án þess þó að jafna.
„Þetta var mjög erf-
Gunnar ið'ur leikur fyrir okk-
Valgeirsson ur og lið Philadelp-
skriíar hia er mun betra en
í fyrra,“ sagði Jam-
es Worthy eftir leikinn. Hjá Los
Angeles var Magie Johnson stiga-
hæstur með 32 stig, 20 galdrasend-
ingar og 11 fráköst. Hjá Philadelp-
hiu var Charles Barkley bestur að
venju með 31 stig og auk þess reif
hann niður 23 fráköst.
Óvænt tap Detroit
Óvæntustu úrslitin á þriðjudag
voru tap Detroit í Indinana 98:107.
Það kom vel í ljós í þessum leik
hversu mikilvægur leikmaður Joe
Dumars er í liði Detroit, en hann
meiddist á æfingu á mánudaginn
og lék ekki þennan leik. Mun hann
missa af næstu 3-4 leikjum liðsins.
Af öðrum leikjum á þriðjudag
má nefna að San Antonio tapaði
enn einu sinn, nú fyrir Atlanta,
120:104. Hjá Atlanta var Dom-
inique Wilkins stigahæstur með 26
stig og Greg Anderson með jafn
mörg stig fyrir Spurs.
Phoenix vann athygliverðan sig-
ur í Houston, 124:127. Þar var
nýliðinn frá spilaborginn Las Veg-
as, Armon Gilliam, í banastuði með
35 stig.
Denver heldur áfram að skora
grimmt og gerði nú 139 stig í sigri
á New York. Þar var gamla brýnið
Alex English stighæstur með 41
stig. Loks ber að geta þess að nýju
liðin Charlotte og Miami léku í
Charlotte og sigraði heimaliðið
nokkuð örugglega. Þar með hefur
Miami tapað ellefu fyrstu leikjum
NBA-úrslit:
Atlanta Hawks - San Antonio Spursl20:104
Charlotte Homets - Miami Heat.99:84
Indiana Pacers - Detroit Pistons.107:98
Boston Celtics - New Jersey Nets 100:93
Milwaukee Bucks - Portland.119:114
Phoenix Suns - Houston Rockets.124:107
Denver Nuggets - New York Knicks 139:119
Seattle Supersonics - Utah Jazz 109:102
Golden State Warriors - Chicago..109:99
Sacramento - Los Angeles Clippers ...123:95
KORFUBOLTI / 1. DEILD KVENNA
ÍR-karfan á síðustu sek.
NOKKRIR leikir voru í 1. deild
kvenna í körfuknattleik í vik-
unni. í leik ÍR og ÍS var mikið
fjör en ÍR-ingar náðu að tryggja
sér sigur á síðustu sekúndu
leiksins.
Það var Hildigunnur Hilmars-
dóttir sem tryggði ÍR-ingum
sigur, 52:50 er hún skoraði á
síðustu sekúndunni. Leikurinn var
jafn allan tímann.
Hildigunnar lék
mjög vel og gerði
14 stig en Linda
Stefánsdóttir 10.
Vanda Sigurgeirsdóttir gerði 17
stig fyrir IS og Hafdís Helgadóttir
14.
KR sigraði Grindavík örugglega,
61:42. Það voru Hrönn Sigurðar-
dóttir og Linda Jónsdóttir sem
gerðu flest stig KR-inga eða 18
stig hvor.
Háukar áttu ekki í vandræðum
með Njarðvíkinga og sigruðu,
56:37. Herdís Gunnarsdóttir gerði
14 stig fyrir Hauka og Harpa
Sigurður
Hjörleifsson
skrifar
Majgnúsdóttir 15 stig fyrir Njarðvík.
IS sigraði KR 52:42. Hafdís
Helgadóttir lék mjög vel í liði ÍS
og gerði 15 stig og Linda Jóns-
dóttir gerði 22 stig fyrir KR.
ÍBK vann auðveldan sigur á ná-
grönnum sínum úr Njarðvík, 30:46.
Anna María Sveinsdóttir gerði 17
stig fyrir ÍBK og Sigríður Guð-
björnsdóttir 12 stig fyrir Njarðvík.
Loks sigruðu Haukar Grindavík,
45:40.
1.DEILD KVENNA
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÍBK 7 7 0 356: 241 14
KR 8 6 2 398: 350 12
ís 8 5 3 404: 377 10
HAUKAR 9 4 5 361: 383 8
ÍR 7 4 3 372: 385 8
UMFN 9 2 7 316: 389 4
UMFG 8 0 8 341: 423 0