Morgunblaðið - 01.12.1988, Síða 74
74
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1988
ÍH&mR
FOLK
■ DANSKI landsliðsmaðurinn
Klaus Sletting Jensen, sem leikur
með Holte, mun fara tii Spánar
eftir B-keppnina í Frakklandi.
Sletting mun gerast leikmaður með
Atletico Madrid.
■ PÓLSKI landsliðsmaðurinn í
handknattleik Wojcieck Kacz-
marek hefur gengið til liðs við
danska liðið Helsingör. Kacz-
marek er 27 ára og lék með 1.
deildarliðinu Pogon - lengst sem
fyrirhði liðsins.
■ DERBY hefur boðið Peter
Shilton, landsliðsmarkverði, samn-
ing til 1992. Shilton hefur enn
ekki skrifað undir, en búist er við
að hánn geri það á næstu dögum.
■ MATTHIAS Ohms var í gær
settur stjórnarformaður vestur-
þýska liðsins Eintracht Frankfurt.
Hann tekur við af Joseph Wolf sem
var rekinn eftir aðeins átta daga í
starfi hjá félaginu. Gengi Eintracht
hefur verið mjög slakt og vermir
liðið nú botnsætið með aðeins 9
stig eftir 16 leiki.
■ BJARNE Jeppesen, sem lék
síðustu tvö árin með Kolding í
Danmörku, lejkur með og þjálfar
norska liðið Stavanger IF sem sló
UBK út úr Evrópukeppninni á dög-
unum. Hann er á góðri leið með
að tryggja sér norska meistaratitil-
inn í handknattleik. Eftir tíu um-
ferðir hefur liðið þriggja stiga for-
skot. Jeppesen tók við þjálfun liðs-
ins af landa sínum Morten Stig
Christensen. Það hefur gengið það
vel hjá Stavanger í vetur að Jep-
pesen hefur verið boðið fullt þjálf-
arastarf, en hingað til hefur hann
verið í hálfu starfi hjá félaginu. „Ég
afþakkaði boðið vegna þess að það
gagnar lítið fyrir mig að vera í fullu
starfi þar sem leikmenn fá ekki frí
í vinnu til að æfa fyrri hluta dags,“
sagði Jeppesen sem einnig starfar
sem kennari.
■ JESPER Olsen, fyrrum leik-
maður Manchester United, lék
HANDKNATTLEIKUR / ÍSLANDSMÓTIÐ
Morgunblaðið/Bjarni
Gunnar Andrósson, einn af ungu leikmönnunum í Framliðinu, sést hér
sækjá að marki Gróttu.
Spennandi
endasprettur
Fyrsta jafnteflið í 1. deild í Kópa-
vogi, þarsem Grótta og Fram léku
FYRSTA jafnteflið í 1. deildar-
keppninni í handknattleik varð
staðreynd í gærkvöldi er Grótta
og Fram deildu stigum í leik
sem endaði 18 gegn 18. Það
voru úrslit sem hvorugt liðið
gat við unað, því bæði fengu
þau gullin tækifæri undir lokin
til að sigra án þess að það
gengi eftir. Fór það í skapið á
ýmsum og lá nokkrum sinnum
við að upp úr syði, einkanlega
þar sem dómgæslan á hinum
mikilvæga lokaspretti var
stundum skrítin. Sem beturfór
bitnaði það jafnt á liðunum.
Gróttumenn voru lengi í gang
í leiknum, skoruðu ekki sitt
fyrsta mark fyrr en um miðjan
hálfleik. Komst fram í 5-1 á þeim
tíma, en svo tóku
Guðmundur „heimamenn" sig
Guðjónsson saman í andlitunum
skrifar 0g minnkuðu mun-
inn ört. Gróttan
komst svo yfir og virtist stefna í
öruggan sigur. Var staðan orðin
15-13 er liðið missti tvo menn út
af fyrir misskilning. Halldór Ing-
ólfsson var rekinn af leikvelli án
þess að átta sig á því. Hann hljóp
þó út af sem endranær til að hleypa
Gunnari Gíslasyni inn á í vörnina.
Ýtti Gunnari inn á og þar með
máttu báðir dúsa utan vallar í tvær
mínútur. Fram tókst að jafna og
komast yfir, en jafnt var þó á öllum
tölum til loka. Fram léku einum
færri síðustu sekúndumar, en
Gróttu tókst ekki að nýta það til
sigurs, fékk þó liðið opið færi á
lokasekúndunum.
Ef litið er aðeins á liðin, þá var
vörnin aðail Gróttu og menn mjög
jafnir á þeim bæ. Sóknin var einhæf
og kraftlítil og þar skaraði enginn
fram úr. Svipaða sögu er að segja
um Fram, vörnin var aðallinn og
aðeins einn maður sýndi skemmti-
lega takta, Júlíus Gunnarsson sem
var allt of seint tekinn úr umferð.
Skemmtileg skytta þar á ferðinni.
Grótta—Fram
18 : 18
íþróttahúsið Digranesi, íslandsmótið í
handknattleik, l.deild, miðvikudaginn
30. nóvember.
Gangur leiksins: 0:4, 1:5, 5:6, 7:9,
8:9,10:10,11:10,15:12,15:15,18:18.
Grótta: Páll Bjömsson 2, Svafar
Magnússon, Willum Þ. Þórsson 1, Stef-
án Amarson 1, Friðleifur Friðleifsson,
Davíð B. Gíslason 2, Ólafur Sveinsson,
Gunnar Gíslason, Halldór Ingólfsson
10/7 og Sverrir Sverrisson 2.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson 5,
Stefán Öm Stefánsson.
Fram: Hermann Bjömsson 3/3, Egill
Jóhannesson, Sigurður Rúnarsson,
Birgir Sigurðsson 4, Gunnar Andrés-
son, Jason Ólafsson, Agnar Sigurðsson
4, Ragnar Hilmarsson, Tryggvi
Tryggvason 1 og Júlíus Gunnarsson 6.
Varin skot: Þór Bjömsson Fram 8,
Guðmundur A. Jónsson.
Utan vallar: Grótta 6 mínútur, Fram
2 mínútur.
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson
og Óli Ólsen.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
sinn fyrsta leik með sínu nýja fé-
lagi, Bordeaux í Frakklandi, um
síðustu helgi. Þó svo að liðið hafi
tapað fyrir Parísarliðinu PSG, 1:0,
stóð Olsen sig vel. Þjálfari Borde-
aux, Aime Jacqsuet, sagðist vera
ánægður með frammistöðu Danans
í leiknum. „Franska knattspyrnan
á greinilega vel við hann,“ sagði
Jacqsuet.
Ikvöld
Handbolti
Einn leikur verður í 1. deild karla í
kvöld. KR og FH leika í Laugardals-
höll og hefst viðureignin kl. 20.
Körfiibolti
Tveir leikir fara fram í 1. deild og
hefjast báðir kl. 20. Þór og ÍS leika á
Akureyri og KR og Haukar í Haga-
skóla.
Stærsta tap Liverpool í hálfa öld
David Platt skoraði fjögur mörk á 18 mínútum tyrir Aston Villa gegn Ipswich, 6:2
STÆRSTA tap Liverpool í bik-
arkeppni síðan 1939 leit dags-
ins Ijós í gærkvöldi er liðið tap-
aði fyrir West Ham, 4:1, á Up-
ton Park í 4. umferð enska
deildarbikarsins. Paul Ince
skoraði tvívegis fyrir West
Ham með þriggja mínútna
millibili ífyrri hálfleik. David
Platt gerði fjögur mörk fyrir
Aston Villa i stórsigri liðsins á
Ipswich, 6:2.
Sigur West Ham á Liverpool í
gær var sá fyrsti í 14 leikjum
Frá
BobHennessy
iEnglandi
í bikarkeppni síðan 1982. Paul Ince
skoraði fyrstu tvö mörkin á 23. og
26. mínútu. það
fyrra eftir auka-
spyrnu frá Liam
Brady og síðan með
skalla eftir horn-
spyrnu frá Alan Devonshire. John
Aldridge minnkaði muninn fyrir
Liverpool á 33. mínútu er hann
skoraði úr vítaspyrnu og þannig var
staðan í hálfleik. Þegar 12 mínútur
voru til leiksloka gerði varnarmað-
urinn Seve Staunton sjálfsmark og
Tony Gale innsiglaði síðan stórsigur
West Ham með glæsilegu marki
beint úr aukaspyrnu. Leikur Li-
verpool olii miklum vonbrigðum og
átti liðið á brattann að sækja allan
leikinn.
David Platt setti ijögur mörk
fyrir Aston Villa á aðeins 18 mínút-
um gegn Ipswich. Alan Mclnally
skoraði fyrstu tvö mörkin í fyrri
hálfleik, en Platt bætti fjórum
mörkum við á 59., 65., 70. og 77.
mínútu. Mörk Ipswich gerðu Mick
Stockwell og Dalian Atkinson.
GOLF
Nýr völlur í Grafarhotti
Framkvæmdir við níu holu völl hjá Golfklúbbi Reykjavíkur hefjast í vor
GOLFKLÚBBUR Reykjavíkur
ætlar að byrja gerð níu holu
golfvallar í Grafarholti næsta
vor. Fyrir er þar átján holu
völlur. Nýi völlurinn verður
væntanlega fullgerður árið
1992.
Björgúlfur Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri GR, sagði að
nýi völlurinn yrði við hlið þess
eldri, í mýrinni milli Grafarholts
og Laxalóns. „Það er verið að
ganga frá endanlegu skipulagi
fyrir þetta svæði og við vonumst
til að geta hafið vinnu við völlinn
næsta vor,“ sagði Björgúlfur.
„Við verðum að byrja á að ræsa
fram mýrina, en þetta svæði er
ágætt að því leyti að þar er ekki
mikið grjót. Það verður ef til vill
hægt að byja að nota völlinn eitt-
hvað árið 1991, en við reiknum
með að hann verði alveg tilbúinn
ári síðar. Ég þori ekki að fullyrða
hver verður endanlegur kostnaður
við völlinn, en hann mun þó skipta
tugum milijóna. Við gerum áætl-
anir um gerð vallarins um áramót-
in og þá skýrist sú tala.“
Björgúlfur sagði að þessi völlur
yrði ekki til þess að Golfklúbbur-
inn geti annað eftirspurn, því
ásókn í golf hafi aukist gríðarlega
undanfarið ár. Þannig hafi til
dæmis 180 meðlimir bæst í klúbb-
inn á þessu ári.
Auk átján holu vallarins í Graf-
arholti hefur Golfkúbbur
Reykjavíkur nú tólf holu völl á
Korpúlfsstöðum. Þá er fyrirhugað
að gera nýjan völl í Gufunesi, en
Björgúlfur sagði að sá völlur yrði
ekki fullgerður fyrr en undir alda-
mót. „Ég veit satt best að segja
ekki hvert við eigum að vísa öllu
því fólki sem kemur hingað næstu
3-4 árin. Svipaða sögu er að segja
af öðrum golfklúbbum á höfúð-
borgarsvæðinu; þeir eru mjög þétt
setnir," sagði hann.
Önnur úrslit voru þau að Leicest-
er og Nottingham Forest gerðu
markalaust jafntefli í frekar léleg-
um leik. Það bar helst til tíðinda í
þeim leik að fyrirliði Forest, Stuart
Pearce, var rekinn af leikvelli í
upphafi síðari hálfleiks. QPR og
Wimbledon gerðu einnig jafntefli,
0:0. Þessi lið verða því að leiða
saman hesta sína öðru sinni.
■ TOTTENHAM fékk stigin sín
tvö aftur í gær, en liðið missti stig-
in í upphafi keppnistímabilsins
vegna þess að leikvöllur liðsins var
ekki tilbúinn í tæka tíð fyrir fyrsta
deildarleikinn gegn Coventry. I
gær fékk liðið síðan stigin aftur,
en þarf að greiða 15.000 pund í
sekt. Tottenham vann sig því upp
um tvö sæti og er nú í 15. sæti
deildarinnar.
HOLLAND
Samkynhneigdir
stofna FC Gay
Þau tíðindi hafa borist frá Holl-
andi, að samkynhneigðir
knattspymumenn hafi ákveðið að
stofna eigið knattspyrnufélag og
hefur það þegar verið nefnt FC Gay.
Sá sem borið hefur hitann og
þungann að fyrirtækinu heitir Ger-
ard Van Rijsen og var eftir honum
haft að ástæðan fyrir uppátækinu
væri að samkynhneigðir knatt-
spymumenn gætu við engan rætt
sín vandamál og þeir finndu fyrir
mikilli úlfúð í sinn garð meðal ann-
arra leikmanna.