Morgunblaðið - 08.12.1988, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
a 19
Framleiðsla hafín í strand-
eldisstöð Fjörfísks hf.
Selfossi.
TEKIÐ var á móti fyrstu seið-
unum í hina n'ýju strandeldis-
stöð Fjörfisks hf. í Þorlákshöfn
að kvöldi fímmtudagsins 1. des-
ember. í fyrsta áfanga stöðvar-
innar er fyrirhugað að taka á
móti 300 þúsund seiðum á næstu
dögum.
Fyrstu seiðin komu frá Fljóta-
laxi, samtals tíu þúsund. Næsta
sending verður frá Bakkalaxi í
Ölfusi, 250 þúsund seiði. í stöðinni
eru 6 eldisker komin í gagnið og
verið að taka önnur átta í notkun.
Bygging stöðvarinnar hófst í júní
á þessu ári og hefur gengið hratt
fyrir sig.
Seiðin verða alin upp í þriggja
kílóa stærð í stöðinni en einnig er
gert ráð fyrir að selja hluta af
framleiðslunni sem unglax, um
700 grömm, næsta vor. I stöðinni
fullbyggðri verður unnt að fram-
Fyrsta áfanga Fjörfisks hf. fagnað. Byggingamenn og starfemenn
stöðvarinnar færðu forsvarsmönnum Fjörfisks hf. fískeldistertu í
tilefni þess að framleiðsla var hafin i stöðinni.
leiða 380 tonn af laxi árlega. Þrír ina í byijun starfseminnar.
starfsmenn munu vinna við stöð- — Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Jakob Magnússon fiskeldismaður lengst til vinstri, Friðrik Sigurðsson eldisstjóri Fjörfísks hf., Agnar
Pétursson byggingarmeistari stöðvarinnar og Guðmundur Sigurðsson stjórnarformaður Fjörfisks hf.
fylgjast með viðtökum fisksins við fóðrinu eftir að þeim hafði verið gefið í fyrsta sinn.
paté • SJávarpaté
Sjávarréttir (hvftvíns-
hlaupi • Reykt hámerl
Grafln hámeri
Reyktur lax
Grafinn lax
Ferskt jöklasalat með
pöstu í jógúrtsósu
Ferskt ávaxtasalat með
pöstu í tandoorisósu
Lambarúllupylsa
Sviðasulta
Lambapaté
Rauðvínshjúpað grísa-
læri jólaskinka
Jólagrísarifjasteik
Svart pönnubrauð
Munkabrauð
Þriggja korna brauð-
hleifur - Jólabrauð
Rúgbrauð ■ Hrökkbrauð
Kaldar sósur
Sex teg. af meðlæti
Ostar ■ Ávextir
Allarteg. af Baulu-jógúrt
Borði nú hver sem betur getur
Hverfisgötu 8-10-pantanasími 18833
Spennu- og ástarsögur á kr. 594,-
Nancy, Frank og Jói á kr. 169,-
Ármann Kr. Einarsson og Sindy
á kr. 264,-
Við munum bæta við bókum og leikföngum
jafnt og þétt á jólamarkaðinn okkar allt fram til
jóla. Aðeins vörur á frábæru verði. Settu því
Fellagarða inn á kortið þitt og þá verður ódýrt
að versla fyrir þessi jól.
_________J%r
jOLAM ARK AIXJRINN
DRAFN ARFELLI 16, FELLAGÖRÐUM, S. 7 8 5 8 8