Morgunblaðið - 08.12.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
•fáldast
inum
Morgunblaðið/Sverrir
heimi“ var kynnt. Talið frá vinstri
unnar, Arni Gunnarsson og Hanna
aðarlaus böm, en það verkefni er
nú komið á lokastig og mun rekstur
þess hefjast á næsta ári.
í samvinnu við systurstofnanir á
hinum Norðurlöndunum hefur mat-
vælum og sáðkomi verið dreift í
Mósambík, en þar er alvarlegur
matarskortur ií nokkrum hémðum
landbins, óg erfitt að koma vistum
á áfangastað. IFram að þessu hefur
verið nauðsynlegt að fljúga með
vaminginn til áfangastaða, en sam-
kvæmt síðustu fréttum mun land-
leiðin vera að opnast, og verður þá
auðveldara og kostnaðarminna að
halda hjálparstarfinu áfram.
Á þessu ári hefur Hjálparstofnun
kirlq'unnar tekið þátt í kostnaði við
stíflugerð í Víetnam, en hún stuðlar
að bættri hrísgijónauppskeru smá-
bænda, og gerir þeim kleift að
brauðfæða sig sjálfir. Þá hefur
Hjálparstofnunin kostað nokkur
smærri þróunarverkefni í Indlandi
og Eþíópíu, sem hjálpa mörgum
íbúum þessara landa til sjálfshjálp-
ar.
Hjálparstofnun kirkjunnar sinnir
ekki einungis hjálparbeiðnum er-
lendis frá, heldur styrkir hún einnig
neyðarstarf á íslandi, og var t.d.
Kvennaathvarfínu í Reykjavík ný-
lega veittur 500 þús. króna styrkur
vegna íjárhagsörðugleika.
Pramundan bíða Hjálparstofnun
kirkjunnar mörg hjálparverkefni.
Eitt þeirra er uppbyggingarstarf
vegna mikilla flóða í Bangladesh,
sem urðu á síðastliðnu hausti. Flóð-
in hafa gert 25 milljónir manna
heimilislausa, og enn er mikil hætta
á að sjúkdómar breiðist þar út.
Þetta er annað árið í röð þar sem
gífurleg flóð hafa orðið í Bangla-
desh, og þar versnaði ástandið enn,
þegar fellibylur gekk yfír landið í
byrjun desember.
Matvælaaðstoð í Mósambík verð-
ur haldið áfram í samvinnu við syst-
urstofnanir á Norðurlöndum, og í
litlu þorpi í suðurhluta Indlands
hefur Hjálparstofnun kirkjunnar
ákveðið að veita fé til byggingar
nýs skóla fyrir fátækustu bömin í
þorpinu, en nýlega var skóli fyrir
þau brenndur til grunna af ofstæk-
ismönnum. Þá verður einnig styrkt
bygging heimilis fyrir vangefín böm
í þorpinu Tamil Nadu, sem er í
suðurhluta Indlands. Um er að ræða
böm frá lægstu stéttum og stétt-
lausum fjölskyldum, en þeir hópar
em hvað verst settir. Heimilið verð-
ur byggt af þorpsbúum sjálfum og
rekið af innlendri kristniboðsstöð.
Morgunblaðið/Þorkell
Lagt verður 10% vörugjald á til
dæmis timbur, sement, innrétt-
ingar og húsgögn, verði frum-
varp fjármálaráðherra að lögum.
áherslu á að vörugjald sem lagt er
á sælgæti og gosdrykki verði hækk-
að sem fyrst úr 14% í 25%,“ sagði
Kristinn Bjömsson framkvæmda-
stjóri Nóa-Síríusar. „Það þýðir að
íslensk framleiðsla yrði með 25%
vörugjaldi en sú erlenda með 14%
vörugjaldi fyrst um sinn, þar sem
til em í landinu birgðir af innfluttu
sælgæti sem 14% vömgjald hefur
verið greitt af. Hins vegar þyrfti
að greiða 25% vömgjald af íslensk-
um birgðum. Við sættum okkur
ekki við þetta.
Kvennalistinn hefur gefið í skyn
að hann styðji vömgjaldshækkun á
sælgæti og gosdrykkjum vegna
manneldissjónarmiða. Innflutning-
ur á sykri hefur hins vegar verið
um 11 þúsund tonn á ári en sælgæt-
is- og gosdrykkjaframleiðendur
hafa einungis notað innan við 3
þúsund tonn af þessu magni á ári.
Okkur fínnst því eðlilegast að lagt
yrði sama vömgjald, til dæmis 10%,
á allan sykur," sagði Kristinn
Bjömsson.
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra, hefur lagt fram
frumvarp um hækkun á vöru-
gjaldi á sælgæti og gosdrykkjum
úr 14% í 25%.
Ég trúi því hins vegar ekki að þetta
vömgjald verði að vemleika. Það
er skynsamlegra að draga saman
seglin í ríkisbúskapnum en að
hækka skatta," sagði Eyjólfur Ax-
elsson.
„Ekki sama gjald á íslenskri
og erlendri framleiðslu“
„Fjármálaráðherra leggur
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Pakistan
Hversu mikið svigrúm
feer Benazir til athafiia?
SÚ rökrétta ákvörðun sem Ishaq Khan forseti Pakistans tók,
er hann skipaði Benazir Bhutto í embætti forsætisráðherra,
hefur mælst vel fyrir á Vesturlöndum og vitaskuld fagna
fylgismenn Benazirs ákaft. Menn gera sér greiii fyrir því
hvílik timamót þessi skipun er. Þar með er ekki sagt, að
stjómmálaskýrendur telji að þar með sé vandi Pakistana leyst-
ur í eitt skipti fyrir öll. Kannski þvert á móti. Þvf að hvað
sem mælskusnilld og persónutöfrum Benazirs Bhutto líður,
er það ómótmælanlegt, að enginn veit hvort hún hefur stjórn-
unarhæfileika og hvort hún hefiir lag á að velja sér ráðgjafa
sem gætu gagnast henni f þvi flókna verkefhi sem hennar
bíður.
Itímaritinu Far Eastem Ec-
onomic Review segir Hamish
McDonald í Islamabad, að það
hafi komið mörgum á óvart,
hversu andi Zia fyrverandi for-
seta var fyrirferðarlítill í kosn-
ingunum. Einnig hefði vakið at-
hygli ýmissa, hve Benazir Bhutto
dró smátt og smátt í land með
alls konar yfírlýsingar og stefnu-
mál eftir því sem á leið kosninga-
baráttuna.
Hún hafði í upphafí heitið
því, að stjóm hennar myndi veija
miklu fjármagni til að reisa skóla
um allt land, en nú eru aðeins
um 20-25 prósent Pakistana læs-
ir. Hún hafði einnig lagt áherslu
á að fé yrði látið renna til fá-
tæks fólks sem ætti sér naumast
þak yfír höfuðið og allir ættu
rétt á því að hafa nóg að bíta
og brenna. En úr þessu dró sem
sagt þegar á leið og Benazir
sagði sjálf, að hún gerði sér grein
fyrir, að þetta væru langtíma-
markmið, sem vitanlega bæri að
stefna að, en fráleitt að vænta
þess að hægt væri að leysa allan
vanda í einu vetfangi.
Samkvæmt grein í Economist
sem heitir „sigurvegari í hlekkj-
um“ hefur Beanzir orðið að
draga enn meira í land. Hún
hefur fallist á að Pakistan styðji
áfram afganska skæruliða og
veiti þeim skjól. Að sönnu skal
nú tekið fram, að ég minnist
þess ekki að hafa heyrt að
Bhutto væri með stefnubreyt-
ingu í huga varðandi þetta mál.
En hún hefur einnig orðið að
fallast á að 34 prósent ríkistekna
renni til hersins, eins og áður.
Þegar hún var innt eftir skýring-
um þessa, svaraði hún stutt og
laggott að þetta væri nauðsyn-
legt til að ekki yrði skellt á her-
lögum í landinu. Þá hefur hún
samþykkt að í öryggisráði ríkis-
ins sitji auk hennar, forseti
landsins, yfirmenn hersins og
yfírráðherrar fylkjanna fjögurra
sem Pakistan byggja.
Þar sem Þjóðarflokkur Benaz-
irs hlaut aðeins afdráttarlausan
meirihluta í einu fylkjanna, Sind,
sem jafnframt er heimafylki
hennar, er sýnilegt að forsætis-
ráðherrann yrði í minnihluta inn-
an ráðsins ef til ágreinings kæmi.
Sumir spá því, að Benazir
muni fara að umdeildu fordæmi
Indiru Gandhi á Indlandi á sínum
tíma og reyna með ýmsu móti
að tryggja sér stuðning fylkis-
höfðingjanna, en þar með er
ekkert sagt um hvort henni tekst
það og einnig gæti allt slíkt
makk vakið upp átök og ólgu,
sem hún vill sjálfsagt forðast í
lengstu lög.
Economist nefnir enn eitt sem
Benazir hafi orðið að fallast á
til að ná embætti forsætisráð-
herra. Það sé að styðja til endur-
kjörs Ishaq Khan forseta þann
12. desember næstkomandi.
Fylkisstjórnir og þingið í Isl-
amabaad kjósa forsetann. Með
þeim Ishaq og Benazir eru engir
sérstakir kærleikar, en hún mun
þó vera á því, að hann hafi átt
drjúgan þátt í, hversu kosning-
Reuter
Benazir heftir þegar tryggt sér
sess í mannkynssögunni sem
fyrsti kvenforsætisráðherra í
múhameðstrúarríki. En enginn
veit hveijir stjórnunarhæfileik-
ar hennar eru.
Með stuðningsmönnum.
amar fóru heiðarlega fram og
hún meti það við hann.
Við fráfall Zia forseta á
síðasta sumri var efnahagur
landsins allur í upplausn og það
er nánast óhugsandi að Bhutto
geti leyft sér að standa við nota-
leg kosningaloforð um skóla-
byggingar og að reist verði hálf
milljón nýrra íbúða árlega. Það
myndi kalla á stórlega aukna
verðbólgu og trúlega myndi Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn einnig
gera athugasemdir við það snar-
lega ef Pakistanar stæðu ekki í
skilum við skuldunauta sina.
Þegar sigurviman mesta er
rannin af Benazir Bhutto og
stuðningsmönnum hennar og orð
duga ekki lengur ein og sér,
heldur verða að koma til athafn-
ir og þær kannski ekki vinsælar,
mun reyna á stjómkænsku henn-
ar. Margir hafa þó þyngstar
áhyggjur af því, að hún hafi lát-
ið hjá líða að setja sig inn í efna-
hagsmál landsins, hafí á þeim
takmarkaðan áhuga og ekki sér-
lega mikinn skilning.
Ráðgjafar hennar hafa bent
henni á að réttast væri að sækj-
ast eftir að fá heim til starfa á
ný ýmsa pakistanska sérfræð-
inga sem vinna hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum og Alþjóðabankan-
um. Það sé í augnablikinu eina
leiðin sem sé vit í að fara að svo
stöddu.
Benazir Bhutto hefur fram að
þessu ekki látið margt frá sér
fara um hvaða stefnu hún hyggst
móta. Hún hefur verið önnum
kafín við að gefa yfírlýsingar um
að hún verði forseti allrar þjóðar-
innar, að hún vilji græða sárin
sem herforingjastjómartímabilið
hefur skilið eftir sig með þjóð-
inni, að hún fyrirgefi þeim sem
ofsóttu föður hennar.
Beinar tillögur og áþreifanleg-
ar hugmyndir hafa enn ekki séð
dagsins ljós frá henni. Stuðn-
ingsmenn hennar segja að hún
vilji ekki flana að neinu, heldur
kynna sér málin af kostgæfni.
Það verður hún ekki hvað síst
að gera nú, þegar hún hefur
hálft í hvoru verið vængstýfð
áður en hún reyndi að taka flug-
ið.