Morgunblaðið - 08.12.1988, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JDESEMBER 1988
Afengisverslunin;
Sjálfsafgreiðslan
ekki fyrr en eftir jól
SJÁLFSAFGREIÐSLA kemst
ekki á í útibúi ÁTVR á Akureyri
fyrr en eftir jól, að sögn Hauks
Torfasonar, forstöðumanns úti-
búsins.
Gert hafði verið ráð fyrir því að
takast mundi að gera þær breyting-
ar á húsnæðinu sem nauðsynlegar
eru fyrir síðustu mánaðamót, en
verkið hefur dregist.
Þegar hefur verið hafíst handa
við að færa fatahengi og eldhúsað-
stöðu starfsmanna upp á aðra hæð,
en afgreiðslusvæðið á jarðhæðinni
mun stækka sem því nemur. Það
stækkar því talsvert, og auðveldar
starf afgreiðslumanna mjög, og
sparar þeim „nokkur pör af skóm
hveijum á ári“, eins og einn þeirra
komst að orði — þegar þeir hætta
að þurfa að hlaupa fram og til baka
í versluninni til að ná í flöskur fyr-
ir viðskiptavinina.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Úr útibúi ÁTVR á Akureyri. Veggurinn þar sem flöskurnar eru til
sýnis verður flarlægður þegar sjálfsafgreiðslan verður tekin upp.
Aðalsteinn Vestmann
sýnir í Útvegsbankanum
AÐALSTEINN Vestmann, kenn-
ari og myndlistarmaður, hefur
opnað sýningu á níu myndum —
sex vatnslitamyndum og þremur
olíumálverkum — í afgreiðslusal
Útvegsbankans á Akureyri.
Aðalsteinn hefur lengi starfað
sem myndmenntakennari við
Bamaskóla Akureyrar. Hann hefur
haldið einkasýningar á Akureyri og
í Reykjavík, og auk þess tekið þátt
í fjölda samsýninga víða um land.
Útvegsbankinn hefur staðið fyrir
myndlistarsýningum reglulega í
nokkur ár og er þetta sú 14. í röð-
inni. Sýning Aðalsteins er sölusýn-
ing.
Aðalsteinn Vestmann
Á fyrsta degi Löwenbráu-bruggunar í Sana í gær. Frá vinstri: Baldvin Valdimarsson, framkvæmda-
stjóri Sana, Lothar Sallinger, bruggari frá Vestur- Þýskalandi, og Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas.
Tilraunabruggun á Löwenbrau hjá Sana:
Of hátt bjórverð ýtir und-
ir áframhaldandi smygl
- segir Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas
TILRAUNABRUGGUN á Löwenbráu bjór hófst í gær í Sana á Akur-
eyri. Sérlegur bruggari frá Löwenbráu-verksmiðjunni í MUnchen í
Vestur-Þýskalandi, Lothar Sallinger, er staddur á Akureyri til að
sjá um bruggunina ásamt Skotanum Robert Thompson, yfirbrugg-
ara Sana. Lagt var í 8.000 lítra í gær og í dag verður lagt í aðra
8.000 lítra.
„Við gerum tilraun með tvær
gerðir Löwenbrau-bjórs, önnur
verður líklega 5,2% að styrkleika
og hin 5,6%. Eftir 2-3 vikur verður
síðan hægt að smakka bjórinn og
þá koma menn frá verksmiðjunum
í Þýskalandi til að smakka hann
mað okkur. Sú gerðin sem mönnum
lýst betur á verður svo fyrir val-
inu,“ sagði Ragnar Birgisson, for-
stjóri Sanitas, í samtaii við Morgun-
blaðið á Akureyri í gær.
Ragnar sagði forráðamenn San-
itas hafa hugsað sér að vera með
fjórar tegundir sterks bjórs á mark-
aðnum: Sanitas Pilsner sem yrði
um 4,5% að styrkleika, -Sanitas
Lageröl um 5,5% og Viking-bjórinn
sem er um 6,5% og síðan Löwen-
bráu-bjórinn sem verður 5,2% til
5,6% eftir því hvor gerðin verður
valin. .
Engin takmörk um
styrkleika skv. reglum
alþingis
I fyrradag kynntu Höskuldur
Jónsson, forstjóri ÁTVR, og Ólafur
Ragnar Grímsson, fjármálaráð-
herra, hvemig staðið verður að bjór-
sölu og kom þá m.a. fram að sterk-
asti bjórinn sem seldur verður hjá
ÁTVR verður 5,6% að styrkleika.
Ragnar Birgisson sagði í gær að
Alþingi hefði sett reglur um sölu
bjórs á íslandi og það hefði ekki
verið gert með neinum takmörkun-
um um styrkleika. Því tryði hann
því ekki að þessi takmörk yrðu sett
í reynd.
Ragnar sagðist ennfremur telja
verð allt of hátt, skv. þeim hug-
myndum sem kynntar voru í fyrra-
dag. 33 sentílítra dós af íslenskum
Kjötiðnaðarstöð KEA með hakk í dýrasta flokki á markaðnum;
lu eig’um vui a uu^i ■
a hráefni í nautahakkið
bjór mun kosta 115 krónur en
Ragnar sagðist telja eðlilegra að
dósin yrði seld á 80 krónur.
Svo hátt verð ýtir undir
áframhaldandi smygl
„Eðlilegt væri að fólk greiddi 80
krónur fyrir innlenda framleiðslu,
100 krónur fyrir erlendan tankabjór
sem tappaður er hér á landi og 130
krónur fyrir alerlendan bjór, inn-
fluttan. Í dag em alla jafna greidd-
ar 145 krónur fyrir dós af smygluð-
um bjór, þannig að ef verðið verður
svo hátt sem um hefur verið talað
mun það ýta undir áframhaldandi
smygl. Svo hátt verð er því ekki
stuðningur við íslenskan iðnað. Við
teljum líka að innlendir aðilar ættu
að mega koma með eins margar
tegundir á markaðinn og þeir vilja.
Við viljum koma fram með fjórar
tegundir — öðru vísi er ekki hægt
að stunda vöruþróun. Gömlu verk-
smiðjurnar erlendis eru búnar að
þróa sína vöru í mörg hundruð ár
— það viljum við fá að gera nú.
Það er mín skoðun að fólk verði
að fá að velja og í framhaldi af því
munum við svo ákveða nánar hvað
við framleiðum," sagði Ragnar.
Sköpum atvinnu og
gjaldeyri
Ragnar sagði það hljóta að vera
markmið íslenskra stjómvalda að
styðja við íslenskan bjóriðnað, „nú
á tímum atvinnuleysisvofunnar. Við
sköpum atvinnu og við sköpum líka
gjaldeyri," sagði hann.
Isfiskur í Hull:
\
- segir Leifur Ægisson, verkstjón
NAUTAHAKK frá Kjötiðnaðarstöð KEA er í flokki með því dýrasta
sem selt er á markaðnum, skv. könnun sem verðlagsstofiiun kynnti
í fyrradag. Leifur Ægisson, verkstjóri á Kjötiðnaðarstöðinni, sagði
í samtali við Morgunblaðið, að stöðin treysti sér ekki til að selja
ódýrara nautahakk en hún gerði
„Við kaupum okkar nautakjöt frá
siáturhúsum á verði sem gefið er
út af framleiðsluráði landbúnaðar-
ins. Við bjóðum upp á tvenns konar
nautahakk, annars vegar úr naut-
gripakjöti, sem við seljum á 385
krónur kflóið í heildsölu og hins
vegar ungnautahakk, úr UN-1-
kjöti, í pökkum í loftskiptum um-
búðum, á 420 krónur kflóið. Við
eigum ekki völ á ódýrara hráefni
og treystum okkur þar af leiðandi
dag.
ekki til að selja hakkið ódýrara en
við gerum," sagði Leifur. Hann
gagnrýndi að ekki kæmi fram í
umræddri könnun úr hvaða verð-
flokkum hakkið væri unnið, en á
því mætti finna a.m.k. hluta skýr-
ingar á því hve misdýrt h^kkið væri.
Einungis ungnautakjöt í
Hrísalunds-hakkinu
í könnuninni kemur fram að
Kjörmarkaður KEA í Hrísalundi
selur dýrasta nautakjötshakk á
landinu, á 630 krónur kflóið. Fitan
í hakkinu í Hrísalundi er 12%, sem
er með því mesta skv. könnuninni.
Leifur sagði að hakkið sem selt er
í Kjörmarkaðnum væri hakkað á
staðnum, en hann vissi þó að í versl-
uninni væri einungis notað ung-
nautakjöt — UN 1. Hann sagði
ennfremur að 10% fita væri talin
heppileg í hakki, en 9-11% fita
væri talin í góðu lagi.
Leifur sagðist ekki vita úr hveiju
þeir framleiddu sitt hakk sem seldu
það á miklu lægra verði en Kjötiðn-
aðarstöð KEA, „en ég treysti mér
ekki til að bjóða hakk, sem selt
yrði með söluskatti út úr búð á 420
krónur kflóið, nema nota í það K-3-
kjöt, sem er af gömlum kúm,“ sagði
hann. Leifur upplýsti að verð á
UN-l-kjöti frá sláturhúsum til
vinnslustöðva væri 290 kr. kílóið,
en kflóið af K-3-kjöti væri hins veg-
ar á 178 krónur.
Heimaslátrun?
Leifur sagðist ennfremur hafa
heyrt að mikið væri um heimaslátr-
un hér á landi. „Hvert fer allt þetta
kjöt?“ spurði hann. „Það er selt eitt-
hvert á mun lægra verði en' við hjá
Kjötiðnaðarstöð KEA kaupum okk-
ar lqöt. Þetta er mál sem verðlags-
og heilbrigðisyfirvöld ættu áð sjá
sóma sinn í að hafa eftirlit með,
og mál sem lögregluyfirvöld ættu
að skoða," sagði Leifur Ægisson.
Björgvin seldi
fyrir 16 millj.
Dalvík.
TOGARINN Björgvin EA 311
seldi á mánudag um 177 tonn af
ísfiski í Hull. Mjög gott verð
fékkst fyrir aflann, eða um 16
milljónir króna.
Allt að 150 kr. fengust fyrir ýs-
una, yfír 110 kr. fyrir stórþorsk og
um 80 kr. fyrir grálúðu. Alls var
Björgvin með um 130 tonn af þorski,
en afgangurinn var ysa, grálúða og
koli. Sala þessi kom nokkuð á óvart,
því fiskverð hefur verið lágt áerlend-
um mörkuðum að undanfömu.
Fréttaritari