Morgunblaðið - 08.12.1988, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
í ' > Utvarpsvekjarar frá SIEMENS tíC
RG 278: Venjuleg skífu-
klukka. Vekur með útvarps-
dagskrá eða suðhljómi.
Blundhnappur.
Verð: 2680 kr.
RG 281: Vekur með út-
varpsdagskrá eða suð-
hljómi. Blundhnappur.
Svaefir.
Verð: 2520 kr.
RG 296: Með snælduhólfi.
Vekur með útvarpsdagskrá,
suðuhljómi eða snælduleik.
Blundhnappur. Svæfir.
Verð: 2910 kr.
RG 283: Vekur með út-
varpsdagskrá eða suð-
hljómi. Blundhnappur.
Svæfir.
Verð: 2350 kr.
SMÍTH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
Þrjár „rauðar ástarsögur“
Bókaútgáfan Skuggsjá í Hafn-
arfirði hefur sent frá sér þrjár
nýjar bækur i bókaflokknum
Rauðu ástarsögurnar: Arfinn
eftir Erik Nerlöe, Gylltu skóna
eftir Else-Marie Nohr og Ást og
átök eftir Sigge Stark. Skúli
Jensson og Sverrir Haraldsson
þýddu.
í kynningu útgefanda segir um
efni bókanna: „Arfurinn: Hún er
ung og fátæk og ferðast til aldraðr-
ar frænku sinnar til að aðstoða
hana í veikindum hennar. Alveg
síðan hún 'var bam hafði hana
dreymt um að fá einhvemtíma tæki-
færi til þess að búa á óðalssetri.
Þessir draumar hennar höfðu feng-
ið hana til að gleyma dapurlegri
og erfiðri bemsku sinni. Nú virtust
óskir hennar mjög óvænt vera að
rætast — en ungi maðurinn í
draumum hennar elskar aðra . ..
Gylltu skórnir: Móðir hennar var
erfið í umgengni og hugsaði aðeins
VAKA—Helgafell hefur sent frá
sér bókina Paskval Dvarte og
hyski hans eftir Camilo José
Cela í íslenskri þýðingu Kristins
R. Ólafssonar.
Höfundurinn, Camilo José Cela,
fæddur 1916, er mjög virtur í
heimalandi sínu, Spáni, og hefur
setið í Hinni konunglegu akademíu
spænskrar tungu frá 1957. Hann
hefur hlotið fjölmargar viðurkenn-
ingar fyrir ritverk sín; 1983 hlaut
hann bókmenntaverðlaun Spánar
og nú síðast veitti hann viðtöku
hinum eftirsóttu verðlaunum Prin-
cipe de Asturias. Verk hans hafa
verið þýdd á fjölmörg tungumál,
en Paskval Dvarte og hyski hans
er fyrsta bók hans á íslensku.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
um sjálfa sig. Og bróðir hennar var
eiturlyfjasmyglari, sem eftirlýstur
var af lögreglunni. Eitt kvöldið fer
hún frá heimili sínu og eftir það
fréttist ekkert af henni. Þegar hún
sást síðast, var hún klædd hvítum
hlíralausum kjól, með gula slá og
var í gylltum skóm. Lögreglan er á
þeirri skoðun að henni hafi verið
rænt af samtökunum, sem bróðir
hennar er í.
Ást og átök: Þær höfðu farið upp
í selkofa, sem var úr alfaraleið upp
í skóginum. Þær voru dálítið ótta-
slegnar, því þær höfðu frétt af því
að smyglarahópur héldi til í ná-
grenninu. Þær voru taugaóstyrkar
og enn meir eftir að hundur þeirra
hafði fundið bakpoka falinn bak við
stóra stein í skóginum. I bakpokan-
um var samanvafmn frakki, fjórir
elgsfætur og bréfmiði, sem á var
skrifað „miðvikudag kl. 11“. En
hvað átti að gerast á miðvikudag
klukkan ellefu?“
„Persónulýsingar Cela hafa þótt
magnaðar og í skáldsögunni um
ógæfumanninn Paskval Dvarte
skapar hann persónu sem er
ógleymanleg. Mótsagnirnar í lífi
Paskvals Dvarte eru ýkt mynd af
siðferði samfélagsins. Hann er ill-
menni og öðlingur í senn; fátækur
sveitamaður sem óheillastjama rek-
ur til að fremja hræðileg ofbeldis-
verk og siðlaus afbrot gegn sam-
félagi sínu.
Frásögnin er játning dauða-
dæmds manna sem alist hefur upp
í andrúmslofti siðblindu og hrotta-
skapar."
Paskval Dvarte og hyski hans
er 152 blaðsíður. Arthúr Ragnars-
son teiknaði kápumynd. Vaka-
Helgafell annaðist umbrot og setn-
Allar bækurnar voru settar og
prentaðar í Prentbergi í Kópavogi
og allar bækurnar voru bundnar í
Amarfelli.
ingu. Bókin var prentuð i Prent-
stofu G. Benediktssonar og bundin
í Amarfelli.
Bók eftir Camilo José Cela
PÉTUR
ZOPHONÍAS
VKINGS
IÆKJARÆIT
FANGINN OG DOMARINN
Þáttur af Sigurði skurði
og Skúla sýslumanni
Ásgeir Jakobsson
Svonefnd Skurðsmál hófust
með því, að 22. des. 1891
fannst lík manns á skafli á
Klofningsdal í Önundarfirði.
Mönnum þótti ekki einleikið
um dauða mannsins og féll
grunur á Sigurð Jóhannsson,
sem kallaður var skurdur, en
hann hafði verið á ferð með
þeim látna daginn áður á
Klofningsheiði. Skúla sýslu-
manni fórst rannsókn málsins
með þeim hætti, að af hlauzt
5 ára rimma, svo nefnd Skúla-
mál, og Sigurður skurður, sak-
iaus, hefur verið talinn morð-
ingi í nær 100 ár. Skurðsmál
hafa aldrei verið rannsökuð
sérstaklega eftir frumgögnum
og aðstæðum á vettvangi fyrr
en hér.
VÍKINGSLÆKJARÆTT IV
Pétur Zophoníasson
Þetta er íjórða bindið af niðja-
tali Guðríðar Eyjólfsdóttur og
Bjarna Halldórssonar hrepp-
stjóra á Víkingslæk. Pétur
Zophoníasson tók niðjatalið
saman, en aðeins hluti þess
kom út á sínum tíma. í þessu
bindi eru i-, k- og 1-liðir ættar-
innar, niðjar Ólafs og Gizurar
Bjarnasona og Kristínar Bjarna-
dóttur. í þessari nýju útgáfu
Víkingslækjarættar hefur tals-
verðu verið bætt við þau drög
Péturs, sem til voru í vélriti, og
auk þess er mikill fengur að
hinum mörgu myndum, sem
fylgja niðjatalinu. í næsta bindi
kemur svo h-liður, niðjar Stefáns
Bjarnasonar.
ÞORÐUR KAKALI
Ásgeir Jakobsson
Þórður kakali Sighvatsson var
stórbrotin persóna, vitur
maður, viljafastur og mikill
hermaður, en um leið
mannlegur og vinsæll. Ásgeir
Jakobsson hefur hér ritað
sögu Þórðar kakala, eins
mesta foringja Sturlunga á
Sturlungaöld. Ásgeir rekur
söguna eftir þeim
sögubrotum, sem til eru
bókfest af honum hér og þar í
Sturlungusafninu, í Þórðar
sögu, í Islendinga sögu, í
Arons sögu Hjörleifssonar og
Þorgils sögu skarða og einnig í
Hákonar sögu. Gísli
Sigurðsson myndskreytti
bókina.
ANDSTÆÐUR
Sveinn frá Elivogum
Andstæður hefur að geyma
safn Ijóða og vísna Sveins frá
Elivogum (1889-1945). Þessi
ljóð og vísur gefa glögga
mynd af Sveini og viðhorfum
hans til lífs, listar og sam-
ferðamanna. Sveinn var bjarg-
álna bóndi í Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslu á fyrri hluta
þessarar aldar. Hann var eitt
minnisstæðasta alþýðuskáld
þessa lands og þótti mjög
minna á Bólu-Hjálmar í kveð-
skap sínum. Báðir bjuggu þeir
við óblíð ævikjör og fóru síst
varhluta af misskilningi sam-
tíðarmanna sinna.
SKVGGSJA - BOKABÚÐ OLIVERS STEINS SE