Morgunblaðið - 08.12.1988, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
'A í 3C .! : [ J DaQ UT V M1 ,C IC i V.I3UUSJiOi:
Morgunblaöið/Bjami
Davíð Scheving Thorsteinsson leitar að besta bjór i heimi.
Bjórgerð á íslandi:
Er að leita að
besta bjór í heimi
- segir Davíð Scheving Thorsteins-
son. Vífilfell hyggst brugga eigin bjór
„ÉG HEF verið að leita að besta bjór í heimi til að flytja inn i
tönkum og tappa á héma,“ sagði Davíð Scheving Thorsteinsson
hjá Sól hf. aðspurður um hvort hann hyggðist láta fyrirtæki sitt
bragga bjór eftir uppskrift erlendra framleiðenda. Davíð segir
það vera óðs manns æði að fjárfesta í bruggunarverksmiðju á
meðan engar upplýsingar liggja fyrir um hver bjórsala getur
orðið hér á landi. Vífilfell hf. hyggst sömuleiðis átappa Pripps
bjór og e.t.v. brugga eiginn bjór síðar.
„Við höfum mjög mikinn hug
á þessu, ég hef verið að leita að
' besta bjór í heimi,“ sagði Davíð
og bætti við að það gerði hann
meðal annars með því að smakka
sjálfur á hinum ýmsu tegundum
og einnig með því að gefa nokkr-
um hópi manna að smakka og
kanna viðbrögðin. Þá hefur Davíð
verið í sambandi við sérfræðing í
bjórmálum og með hans hjálp
komist í samband við nokkra
framleiðendur sem til greina kem-
ur að eiga viðskipti við. Þeir eru
allir á meginlandi Evrópu og stað-
settir skammt frá viðkomustöðum
fslenskra kaupskipa.
„Það væri óðs manns æði að
byggja bruggverksmiðju á meðan
salan er óljós,“ sagði Davíð. Þess
vegna segir hann að ætlunin sé
að flytja inn bjór f tönkum og
tappa á hér undir vörumerki fram-
leiðandans.
„Það vantar hins vegar ennþá
að koma því á hreint hvemig verð-
ur farið með átöppunina, sem er
jú mesta vinnan við bjórgerðina.
Þetta er millibilsástand sem varir
í tvö til þijú ár þar til við getum
farið að brugga sjálfír, ef salan
gefur tilefni til þess.“
Ölgerðin Egill Skallagrímsson
hf braggar nú þegar sterkan bjór
undir eigin vörumerki. Jóhannes
Tómasson forstjóri Ölgerðarinnar
vildi sem minnst um það segja
hvort fyrirtækið hyggði á braggun
annarra tegunda með leyfí þeirra
framleiðenda og undir þeirra vöra-
merki. „Það er ýmislegt í bígerð
hjá okkur, en ég vil ekkert frekar
um það segja," sagði Jóhannes.
„Það er vissulega hugsanlegt,
en við ætlum samt að bíða með
bragghúsið þangað til við sjáum
hvemig salan verður," sagði Lýð-
ur Friðjónsson hjá Vífílfelli.
„Þangað til töppum við á.“ Hann
sagði að um yrði að ræða Pripps
bjór og ef af braggun verður,
væri möguleiki á að tegundum
fjölgi. Til greina kemur að Vífíl-
fell braggi þá eiginn bjór undir
eigin vöramerki.
„Þetta á þó allt eftir að skýr-
ast. Við viljum ekki Qárfesta fyrst
og sjá svo til hvort ijárfestingin
ber sig, eins og virðist vera svo
vinsælt í dag. Það er líka alveg
óvfst enn hverjir fá að selja og
bragga bjór, það fer eftir verald-
legum og andlegum eiginleikum
manna að því er virðist, þannig
að allt er þetta með fyrirvara um
þessi atriði."
Byggung bsf:
Verið að reyna að leysa mál-
in á jafiiréttisgrundvelli
- segir Jón Baldvinsson, fi’amkvæmdastjóri
„ÞAÐ ER engin óvild frá stjóm félagsins i garð félagsmanna. Það
er bara verið að reyna að leysa málin á jafiiréttisgrundvelli fyrir
alla,“ sagði Jón Baldvinsson framkvæmdastjóri Byggung bsf. Hann
sagði að rekja mætti málið tvö ár aftur í tímann þegar kaupendur
íbúða í fimmta áfanga við Seilugranda og Rekagranda voru ósáttir
við uppgjör byggingarkostnaðar og neituðu að greiða reikninga. Bygg-
ung hefiir nú stefiit um 30 aðilum af þessum 60 fiölskyldna hópi og
fleiri verður stefiit á næstunni. Krafist er greiðslu fyrir byggingar-
kostnað, en á sínum tíma var lokið við þessar íbúðir með þvi að taka
fé frá öðrum áföngum, sem ekki er leyfilegt, í stað þess að stöðva
framkvæmdir við fimmta áfanga, að sögn Jóns. Hann segir að það
hafi hækkað byggingarkostnað við aðra áfanga.
„Það eru 542 fjölskyldur sem eru hópum sem eru í gangi í dag. Hann
að byggja í fimmta, sjötta, sjöunda,
níunda, tíunda og ellefta áfanga,"
segir Jón. „A sínum tíma gerir fram-
kvæmdastjóri Byggung bráðabirgð-
auppgjör fyrir fimmta hóp sem það
fólk var ekki ánægt með. Það taldi
sig vera að borga meira en fyrri
hópar. Úr því var skipt um endur-
skoðendur. Þá var þetta allt rann-
sakað og Húsnæðisstofnun kom inn
f málið. Síðan varð algjör endur-
skipulagning á Byggung í fyrra,
rekstrinum, bókhaldinu og allri
starfseminni. Þá kemur í ljós að
fímmti hópur á að greiða.
í byggingarsamvinnufélögum er
greitt samkvæmt sannanlegum
byggingarkostnaði. Þá er kostnaður-
inn þannig að fimmti hópur hefur
lægstan byggingarkostnað af þeim
getur ekki sagst vera að borga meira
en ellefti hópur. Pimmti hópur hefur
skuldað síðastliðin tvö ár og auðvitað
má ekki flytja fé á milli hópa, eins
og var gert hér áður fyrr. Við höfum
verið að fá hópana til að greiða
skuldir sínar niður og það hefur
gengið mjög vel með hópa númer
sex, sjö, níu og tíu. 11. hópur hefur
alltaf verið í inneign þar til nú að
hann er að komast niður á rétt-
stöðu. En fimmti hópur neitar að
borga. Hann skulda okkur tæpar
fímmtíu milljónir. Það er fé sem er
auðvitað tekið af hinum.“
Jón sagði að fé frá öðrum bygg-
ingaráföngum hefði verið notað til
að ljúka fimmta áfanga, f stað þess
að stöðva framkvæmdir eftir að
kaupendumir neituðu að borga. Það
fé þurfi kaupendur fimmta áfanga
nú að greiða til baka.
„Fimmta hóps maður á að borga
fyrir tveggja herbergja íbúð, miðað
við síðustu áramót, 2 til 2,2 milljón-
ir. Hann er kannski búinn að borga
í henni 1.600 þúsund og skuldar 600
þúsund. Tveggja herbergja fbúð á
markaði í dag kostar yfir þijár millj-
ónir. Tveggja herbergja íbúðimar í
6. og 7. hópi hafa verið á bilinu 2,5
til 3 milljónir. Frá 2,7 og upp úr í
9., 10. og 11. hópi. Ef maður á eft-
ir að borga upp í endanlegt kostnað-
arverð íbúðarinnar, þá skuldar hann
það.“
Jón segir að þessar skuldir 5.
hóps hafi hækkað byggingarkostnað
hinna hópanna. „Aðför fimmta hóps
manna fyrir tveimur árum olli því
að féiagið næstum stöðvaðist á
síðasta ári.“ Hann segir að þetta
hafi lengt byggingartímann og aukið
einnig óbeinan kostnað til dæmis
vegna þess að fólk þurfti að vera
lengur en ella í leiguíbúðum. „Þeir
eru að segja að byggingarkostnaður
sé ekki réttur. Endurskoðun hf er
búin að fara ofan í kjölinn á þessu
og hefur gefið skýrslu um málið.
Ur þessu fæst ekki skorið nema með
dómi. Ef dómur fellur þannig að 5.
Tímaritið Impact International:
Budweiser er vinsælasta
bjórtegund heimsins
TALSMENN ATVR segja að tillit
verði tekið til þess, hvaða bjórteg-
undir ætla má að íslendingar þekki,
þegar valdar verða þær tegundir
20 mest seldu bjórtegundir í heiminum árið 1987
(Magn er gefið upp í milljónum hektólítra. 1 hektólítri jafngildir 100 lítrum).
Tegund Magn Hlutdeild f heimssölu
Budweiser 60,0 6,2%
KirinBeer 25,0 2,6%
MillerLite 23,0 2,4%
Heineken 15,6 1,6%
Antarctica 13,0 1,3%
Brahma Chopp 12,5 1,3%
Miller High Life 11,6 1,2%
Polar 10,8 1,1%
Coors Light 9,8 1,0%
Castle Lager 9,5 1,0%
Busch 9,4 1,0%
Bud Light 9,4 1,0%
Corona 9,4 1,0%
Coors 9,3 1,0%
Sapporo Draft 9,1 0,9%
San Miguel Pale Pilsen 9,0 0,9%
Old Milwaukee 8,7 0,9%
Carlsberg 8,0 0,8%
Aguila 8,0 0,8%
Guinness 7,2 0,7%
sem seldar verða f áfengisverslun-
um hér á landi. Hér á eftir er birt
skrá yfír mest seldu tegundimar
1987, samkvæmt upplýsingum
tímaritsins Impact Intemational, en
það tímarit er sérhæft fyrir bjór-
markaðinn.
Budweiser, mest selda bjórteg-
und í heimi, er bandarískur bjór,
Kirin er japanskur, Miller Banda-
rískur og Heineken hollenskur. Af
öðram tegundum á listanum má
nefha að Coors og Old Milwaukee
era bandarískar tegundir, einnig
Bud Light, Sapporo er japanskur
bjór, Carlsberg danskur og Corona
mexíkanskur.
Söluhæstu ffamleiðendur heims
(hver þeirra framleiðir nokkrar teg-
undir) era Anheuser-Busch (Bud-
weiser, Busch) með 11% heims-
markaðarins, Miller Brewing Co.
með 5,8%, Heineken með 5,2%,
Kirin með 3,7% og Bond Corp’ með
3,6%. Samtals eru þessir fímm
framleiðendur með tæp 30% af
heimsffamleiðslunni árið 1987.
39. ársþing LH:
Þinghald á hverju ári
_______Hestar____________
Valdimar Kristinsson
Enn einu sinni var tillaga um
þinghald annað hvert ár felld á
ársþingi Landssambands hesta-
mannafélaga. Voru 57 á móti til-
lögunni en 12 meðmæltir. Olli
þessi niðurstaða vonbrigðum
margra því talið var að í þetta
skipti ætti hugmyndin um þing
annað hvert ár mikinn stuðning.
Heldur þótti mönnum sem sóttu
39. ársþing LH samkoman róleg
eins og undanfarin ársþing hafa
reyndar verið og vora kosningamar
meira að segja lausar við alla
spennu.
Kári Amórsson frá Gusti í Kópa-
vogi var kjörinn formaður án mót-
framboðs en athygli vakti að sautj-
án þingfulltrúar skiluðu auðu svo
telja má að ekki hafi ríkt einhugur
um Kára þótt ekki kæmi framboð
á móti honum. Þrír nýir stjómar-
menn vora kosnir í aðalstjómina
að þessu sinni, þeir Jón Bergsson,
Freyfaxa á Héraði, Sigurður Hall-
marsson, Grana á Húsavík, og Guð-
mundur Jónsson, Herði í Kjósar-
sýslu, en hann hefur setið í vara-
stjóm um árabil. Auk J>ess eru í
stjóminni þeir Skúli Kristjónsson,
Faxa, Gunnar B. Gunnarsson,
mmm
Fundarmenn á ársþingi Landssambands hestamanna.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Sleipni Selfossi, og Kristbjörg Ey-
vindsdóttir, Fáki Reykjavík. í vara-
stjóm vora kjörin Ingimar Ingi-
marsson, Léttfeta í Skagfafirði,
Sigfús Guðmundsson, Smára í
Hreppum, Sigbjöm Bjömsson,
Faxa Borgarfirði, Hreinn Árnason,
Gusti K'opavogi, og Elísabet Þó-
rólfsdóttir, Andvara Garðabæ.