Morgunblaðið - 08.12.1988, Page 70

Morgunblaðið - 08.12.1988, Page 70
70 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988 /fég hef horft <x þer\r\an Spurniuga" þátt i l^drerx éc, hefaJdreú getcÁ svcuraá neinni spurningu." Ekki svona hávaða. Ná- grannarnir halda að ég sé fullur... í»essir hringdu .. Virðið stöðvunarskyldu við gangbrautir Of langt gengfið Vegfarandi hringdi: „Fyrir nokkru var um það skrifað í Velvakanda að réttur gangandi vegfarenda við gangbrautir væri slæglega virtur og fór ég í fram- haldi af því að taka eftir hvemig þessu er í rauninni varið. Tilfellið er að flestir ökumenn virða rétt gangandi fólks og nema staðar. En ærið oft nema ökumenn ekki staðar fyrr en þeir eru alveg komnir að gangbrautinni og með því setja þeir auðvitað gangandi vegfarendur í hættu. Hinir eru þó mun verri sem skeyta ekki um rétt annara og gefa í þegar þeir sjá gangandi mann við gangbraut svo að viðkomandi þori ekki annað en að bíða eftir að frekj- an fari framhjá. Þó slíkir ökumenn séu í miklum minnihluta eru þeir því miður allt of margir. Varðandi þetta þyrfti að gera átak því það er því miður oft brotið á gangandi fólki í umferðinni og það virðist ekki hafa neina möguleika á að leita réttar síns.“ Smekkleysa 68G7-6975 hringdi: „Mér minnst það ósmekklegt í þættinum Á tali hjá Hemma Gunn að ónafgreind persóna kemur inn á sviðið í tíma og ótíma og hrópar guð, guð. Við eigum ekki að leggja guðs nafn við hégóma og þetta hlýt- ur að særa tilfinningar trúaðs fólks." 2085-8087 hringdi: „Fólk er almennt orðið hneykslað á framkomu forseta Alþingis og fjármálaráðherra gagnvart Magnúsi Thoroddsen. Mál hans hefur verið blásið upp í fjölmiðlum og miklu meira gert úr en efni standa til. Eins eru margir hneyksl- aðir á misheppnuðu skemmtiatriði í þættinum Á tali hjá Hemma Gunn þar sem þetta mál var tekið fyrir á ósmekklegan hátt.“ Óviðeigandi ummæli Elín Friðríksdóttri hringdi: „í umræðuþætti sem Magdalena Schram var með fyrir nokkru var rætt um hundahald í Reykjavík. Þar hélt einhver karl þvi fram að ekki væri ólíku saman að jafna, að láta bömin á bamaheimili og hafa hund- ana eina heima. Mér finnst þetta hreinasta móðgun við bömin, uppalendur og alla sem hlut eiga að máli. Á bamaheimilum fá börnin kennslu, mat, umönnun og félags- og uppeldislega meðferð. Stundum ef til vill betri en hægt er að veita heima, þó að ekki sé átt við að for- eldrar megi sleppa sínum þætti í uppeldinu og fæstir foreldrar hafa böm sín lengri tíma í þessum skól- um en nauðsynlegt er. Hugsum okkur móðir sem lfður illa að vera ein heima alla daga með eitt bam. Getur það bam verið betur sett en bam sem er stund úr degi á bama- heimili? Enginn er að tala um hvítvoðunga eða nýfædd böm í þessu sambandi." Seðlaveski Seðlaveski tapaðist á leiðinni frá Snorrabraut niður í Tryggvagötu hinn 30 nóvember. Finnandi er vin- samlegast beðinn að hringja í síma 36689 eftir kl. 19. Filmur Nokkrar áteknar filmur töpuðust í grennd við Sparisjóð Reykjavíkur við Skólavörðustíg fyrir skömmu. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 34553. Alvarlegt að breyta ímynd Krists Til Velvakanda. Ég get varla orða bundist lengur yfir hve lítið tillit er tekið til krist- inna manna. Fyrst þurfum við að þola gerð myndarinnar „Síðasta freisting Krists", síðan sýningu hennar hér á íslandi og þar á eftir hrifningu manna á myndinni, hve vel hún hafí tekist sálfræðilega, svo og að Kristur hljóti að hafa orðið fyrir mannlegum freistingum o.s.frv. Fólk verður að kynna sér biblíuna áður en það fer að staðhæfa hluti sem þessa. Biblían kennir okkur að Jesús hafi bæði verið Guð og mað- ur. Það að Jesús var Guð sannar að hann var fullkominn og stóðst allar þær freistingar sem reynast okkur mönnunum erfiðar. Það að Jesús kom sem maður til jarðarinn- ar var einfaldlega gert til þess að mennimir gætu kynnst kærleika og vilja Guðs áþreifanlega. Það er orðið alvarlegt þegar hlut- um sem þessum er haldið á lofti og reynt er að breyta ímynd Krists í kvikmynd. Fullkomnun og kær- leikur Krists eru látin víkja fyrir veikgeðja kvikmyndahetju. S.B. HÖGNI HREKKVÍSI 1 „ pAÐ EfZ E/NS GOTT FYWR ÞlG AP SKILA PeSSO! Yíkverji skrifar Ný útvarpsstöð tók til starfa á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Er það Hljóðbylgjan, sem til þessa hefur eingöngu starfað á Akureyri. Víkveiji kunni vel að meta stöðina þegar hann eyddi sumarfríi sínu á Akureyri í fyrra. Því lagði hann við hlustir nú um helgina. Er skemmst frá því að segja að Hljóðbylgjan sannaði einn- ig ágæti sitt syðra. Lögin féllu að smekk Víkverja og þulimir voru þægilegir áheyrnar. Ef stöðin held- ur sínu striki mun hún vafalaust einnig festa rætur sunnanlands sem norðan. XXX Menn eru stöðugt að búa til ný orð. Sum festast í málinu, en önnur eiga ekki annað líf en það augnablik, sem tók að tala þau. Sum orð verða til, þegar menn ræða í hugsunarleysi um eitthvert mál og aðrir taka við í hugsunar- leysi. Oft er þá um að ræða eitt- hvert sérsvið, þar sem menn notast við slæm orð eða slettur í samtölum sín í milli. Þessi orð koma svo eins og skrattinn úr sauðarleggnum yfir aðra. Víkveija brá til dæmis, þegar hann las í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins orðið „mínútulegur". Orðið kom fyrir, þar sem fjallað var um þáttagerð á Stöð 2 og þá aðila, sem styrkja hana jneð fjár- framlögum í auglýsingaskyni fyrir sig og sitt fyrirtæki. Markaðsstjóri Stöðvar 2 vildi ekki segja hvað það kostar að vera styrktaraðili. En síðan stendur í Morgunblaðinu, að markaðsstjórinn hafi sagt, að „mínútulega séð“ væri það ódýrara og kynningin í mörgum tilfellum betri en nokkur auglýsing. Það tók Víkveija innan við mínútu að dæma orð þetta til dauða. XXX Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Um hendur Víkveija fór fyrir skömmu fréttatilkynning frá móðurmálskennurum. Þar var með- al annars íjallað um námsefni fyrir 1 íslenzkukennslu i öðrum löndum. Og þá var skrifað um fólk, sem hefði áhuga á að „flytjast erlendis". Víkveiji man enn góða grein í Morgunblaðinu fyrir nokkru, þar sem rætt var um muninn á að fyra til útlanda og vera erlendis. Sá, sem hana skrifaði, er móðurmálskennari að atvinnu og hefði betur fengið að líta yfír fréttatilkynninguna, sem starfsbræður hans létu frá sér fara. XXX Og nú er bókaútgáfan í algleym- ingi. Víkveiji dagsins sér tals- vert af þeim tilkynningum, sem útgefendur láta fylgja bókunum. Ekki er nú verið að spara lýsingar- orðin í þeim ritsmíðum. Víkveija minnir, að hann hafi um svipað leyti á síðasta ári gert þessa texta að umtalsefni. í fljótu bragði er alveg sömu sögu að segja nú, hvað varð- ar notkun lýsingarorða í hástigi. Hér á við það sem einhver sagði einhvers staðar einu sinni um annan mann. „Hann var heimsfrægur um hálfan bæinn heima."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.