Morgunblaðið - 08.12.1988, Page 75
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 8. DESEMBER 1988
75
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Guðni Bergsson skrifar
undir hjá Töttenham
Terry Venables vill að hann leiki með aðalliðinu á laugardag en Guðni erekki tilbúinrT"'
„MÉR líst ágætlega á tilboð
Tottenham og geri ráð fyrir að
samningar verði undirritaðir á
morgun eða föstudag," sagði
Guðni Bergsson í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Guðni, sem hefur æft og leikið
með varaliði Tottenham í rúm-
ar tvær vikur, vildi ekki tjá sig um
peningamálin, en sagðist vera
ánægður með það sem boðið væri.
Tottenham bauð Guðna samning til
fjögurra og hálfs árs, en Guðna
fínnst það frekar langur tími og
vill frekar semja um styttra tíma-
bil. „Kaup og kjör eru einkamál
hvers og eins og auk þess hefur
ekki enn verið samið,“ sagði hann.
„En tilboðið er gott og samningam-
ir eru í burðarliðunum. Við sofum
á þessu i nótt, en á þessari stundu
er 90% öruggt að samningar
takast."
Með aðalllðinu á laugardag?
Terry Venables, stjóri Totten-
ham, og aðstoðarþjálfarar hans eru
mjög ánægður með Guðna og í gær
sagðist Venables vilja sjá Guðna
með aðaiiiðinu á laugardag gegn
Millwall. „Ég fékk atvinnuleyfí í
fjórar vikur og Venables vill að ég
spili sem mest á þessum tíma. Það
hefur gengið æ betur með varalið-
inu og ég hef styrkst með hvetjum
deginum; en engu að síður er ég
ekki tilbúinn í leikinn á laugardag,"
sagði Guðni. „Ég hef einfaldlega
ekki nægjanlegt úthald til þess,“
bætti hann við.
Náist samningar verður næsta
skrefíð að fá atvinnuleyfí og sagði
Guðni að það gæti hugsanlega sett
strik í reikninginn, en Venables teldi
það ósennilegt.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Unnin staða
Víkinga lór
fyrir lítið
VÍKINGUR sýndu vítavert
kæruleysi á lokasprettinum
gegn Fram f gærkvöldi, glo-
pruöu niður gjörunnum leik og
máttu síðan þakka fyrir að
hirða annað stigið í leik hína
mörgu marka og enn fleiri mis-
taka. Reyndar var þetta spenn-
andi á lokamínútunum, þannig
fengu Víkingart.d. óverðskul-
dað víti á síðustu sekúndunum,
en Karl Þráinsson steig á
línuna og gerði það ógiltl Loka-
tölurnar 29-29.
Fyrri hálfleikurinn var afar laus
í reipunum, mikið skorað og
fátt um vamir , lengst af var um
að ræða mark á mínútu, eins og í
svo mörgum leikjum
Guðmundur Víkings í vetur.
Guöjónsson Fyrstu mínútur
skrífar síðari hálfleiks voru
hálf undariegar. Það
var engu líkara en að Framarar
hefðu ekki skilið að leikurinn væri
hafinn á ný og staðan breyttist úr
14-16 fyrir Víking í 15-22 á undur-
skömmum tíma. En þá gerðist hitt
og þetta í senn. Víkingar gerðust
kærulausir, en þær breytingar voru
gerðar á liði Fram um leið, að Eg-
ill fór að spila sókn en ekki bara
vöm, og Jens Einarsson fór í mark-
ið og varði eins og berserkur, m.a.
vítakast á mikilsverðu augnabliki.
Framarar áttu stigið skilið fyrir
það eitt að gefast ekki upp þótt
staðan virtist vonlaus, samspil bar-
áttu þeirra og kæruleysis mótheij-
anna gaf ríkari uppskem en horfur
voru á. Birgir Sigurðsson var yfír-
burðamaður í liðinu og með ólíkind-
um hve dijúgur hann er að veiða
boltann í darraðardansi á línunni.
„Gamla kempan" Jens Einarsson
kom í Fram-markið um síðir og
sýndi að hann er enn snjall mark-
vörður. Hjá Víkingi var Sigurður
Jensson snjall í markinu og Guð-
mundurGuðmundsson átti ljómandi
spretti. Aðrir gerðu laglega hluti
annað slagið en settu ótrúleg mis-
tök á vogaskálina á móti.
undir
samnmg
„Ismaðurinn
til Spurs"
Tvö ensk blöð, Today og The Post greindu
frá samningaviðræðum Tottenham og
Guðna Bergssonar í gær. Blöðin sögðu að Guðni
hefði hrifíð þjálfara Spurs og'Terry Venables
hefði loks fundið miðvörð. The Post sagði að
„ísmaðurinn kæmi inn úr kuldanum tii Spurs"
og Today sagði að þar sem miðvörður íslenska
landsliðsins kæmi frá áhugamannaliði þá kost-
aði hann ekki neitt.
Guðnl Bergsson skrifar sennilega
Tottenham í dag eða á morgun.
Fram-Vikingur
29
HANDKNATTLEIKUR
Markvarsla Axels
stóð upp úr —
KA vann fremur átakalítinn sigur á ÍBV í í.
deildinni á Akureyri í gærkvöldi, 24:19 og var
það á.fyrstu 20 mínútum seinni hálfleiks sem liðið
stakk-IBV af, en fram að því hafði KA rejmdar
leitt, en ekki með mörgum mörkum.
Magnús Getumunur var töluverður á liðunum
Márskrífar og hæst bar því einstök frammistaða
fráAkureyrí leikmanna eins og Axels Stefánsson-
ar markvarðar KA sem átti enn einn
stórleikinn og lokaði markinu á köflum.
KA-menn sáu til þess að Sigurður Gunnarsson gat
vart um fíjálst höfuð strokið, en hann reif sig samt
upp nokkrum sinnum og skoraði glæsileg mörk. í
seinni hálfleik tóku heimamenn sig saman i andlitun-
um og léku snjallan vamarleik með góðri mar-
kvörslu i 23 mínútur. Skoruðu Eyjapeyjar þá aðeins
flögur mörk, en KA seig fram úr. Kæruleysi á loka-
sprettinum hjá KA varð til þess að munurinn minnk-
aði á ný, en sigurinn var aldrei í hættu.
KA—ÍBV ^
24 : 19
Akureyri, 7. desember 1988. íslands-
mótið í handknattleik, 1. deild:
Gangnr leiksins:
1:0, 4:4, 8:6, 10:8,12:10, 15:10, 18:13,
22:14, 23:16, 24:19.
KA: Erlingur Kristjánsson 7/4, Guð-
mundur Guðmundsson 5, Friðjón Jóns-
son 4, Jakob Jónsson 3, ólafur Hilm-
arsson 2, Pétur Bjarnason 1, Haraldur
Haraldsson 1, Sigurpáll Arni Aðal-
steinsson 1, Svanur Valgeirsson og
Þorleifur Ananíasson.
Varin skot: Axel Stefánsson 21/3,
Sigfús Karlsson 2.
ÍBV: Sigurður Gunnarsson 6, Sigurður
FYiðriksson 6/3, Óskar Brynjarsson 3,
Jóhann Pálsson 3, Tómas Tómasson
1, Sigbjöm Óskarsson, Guðfinnur
Kristmannsson , Sigurður FYiðriksson,
Elliði Hafsteinsson og Sigurður ólafs-
son.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson
13 skot, Ingólfur Amarsson
Utan vallar: KA í 2 mínútur.
Dómarar: Vigfús Þorsteinsson og
Steinþór Baldursson og stóðu þeir sig
þokkalega.
Áhorfendur: 600.
Siguröur Ragnarsson, leikmaðurinn
sést hér skora gegn Fram.
Morgunblaðiö/Bjarni
efnilegi hjá Víkingi,
Laugardalshöllin, 7. desembcr, 1988. tslandsmótíð í handknattleik 1. deild:
Gangur leiksins: 2:2, 7:7, 12:10, 12:12, 14:14, 14:16, 15-22, 19:24, 20:26, 24:29, 29:29.
Fram: Birgir Sigurðsson 9, Agnar Sigurðsson 5, Július Gunnarsson 4, Tryggvi Tryggvason 3,
Hermann Bjömsson 3/2, Egill Jóhannesson 2, Gunnar Andrésson 1, Ragnar Hilmarsson 1, Sigur-
ur Rúnarsson og Jason Ólafsson.
Varin skot: Jens Einarsson 7, Guðmundur A. Jónsson 3.
Vtkingur: Guðmundur Guðmundsson 7, Ámi Friðleifsson 6/3, Sigurður Ragnarsson 5, Bjarki
Sigurðsson 4, Jóhann Samúelsson 3, Siggeir Magnússon 2, Karl Þráinsson 2, Einar Jóhannes-
son, Eirikur Benónýsson og Ingi Þór Guðmundsson.
Varin skot: Sigurður Jensson 13, Heiðar Gunnlaugsson kom ekki inn &.
Ut&n vallar: Vflcingar í 6 mínútur, Fram í 2 mínútur.
Dómarar: Guðjón H. Sigurðsson og Hákon Sigurþórsson.
Áhorfcndur: 80 til 90.