Morgunblaðið - 09.12.1988, Side 14

Morgunblaðið - 09.12.1988, Side 14
5114 88Moaa©wB£a®is, sFtooDxeá® Morgunblaðið/Magnús Sigurðsson Sovéskir skriðdrekar á götum Prag að morgni innrásar herja Varsjárbandalagsins 21. ágnst 1968. Jiri Pelikan segir að einhver mesta hætta sem steðjað geti að Míkaíl Gorbatsjov Sovétleiðtoga og umbótastefiiu hans, „perestrojku", sé sú að yfirmenn sovéska hersins telji upplausnarástand og þjóðernisróstur ógna ríkinu og ákveði því að taka völdin í eigin hendur. Jiri Pelikan, ítalskur þingmaður sem áður var tékkneskur sjónvarpsstjóri: „Stjórnvöld í Prag gætu neyðst til að trufla sov- éskar útvarpssendingar“ ingahaturssamtökin Pamjat fá mest fylgi. Því oftar sem Gorbatsjov not- ar hervald til-að bæla niður óeirðir eins og í Armeníu og Azerbajdzhan þeim mun meiri verða pólitísk áhrif hersins, sem nýtur enn gífurlegs álits fyrir að sigra nazista í stríðinu, þrátt fyrir áfallið í Afganistan. Ógerlegt er að spá um það' hvort Gorbatsjov nær sínu fram. Hann hefur sýnt mikil pólitísk hyggindi fram til þessa og ég vona að honum takist ætlunarverk sitt. Tekur herinn völdin? - Hversu sterkt stjórnmálaafl er sovéski herinn? Er hægt að tala um sovésk „hagsmunasamtök hers og iðnaðar“ (military industrial complex), eins og það er nefnt í Bandaríkjunum, er ýti undir vígbúnaðarkapphlaupið? Já það er um álíka hagsmuna- vörslu að ræða í Sovétríkjunum. Fyrirtæki í hergagnaiðnaði njóta ýmiss konar foréttinda. Þau fá að kaupa vestrænan tæknibúnað, laun eru hærri en í annars konar iðnaði og snjöllustu vísindamennirnir starfa fyrir þau. Munurinn á Banda- ríkjunum og Sovétríkjunum í þess- um efnum er sá að í fyrmefnda ríkinu á sér stað þróun í hvers kyns framleiðslu en í Sovétríkjunum er hlaðið gífurlega undir vopnafram- leiðsluna. Sumir af foringjum sov- éska hersins eru meira að segja famir að átta sig á því að ekki er hægt til lengdar að svelta aðrar framleiðslugreinar. - Hvernig bregðast leiðtogar annarra Varsjárbandalagsríkja við framvindu mála í Sovétríkjunum? Við verðum alltaf að hafa í huga að Sovétríkin em eitthvert íhald- samasta ríki veraldar og viðbrögð andstæðinga Gorbatsjovs, sem em við völd m.a. í Austur-Þýskalandi og Tékkóslóvakíu, em athyglisverð. Þeir þybbast við og bíða átekta í von um að Gorbatsjov verði annað- hvort steypt af stóli eða þvingaður til að taka aftur upp harðlínu- stefnu. Málið er greinilega ekki Sprengjutilræði, heiftarlegar árásir í austur- evrópskum fjölmiðlum, jafiivel ásakanir um sam- vinnu við nazista á stríðsárunum, ekkert hefur bugað baráttuþrek fremur lágvaxins, þrekins, hvíthærðs manns með svartar augnabrýr er dvaldi hér á íslandi um síðustu helgi. Jiri Pelikan gekk sextán ára gamall til iiðs við andspyrnuhreyfingu tékkneskra kommúnista á striðsárunum og nazist- ar létu myrða móður hans. Hann var sjónvarps- stjóri og þingmaður í Tékkóslóvakiu 1968 þegar Sovétmenn, með aðstoð nokkurra bandamanna sinna i Varsjárbandalaginu, gerðu innrás i landið til að kveða niður „Vorið í Prag,“ umbótastefiiu Alexanders Dubceks og skoðanabræðra hans i kommúnistaflokki landsins. Sovétmenn sögðu innrásina „bróðurlega aðstoð." Umbótatilraunir Dubceks í efiiahags- og stjórnmálum voru án for- dæma í kommúnistaríkjum og Kremlverjar töldu þær stofiia í voða þvi einræðiskerfi sem þeir byggðu upp i Austur-Evrópu eftir stríð. Pelikan Hvað er sameiginlegt með stefnu Alexanders Dubceks í Tékkóslóv- akíu 1968 og Míkaíls Gorbatsjovs í Sov- étríkjunum 1988 og hvað skilur á milli? Það sem er sameiginlegt er sú fullvissa Dubceks og Gorbatsjovs að stalínisminn hafi leitt ríkin út í svo miklar efnahagslegar, pólitískar og siðferðislegar ógöngur að ekki verði komist hjá róttækum breyt- ingum. Dubcek stefndi þó ekki að því að koma á vestrænu lýðræði 1968 og hið sama gildir um Gorb- atsjov nú. Aðstæður í Sovétríkjunum 1988 eru að mörgu leyti ólíkar aðstæðum í Tékkóslóvakíu 1968. Tékkóslóv- akía er tiltölulega lítið ríki, að mestu byggt tveim náskyldum þjóðum sem ekki er neinn teljandi krytur á milli. í landinu ríkti vestrænt lýð- ræði á millistríðsárunum og þrátt fyrir smæð þjóðarinnar var landið þá í hópi tíu mestu iðnríkja heims. Þess ber líka að' geta að mennta- og listamenn höfðu um árabil leynt og ljóst mótað og barist fyrir um- bótastefnu í Tékkóslóvakíu áður en Dubcek tók völdin 1968; kjör hans var svar kommúnistaflokksins við þrýstingi verulegs hluta þjóðarinnar og allur þorri hennar snerist síðan á sveif með umbótasinnunum. Loks var kjörinn í miðstjórn kommúnistaflokksins á leynilegum fúndi nokkrum dögum eftir innrásina en var fljótlega sviptur stöðu sinni hjá sjónvarpinu að kröfii Sovétmanna og sendur til starfa í tékk- neska sendiráðinu i Róm. Hann hélt þingsæti sínu en er hann árið 1969 neitaði að iðrast opinberlega vegna „Vorsins“ var hann rekinn af þingi og úr flokknum. Ríkisborgararéttur hans var einnig tekinn af honum. Síðan hefúr hann búið á Ítalíu, varð italskur borgari 1977 og var kjörinn á þing Evrópubandalagsins 1979 fyrir ítalska Sósialista- flokkinn. Pelikan fiutti fyrirlestur á hádegisverð- arfúndi Varðbergs og Samtaka um vestræna sam- vinnu um þróun mála i Austantjaldsríkjunum siðustu 20 árin en hann hefúr undanfarin ár kynnt málstað tékkneskra andófsmanna og flutt fyrir- lestra í öllum Vestur-Evrópulöndum að íslandi einu undanskildu. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við hann eftir fúndinn og fer viðtalið hér á eftir. gegn auknum réttindum til handa þeim 30.000 sjálfstæðu félögum og samtökum af öllu tagi sem sprottið hafa upp í Sovétríkjunum síðastliðin ár. Tvö grundvallaratriði munu skipta sköpum um framtíð umbóta- stefnunnar. Annars vegar hvemig áðumefiidum félögum og samtök- um famast; ef þau fengju aukin réttindi gætu þau þrýst á stjórnvöld og tryggt þannig áframhald umbót- anna. Hins vegar er aukið tjáning- arfrelsi í fjölmiðlum brýn nauðsyn til að fólk öðlist möguleika á að mynda sér sjálfstæðar skoðanir. Ég minnist þess að Brezhnev skamm- aði á sínum tíma Dubcek fyrir að fylgjast ekki með allri gagnrýni sem birtist í tékkneskum fjölmiðlum. Hann vitnaði jafnvel í opinskáar umræður í litlum landsbyggðarblöð- um og sagði að þetta sýndi hve stutt væri í gagnbyitingu kapítal- ista! - Gorbatsjov segir að ekki verði aftur snúið af vegi umbótastefn- unnar héðan af. Ertu sammála? Sjálfur er ég ekki sannfærður um að þetta sé rétt en ekki má þó gleyma að Gorbatsjov á að einu leyti léttara um vik en Dubcek 1968. Hann þarf ekki að óttast að erlendir (t.d. tékkneskir!) skriðdrek- ar kæfi umbótastefnuna. Hins veg- ar getur svo farið að sovéski herinn taki það hlutverk að sér ef hann má geta.þess að efnahagsástandið var miklu skárra í Tékkóslóvakíu 1968 en í Sovétríkjunum 1988. Umbótastefna Gorbatsjovs, per- estrojka, byggist að mestu á per- sónuleika hans sjálfs, lýðræðishefð er ekki til í landinu, flölmargar þjóð- ir byggja landið og víða er óvild milli þeirra, andstaða við breytingar er mikil meðal skrifkeranna og þótt margir menntamenn styðji per- estrojku og glasnost þá er almenn- ingur yfirleitt áhugalítill og skortir það frumkvæði sem tékkneskt al- þýðufólk sýndi 1968. Kremlveijar hafa á löngum valdaferli sínum fyr- irgert öllu trausti hjá sovéskum al- menningi og viðbrögð flestra þegn- anna við umbótastefnunni eru þau að krefjast sýnilegs árangurs, eink- um betra matvælaástands, strax. Ýmsar af tillögum Gorbatsjovs, t.d. varðandi breytingar á stjómar- skránni, eru auk þess mótsagna- kenndar og stefna jafnvel til auk- innar miðstýringar. Skrifkerar í veginum — / Tékkóslóvakíu var komið á ýmsum mannréttindum t.d. prent- frelsi á fáeinum mánuðum vorið 1968 en þessi sömu réttindi voru síðan afnumin í kjölfar innrásarinn- ar. Hvert stefnir i þessum málum núna í Sovétríkjunum? Skrifkeraveldið reynir að vinna Morgunblaðið/Sverrir. Jiri Pelikan: „[Afturhaldssinnar í Austur-Evrópu] þybbast við og bíða átekta í von um að Gorbatsjov verði annaðhvort steypt af stóli eða þvingaður til að taka aftur upp harðlínustefnu." telur að allt sé að fara úr böndun- um. Þá verður vafalaust reynt að leika á strengi stórrússneskrar þjóð- emisstefnu. Rússar em um helmingur íbúa alls ríkisins og aðstæður þeirra eru mjög sérstæðar sé horft um öxl til nýlenduvelda fyrri tíma. Þeir eru ráðandi þjóð í Sovétríkjunum en lífskjör þeirra eru verri en þeirra Sovétþjóða sem nú krefjast aukins sjálfstæðis, ekki síst Eystrasalts- þjóðanna. Þessar aðstæður hafa valdið eins konar messíasaráráttu hjá Rússum; þeir líta svo á að þeir hafi sjálfir fómað sér fyrir hinar þjóðimar og þær séu vanþakklátar. Kunningi minn, sem þekkir vel til í Sovétríkjunum, segir að ef ftjálsar kosningar fæm fram í Rússlandi núna myndu þjóðrembu-og gyð- útkljáð í þeirra augum. Það er mis- skilningur að kerfíð njóti einskis stuðnings hjá verkamönnum. í Sov- étríkjunum og fleiri kommúnista- ríkjum er fjöldi launþega sem hefur aðlagast þjóðfélagi þar sem ekki er krafist neinna vemlegra afkasta eða fmmkvæðis (og launin að vísu eftir því). Margir stela öllu steini léttara á vinnustaðnum og nota til að dytta að hlutum í heimahúsum eða byggja sér sumarbústaði. - Hafa afturhaldsmenn í Ausb- ur-Evrópuríkjunum samband við skoðanabræður sína f Sovétríkjun- um? Yfírmenn leynilögreglunnar í ein- stökum Varsjárbandalagsríkjum hafa að sjálfsögðu samband sín í milli og hjá þeim fá afturhaldssegg- imir greinagóðar upplýsingar um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.