Morgunblaðið - 09.12.1988, Page 15
8*MO»SÍ}«$iA?>IÐ, iFÖSXUDAGUE ai®ESEMBSR' 1988
&fI5
andstöðuna gegn Gorbatsjov. Ég
held að framtíð perestrojku muni
ráðast á næstu tveim árum.
Fólkið heimtar brauð
- Hver er mesta hættan sem
steðjar að Gorbatsjov, önnur en
þjóðemisólgan?
Hroðalegt efnahagsástand sem
fer síversnandi. Það er að sjálfsögðu
ekki Gorbatsjov sjálfum að kenna
heldur fyrirrennurum hans sem létu
allt reka á reiðanum. Takist honum
ekki að ráða á þessu einhvetja bót
innan eins eða tveggja ára hygg
ég að flendur hans muni nota það
gegn honum, nota óánægju almenn-
ings sem vopn gegn honum.
Glasnost-stefnan, aukið upplýs-
ingastreymi og ftjálsari umræða,
opnar upp á gátt fyrir umræðu um
vandamál og margs konar óréttlæti
sem þagað hefur verið um áratug-
um saman. Gorbatsjov vill leysa
þessi mál stig af stigi en stendur
andspænis þróun sem erfítt er að
hemja, í Eystrasaltslöndunum og
Kákasus.
- Geturðu lýst stöðu Austur-
Evrópurikjanna eins og hún kemur
þér fyrir sjónir núna?
Varsjárbandalagið er ekki lengur
sá pólitíski eindrangur sem það var
áður. í Austur-Þýskalandi, Tékkó-
slóvakíu, Rúmeníu og Búlgaríu eru
við völd stjómir sem vilja e.t.v.
framkvæma einhvetjar efnahags-
legar umbætur en þær vilja alls
ekki hrófla við sjálfu kerfínu,
flokkseinræðinu. Leiðtogar fyrr-
nefndra ríkja komust til valda á
Brezhnev-tímanum og óttast um
völd sín ef slakað verði á pólitískum
hömlum. í Póllandi eru aðstæður
með einstökum hætti. Þar er t.d.
algert prentfreisi og áhrif kaþólsku
kirkjunnar eru svo mikil að segja
má að flokkurinn deili völdum með
henni. Efnahagsóreiðan og deilan
við Samstöðu hafa á hinn bóginn
lamað landið og allt hjakkar í sama
farinu. Ungvetjar hafa tekið Gorb-
atsjov á orðinu og þar er varla reynt
að leyna þvi að stjómvöld hafa gef-
ið kommúnismann upp á bátinn.
Leiðtogar landsins hafa auk þess
betra samband við þegnana en
nokkur önnur Austantjaldsstjóm.
Austur-Þjóðveijar standa skár
að vígi efnahagslega en hinar þjóð-
imar og þess ber að geta að vegna
gagnkvæmra samninga þeirra og
Vestur-Þjóðveija era Austur-Þjóð-
verjar þegar með annan fótinn fyr-
ir innan hlið Evrópubandalagsins.
Austur-þýskir leiðtogar virðast
staðráðnir í að reyna að spoma við
„ævintýramennsku" Gorbatsjovs og
hafa m.a. bannað umbótasinnað
sovéskt tímarit. Einnig var nýlega
hætt við að sýna fímm hættulegar
sovéskar kvikmyndir og
7Krókódfla-Dundee“ sýnd í staðinn!
Onnur ríki Varsjárbandalagsins era
svo háð Sovétríkjunum að þau geta
varla fylgt andsovéskri stefnu til
lengdar. Haldi Gorbatsjov sínu
striki hlýtur að koma til þess að
þessi ríki taki einnig upp umbóta-
stefnu.
Óvæntur vandi í
Tékkóslóvakíu
- Hvernig útskýra tékkneskir
leiðtogar stefnu Gorbatsjovs?
Þeir harðneita að þetta eigi nokk-
uð skylt við umbótastefnu okkar
1968! Auðvitað gera þeir sér grein
fyrir því að völd þeirra era í hættu
ef stefna Gorbatsjovs heldur innreið
sína í landið. Þeir hafa í orði tekið
undir sumar efnahagstiilögur sov-
éska leiðtogans en lítið orðið úr
framkvæmdum. Enn ráða undir-
málsmenn ferðinni í bókmenntum
og listum, enda dauðhræddir við
samkeppni manna eins og t.d. Vacl-
avs Havels sem ekki fær bækur
sínar gefnar út. Bókum og blöðum,
einkum trúarritum, er sniyglað í
miklum mæli frá Póllandi, þrátt
fyrir viðtæka leit sem gerð er í jám-
brautarlestum og bflum á landa-
mærunum. Ekki má gleyma því að
mörg hundruð blöð eru gefín út af
andófshópum þótt upplagið sé yfír-
leitt lítið.
Meðal erfíðustu vandamála aft-
urhaldsstjómarinnar era útsending-
ar sovéskra útvarps- og sjónvarps-
stöðva en margir Tékkar ná þeim
auðveldlega og geta fylgst með
opinskárri umræðu austur þar.
Stjómvöld í Prag gætu neyðst til
að trafla sovéskar útvarpssending-
ar!
- Hvemig er sambúðin við sov-
éska hernámsliðið?
Líklega hafa margir samúð með
óbreyttum dátavesalingum sem
ekkert kaup fá og era jafnvel barð-
ir af yfirmönnum sínum ef þeim
verður eitthvað á. Tékkneskir her-
menn, setii kynnst hafa aðbúnaði í
herbúðum Sovétmanna, segjast
aldrei myndu sætta sig við annað
eins. Fátækt Sovét-dátanna er svo
mikil að tékkneskir krárgestir gera
sér leik að því að bjóða þeim bjór
gegn ákveðnu gjaldi; dátamir verða
að segja þrisvar sinnum hátt og
skýrt:„Ég er á móti innrás Sov-
étrfkjanna í Tékkóslóvakíu!"
Annars er það ljóst að „Vorið í
Prag“ verður aldrei beinlínis endur-
tekið. Ungt fólk er ekki aðeins búið
að missa alla trú á leiðtogum
kommúnistaflokksins heldur líka
sósfalfskum hugmyndum. í kröfu-
göngum nýlega, er fólk minntist
þess að 20 ár vora liðin frá innrás-
inni, heimtaði unga fólkið „frelsi
fyrir alla án tillits til trúar- eða
stjómmálaskoðana." Margir hafa
hallað sér að trúarbrögðunum en
þverpólitísk mannréttindasamtök á
borð við Carta 77 era þó í fullu Qöri.
Kommúnisminn er dauður
- Þú starfaðir í kommúnista-
flokki Tékkóslóvakíu í þijátiu ár. Á
Ítalíu ertu nú virkur félagi í Sósíal-
istaflokknum [Jafnaðarmanna-
flokki. Innskot Morgunblaðsinsj.
Ertu þá ekki lengur kommúnisti?
Ég gekk í kommúnistaflokkinn í
upphafi heimsstytjaldarinnar síðari
af því að ég vildi betjast gegp
hemámi Þjóðvetja og kommúnista-
flokkurinn var eini stjómmálaflokk-
urinn sem neitaði að gefast upp.
Ég var aðeins sextán ára gamall
og byggði ákvörðun mína frekar á
tilfínningum en því að ég væri vel
að mér í fræðunum.
Eftir „leyniræðu" Khrústsjovs
1956, þegar hann fletti ofan af
glæpum Stalíns, er hægt að segja
að barátta flestra yngri flokks-
manna hafí beinst að því að koma
á lýðræðislegum sósfalisma, við
voram í raun sósíaldemókratar.
Dubcek nefndi þetta „sósfalisma
með mannlegri ásjónu" því að ekki
var vogandi að nefna þetta réttu
nafni. Líklega vorum við, umbóta-
sinnamir árið 1968, síðustu sann-
trúuðu sósíalistamir í Austur-
Evrópu, í þeim skilningi að við vor-
um þeir síðustu sem töldu mögulegt
að endumýja kenningamar og
framkvæma þær, hverfa af óheilla-
brautinni.
Sjálfur tel ég núna að kommún-
isminn sé hugmyrid um staðleysu
(útopiu) sem aldrei verði hægt að
framkvæma. Ég er því ekki komm-
únisti. Ég vil lýðræðislegan sósíal-
isma og er andvígur öllum öfgum,
hvort sem þær era til hægri eða
vinstri. Kommúnisminn er dauður
í Austur-Evrópu. Meira að segja
leiðtogamir trúa ekki lengur á slag-
orðin sfn, þeirra takmark er fyrst
og fremst að halda í eigin völd.
Karoly Grosz í Ungvetjalandi hælir
efnahagsstefnu Margaret Thatcher
í Bretlandi á hvert reipi og það
mætti segja mér að Gorbatsjov
væri sama sinnis!
Hugmyndir Gorbatsjovs um auk-
ið lýðræði innan einsflokkskerfísins
era reyndar leikur að orðum; fólk
verður að fá að stofna sjálfstæða
stjómmálaflokka, annars er lýðræð-
ið yfirskinið eitt.
Nýtt líf á Ítalíu
- Þú gekkst til liðs við Sósial-
istaflokkinn á Ítalíu, ekki kommún-
ista, sem gagnrýndu innrásina þó
harðlega...
Já það er rétt. Ég átti marga
vini í ftalska kommúnistaflokknum.
Þeir vora skilningsríkir í garð okkar
útlaganna en þeir báðu okkur að
ráðast ekki opinberlega gegn
tékkneskum yfírvöldum því að það
gætu andstæðingar kommúnista
notfært sér. í reynd vora þeir okk-
ur lítil stoð. Sósíalistar, einkum
núverandi formaður flokksins, Bett-
ino Craxi, vildu allt fyrir mig gera.
Þeir hjálpuðu mér að fá vinnu sem
blaðamaður og veittu mér og öðram
ýmiss konar aðstoð við að koma
út tímariti tékkneskra sósíalista f
útlegð, Listy.
Síðar hafa ítalskir kommúnistar
reyndar tekið framföram. Þeir áttu
Ld. þátt í því að Dubcek fékk að
fara í heimsókn til ítalfu nýlega þar
sem hann tók á móti heiðursnafn-
bót við háskólann í Bologna og
hlaut alls staðar stórkostlegar mót-
tökur. Ótti við hefndaraðgerðir
Prag-stjómarinnar gegn Dubcek
vegna gagnrýni hans á tékknesk
stjómvöld reyndist til allrar ham-
ingju ástæðulaus. Það er erfítt að
útskýra hvers vegna hann fékk
loksins ferðaleyfi, þar getur margt
legið að baki.
Atlantshafsbandalagið
nauðsynlegt
- Hver er afstaða þín til af-
vopnunarmála? Ertu andvígur
NATO?
Ég styð NATO eindregið vegna
þess að það er óhjákvæmileg nauð-
sjm að lýðræðisríkin geti varist
mögulegum árásum að austan. Ein-
hliða afvopnun, hvort sem er á
ákveðnu sviði vopnabúnaðar eða
einstaks ríkis, er fírra. Ég vil að
reynt sé að semja við leiðtoga Sov-
étríkjanna, einnig um afvopnunar-
mál, þótt lýðræðissinnar á Vestur-
löndum eigi *að einbeita sér að því
að rækta tengslin við lýðræðissinn-
aða hópa og einstaklinga í kommún-
istaríkjunum. Jafnvel þótt komm-
únistaforkólfar svari aðfínnslum
með hefðbundnum útúrsnúningum
er aldrei hægt að vita hvað er að
gerast í kollinum á þeim. Þess
vegna er rétt áð ræða líka við for-
herta stalínista, allir geta breyst,
jaftivel gamlir nazistar!
- Hvað finnst þér um hugmynd-
ir eins og „Kjamavopnalaus Norð-
urlönd“?
Ég get ekki séð að slíkt sé fram-
kvæmanlegt. Ef til kjamorkustríðs
kemur þá verður ekki spurt um
landamæri. Sem stendur álít ég að
Vesturveldin eigi að leggja mesta
áherslu á fækkun í hefðbundnum
vopnabúnaði, á því sviði hafa Sovét-
menn allt of mikla yfírburði. Loka-
takmarkið er auðvitað afvopnun og
ef til vill kemur að því að bæði
hemaðarbandalögin í Evrópu verði
lögð niður samtfmis.
Með kveðju frá Prag
- 1975 fórst þú að skrifa bækur
um ástandið í Tékkóslóvakíu og
öðm áróðursstarfi þínu fyrir mál-
stað þarlendra andófsmanna óx enn
ásmegin. Hvað rekur þig áfram?
Eftir útlegðardóminn varð ég
stanslaust fyrir alls kyns óþægind-
um og ofsóknum af hálfu útsendara
Prag-stjómarinnar. 1975 kastaði
þó fyrst tólfunum er mér barst
bókasending frá manni í Mflanó.
(Lögreglan komst að því síðar að
nafnið var tilbúningur). Mér fannst
áritunin á pakkanum einkennileg,
fór því varlega þegar ég tók utan
af honum og tókst á síðustu stundu
að fleygja honum út um glugga
áður en hann sprakk. Aldrei tókst
að fínna sendandann en sjálfur
þurfti ég ekki að velkjast f vafa.
Þegar árið 1969 hafði ég ákveðið
að eina markmiðið með pólitfsku
starfí útlaga hlyti að vera aðstoð
við þá sem berðust gegn kúguninni
heima fyrir. Sprengjusendingin
hvatti mig enn frekar til dáða. Of-
sóknunum, m.a. með hótunarbréf-
um, var haldið áfram en lauk
skyndilega 1979 er ég var kosinn
á þing Evrópubandalagsins.
— Ertu bitur út í valdhafana í
Prag?
Það held ég ekki, vona ekki, það
er svo ófijótt að vera bitur og hata
andstæðinga sína. Verði lýðræði
komið á í Tékkóslóvakíu fínnst mér
að sjálfsögðu rétt að þeir sem grun-
aðir era um afbrot, t.d. pyntingar
á andófsmönnum, verði dregnir fyr-
ir rétt, en Jakes [Leiðtogi landsins.
Innskot Morgunblaðsins] og félagar
hans, sem auðvitað velta þá úr
valdasessi, verða að fá leyfi til að
reka pólitfska baráttu, rétt eins og
aðrir borgarar.
Viðtal: Kristján Jónsson
Jólagleði í Þórscafé er í mörgum fyrirtækj-
um og hópum árviss viðburður.
í ár bjóðum við í huggulegum salarkynnum
okkar jólaglögg, piparkökurog pinnamat
á verði sem slær allt annað út....
Hafið samband og kynnið ykkur málið.
Minnum einnig á að nú fer hver að verða
síðastur að bóka jólaball barnanna.
/I/H/IDELS
ÞCRSC/HrÉ
Brautarholti 20,
símar: 23333 & 23335.
metsölubœkur
hjá
1. Á miðjum vegi í
mannsaldur
Guðmundur Daníeisson
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
J
Sigurbjörn Biskup
Sigurður A. Magnússon
Þjóð i hafti
Jakob F. Ásgeirsson
Markaðstorg Guðanna
Ólafur Jóhann Ólafsson
íslenskir nasistar
lllugi og Hrafn Jökulssynir
Úr eldinum til íslands
Einar Sanden/Þorsteinn Sigurlaugsson
Ástkær
Toni Morrison
Gengið i Guðshús
Sr. Gunnar Kristjónsson
Vist er ég fullorðin
Iðunn Steinsdóttir
Bryndís
Ólína Þorvarðardóttir
1&M
Ý*L