Morgunblaðið - 09.12.1988, Side 37

Morgunblaðið - 09.12.1988, Side 37
Jólahlaðborð í Naustinu: Morgunblaðið/Þorkell í jólahlaðborði Naustsins kennir ýmissa grasa. Þar má fínna steikur, síldarrétti og laufabrauð, sem starfsfólkið skar og steikti sjálft. Laufabrauð og jólagrautur VEITINGAHÚ SIÐ Naust býður nú gestum sínum upp á jólahlað- borð bæði i hádeginu og á kvöld- in alla daga. Þar kennir margra grasa, meðal annars má þar fínna heimabakað laufabrauð, hrísgijónagraut með kirsubeija- sósu, jólaköku með ijóma, graf- inn og reyktan lax, síld, skinku og mikið úrval af öðrum heitum réttum og köldum. Að sögn Sturlu Péturssonar, veit- ingastjóra á Naustinu, er ætlunin að hafa jólahlaðborðið á boðstólum fram á Þorláksmessu. „Þá verður það hin víðfræga Þorláksmessu- skata okkar sem verður borin fram,“ sagði Sturla. Hann sagði að sú hefð hefði skapast hjá Naustinu að bjóða upp á svona hlaðborð fyr- ir jólin vegna þess að það væri fljót- legt og ódýrt. Fyrirtæki sæktust mikið eftir því að fara með starfs- fólkið út að borða fyrir jólin og einn- ig væru margir sem vildu geta hvílt sig frá jólaamstrinu og fengið góð- an mat á sem skemmstum tíma. Sturla sagði að í borðinu væru bæði þjóðlegir og erlendir jólaréttir, þetta væri_ eiginlega alþjóðlegur matseðill. Afram verður boðið upp á „a la carte“-matseðil hjá Naustinu fram að jólum. Félag dráttarbrauta og skipasmiðja: Vandi skípasmíðaiðnaðar er ekki óyfírstíganlegur VANDI skipasmíðaiðnaðarins, sem stafar bæði af innri og ytri orsökum, er ekki óyfírstíganleg- ur, segir í ályktun aðalfúndar Félags dráttarbrauta og skipa- smiðja. í ályktuninni segir einpig, meðal annars: Taka verður tillit til hinna miklu árstíðarbundnu sveiflna í verkefnum. Langtímamarkmið verði einkum höfð að leiðarljósi en ekki einblínt á stundarhagsmuni. Viðurkennt verði að þótt erlendum styrktaraðgerðum verði ekki svarað með sambærilegum styrkjum inn- anlands sé eðlilegt að einhverjar óbeinar aðgerðir komi þar á móti. Mismunur lánshlutfalla á skipum, smíðuðum hérlendis annars vegar og erlendis hins vegar, verði auk- inn. Skip, sem smíðuð eru innan- lands, fái hærri kvóta en innflutt og að skipasmíðaiðnaðurinn fái full- trúa í stjórn Fiskveiðasjóðs. Vaxtarræktarverslim flutt VERSLUN Vaxtarræktarinnar hefúr flutt aðsetur sitt í nýtt húsnæði í Skeifúnni 19. Nýlega urðu eigendaskipti á fyrirtækinu. Nýir eigendur eru bræðumir Þórhallur, Sigvaldi og Eggert Jónssynir. (Fréttatilkynning) Ein mynda Jóhönnu, Minning um hest. Viimustofusýning Jóhönnu Jóhönnu Bogadóttur heldur vinnustofusýningu föstudag til mánudags, 10.—12. desember, á Hjarðarhaga 48, 4. hæð t.v. Þar verða sýnd málverk, teikn- ingar og grafíkmyndir unnar með blandaðri tækni, flest unnið á þessu ári. Jóhanna er nú á starfslaunum sem borgarlistamaður og verður með sýningu á Kjarvalsstöðum á næsta hausti. Sýningin eropin kl. 15.00—22.00 alla dagana. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 8. desember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 50,00 30,00 37,86 3,129 118.466 Smáþorskur 30,00 22,00 25,01 1,954 48.876 Ýsa 80,00 43,00 69,361 1,943 134.792 Ýsa(ósl.) 69,00 69,00 69,00 0,782 53.958 Smáýsa 15,00 15,00 15,00 0,182 2.738 Karfi 26,00 26,00 26,00 4,250 110.504 Ufsi 25,00 25,00 25,00 1,784 44.612 Langa 31,00 27,00 28,89 8,341 240.939 Lúöa 255,00 160,00 190,63 0,464 88.471 Grálúöa 20,00 20,00 20,00 0,094 1.898 Steinbítur 40,00 25,00 37,85 1,306 49.462 Keila 14,00 14,00 14,00 0,313 4.382 Lýsa 20,00 20,00 20,00 0,120 2.400 Skötuselur 130,00 130,00 130,00 0,017 2.210 Samtals 36,61 24,682 903.708 Selt var aðallega úr Víöi HF, Guörúnu Björgu ÞH, fró Hleiöra hf. í Hafnarfirði, Magnúsi Snorrasyni í Bolungarvík og Færabaki hf. ó Stöövarfirði. ( dag veröa meöal annars seld 50 tonn af þorski og 3 tonn af ýsu úr Núpi ÞH, 15 tonn af þorski úr Fanney ÞH og óákveöiö magn af blönduðum afla úr Lómi SH og fleiri bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 69,00 65,00 66,28 1,334 88.448 Samtals J 66,28 1,334 88.448 Selt var úr Ásgeiri RE. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. í dag veröur selt óákveöið magn úr Aöalvík KE. Selt veröur úr dagróörabátum ef á sjó gefur. ísafjörður: Björgunar- báturinn sækir slasað- an sjómann Björgunarsveitimar Tindur og Skutull sóttu í fyrradag slasaðan sjómann af vélbátnum Orra ÍS 20 í Horavík á nýjum björgunarbáti, Daníel Sigmundssyni, sem þær keyptu sl. sumar. Ferðin tókst vel og reyndist báturinn hið besta, þrátt fyrir 8—10 vindstiga mót- vind á heimsiglingunni. Sjómað- urinn reyndist ekki alvarlega slas- aður. Að sögn Jóseps Vemharðssonar, sem stjómaði leiðangrinum, barst beiðni um að sækja slasaðan sjó- mann um borð í vélbátinn Orra um hádegið og var þá strax bmgðist við. Orri var þá staddur að veiðum um 35 mílur norðvestur af Homi, en sigldi frá veiðarfærunum inn á Hornvík þar sem hinn slasaði var fluttur um borð í björgunarbátinn. í upphafi heimsiglingarinnar skall á stormur og haglél og tók ferðin heim um helmingi lengri tíma en ella sak- ir veðurs. Læknir var ekki með í förinni þar sem skipstjómarmenn á Orra töldu þess ekki þörf, en sjómað- urinn var álitinn vera handleggs- brotinn. Félag um mannspeki Stofíifúndur félags áhuga- fólks um mannspeki (antrópó- sófí) verður haldinn laugardag- inn 10. desember kl. 13.00 í mat- stofúnni „Á næstu grösum", Laugavegi 20b. Antrópósófí er grískt orð og þýð- ir mannspeki. Antrópósófísk starf- semi er þekkt um allan heim, m.a. fyrir Waldorf-uppeldisfræði, lífræna ræktun, arkitektahús, læknisfræði, listir og vísindi. (Fréítatilkynning) Þórhallur Jónsson, einn eigenda Vaxtarræktarinnar, í nýju húsnæði fyrirtækisins í Skeifúnni 19. Ábendingar frá LÖGREGLUNNi: Þjófnaðir á o g úr bílum Þjófnaðir (nytjastuldir) á ökutækjum hafa aukist jafnt og þétt hin síðari ár. Oftar en ekki er um réttindalausa unglinga og ölvað fólk að ræða og hafa afleiðingar þessa á stundum verið hörmulegar. Þá hafa þjófnaðir úr og af ökutækjum aukist að sama skapi. Oft er fólki gert auðvelt um vik og virðist al- menningur vera allkæmlaus í viðskilnaði ökutækja sinna. Fjórar megintegundir þjófnaða tengdum ökutækum eru: A. Lauslegum verðmætum stolið úr ökutækjum, s.s. myndavélum, veslqum, töskum, radarvörum o.fl. B. Festum hlutum stolið úr ökutækjum, s.s. útvörpum, segulböndum, talstöðvum, símum o.fl. C. Hlutum stolið af ökutækjum, s.s. hjólkoppum, felgum, hjólbörðum, luktum og skrauti ýmis konar. D. Ókutækinu stolið. Eigendur eða umráðamenn ökutækja geta gert varúðarráð- stafanir til þess að draga úr líkum á afbrotum af þessu tagi og skulu hér nefnd nokkur atriði: 1. Takið alltaf lykilinn úr kveikjulásnum þegar ökutæk- ið er jrfírgefíð. Það skiptir ekki máli hvort um lengri dvöl eða skemmri er að ræða. 2. Skiljið aldrei verðmæti eftir sýnileg í ökutækinu. Ef það reynist nauðsynlegt einhverra hluta vegna; leggið þau í læsta hirslu eða breiðið yfír þau. 3. Læsið alltaf ökutækinu. Gangið úr skugga um að allar hurðir séu læstar og gluggar dregnir upp. 4. Reynið að leggja ökutækinu á vel upplýstu svæði. 5. Peninga, ávísanahefti, greiðslukort eða önnur slík verðmæti á aldrei að skilja eftir í ökutækjum. 6. Gangið þannig frá kveikjuláslyklum að óviðkomandi geti ekki komist yfir þá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.