Morgunblaðið - 09.12.1988, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988
Eitt ár frá brunanum hjá Nesfíski í Garði:
Byggðu nýtt hús á
rústum þess gamla
Baldvin Njálsson fiskverkandi er hvergi banginn þrátt fyr-
ir erfiðleika í greininni og hyggst kaupa Ktinn skuttogara
Keflavík.
AÐFARANÓTT 18. nóvember í fyrra brann frystihúsið Nesfískur í
Garði til kaldra kola. Gífurlegt eignatjón varð í brunanum, því allar
frystigeymslur voru fúllar af fiski. Baldvin Njálsson í Garði átti og
rak frystihúsið ásamt Qölskyldu sinni og nú ári síðar hefúr hann
byggt upp nýtt og glæsilegt frystihús á rústum þess gamla. Baldvin
og Qölskylda hans eru hvergi bangin þótt margir fiskverkendur
beijist í bökkum um þessar mundir — og hann vonast til að geta
keypt lítinn skuttogara til að nýta vélar og tæki hússins enn betur.
orðið ákaflega vel því við vorum
famir að vinna afurðir fyrir 4 millj-
ónir á dag þegar best gekk,“ sagði
Baldvin Njálsson í samtali við Morg-
unblaðið. Baldvin sagði að beint tap
Baldvin Njálsson ásamt eiginkonu sinni, Þorbjörgu Bergsdóttur, í
vinnslusal frystihússins sem teljast verður eitt fúllkomnasta frysti-
húss landsins.
Baldvin byrjaði smátt, frysti
humar sem hann seldi til veitinga-
húsa og var eldhúsið heima vinnu-
aðstaðan. Starfsemin gekk vel og
árið 1973 hóf hann almenna fisk-
verkun í litlu frystihúsi. Fljótlega
kom að því að húsið varð of lítið
og þá keypti Baldvin frystihúsið
Nesfisk í Garði af Landsbankanum
og hafði verið þar með starfsemi í
eitt og hálft ár þegar bmninn varð.
„Eldsvoðinn varð okkur gífurlegt
áfall, því við vorum með allar frysti-
geymslur fullar og vomm að kom-
ast yfir erfiðasta hjallann eftir
kaupin á húsinu. Framleiðslan gekk
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Hið nýja og glæsilega hraðfrystihús Nesfisks í Garði, gólfflötur þess er um 4.000 fermetrar og þar
vinna nú um 60 manns.
Atriði úr kvikmyndinni „Skordýrinu" sem sýnd er í Laugarásbíói.
Laugarásbíó frum-
sýnir „Skordýrið“
Laugarásbíó hefúr tekið til
sýninga kvikmyndina „Skordýr-
ið“ með Steve Railsbach og Synt-
hia Walsh í aðalhlutverkum.
Leikstjóri er William Fruet.
I fréttatilkynningu frá kvik-
myndahúsinu segir m.a.: „Það er
farið með Fred Adams á sjúkrahús
með háan hita og vanlíðan. Það
tekst ^kki að bjarga lífi hans þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. Það er tek-
ið sýni úr líkama hans og sett í
rannsókn. Eftir niðurstöður þaðan
er sjúkrahúsið sett í sóttkví og her-
inn kallaður til aðstoðar. Veiran
sem þeir fundu er ekki fyrir hvern
sem er að fást við.“
hans hefði numið um 40 milljónum
en tjónið hefði verið metið á um
200 milljónir. „Um tíma hvarflaði
að mér að hætta alveg, en ég á
samhenta fjölskyldu sem er í þessu
með mér af lífí og sál og það réð
úrslitum. Við ákváðum að hefjast
handa aftur, féngum leigt frysti-
húsið Ásgeir og fljolega eftir brun-
ann vorum við komin á fulla ferð
aftur. Jafnframt var hafist handa
við að byggja nýtt hús á rústum
þess gamla og var byijað að reisa
húsið í febrúar. Á sama tíma var
verið að leggja niður Kirkjusand í
Reykjavík og þar fengum við keypt-
ar allár þær vélar sem við þurftum
á að halda og það skipti sköpum
hjá okkur að þurfa ekki að bíða
eftir þessum tækjum."
Nýja húsið hóf starfsemi 29.
október og var síld fyrsta hráefnið
sem unnið var, en nú er búið að
frysta um 400 tonn af síld og eru
allar geymslur nú óðum að fyllast.
Hjá Nesfiski unnu um 50 manns
fyrir brunann og var þetta fólk
ekki atvinnulaust lengi því allir
færðu sig yfir í Ásgeir og unnu þar
verðmæti fyrir um 150 milljónir.
Nú er Nesfiskur með 7 báta í við-
skiptum og þar af á fyrirtækið einn
bát, Unu í Garði. Baldvin sagði að
hráefnisöflun þeirra gæti verið
gloppótt í rysjóttri tíð og því hefði
‘ hann hug á að kaupa lítinn skuttog-
ara og væri verið að vinna að þeim
málum.
Hjá Baldvin eru allir dagar eins
og hann er allt í öllu hjá fyrirtæki
sínu, hann mætir fyrstur, fer síðast-
ur og tekur þátt í framleiðslunni
af líf og sál. Hann er bílstjóri, flak-
ari og allt þar á milli. Baldvin Njáls-
son sagði að það væri mikil ákvörð-
un að ákveða að stöðva rekstur sem
þennan. Þetta væri nú einu sinni
lífæð þjóðarinnar og hana mætti
ekki stöðva ef við ætluðum að vera
sjálfstæð þjóð í eigin landi.
- BB
Nýr vcilingastaöur mcö nýjum malscöli
la Cartc“. HUÓMSVEIT GUÐ-
MUNDAR STEINGRÍMSSONAR
ásamt söngvurunum EINARI JÚLÍUS-
SYNI og SHADY OWENS lcikur fyrir
dansi.
Vcilingastjóri: Guörún Ólafsdóttir
Boröapantanir í síma 687III.
IIOTO. ftJAVl)
GÆJAR OG
GLAftíSPÍIIR
16söngvarar
og dansarar
Gestur kvöldsins, Jóhann G. Jó-
hannsson, flytur lög af nýútkom-
inn hljómplötu sinni.
Vcró meö kvöldvcrdi kr.
2.800,-
Miðasala og boröapantanir í
síma 77500 frá kl. 9-19.
Húsió opnað kl. 20
HUOMSVEITIRNAR
STJÓRNIN
OGUPPLYFTING
LEIKA FYRIR DANSI
HAUKUR MORTHENS
SKEMMTIR MATARGESTUM
Húslð opnað kl. 20
Vsrö a&göngumiða
á dansMk kr. 750,-
ItTm. |j,L\WD
Jóla
diskó
Stanslaust
f j ö r
H0LLYW00D
SNYRTILEGUR KLÆÐNAÐUR
UÚFFENGffiSMÁRÉTTIR
Miðaverð kr. 750,-
Metsölublad á hverjum degi!
GOMLU DAIMSARNIR
í kvöld frt kt. 21.00-03.00.
Hljómsveitin DANSSPORIÐ ásamt söngvurunum Ömu Þor-
Félagsvist
kl. 9.00 __
Gömlu og
nýju dansarnir
kl. 10.30
★ MiðasaJa opnar kl. 8.30
★ Gód kvöldverðlaun
ikr Stuð og stemmning á Gúttógleði
5QO/v rniðinn (QOQkr á danrJetbjnr emgonqu)
S.G.T.
Templarahöllin
Eiriksgotu 5 - Simi 20010
Staður allra sem vilja skemwta sér án áfengis.