Morgunblaðið - 09.12.1988, Side 66
66
MORGUNBLAЌ)
IÞROTTIR
POSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988
GOLF
Með Hvammsvíkur-
kylfingum í úrslita-
keppni í Englandi
VERÐLAUN fyrir árangur í golfmótum verða stöðugt fjölskrúðugri og jafnframt glæsilegri. Til
mikils er að vinna fyrir þá sem bezt standa sig og eins og keppni í golfi er upp byggð eiga flest-
ir möguleika. Á dögunum fór fram á golfvöllunum í Sundridge Park í Bromley, skammt fyrir sunn-
an London, úrslitakeppnin í Ensk-íslensku meistarakeppninni (Anglo lcelandic). Enskt mót eða
hvað og enskir keppendur? Nei alls ekki. Þarna mættust þeir kappar sem best stóðu sig á móti
með sama nafni á golfvellinum í Hvammsvík í Hvalfirði í sumar, en þar hafa Ólafur Skúlason og
þeir Laxalónsmenn gert golfvöli af myndarskap.
Forkeppnin fór fram í Hvamms-
víkinni og gátu keppendur
keppt hvenær sem var á þriggja
mánaða tímabili í sumar. Reyndar
■■■■■■ máttu kylfingar
Ágústlngi gera tvær atlögur
Jónsson að verðlaununum og
leika tvisvar sinnum
18 holur. F]órir
beztu í hvorum flokki, með og án
forgjafar, kepptu síðan í úrslitunum
í Englandi 23. október og auk bik-
ara úr ýmsum góðmálmum var
Englandsferðin keppendunum að
kostnaðarlausu.
Þeir Jóhann Sigurðsson, fyrrum
forstjóri Flugleiða í London, sem
nú rekur eigið fyrirtæki (Anglo Ice-
landic Business and Travel Consult-
ants), er meðal annars skipuleggur
golfferðir á_ milli fslands og Eng-
lands, og Ólafur Skúlason, fram-
kvæmdastjóri í Laxalóni, eru helstu
hvatamenn að þessu móti. Einnig
hafa Flugleiðir, ferðaskrifstofan
Urval, Sveinn Egilsson og síðast
en ekki sízt golfklúbburinn í
Sundridge Park sýnt málinu áhuga.
Gott par hjá Ragnarl
Átta keppendur tóku þátt í úr-
slitakeppninni í Sundridge Park.
Án forgjafar léku þeir Ragnar Ól-
afsson, Sigurður Hafstéinsson,
Gunnar Sigurðsson og Helgi Ólafs-
son, allir't Golfklúbbi Reykjavíkur.
Leikinn var 18 holu höggleikur og
tóku keppendur með sér árangurinn
á mótinu í Hvammsvík. Svo fór að
Ragnar Ólafsson bar sigur úr být-
um, Gunnar varð annar, Sigurður
þriðji og Helgi fjórði. Þeir fengu
fallega farandbikara afhenta í hófi
sem haldið var á heimili . Jóhanns
Sigurðssonar, en einnig minni gripi
til eignar.
Ragnar Ólafsson er ekki óvanur
því að vinna til góðmálma fyrir
árangur í golfi; íslandsmeistari
1981 og margfaldur sigurvegari í
öðrum mótum. 1 ár gat Ragnar
ekki beitt sér sem skyldi í golfinu^.
þar sem honum og konu hans,
Hólmfríði Guðmundsdóttur, fædd-
ust tvíburar í sumar og tóku þeir
eðlilega mikið af tíma kylfíngsins.
í Sundridge Park og á íslan^smót-
inu í sveitakeppni í Vestmanplfeyj-
um síðsumars sýndi Ragnar þó
hvers hann er megnugúr. Talandi
um tvíburana hlýtur að vera í Iagi
að láta fljóta með setningu, sem
höfð er eftir ömmu Ragnars er hún
frétti að tvíburamir, strákur og
stelpa, væru komnir í heiminn. „Sko
til, þetta var sannarlega gott par
hjá Ragnari."
Keppnin með forgjöf var með
alþjóðlegu yfirbragði. Þar léku til
úrslita Stefán Halldórsson, GR,
Gunnlaugur Axelsson úr Vest-
mannaeyjum, Erling Pedersen,
Dani, sem leikur fyrir GR, og Lee
Tian Choi, Malasíumaður, en nú
íslenzkur ríkisborgari, einnig GR.
Svo fóru leikar að Stefán Halldórs-
son sigraði. Hann lék mjög vel,
hefði reyndar unnið til verðlauna í
keppninni án forgjafar. Gunnlaugur
varð annar og Erling þriðji.
Þeir gömlu stóAu fyrlr sínu
Æfíngahringir voru leiknir á
föstudegi, úrslitin í Hvammsvíkur-
mótinu fóru fram á sunnudegi, en
á laugardag var keppni milli
íslenzka hópsins og sveitar frá
Sundridge Park golfklúbbnum.
Veðrið í Englandi þessa daga lék
við kylfingana, sólskin og um 20
stiga hiti, betri dagar en nýliðið
íslenzkt sumar bauð upp á. Til við-
bótar þeim kylfingum, sem léku í
fyrmefndri úrslitakeppni, léku John
Drummond, sem sigraði í keppni
atvinnumanna á íslandsmótinu í
sumar, Ólafur Skúlason, Jóhann
Sigurðsson og fleiri í sveit íslend-
inganna. Miðað við forgjöf voru
sveitimar áþekkar, en miðað við
aldur töldu Islendingamir að sigur
þeirra yrði næsta auðveldur.
Svo fóru þó leikar að Englending-
amir sigruðu með 3‘/2 vinningi
gegn 2V2. Sannaðist þar að í golfi
er ekkert öruggt og sú vegalengd
sem skiptir mestu máli er bilið á
milli eymaftma eins og vís maður
sagði. Sigr^r íslendinganna voru
báðir naumir, en tvo af leikjum
sínum unnu Bretamir 5:0. Mikill
aldursmunur var á _ kylfíngum í
þessum sveitum. íslendingamir
voru flestir frísklegir strákar á
„bezta aldri", en Englendingamir
flestir til muna eldri, tveir þeirra
til dæmis um sjötugt.
Laxalón gaf verðlaun f þessu
móti og vom þau afhent í mikilli
veizlu í klúbbhúsinu á golfvellinum
í Sundridge Park að keppni lok-
inni. Laxalón lagði til reyktan regn-
bogasilung, sem gagngert var kom-
ið með að heiman, og kona Jóhanns
Sigurðssonar, Dorothy, bauð upp á
heimabakaða eplaköku. Meðlimir í
golfklúbbnum opnuðu dyr klúbbs
síns upp á gátt fyrir íslenzku gest-
ina og kynntust menn á skemmti-
legan hátt siðum og hefðum enskra
golfklúbba. Vald formanns klúbbs-
ins var algjört og borðhaldið að
keppni lokinni fór fram eftir ára-
tuga gömlum reglum. Þó maturinn
væri íslenzkur var borðhaldið sann-
arlega enskt, upprunnið í golfklúbb-
um aðalsmannanna.
Um leið og einstaklingar kynnast
á golfvellinum eru þessi samskipti
hin ágætasta íslandskynning, sem
menn gera sér vonir um að skili
auknum íslandsferðum frá þessu
svæði þegar fram í sækir.
í sumar hafa nokkrir hópar ís-
lendinga farið á vegum Jóhanns
Sigurðssonar til Englands og leikið
á golfvöllunum í Bromley. Margir
golfvellir eru á þessu svæði og hafa
menn getað sameinað golfið öðrum
áhugamálum og verslun í Eng-
landi. Ráðamenn golfklúbbsins í
Sundridge Park hafa verið velviljað-
ir Islendingunum og til dæmis voru
nokkrir af efnilegustu íslenzku kylf-
ingunum í æfíngabúðum hjá Bob
Cameron golfkennara Sundridge
Park um tíma í sumar. Bjuggu
kylfíngarnir þá á heimilum félags-
manna. Jóhann Sigurðsson er með-
limur í golfklúbbnum og lykillinn
að þessum samskiptum.
Útivistarsvaaðl
í Hvammsvfk
Anglo Icelandic-golfmótið verður
haldið með svipuðu sniði í
Hvammsvík á næsta sumri og bind-
ur Ólafur Skúlason þá vonir við að
þátttaka verði meiri en var í ár.
Golfvöllurinn þar er í eigu þeirra
Laxalónsmanna og greinilegt að
aðstaða þama hefur þegar unnið
sér sess hjá fólki. í sumar nýttu
hátt í 10 þúsund manns sér aðstöð-
una þama. Hann segist ekki vera
í nokkrum vafa um að vinsæidir
staðarins eigi enn eftir að aukast
enda er Hvammsvíkin ekki nema
um hálftíma akstur frá borginni.
Þar er hægt að iðka golf og veiða
í vatninu auk ýmissa annarra mögu-
leika, sem Ólafur segir landið bjóða
upp á. Varðandi golfvöllinn hefur
þegar mikið starf verið unnið, en
það er þó aðeins byijunin að sögn
Ólafs.
„Ég hef oft hugsað um það hvort
bændumir sem þama bjuggu og
ræstu fram landið hafi gert það
með golfvöll í huga,“ segir Ólafur
Skúlason í Laxalóni. „Skurðirnir
Stefán Halldórsson og Ólafur Skúlason fyrir leikinn gegn öldungunum frá
Sundridge Park, Lesley Wilson og Victor Sturdie. Svo fóru leikar að þeir eldri
gáfu sig hvergi og héldu jöfnu í leiknum.
Á golfvellinum í Hyammsvík, frá vinstri Jóhann Sigurðsson, Sveinn Snorrason,
Victor Sturdie, Lesley Wilson, fyrrum formaður golfklúbbsins í Sundridge Park,
Ron Patterson, formaður f Sundridge, og Björgúlfur Lúðvíksson, framkvæmda-
stjóri Golfklúbbs Reykjavíkur.
em þannig gerðir að þeir afmarka
brautimar vel og ég þurfti nánast
engin önnur tæki en sláttuvélina
áður en ég gat opnað golfvöllinn.
Næsta sumar er fyrirhugað að gera
300 metra langt æfíngasvæði
þama. Einhvem tímann þyrfti að
laga halla á nokkrum flatanna og
nokkrar glompur skemmdu ekki,
en völlurinn kallar ekki á neinar
stórframkvæmdir. Næsta sumar
verður aðstaðan fyrir yngstu kyn-
slóðina bætt og framtíðaráform eru
að bora þama eftir heitu vatni, en
tilraunaholur á svæðinu voru mjög
jákvæðar. Heita vatnið mætti síðan
nota bæði við fískeldið og útivistar-
svæðið.
Næsta sumar er ákveðið að
heimsþekktur golfkennari verði hjá
okkur um tíma og ýmislegt annað
verður um að vera í golfinu. Stór-
mótið okkar verður á dagskrá og
standa sömu aðilar að því og áður.
Vel getur verið að við breytum fyrir-
komulaginu eitthvað, en verðlaun
verða síst lakari en áður," sagði
Ólafur Skúlason að lokum.
Islenzki hópurinn sem keppti í Bromley, Gunnar Sigurðsson, Stefán Halldórs-
son, Lee Tian Choí, Ólafiir Skúlason, Helgi Ólafsson, Erling Pedersen, Gunnlaug-
ur Axelsson, Sigurður Hafsteinsson, Ragnar Ólafsson, John Drummond og
Jóhann Sigurðsson. Til hliðar færir ólafur Skúlason Stefán Halldórsson f „græna
jakkann", en Stefán og Ragnar Ólafsson sigruðu í „ensk-íslenzku meistarakeppn-
inni“.
ít.L',
L> f £ c
.ÍIíiVIJVlÖÍ Ö9ÍÍI UIOV