Morgunblaðið - 16.12.1988, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988
brother
TÖLVUPRENTARAR
Prentari fyrir heimilistölvuna.
Hágæða nálaprentari.
Allir Brother prentararnir eru með
serial og paralleltengi.
Laserprentari
Prentari fyrir bókhaldstölvuna.
VISA vildarkjör - Engin útborgun.
Eitt mesta úrval af tölvuprenturum á landinu.
SKIPHOLTI 9, © 622455 & 24255
Afmælisrit
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
INDRIÐABÓK. 234 bls. Sögu-
steinn. Reykjavík, 1988.
Bók þessi er gefin út vegna átt-
ræðisafmælis Indriða Indriðasonar
rithöfundar sem var snemma á
þessu ári. Mest eru þetta þættir sem
Indriði hefur sjálfur samið og birst
hafa í blöðum og tímaritum á und-
anfömum áratugum. Einnig er
þama grein um Indriða eftir Andrés
Kristjánsson. Indriði hóf ritstörf
sem smásagnahöfundur og segir
Andrés svo frá því: »Á heimkomu-
ári frá Vesturheimi 1930 fór Indr-
iði til Reykjavíkur í atvinnuleit.
Meðan beðið var vinnu, ritaði hann
sex smásögur á nokkmm dögum,
fór með handritið í prentsmiðju og
fékk það útgefíð undir nafninu Ör-
lög það ár.«
Skemmst er frá að segja að með
/
NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ!
KAPGSALAN
BORGARTÚNI 22 SÍM! 23509
Næg bílastæði 3
Indríði Indriðason
útkomu þessara sagna lagði Indriði
skáldskapinn að mestu leyti á hill-
una en hefur síðan sinnt fræðistörf-
um, einkum ættfræði. Því hefur
verið hljótt um nafn hans þar eð
ættfræði er sjaldan í hávegum höfð
í íjölmiðlum þótt áhugi á henni sé
líkast til almennari en margur
hyggur.
Sama máli gegnir um félagsstörf
Indriða; ekki hefur heldur verið lát-
ið mikið með hann þeirra vegna.
Þó hefur hann verið liðtækur á því
sviðinu; reyndar unnið þar mikið
starf og óeigingjarnt. Hann hefur
t.d. lengi sinnt bindindismálum; svo
og málefnum rithöfunda. En Indr-
iðabók ber þess lítil merki. Fæstir
þáttanna fjalla beinlínis um áhuga-
mál hans. Þetta eru mest hugvekjur
og manna minni. Meðal annars eru
birtir þættir sem Indriði skrifaði
fyrr á árum um vini sína og félaga
í hópi rithöfunda, menn sem nú eru
allir látnir: Guðmund G. Hagalín,
Kristmann Guðmundsson og Jakob
Thorarensen. Einnig er þama minn-
ingargrein um Sigurjón Friðjóns-
son, sýslunga Indriða. Allir em
þættir þessir stuttir, enda færðir í
letur vegna afmælis eða fráfalls og
ekki ætlað að vera neins konar rit-
skýring né úttekt á skáldskap við-
komandi heldur aðeins kveðja eða
þökk fyrir unnin störf og samfylgd
á lífsleiðinni. Líka em þama ávörp
sem Indriði hefur flutt á samkomum
og fleira smálegt.
Fremst í Indriðabók er birt tab-
ula gratulatoria sem sýnir svo ekki
verður um villst að margur hefur
metið félags- og fræðistörf Indriða
þó þau hafí mest verið unnin í kyrr-
þey en hvorki til lofs né frægðar
honum sjálfum. -
VESTUR WSK
RAFTÆKI
VÖNDUÐ OG
VARANICG
E*
EKKERT ELDHUS AN EMIDE
ÓA SÍMI {91)24420
^áuggshní,
KAFFIVÉLAR 5 GERÐIR
hradsuowauar
JKAUO-
VÖFFLUJARN
dósahnJfarogbrýn,
EGGJASJODARAR