Morgunblaðið - 16.12.1988, Page 18

Morgunblaðið - 16.12.1988, Page 18
88ei HaaMaaaa .ai HUDAauTaöa .aiGAjanuoHOM MORGUNBLAÐÍÐ, FÖSTÚDÁGUR 16. DÉSÉMBÉR 1988 % 0 um eins og gerst má fræðast um í /*>i g* X þessari bók. tlk /yn ■ 1 I fn T“| O o "1^» Olafsfjörður hefur löngum fengið Oct/fif d; V^líULÖJL I diX 11 (4- ■ það orð að vera bær stöðugleika. O Cl Þó skammt sé til Siglufjarðar er Bókmenntir Erlendur Jónsson Friðrik G. Olgeirsson: HUNDR- AÐ ÁR í HORNINU. Saga Ólafs- fjarðar 1883-1944. 404 bls. Útg. Olafsfjarðarkaupstaður. 1988. Þetta er 2. bindi af Sögu Ólafs- fjarðar. Hið fyrsta kom út fyrir fá- einum árum. Þá er aðeins eitt ókom- ið. »Það bindi Ólafsfjarðarsögu sem nú kemur út flallar un sama tíma- bil og það fyrra, 1883-jl944, en um þá málaflokka sem þá u.-ðu eftir,« segir höfundur í formála. Búskaparsagan er hér fyrirferðar- mest því þetta er saga byggðarlags- ins í heild en ekki einungis þétt- býlisins. Að auki er svo rakin hér saga félagsmála af ýmsu tagi, en einkum þ_ó eftir að þéttbýli mynd- aðist á Ólafsfírði. Eg geri mér í hugarlund að höfundur hafí ekki einungis stefnt að því að draga sam- an fróðleik heldur einnig að koma honum svo frá sér að áhuga kynni að vekja jneð þeim sem lesa ekki bækur af eintómri menntafordild heldur líka af almennri forvitni um fólk, sem lifað hefur í iandinu, og atburði sem minnisstæðir mega kall- ast. Textinn er lipurlega saminn og sýnist mér höfundur hafa gert sér far um að draga fram hinar mann- legu hliðar sögunnar ekki síður en hinar fræðilegu. Þetta er því vel læsileg bók til viðbótar við hitt hversu fróðleg hún er. Hér er æði margt að fínna um lífskjör fólks á fyrri tíð: sveitafólks, kennara eftir Friðrik G. Olgeirsson að skólahald hófst, embættismanna og svo framvegis. Harðindaárin 1880-90 urðu Ólafsfírðingum þung í skauti eins og fleirum. Sóknar- prestinum óaði svo við vandræðun- um að hann forðaði sér í annað prestakall og síðan til Vesturheims! Svo er að sjá sem þeir hafi komist skást af sem studdust bæði við bú- skap og sjávargagn. - Prestsetrið var á Kvíabekk og gaf tekjur hærri en í meðallagi. Því fengu Ólafsfírðingar oft til sín góða og gegna presta sem settu svip á lífíð í byggðarlaginu. En prestar þágu ekki laun eins og ríkisstarfs- menn nú. Tekjur þeirra komu frá sóknarbömunum eftir flóknum regl- athyglisvert hversu uppbygging gerðist með ólíkum hætti í þessum tveim nágrannabæjum, hægar en jafnar á Olafsfirði. Siglufjörður var eins konar gullgrafarabær þar sem ævintýrin gerðust. Af Ólafsfirðing- ufn fóm svo fáar sögur að þeim var tæpast athygli veitt fyrr en þar var allt í einu risinn myndarlegur kaup- staður. Þó er undirstaða atvinnulífs- ins í þessum tveim bæjum í raun hin sama: sjósókn og fískvinnsla. Ef borin eru saman lífskjör í byggðarlaginu á seinasta fjórðungi 19. aldar og nú er munurinn svo feikilegur að orð fá tæpast lýst. Þéttbýlismyndun á fyrri hluta ald- arinnar gerðist af sjálfu sér á Ólafs- fírði sem annars staðar. Þar kom hvorki til stefna né samtök. Menn voru þá eins og endranær misjafn- lega skyggnir á framtíðina. En und- ir niðri hefur fólk fundið á sér að þéttbýlinu mundi halda áfram að vaxa fískur um hrygg, þar væri vaxtarbroddurinn. Myndir eru geysimargar í þessu bindi, mannamyndir mest en einnig myndir af mannvirkjum og lands- lagi. Landslagsmyndirnar minna á einangrun staðarins fyrrum; Ólafs- fjörður er umlukinn háum fjöllum.' Byggðin var því löngum afskekkt. Skammt er til úthafsins. Á því máttu Ólafsfirðingar, kenna eins og fleiri á harðindaárum 19. aldar þegar hafís lá fyrir landi mánuðum saman ár eftir ár og leiðir til sjávarins voru lokaðar. Nú er einangruninni óðum að létta og er- þá vel til fundið að Ólafsfírðingar skuli horfa um öxl og minnast liðinnar tíðar með útgáfu þessa veglega rits. Frá vinstri: Laura Sch. Thorsteinsson, formaður Félags háskóla- menntaðra hjúkrunarfræðinga, Ingibjörg R. Magnúsdóttir og María Pétursdóttir. Félag háskóla- menntaðra hjúkrun- arfræðinga 10 ára Tveir heiðursfélagar útneftidir 10 ÁR voru liðin frá stofhun Félags háskólamenntaðra hjúkr- unarfræðinga 2. desember sl. Stofhfélagar voru 22 en félags- mönnum hefur Qölgað ört og eru þeir nú 330 talsins. í afmælisfagnaði í tilefni 10 ára afmælis félagsins voru þær Ingi- björg R. Magnúsdóttir, deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu og námsbrautarstjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands, og María Pétursdóttir, skólastjóri Nýja hjúkrunarskólans, gjörðar að fyrstu heiðursfélögum þess. Ingibjörg og María hafa báðar unnið mikið brautryðjendastarf í þágu menntunarmála hjúkrunar- fræðinga hérlendis. Þær unnu ötul- lega að því að koma námi í hjúkrun- arfræði í Háskóla íslands og hafa stuðlað þar að vexti og viðgangi þess. (Fréttatilkynning) IKEA ELDHÚSÁHÖLD CHARAD 5 eldhúsóhöld kr. 860.- QUICHE 3 bökunardiskar kr. 855.- RAVIN bretti og 5 hnífar kr. 975.- KVOT uppþvottagrind kr. 730.- FLORIN panna kr. 1745.- Húsi verslunarinnar, Kringlunni7, 108 Reykjavík. Sími 686650

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.