Morgunblaðið - 16.12.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988
tjölskv'dunnar
Srt.ytgjuofnmeð
Deltavuave drerf'OQ
kennslu
I2gerðir
Toshiba ER5420 17 lítra
9 orkustillingar. 45 mín. klukka.
Hvítur eða brúnn.
Mál: 45 x 31 x 33.
Kr. 19.900,-Kr. 18.900,-stgr.
Toshiba ER 5720 17 lítra
Tölvustýring. 9 orkustillingar.
Hraðþýðing. Hvítur eða brúnn.
Mál: 45 x 31 x 33. Hvítur eða
brúnn
Kr. 25.900,-Kr. 24.600,-stgr.
Toshiba ER 7720 27 lítra
Tölvustýring. Deltawave dreifing.
9 orkustillingar. Hraðþýðing.
Mál: 55 x 38 x 37.
Kr. 35.900,- Kr. 34.100,- stgr.
Toshiba ER 8730 28 lítra
Nýja línan - Glæsilegur ofn.
Mál: 49 x 35 x 48. Hvítur.
Kr. 32.900,- Kr. 31.250 stgr.
Toshlba ER 7820 27 lítra
Tölvustýring. 9 orkustillingar.
Hraðþýðing. Getur kveikt á sér
sjálfur. Hvítur eða brúnn.
Mál: 55 x 38 x 37.
Kr. 38.900,-Kr. 36.950, - stgr.
Mjög góð greiðslukjör.
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 Sími 16995
Leið 4 stoppar við dyrnar.
Úr hugrenningasj óði spekings
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Undir augliti klukkunnar,
lifssaga Christophers Nolans.
Garðar Baldvinsson þýddi.
Útg. ísafold 1988.
Þessi óvenjulega lífssaga höfund-
ar, sem birtist í þessari bók og kýs
að segja hana undir nafni Josephs,
er ævintýri frá upphafi til enda.
Christopher Nolan er ungur írskur
drengur. Hann er uppalinn í Dublin
og stundar nú, rétt tvítugur, nám
í Trinity College. Christopher
Lionessur
seljajólatré
DAGANA fram til jóla er Lion-
essuklúbbur Reykjavíkur með
sölu á jólatijám við Kjötmið-
stöðina Laugarlæk.
í frétt frá Lionessuklúbbnum
segfir, að jólatrén séu sérstaklega
fallegur danskur Normannsþinur,
1,50 til 1,80 metrar á hæð. Trén
kosta 1800 krónur. Opið er alla
virka daga til jóla frá kl. 17-19
opg laugardaginn 17. desember
frá kl. 10 og sunnudaginn 18.
desember frá kl. 13.
Allur ágóði af sölu jólatrjánna
rennur óskiptur til líknarmála.
skaddaðist í fæðingu og er lamað-
ur, spastískur og mállaus. Og svo
virðist sem framan af hafi ekki
verið gert ráð fyrir öðru en hann
væri þroskaheftur. Foreldrar hans
og systir hafa augljóslega snemma
áttað sig á að pilturinn væri and-
lega séð vel af guði gerður og þau
veita honum þá sinnu, umönnun og
hlýju sem skiptir sköpum. Þó hefur
baráttan oft verið hörð og Joseph,
sem getur aðeins tjáð sig með því
að hreyfa augun, oft verið misskil-
inn og stundum hlýtur þetta að
hafa virst harla vonlaust stríð.
Þegar að því kemur að drengur-
inn fer í skóla reynast bekkjarfélag-
ar hans honum betri en enginn.
Þegar þeir hafa gert sér grein fyrir
alvarlegri fötlun hans, virðist sem
þeir reyni — og þeim tekst það oft-
ast — að taka honum eins og hverj-
um öðrum félaga. Honum er strítt,
en aldrei verður það nema viðráðan-
legt og hann er innilega þakklátur
félögum sínum fyrir það hvað þeir
sýna honum ftjálslegt viðmót og
eru boðnir og búnir að hjálpa hon-
um. Væntanlega hefur það ekki
verið án átaka að hann fékk inn-
göngu í venjulegan skóla, en það
er ekki rakið hér.
Altjent hefur drengurinn ungur
og alla tíð þurft að sanna sig og
hann hefur áreiðanlega mátt hafa
sig allan við. Hann fer í skemmti-
ferðir með félögum sínum, á dans-
æfingar og er hvarvetna hrókur
alls fagnaðar. Hann hefur mikinn
stuðning af séra Flynn, sem er í
senn sálusorgari hans og velgjörð-
armaður.
Joseph hefur fengist við að skrifa
og skapa. Hann skrifar með því að
stöng er fest milli vara hans og
með henni slær hann á ritvélarborð-
ið. Maður getur nokkurn veginn
sagt sér sjálfur að það eitt að skrifa
nokkur orð hlýtur að kosta ómælt
erfiði. Og er þá aðeins um eina hlið
hugsað. En Christopher lætur ekk-
ert aftra sér að ná því marki sem
hann dreymir um.
Hann sendir ljóð í samkeppni og
það kemur í ljós að hann hefur
unnið og fleiri viðurkenningar rað-
ast til hans, honum til ólýsanlegrar
uppörvunar. En ekki er lífið dans á
rósum og það verður honum óskap-
legt áfall þegar bandarískur blaða-
maður sem kemur á fund hans,
dregur í efa eftir heimsóknina að
Christopher hafi sjálfur skrifað það
sem hann hefur fengið viðurkenn-
ingu fyrir. Viðbrögð piltsins þegar
þetta kemur upp á eru nístandi og
nöturleg og um hríð finnst honum
hann verða að snúast gegn guði,
því að væri guð til gæti hann ekki
hafa látið þetta yfir hann ganga.
Drengurinn verður fyrir þungu
og sáru áfalli, þegar vinur hans
séra Flynn deyr. En lífið er náttúr-
lega ekki aðeins mæða og barátta.
Fjarri fer því. Christopher Nolan
er fundvís á spaugilega þætti í
kringum sig, en umfram allt getur
hann spaugað með sjálfan sig og
þó að oft séu orðin létt, finnur les-
andi þó ólguna undir; hefur dreng-
Christopher Nolan
urinn nokkurn tíma sætt sig við
líkamlegt ástand sitt og mun hann
nokkru sinni gera það.
Christopher Nolan skrifar af
miklum krafti, orðanotkun hans er
óvenjuleg og samsetning nýstárleg.
Það er hollt og gott að lesa þessa
bók um mikla hetju og auðvitað
alveg sérstaklega vegna þess hve
vel hún er skrifuð.
Þýðanda hefur verið ærinn vandi
á höndum, en ég fæ ekki betur séð
en hann hafi unnið verk sitt af
hugmyndaauðgi og samviskusemi
og kemur vel til skila inntaki hugs-
ana Nolans.
1 V V | f ^
. -r-I'
Simonarsalur
fyrir hópa