Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 1

Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 1
88 SIÐUR B 293. tbl. 76. árg. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hundruð manna farast í flugslysi í Suður-Skotlandi: Breiðþota skellur til jarðar og tugir húsa fuðra London, Ncw York, Skotlandi. Reuter og frá Guðmundi Heiðari Frímannflayni og Andrési Magnússyni fréttariturum Morgunblaðsins. BREIÐÞOTA af gerðinni Boeing- 747 frá bandaríska Pan Americ- an-flugfélaginu á leið frá Heath- row-flugvelli i London til Kennedy-flugvallar í New York hrapaði til jarðar í skoska þorp- inu Lockerbie um klukkan 19.15 í gærkvöldi. Með flugvélinni voru 243 farþegar, þar af þrjú börn, og 15 manna áhöfii, alls 258. I samtali við breska útvarpið BBC sagði flugumferðarstjóri að vélin hefði horflð af ratsjám klukkan 19.08. Skömmu siðar barst til- kynning um mikla sprengingu á jörðu niðri í Suður-Skotlandi og reis eldsúla um 100 metra í loft upp, þegar vélin lenti á bensín- stöð. Kviknaði í tugum húsa i þorpinu Lockerbie, þar sem 3.000 manns búa. Björgunar- sveitir dreif að og bárust fréttir um að 12 manns, líklega þorps- búar, hefðu verið fluttir í sjúkra- hús i bænum Dumfries, i 16 km Qarlægð. Slökkviðliðsmenn börðust við elda umhverfis gíginn, er myndaðist þar sem vélin kom til jarðar. Vegna elda og braks úr vélinni var ógjörn- ingur að gera sér grein fyrir aðstæðum, áður en blaðið fór í Pólland: Hreinsanir í flokknum Varsjá. Reuter. BREYTINGAR voru gerðar á forystuliði pólska kommúnista- flokksins i gær. Sex félögum úr stjórnmálaráði flokksins var vik- ið úr embætti og nýir menn tóku sæti þeirra, auk þess sem Qölgað var um tvo. Með breytingunum, sem miðsfjórnarfundur pólska kommúnistaflokksins samþykkti, hefur verið Qölgað úr 15 manns í 17 í stjórnmálaráðinu. Stanislaw Ciosek, sem sat í stjómmálaráði flokksins án at- kvæðisréttar, var gerður að fullgild- um féiaga. Ciosek tilheyrir hófsam- ari öflum innan flokksins og hefur tekið þátt í viðræðum stjómvalda við Samstöðu, hina bönnuðu verka- lýðshreyfingu í Péllandi. Zbigniew Messner, sem lét af embætti forsætisráðherra í septem- ber sfðastliðnum, var vikið úr stjómmálaráðinu, svo og Jozef Baryla, sem lengi var samstarfs- maður Wojciech Jaruzelskis, leið- toga pólska kommúnistaflokksins. Þá var fyrrum yfirmanni áróðurs- mála, Jan Glowczyk, einnig vikið úr stjómmálaráðinu. Jaruzelski sagði, þegar hann til- kynnti mannaskiptin, að miðstjóm flokksins vildi komast að samkomu- lagi við stjómarandstæðinga en að efasemdir væru uppi um hvort semja ætti við Samstöðu. prentun. Sjónarvottar töldu eng- ar líkur á að nokkur farþegi hefði komist lífe af. Orsakir slyssins voru ókunnar en ekki var talið, að um árekstur i lofti hefði verið að ræða. Talsmaður flugfé- lagsins sagði ekkert benda til þess að vélin hefði hrapað vegna sprengingar, skemmdarverka eða óveðurs. Pan Am flug 103 hófst í Frank- furt. Eftir millilendingu í London átti vélin að leggja af stað til New York samkvæmt áætlun klukkan 18.00 í gærkvöldi. Brottför seinkaði hins vegar um 25 mínútur. Öryggis- vörður á Heathrow-flugvelli sagði, að það hefði verið létt yfir far- þegunum þegar þeir stigu um borð og margir hefðu verið klyflaðir jóla- gjöfum. Breiðþotan hafði náð 31.000 feta (9.500 metra) hæð, þegar hún lenti í vandræðum og var þá komin að landamærum Eng- lands og Skotlands. Klukkan 19.08 hvarf hún skyndilega af ratsjár- skermum flugumferðarstjóra. Gestir í hóteli í útjaðri skoska upp þorpsins Lockerbie (112 km fyrir sunnan Glasgow) sögðu í samtali við BBC, að þeir hefðu heyrt mikinn hvin og síðan sprengingu. Héldu þeir að þak hótelsins myndi hrynja yfir þá. Ökumaður sagðist hafa verið að fara fram hjá bensínstöð, þegar hann heyrði gjfurlega sprengingu fyrir aftan sig. „Það er ógjömingur að nálgast þorpið núna,“ sagði hann „himinninn er allur í björtu báli. . . logandields- neyti flýtur um allt.“ Fólk sem sagð- ist hafa séð vélina á leið til jarðar hringdi í sjónvarps- og útvarps- stöðvar. Einn sagðist hafa séð eld- tungur á leið til jarðar. Útvarps- fréttamaður sagði að líklega hefði vélin lent utan í hæð og brotnað, áður en hún rakst á hús og bensín- stöð. Meðal farþega í þotunni var Svíinn Bemt Carlsson, umboðsmað- ur Sameinuðu þjóðanna í Namibíu. Þar vom einnig allmargir banda- rískir hermenn á leið heim í jóla- leyfi svo og stúdentar. Reuter Slökkviliðsmenn berjast við eldana i húsum i skoska þorpinu Lockerbie. Jumbo-þota frá Pan Am-flugfélaginu skall á bensínstöð við þorpið í gærkvöldi og er talið að allir um borð, 258 manns, hafi farist. Tugir þorpsbúa slösuðust en ekki er vitað hvort einhver þeirra týndi Iífi. Forystugrein í New York Times um hvalveiðar: * Islendingar hlíta alþjóðasamþykktum Hvatt til harðra aðgerða gegn hvalveiðum Japana Washington. Frá ívari Guðmundsssyni, BANDARÍSKA stórblaðið Afew York Times hefiir nokkrum sinnum gagnrýnt íslendinga fyrir að stunda hvalveiðar í vísindaskyni og sagt að vísmdin væru yfirskinið eitt. f forystu- grein blaðsins i gær kveður við annan tón gagnvart íslending- um en hins vegar er ráðist harkalega á Japani sem einnig stunda hvalveiðar. Blaðið segir að Japanir hafi firéttarítara Morgunblaðsins. ákveðið að veiða 300 hrefnur og haldi því fram að þetta sé gert í vísindaskyni. Raunverulegt mark- mið veiðanna sé að útvega kjöt. Á undanfömum árum hafi Japan- ir brotið gegn alþjóðlegum sam- þykktum um bann við hrefnuveið- um og hyggist nú taka upp þráð- inn á ný. Fyrri refsiaðgerðir Bandaríkjastjómar hafí greinilega engin áhrif haft. „Nú er kominn tími til að Bandaríkjastjóm grípi til harðari aðgerða,“ segir í blað- inu. New York Times segir að ís- lendingar og Norðmenn stundi að vísu vísindaveiðar en þær séu stundaðar í samræmi við sam- þykktir Alþjóðahvalveiðiráðsins. Bandaríska viðskiptaráðuneytið telji að báðar þessar þjóðir hafí sýnt að þær vilji haga veiðunum með þeim hætti að viðleitni Al- þjóðahvalveiðiráðsins til að vemda hvalastofnana verði ekki til einsk- is. Blaðið segir að vegna brota Japana á alþjóðasamþykktum verði William Verity viðskipta- málaráðherra nú að leggja til að gripið verði til banns við öllum innflutningi sjávarafurða frá Jap- an enda þótt samsvarandi ráðstaf- anir af hálfu Japana komi harðar niður á Bandaríkjamönnum er flytja mikið út af slíkum afurðum til Japans. Hvalavemd hljóti samt að vera þyngri á metunum en tímabundið viðskiptatap.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.