Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 2
I
■W
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
Flugfax hf. semur við Flying Tigers:^
Allt að 2001 flug-
ft*akt á viku til Asíu
Yngstu borgaramir flykktust að Lindu þegar hún steig út úr flugvélinni.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gott að vera komin heim
segir Linda Pétursdóttir
UNGFRÚ heimur, Linda Pétursdóttir, kom heim til Vopnaflarðar
í fyrradag. Henni var þar tekið með kostum og kynjum og flöl-
menni beið hennar á flugvellinum við heimkomuna.
í spjalli við Morgunblaðið sagð-
ist Linda hafa fengið höfðinglegar
móttökur þegar hún kom heim,
og hún hefði nú þegar heimsótt
frystihúsið, þar sem hún vann
áður. Þar hefði verið tekið vel á
móti henni eins og annars staðar.
„Ég ætla samt að láta það vera
að skella mér í fískvinnu núna,“
sagði Linda.
Linda sagðist hafa hitt heilmik-
ið af gömlu kunningjunum, sem
nú væru að tínast heim úr skóla
á Akureyri eða í Reykjavík og
jnrðu yfírleitt fagnaðarfundir.
„Það er óskaplega gott að vera
komin heim,“ sagði Linda. Hún
sagðist aðallega ætla að eyða
hátíðunum í afslöppun, og sagðist
ekki þurfa að hafa áhyggjur af
því að þverfóta ekki fyrir aðdá-
endum á götum úti á Vopnafirði.
„Það er allt svo stórt hér á Vopna-
fírði, þetta er rosabær," sagði
Linda.
FLUGFAX hf. hefúr náð samning-
um við Flying Tigers um afnot
af flugfraktrými á leiðinni
Keflavík-Asía. Til að byrja með
er Flugfax hf. tryggt 38 tonna
rými á viku. Ef vel gengur gséti
þetta orðið ailt að 200 tonna rými
á viku. Aðallega verður um flutn-
ing á fiski að ræða en einnig
hrossakjöti á Japansmarkað.
Flugfax hf. er nýtt fyrirtæki en
að því standa Jónar sf., Félag hrossa-
bænda, Olís og Samson Transport.
Síðastnefnda fyrirtækið er danskt,
annað stærsta flutningafélagið þar í
landi.
Guðmundur Þór Þormóðsson
framkvæmdastjóri Flugfax segir að
með þessum samningum opnist mikl-
ir möguleikar fyrir fiskútflytjendur á
mörkuðum í Asíulöndum þar sem
flogið er frá Keflavík til borga eins
og Tókýó og Seoul.
„Við erum einnig með í huga út-
flutning á hrossakjöti á tímabilinu
15. ágúst til 20. nóvember til Jap-
ans. Japanskir aðilar hafa gefíð upp
mjög gott verð og vilja 3 tonn á viku.
Sennilega verður þetta fyrsti kjötút-
flutningurinn héðan sem ekki er nið-
urgreiddur," segir Guðmundur.
Auk þess að hafa samið um frakt-
pláss við Flying Tiger á leiðinni milli
Keflavíkur og Asíu er frekari sam-
vinna á fleiri sviðum áformuð. Munu
viðræður milli þessara aðila því halda
áfram.
Evrópumeistara-
mót í skák:
Þrösturvann
meistarann
ÞRÖSTUR Þórhallsson vann
Sovétmanninn Boris Gelfand
í 3. umferð Evrópumeistara-
móts unglinga i skák, sem
fram fer í Arnheim í Hol-
landi. Gelfand er núverandi
Evrópumeistari. Þröstur er
efstur með 3 vinninga eftir
þijár umferðir, ásamt Djur-
hus frá Noregi, og Dreev frá
Sovétríkjunum sem hann tefl-
ir við i dag.
Þröstur hafði svart gegn Gelf-
and og upp kom Meran-afbrigð-
ið af slavneskri vöm. Þröstur
fékk heldur lakara út úr byijun-
inni en sneri á Sovétmanninn í
timahraki, vann mann í 36. leik
og skákina síðan í 48. leik.
Alls verða tefldar 13 umferðir
á mótinu, en keppendur eru 32.
Hálkuslys:
Fimm á slysadeild
FIMM manns hafa verið fluttir á
slysadeild með sjúkrabflum eftir
að hafa dottið á hálku og bein-
brotnað í þessari viku. í flestum
tilfellum er þar um að ræða fólk
Getur leitt til aukinna um-
svifa Flying Tigers á íslandi
segir Burt Hubbs yfirmaður Evrópudeildar um kaup Federal Express á Flying Tigers
BURT Hubbs yfirmaður Evrópudeildar Flying Tigers segir að kaup
Federal Express á Flying Tigers raski ekki fyrirhugaðri starfsemi
félagsins hér á landi. Raunar bjóst hann fastlega við að með kaupunum
myndu umsvifin aukast frá þvi sem nú er áformað. Federal Express
byrjaði að kaupa hlutabréf Flying Tigers í kauphöllum í Bandaríkjun-
um á þriðjudag. Greiddu þeir 20 dollara og 85 sent fyrir hlutinn. Eins
og fram hefúr komið i fréttum er markaðsverð Flying Tigers 880
milljónir dollara eða rúmir 40 milfjarðar króna.
„Við reiknum með að sex mánuðir
liði þar til næstu skref verði stigin
í þessum kaupum Federal Express
þrí þau þarftiast staðfestingar
tveggja ráðuneyta í Bandaríkjunum.
Á meðan verður rekstur okkar að
öllu leyti eðlilegur, þar með talið ís-
landsflug," segir Burt Hubbs. „Að
mínu mati mun Federal Express ör-
ugglega halda áfram með áform
okkar um millilendingar í Keflavík
og jafnvel auka umsvifín. Federal
Express hefur flutt físk milli íslands
og Bandaríkjanna og því hafa þeir
áhuga á að bæta við áætlun á leið-
inni Keflavík-New York.“
Enn sem komið er hefur Flying
Tigers ekki gert neina samninga við
íslenska aðila um umboð fyrir félag-
ið hérlendis. Burt Hubbs segir að
þeir hafi átt einn óformlegan fund
með fulltrúum Flugleiða þar sem
rætt var um samvinnu en ekkert
samkomulag gert. „Raunar hefur
aðeins verið rætt um samvinnu á
leiðinni Frankfurt-Keflavík. Við höf-
um engan áhuga á samvinnu um
leiðina ÍCeflavík-Tokýó. Þann markað
ætlum við að þróa sjálfir," segir
Hubbs.
Aðspurður nánar um kaup Federal
Express segir Hubbs að þegar þeir
hafí náð því að kaupa 51% hlutafjár
verði þeir að senda málið til sam-
gönguráðuneytisins í Bandaríkjunum
og fá staðfest að kaupin séu þeim
heimil. Samgönguráðuneytið biður
síðan alla þá sem kaupin hafa áhrif
á að senda inn greinargerðir. Þetta
eru aðallega önnur fraktflugfélög og
aðilar í hraðsendiþjónustu.
um eða yfir miðjum aldri. Lög-
reglan áætlar að mun fleiri hafi
orðið fyrir samskonar óhöppum
undanfarið en ekki þurft á sjúkra-
flutningi að halda.
Að sögn Ómars Smára Armanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns virð-
ast slys_ af þessu tagi ganga yfír í
lotum. Á mánudag voru tveir karlar
og kona flutt á slysadeild beinbrotin
eftir fall á gangstétt frá klukkam
12.20 til klukkan 15.45. Á þriðjudag
slasaðist maður klukkan 15.40 er
hann datt á hálku fyrir utan SPRON
á Skólavörðustíg og rúmri klukku-
stund síðar datt kona á hálkubletti
í Hafnarstræti og þurfti aðhlynning-
ar læknis við.
Ómar Smári minnti á að í öllum
þessum tilfellum hefði verið þörf á
sjúkrabíi og því taldi hann óhætt að
áætla að margir aðrir hefðu orðið
fyrir svipuðum óhöppum á þessum
tíma og annað hvort sloppið við mik-
il meiðsli eða komið sér sjálfir á slysa-
deild.
Þorsteinn Pálsson um frumvörp um tekju- og eignaskatt:
Skattar Qögurra manna íjöl-
skyldu munu hækka um 30%
SKATTAR 4 manna Qölskyldu, með 150.000 kr. tekjur á mánuði
og 4 milljóna króna skuldlausa eign, munu hækka um 55.252 kr.
á ári, eða um 30%, ef frumvörp rikisstjómarinnar um tekju- og
eignaskatt og vörugjald verða samþykkt sem lög frá Alþingi.
Þetta kom fram í ræðu Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins, á Alþingi í gær. Þorsteinn sagði, að Ólafúr Ragnar
Grimsson, Qármálaráðherra, hefði vísvitandi ætlað að afla fylgis
við frumvarpið með ósannindum.
Þorsteinn sagði í ræðu sinni,
að kynning fjármálaráðherra á
tekju- og eignaskattsfrumvarp-
inu, bæði á Alþingi og í fjölmiðl-
um, hefði verið makalaus. Hann
hefði sagt, að í því fælist hækkun
skattleysismarka og lækkun
skatta á lágtekjufólk. Þetta stæð-
ist ekki en fjármálaráðherra hefði
vísvitandi ætlað að afla fylgis við
frumvarpið með ósannindum. Slík
framkoma væri auðvitað bæði al-
varleg og ámælisverð.
Þorsteinn sagði að í frumvarp-
inu fælist veruleg hækkun á skött-
um alls almennings. Hann tók sem
dæmi hjón með tvö böm á aldrin-
um 7 til 16 ára, sem ættu 4 millj-
óna króna skuldlausa eign og
öfluðu samtals 150.000 króna í
launatekjur á mánuði. Frumvarpið
myndi leiða til þess, að stað-
greiðsluskattar þeirra hækkuðu
úr 151.512 krónum á ári í 193.200
krónur, eða um 41.688 kr. Þar
að auki myndi eignaskattur þeirra
hækka um 2.930 kr. á ári.
Þorsteinn sagði að frumvarp
ríkisstjómarinnar um vörugjald
leiddi að auki til 9.000 króna
hækkunar framfærslukostnaðar
hjónanna. Óbein áhrif vörugjalds-
ins á eignaskattinn yrðu svo 2.930
kr. hækkun, þar sem það myndi
hækka byggingarvísitölu um 3%
og lánskjaravísitölu um 1,3%. Hér
væri ríkisstjómin því að hækka
skatta þessara hjóna um alls
55.252 krónur á ári, eða úr
161.012 kr. í 216.264 kr. Sú
skattahækkun væri um það bil
30 af hundraði. Þau myndu greiða
12% árstekna sinna til ríkissjóðs
í stað 8,9%. Sagði Þorsteinn að
lokum, að ætlunin hefði verið að
keyra þessar hækkanir í gegnum
þingið með offorsi, til þess að
koma í veg fyrir að almenn um-
ræða gæti farið fram um þær.
4
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Fernt slasast
FERNT slasaðist i hörðum
árekstri tveggja fólksbfla á Höfða-
bakka, skammt norðan Höfða-
bakkabrúar, laust eftir klukkan
átta í gærkvöldi.
Mazda kennslubifreið á leið suður
Höfðabakka rakst á Lada-bíl á leið
í gagnstæða átt. Björgunarbíll
slökkviliðsins þurfti að koma á vett-
vang til að losa ökumann Lödunnar
úr flakinu. Maðurinn brotnaði á fæti
og framhaldlegg auk þess sem hann
kvartaði um verki í kviðarholi. Með
honum í bflnum voru tvö böm sem
slösuðust nokkuð. Ökuneminn í
Mözdunni hlaut einnig áverka og var
fluttur á slysadeild.