Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
Verðfall á loðskínnum
á fyrstu uppboðunum
VERÐFALL varð á refaskinnum
á fýrstu loðskinnauppboðum nýs
sölutímabils. Þá hefur verð á
minkaskinnum einnig lækkað.
Litið er um fslensk skinn á þessum
fyrstu uppboðum en þau eru talin
gefa góða vísbendingu um hvað
Cramundan sé á markaðnum.
Veruleg lækkun varð á öllum
helstu tegundum refa- og minka-
skinna miðað við desemberuppboð á
sfðasta ári. Á uppboðum í Helsinki
og London seldust blárefaskinn að
meðaltali á um 1.700 krónur íslen-
skar, að sögn Skúla Skúlasonar
umboðsmanns Hudson’s Bay á ís-
landi. í desember í fyrra var söluverð-
ið 2.400 krónur. Aðeins um 75%
framboðinna skinna seldust nú. Fyrir
uppboðið fór eitthvað af íslenskum
refaskinnum til danska uppboðs-
hússins í Kaupmannahöfn sem sendi
skinnin á uppboð finnska uppboðs-
hússins í Helsinki. Meðalverð blár-
efaskinna var 1.465 krónur, sam-
kvæmt upplýsingum frá Sambandi
íslenskra loðdýraræktenda, og seldist
67% framboðinna skinna. Önnur
refaskinn seldust einnig illa og á lágu
verði.
Skúli Skúlason segir að ástæða
verðfallsins sé offramboð af skinnum
á heimsmarkaði. „Heimurinn er yfir-
fullur af loðskinnum," sagði hann.
Aukning hefur orðið á framleiðslu,
auk þess sem miklar birgðir eru til
frá síðasta sölutímabili.
Á desemberuppboði danska upp-
boðshússins lækkaði verð á minka-
skinnum verulega samanborið við
desember í fyrra. Verðlækkunin var
misjöfn eftir tegundum, en algeng
lækkun var 16%.
Skagaströnd:
Eldur í rækjutogara
SLÖKKVILIÐ Skagastrandar var
kvatt út um fimmleytið, aðfara-
nótt miðvikudagsins, vegna elds
um borð f rækjutogaranum Þresti
BA 48 frá Bfldudal. Skemmdir
urðu ekki stórvægilegar.
Vaktmaður um borð í Þresti varð
eldsins var er skyndilega drapst á
ljósavél skipsins og hringdi hann
strax á slökkviliðið. Þegar slökkvi-
liðsmenn komu um borð var töluverð-
ur reykur í vélarrúminu og á milli-
dekkinu. Reykkafarar, sem fóru þeg-
ar niður í vélarrúm, sáu þó fljótlega
að eldurinn var slökknaður og eftir
það unnu slökkviliðsmenn að því að
reyklosa skipið og koma raftnagni á
að nýju úr landi.
í fljótu bragði virtust skemmdir
ekki vera miklar. Þó hafa brunnið
ofan af ljósavélinni mælar, hosur og
eitthvað fleira. Talið er að ljósavélin
hafi ofhitnað einhverra hluta vegna
og að þess vegna hafi kviknað í út-
frá eldgreininni.
Þröstur lá f Skagastrandarhöfn
þar sem forráðamenn rækjuvinnsl-
unnar Særúnar hf. á Blöndósi eru
að bollaleggja kaup á skipinu.
—ÓB
VEÐURHORFUR ÍDAG, 22. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Búist er við stormi á Norðurdjúpi, Austurdjúpi,
Færeyjadjúpi og Suðausturdjúpi. Um 500 km austur af Langanesi
er lítil 990 mb lægð sem grynnist en 250 km suðsuðaustur af
Dyrhólaey er 980 mb lægð sem dýpkar og hreyfist norð-austur.
Áfram mun kólna nokkuð í veöri.
SPÁ: Allhvöss norðanátt með éljum austanlands, en heldur hæg-
ari, norðaustan átt og él á Norðurlandi, annars fremur hæg austan
átt og úrkomulítið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR A ÞORLÁKSMESSU: Norðan- og norðaustan átt með
étjum á Norður- og Austurlandi og við suðurströndina, en bjart
veður vestanlands og í uppsveitum syðra. Frost 4-10 stig.
HORFUR Á AÐFANGADAG:. Norðaustan- og austanótt, vaxandi
sunnanótt þegar líður á daginn. Él norðaustanlands, úrkomulaust
vestanlands en fer líklaga að snjóa á Suður- og suðausturlandi
annað kvöld. Áfram verður frost um allt land og víða um 10 stiga
frost nyrða.
TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V * Skúrir
4 V Él
Léttskýjað / / / / / / '/ Rigning = Þoka
A Hálfskýjað / / / * / * 5 9 Þokumóða Súld
'Úlk Skýjafr r * / * Slydda r * / co Mistur
* * # 4 Skafrenningur
) Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 i gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavik hlti +3 0 vaður alskýjað snjókoma
Bergon S alskýjað
Holslnki 0 snjókoma
Kaupmannah. 7 skýjað
Narssarssuaq +10 léttskýjað
Nuuk +5 snjókoma
Ostó +3 léttskýjað
Stokkhólmur 2 léttskýjað
Þórshðfn 4 rigning
Algarve 1S heiðskfrt
Amsterdam 11 þokumóða
Bareelona 11 heiðskfrt
Berlln 3 SÚId
Chicago 0 alskýjað
Feneyjar S léttskýjað
Frankfurt 4 Hgning
Glasgow 10 súld
Hamborg 6 súld
Las Palmas 13 alskýjað
London 11 súld
Los Angeles 13 alskýjað
Lúxemborg 3 súld
Madríd 12 heiðsklrt
Malaga 16 skýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Montreal 8 hálfskýjað
NewYork 11 alskýjað
Orlando +6 þokumóða
Parfs 5 súld
Róm 12 heiðskfrt
San Dlego 13 rigning
Vín 3 ákýjað
Washlngton 11 alskýjað
Winnipeg +14 skýjað
Síldveiðar á Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið/Helena
Síldarsöltun lokið:
Saltað var í 241.562
tunnur á vertíðinni
Saltað í flestar tunnur á Eskifirði
SÍLDARSÖLTUN lauk á þriðju-
daginn og alls var saltað í
241.562 tunnur á vertíðinni, að
sögn Kristjáns Jóhannessonar
birgða- og söltunarstjóra Síldar-
útvegsnefiidar.
Á fimm höfnum var saltað í yfir
20.000 tunnur: Saltað var í 38.562
tunnur á Eskifirði, 36.709 tunnur
á Höfn í Hornafirði, 26.577 tunnur
í Grindavík, 25.967 tunnur á Seyð-
isfirði og 21.052 tunnur á Reyðar-
firði.
Saltað var í 23.023 tunnur í
Fiskimjölsverksmiðju Hornafjarðar,
15.254 tunnur í Pólarsíld á Fá-
skrúðsfirði, 14.894 tunnur í Strand-
arsíld á Seyðisfirði, 13.417 tunnur
í H. Böðvarssyni & Co. á Akranesi,
13.329 tunnur í Skinney á Höfn í
Homafirði, 12.451 tunnu í Friðþjófí
á Eskifírði, 11.255 tunnur í Tanga
á Vopnafirði og 11.073 tunnur í
Norðursíld á Seyðisfirði.
Innleggið fært á
reikninga bænda
Sláturleyfishafar hafe nú fengið fyrirgreiðslu til að standa við
fúllnaðargreiðslu sauðQárafúrða. Landssamband sláturleyfishafe
hefúr sent sláturleyfishöfiun tilmæli nm að innleggið verði greitt
að fúllu, eins og ákvæði eru nm í búvörulögunum að skuli gert í
síðasta lagi 15. desember. Búist er við að allir sláturieyfishafer
færi bændum innleggið að fullu til tekna á viðskiptareikninga en
misjafiit er hvað bændur fá greitt í peningum.
Gunnar Guðbjartsson starfsmað-
ur Landssambands sláturleyfishafa
segir að seint á fimmtudaginn, þann
15. desember, hafí svokallað stað-
greiðslulán ríkissjóðs borist en það
var tæpar 800 milljónir kr. Þann
sama dag hafi bankamir .hækkað
afurðalánin upp í 70,2% og.á föstu-
dag hafí ríkið greitt gamla reikn-
inga vegna útflutningsbóta. í Ijósi
þessa hafí stjóm Landssambandsins
talið að forsenda væri fyrir því að
gera að fullu upp við bændur og
sent út tilmæli sín til sláturleyfís-
hafa. Bjóst hann við að almennt
myndu sláturleyfishafar reiknings-
færa innleggið að fullu en það færi
síðan eftir stöðu hvers fyrirtækis
fyrir sig hvað þau gætu greitt
bændum ört.
Kaupféíög sem reka sláturhús
hafa undanfarin ár reikningsfært
sauðfjárinnleggið en Sláturfélag
Suðurlands og ýmsir smærri slátur-
leyfíshafar í einkaeigu greitt bænd-
um í peningum. Nú hefur Sláturfé-
lag Suðurlands þann háttinn á að
reikningsfæra innleggið að fullu frá
og með 15. desember en greiða 75%
f peningum. Steinþór sagði að
bændur gætu tekið 25% innleggsins
út í vörum, bæði hjá Sláturfélaginu
og í mörgum verslunum á Suður-
landi sem SS hefði náð samningum
við og fengið þá afslátt. Síðan væri
reynt að leysa úr málum eftir
ákveðnum reglum.
Örtröð hjá fógeta
vegna verslunarleyfa
„ÞAÐ hafe greinilega margir innflytjendur sem ekki hafe haft til-
skilinn verslunarleyfí tekið við sér eftir að þeim barst bréf toll-
sljóra, og hér hjá borgarfógetaembættinu í Reykjavík hefúr verið
örtröð undanfarnar tvær vikur við afgreiðslu leyfe,“ sagði Þorkell
Gíslason borgarfógeti í samtali við Morgunblaðið í gær. Eins og
greint hefúr verið frá hefúr tollsljórinn óskað eftir því að innflytjend-
ur leggi fram gild verslunarleyfi, en að öðrum kosti verði þeir að
greiða söluskatt af vörum við tollafgreiðslu frá næstu áramótum.
Þorkell Gíslason sagði að ekki
væri enn búið að afgreiða allar þær
umsóknir um verslunarleyfí sem
borist hefðu borgarfógetaembætt-
inu upp á síðkastið, en hann taldi
að þær skiptu hundruðum.
„Margir hafa borið því við að
þeir hafi ekki áttað sig á því að þá
skorti tilskilin leyfi, og þá sérstak-
lega þeir sem ekki hafa hirt um að
endumýja þau. Þá hefur borið
nokkuð á innflytjendum sem aldrei
hafa fengið verslunarleyfí, og hafa
þeir því orðið að kaupa slfk leyfí
núna og greiða af þeim tilskilið
stofngjald, en hinum nægir að
greiða endumýjunargjald,“ sagði
Þorkell.
Að sögn Þorkels kostar heildsölu-
leyfí núna 70.200 krónur, en smá-
söluleyfí kostar 16.900 krónur, og
er í báðum tilvikum um stofngjald
að ræða. Leyfín þarf að endumýja
á fímm ára fresti, og er endumýjun-
argjaldið nú 1500 krónur. í lögum
er gert ráð fyrir þvi að íslenskir
ríkisborgarar, sem lokið hafa prófí
frá verslunar- eða samvinnuskóla,
eða verslunardeildum fjölbrauta-
skóla, geti fengið verslunarleyfi, en
einnig em í lögunum ákvæði um
að þeir sem hafa þriggja ára reynslu
í verslunarstörfum geti fengið leyfi.