Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 4

Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 Verðfall á loðskínnum á fyrstu uppboðunum VERÐFALL varð á refaskinnum á fýrstu loðskinnauppboðum nýs sölutímabils. Þá hefur verð á minkaskinnum einnig lækkað. Litið er um fslensk skinn á þessum fyrstu uppboðum en þau eru talin gefa góða vísbendingu um hvað Cramundan sé á markaðnum. Veruleg lækkun varð á öllum helstu tegundum refa- og minka- skinna miðað við desemberuppboð á sfðasta ári. Á uppboðum í Helsinki og London seldust blárefaskinn að meðaltali á um 1.700 krónur íslen- skar, að sögn Skúla Skúlasonar umboðsmanns Hudson’s Bay á ís- landi. í desember í fyrra var söluverð- ið 2.400 krónur. Aðeins um 75% framboðinna skinna seldust nú. Fyrir uppboðið fór eitthvað af íslenskum refaskinnum til danska uppboðs- hússins í Kaupmannahöfn sem sendi skinnin á uppboð finnska uppboðs- hússins í Helsinki. Meðalverð blár- efaskinna var 1.465 krónur, sam- kvæmt upplýsingum frá Sambandi íslenskra loðdýraræktenda, og seldist 67% framboðinna skinna. Önnur refaskinn seldust einnig illa og á lágu verði. Skúli Skúlason segir að ástæða verðfallsins sé offramboð af skinnum á heimsmarkaði. „Heimurinn er yfir- fullur af loðskinnum," sagði hann. Aukning hefur orðið á framleiðslu, auk þess sem miklar birgðir eru til frá síðasta sölutímabili. Á desemberuppboði danska upp- boðshússins lækkaði verð á minka- skinnum verulega samanborið við desember í fyrra. Verðlækkunin var misjöfn eftir tegundum, en algeng lækkun var 16%. Skagaströnd: Eldur í rækjutogara SLÖKKVILIÐ Skagastrandar var kvatt út um fimmleytið, aðfara- nótt miðvikudagsins, vegna elds um borð f rækjutogaranum Þresti BA 48 frá Bfldudal. Skemmdir urðu ekki stórvægilegar. Vaktmaður um borð í Þresti varð eldsins var er skyndilega drapst á ljósavél skipsins og hringdi hann strax á slökkviliðið. Þegar slökkvi- liðsmenn komu um borð var töluverð- ur reykur í vélarrúminu og á milli- dekkinu. Reykkafarar, sem fóru þeg- ar niður í vélarrúm, sáu þó fljótlega að eldurinn var slökknaður og eftir það unnu slökkviliðsmenn að því að reyklosa skipið og koma raftnagni á að nýju úr landi. í fljótu bragði virtust skemmdir ekki vera miklar. Þó hafa brunnið ofan af ljósavélinni mælar, hosur og eitthvað fleira. Talið er að ljósavélin hafi ofhitnað einhverra hluta vegna og að þess vegna hafi kviknað í út- frá eldgreininni. Þröstur lá f Skagastrandarhöfn þar sem forráðamenn rækjuvinnsl- unnar Særúnar hf. á Blöndósi eru að bollaleggja kaup á skipinu. —ÓB VEÐURHORFUR ÍDAG, 22. DESEMBER YFIRLIT í GÆR: Búist er við stormi á Norðurdjúpi, Austurdjúpi, Færeyjadjúpi og Suðausturdjúpi. Um 500 km austur af Langanesi er lítil 990 mb lægð sem grynnist en 250 km suðsuðaustur af Dyrhólaey er 980 mb lægð sem dýpkar og hreyfist norð-austur. Áfram mun kólna nokkuð í veöri. SPÁ: Allhvöss norðanátt með éljum austanlands, en heldur hæg- ari, norðaustan átt og él á Norðurlandi, annars fremur hæg austan átt og úrkomulítið. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR A ÞORLÁKSMESSU: Norðan- og norðaustan átt með étjum á Norður- og Austurlandi og við suðurströndina, en bjart veður vestanlands og í uppsveitum syðra. Frost 4-10 stig. HORFUR Á AÐFANGADAG:. Norðaustan- og austanótt, vaxandi sunnanótt þegar líður á daginn. Él norðaustanlands, úrkomulaust vestanlands en fer líklaga að snjóa á Suður- og suðausturlandi annað kvöld. Áfram verður frost um allt land og víða um 10 stiga frost nyrða. TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V * Skúrir 4 V Él Léttskýjað / / / / / / '/ Rigning = Þoka A Hálfskýjað / / / * / * 5 9 Þokumóða Súld 'Úlk Skýjafr r * / * Slydda r * / co Mistur * * # 4 Skafrenningur ) Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 i gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hlti +3 0 vaður alskýjað snjókoma Bergon S alskýjað Holslnki 0 snjókoma Kaupmannah. 7 skýjað Narssarssuaq +10 léttskýjað Nuuk +5 snjókoma Ostó +3 léttskýjað Stokkhólmur 2 léttskýjað Þórshðfn 4 rigning Algarve 1S heiðskfrt Amsterdam 11 þokumóða Bareelona 11 heiðskfrt Berlln 3 SÚId Chicago 0 alskýjað Feneyjar S léttskýjað Frankfurt 4 Hgning Glasgow 10 súld Hamborg 6 súld Las Palmas 13 alskýjað London 11 súld Los Angeles 13 alskýjað Lúxemborg 3 súld Madríd 12 heiðsklrt Malaga 16 skýjað Mallorca 13 léttskýjað Montreal 8 hálfskýjað NewYork 11 alskýjað Orlando +6 þokumóða Parfs 5 súld Róm 12 heiðskfrt San Dlego 13 rigning Vín 3 ákýjað Washlngton 11 alskýjað Winnipeg +14 skýjað Síldveiðar á Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið/Helena Síldarsöltun lokið: Saltað var í 241.562 tunnur á vertíðinni Saltað í flestar tunnur á Eskifirði SÍLDARSÖLTUN lauk á þriðju- daginn og alls var saltað í 241.562 tunnur á vertíðinni, að sögn Kristjáns Jóhannessonar birgða- og söltunarstjóra Síldar- útvegsnefiidar. Á fimm höfnum var saltað í yfir 20.000 tunnur: Saltað var í 38.562 tunnur á Eskifirði, 36.709 tunnur á Höfn í Hornafirði, 26.577 tunnur í Grindavík, 25.967 tunnur á Seyð- isfirði og 21.052 tunnur á Reyðar- firði. Saltað var í 23.023 tunnur í Fiskimjölsverksmiðju Hornafjarðar, 15.254 tunnur í Pólarsíld á Fá- skrúðsfirði, 14.894 tunnur í Strand- arsíld á Seyðisfirði, 13.417 tunnur í H. Böðvarssyni & Co. á Akranesi, 13.329 tunnur í Skinney á Höfn í Homafirði, 12.451 tunnu í Friðþjófí á Eskifírði, 11.255 tunnur í Tanga á Vopnafirði og 11.073 tunnur í Norðursíld á Seyðisfirði. Innleggið fært á reikninga bænda Sláturleyfishafar hafe nú fengið fyrirgreiðslu til að standa við fúllnaðargreiðslu sauðQárafúrða. Landssamband sláturleyfishafe hefúr sent sláturleyfishöfiun tilmæli nm að innleggið verði greitt að fúllu, eins og ákvæði eru nm í búvörulögunum að skuli gert í síðasta lagi 15. desember. Búist er við að allir sláturieyfishafer færi bændum innleggið að fullu til tekna á viðskiptareikninga en misjafiit er hvað bændur fá greitt í peningum. Gunnar Guðbjartsson starfsmað- ur Landssambands sláturleyfishafa segir að seint á fimmtudaginn, þann 15. desember, hafí svokallað stað- greiðslulán ríkissjóðs borist en það var tæpar 800 milljónir kr. Þann sama dag hafi bankamir .hækkað afurðalánin upp í 70,2% og.á föstu- dag hafí ríkið greitt gamla reikn- inga vegna útflutningsbóta. í Ijósi þessa hafí stjóm Landssambandsins talið að forsenda væri fyrir því að gera að fullu upp við bændur og sent út tilmæli sín til sláturleyfís- hafa. Bjóst hann við að almennt myndu sláturleyfishafar reiknings- færa innleggið að fullu en það færi síðan eftir stöðu hvers fyrirtækis fyrir sig hvað þau gætu greitt bændum ört. Kaupféíög sem reka sláturhús hafa undanfarin ár reikningsfært sauðfjárinnleggið en Sláturfélag Suðurlands og ýmsir smærri slátur- leyfíshafar í einkaeigu greitt bænd- um í peningum. Nú hefur Sláturfé- lag Suðurlands þann háttinn á að reikningsfæra innleggið að fullu frá og með 15. desember en greiða 75% f peningum. Steinþór sagði að bændur gætu tekið 25% innleggsins út í vörum, bæði hjá Sláturfélaginu og í mörgum verslunum á Suður- landi sem SS hefði náð samningum við og fengið þá afslátt. Síðan væri reynt að leysa úr málum eftir ákveðnum reglum. Örtröð hjá fógeta vegna verslunarleyfa „ÞAÐ hafe greinilega margir innflytjendur sem ekki hafe haft til- skilinn verslunarleyfí tekið við sér eftir að þeim barst bréf toll- sljóra, og hér hjá borgarfógetaembættinu í Reykjavík hefúr verið örtröð undanfarnar tvær vikur við afgreiðslu leyfe,“ sagði Þorkell Gíslason borgarfógeti í samtali við Morgunblaðið í gær. Eins og greint hefúr verið frá hefúr tollsljórinn óskað eftir því að innflytjend- ur leggi fram gild verslunarleyfi, en að öðrum kosti verði þeir að greiða söluskatt af vörum við tollafgreiðslu frá næstu áramótum. Þorkell Gíslason sagði að ekki væri enn búið að afgreiða allar þær umsóknir um verslunarleyfí sem borist hefðu borgarfógetaembætt- inu upp á síðkastið, en hann taldi að þær skiptu hundruðum. „Margir hafa borið því við að þeir hafi ekki áttað sig á því að þá skorti tilskilin leyfi, og þá sérstak- lega þeir sem ekki hafa hirt um að endumýja þau. Þá hefur borið nokkuð á innflytjendum sem aldrei hafa fengið verslunarleyfí, og hafa þeir því orðið að kaupa slfk leyfí núna og greiða af þeim tilskilið stofngjald, en hinum nægir að greiða endumýjunargjald,“ sagði Þorkell. Að sögn Þorkels kostar heildsölu- leyfí núna 70.200 krónur, en smá- söluleyfí kostar 16.900 krónur, og er í báðum tilvikum um stofngjald að ræða. Leyfín þarf að endumýja á fímm ára fresti, og er endumýjun- argjaldið nú 1500 krónur. í lögum er gert ráð fyrir þvi að íslenskir ríkisborgarar, sem lokið hafa prófí frá verslunar- eða samvinnuskóla, eða verslunardeildum fjölbrauta- skóla, geti fengið verslunarleyfi, en einnig em í lögunum ákvæði um að þeir sem hafa þriggja ára reynslu í verslunarstörfum geti fengið leyfi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.