Morgunblaðið - 22.12.1988, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
11
Aronsering* ís-
lensks veruleika
Bókmenntir
Friðrika Benónýs
Guðbergur Bergsson:
Maðurinn er myndavél
Forlagið 1988
Guðbergur Bergsson er með af-
kastamestu rithöfundum og á þess-
ari jólavertíð koma út fjórar bækur
frá hans hendi; tvær þýðingar, ein
ævisaga og smásagnasafnið „Mað-
urinn er myndavél“. í þessu smá-
sagnasafni eru elstu sögumar frá
árinu 1972 og þær yngstu frá árinu
1987. Á þeim tíma hafa orðið
nokkrar breytingar á skáldsögum
Guðbergs, en smásögumar í „Mað-
urinn er myndavél" mynda sam-
stæður, þótt þær séu ólíkar að stíl
og yrkisefni.
Hér kennir ýmissa furðufugla svo
sem Arons viðgerða- og uppfinn-
ingamanns í sögunni „Þama flýgur
hún Ella“, en viðgerðir hans á bús-
áhöldum kallast aronsering og
verða úreltar með komu hersins.
Hér er einnig fulltrúi bóhemskra
lifnaðarhátta í „Mannsmynd úr
biblíunni", eiginmaður sem gengur
út á ystu nöf í grunsemdum um
framhjáhlald konu sinnar í „Maður
sem varð fyrir óláni", drengur sem
uppgötvar hve undrið er illa séð í
samfélaginu í sögunni „Brúðan",
konan sem yrkir sér eiginmann í
tómleikann í „Karl Jón og konan"
og fleiri og fleiri.
Guðbergur er samur við sig í
orðaleikjum og nýsmíði orðtaka en
þó er slíkt miklu hófstilltara hér en
oft í skáldsögum hans. Háðið og
skopið er sjaldnast langt undan en
þó býr oft að baki því rammasta
alvara, hinar grátbroslegu hliðar
oft meira grátiegar en broslegar.
Engin skilji þó orð mín svo að sög-
umar séu hátíðlegar og alvöru-
þrungnar það eru þær alls ekki
heldur þvert á móti bráðskemmti-
legar og fjörugar. Guðbergur kann
þá list að koma hversdagsleikanum
gráa yfir í ljómandi litróf furðanna,
án þess að hann hætti að koma
manni við, snerta mann. Og í þeirri
umræðu sem átt hefur sér stað um
það hve nauðsynlegt sé að bók-
menntir séu skemmtilegar er rétt
að taka fram að „Maðurinn er
myndavél" er alskemmtilegasta bók
sem undirrituð hefur lesið um langa
hríð.
„Maðurinn er myndavél" er þó
miklu meira en skemmtilesning því
SKALDSKAPUR
OG SPÁSAGNIR
Békmenntir
Erlendur Jónsson
Aldous Huxley: VERÖLD NÝ
OG GÓÐ. Þýð. Kristján Oddsson.
212 bls. Mál og ménning.
Reykjavík, 1988.
Það var árið 1932 að Aldous
Huxley sendi frá sér þessa skáld-
sögu. Titillinn, Brave New World,
er tekinn upp úr einu leikriti Shake-
speares. Huxley var af frægri ætt
og sjálfur frægur. Hver ný bók frá
hendi hans hlaut því að vekja um-
tal. Ekki er unnt að giska á hveija
athygli sagan hefði vakið ef enginn
Jenna Jensdóttir
Nýju fötin keisarans og aðrar
gamansögur. Þýðing Stefán
Júlíusson. Myndir Karen MO-
one. Bókaútgáfan Björk 1988.
Hér koma þijú gamalkunn æv-
intýri í nýrri þýðingu sem gerð er
eftir bandarískri útgáfu frá árinu
1986. Flestir íslendingar þekkja
til þessara sagna, sem eru í eðli
sínu dæmisögur þótt sagðar séu í
gamansömum stíl. Langt er síðan
þær komu fyrst í íslenskri þýð-
ingu, og orðafar og búningur
breytist jafnan í hvert skipti sem
nýr þýðandi tekur sig til. Skraut-
legar litmyndir sem oftast eru í
samblandi af gömlum og nýjum
tíma, og aldrei eins, birtast í hverri
útgáfu.
H.C. Andersen skrifaði Nýju
fötin keisarans 1836, og enn kem-
ur 'það í nýrri íslenskri þýðingu,
sem hefur sinn svip.
Sama er að segja um Óskimar
þijár, sem er gömul, ensk þjóð-
saga, fyrst birt á prenti í Eng-
landi 1761.
Gamla, enska þjóðsagan Meist-
hefði kannast við höfundinn né ætt
hans. Hugsanlegt er að fáir hefðu
þá nennt að lesa hana, svo nýstár-
lega sem hún hlýtur þá að hafa
komið fyrir sjónir. En Áldous Hux-
ley var maður sem mark var tekið
á þótt ungur væri. Og þama var
hann sem sé að spá því hvemig
framtíðarþjóðfélagið yrði eftir eitt
til tvö þúsund ár. Samkvæmt spá
Huxleys er þá allt staðlað, einnig
manneskjan, karlar og konur; þjóð-
félagsstéttimar sömuleiðis. Ein-
staklingseinkennin hafa verið
þurrkuð út; maðurinn er til einung-
is fyrir kerfíð. Allt er orðið gleði-
snautt, vélrænt og ómennskt. Nöfn-
ari meistaranna birtist í ævintýra-
safni Jóseps Jakobs fyrir um
hundrað ámm. Hún er ekki eins
vel þekkt meðal íslenskra lesenda
og hinar tvær fyrmefndu.
Þýðingin sem hér um ræðir er
vönduð og viss léttleiki hvílir yfir
henni, sem verður til fyrir orða-
notkun þýðanda. Skrautlegar lit-
myndir, sem ekki prýða aðrar útg-
áftir em hér á ferðinni.
Guðbergur Bergsson
líkt og Aron uppfínningamaður ar-
onserar búsáhöld þorpsbúa með
klístri, saumum, rafsuðu og ýmsum
öðmm ráðum, oft með þeim afleið-
ingum að viðtakendur harðneita að
taka við hlutnum aftur þar sem
hann er orðinn óþekkjanlegur, ljótur
eða ónothæfur, aronserar Guð-
bergur íslenskan vemleika þannig
að eflaust munu margir neita við
hann að kannast. En þó er hann
sterkari, áhrifameiri og sannari en
vemleikalýsingar án þess bókmenn-
talega klísturs, uppsaums og raf-
suðu sem Guðbergur er meistari í
að beita.
Aldous Huxley
in, Bemard Marx og Lenina Crown,
gefa til kynna að Huxley var að
sneiða að tilteknum þjóðfélagsöfl-
um sem heimurinn vænti mikils af
um það leyti sem sagan var í letur
færð.
Óhugnanleg er þessi framtíð-
arspá að flestu leyti. Vísindin hafa
náð fullkomnun og þá gerist þess
ekki lengur þörf að leita sannleik-
ans, hann er löngu fundinn. Þæg-
indin em komin í stað lífshamingj-
unnar, stöðugleiki í stað þróunar.
Eðli mannsins er endanlega fjötrað,
enda auðvelt þar sem vöxtur hans
og viðgangur er ekki lengur nátt-
úrulögmálum háður heldur alls-
heijar stjómun. Taki þeir sneið sem
eiga, það er vitanlega tækniþróunin
sem höfundurinn er að vara þama
við.
Spuming er hvort skáldverk
þetta eigi erindi til okkar nú með
sama hætti og það átti erindi til
kynslóðar þeirrar sem lifði sín bestu
ár í landi höfundar á því skeiði sem
Bretar kölluðu síðar the happy
twenties«. Þegar Huxley samdi
Veröld ný og góð vakti tæknin
óskipta aðdáun. Fáum datt í hug
að hún gæti orðið til nokkurs nema
góðs ef vígvélar vom undan skild-
ar. Að skopast að þessu heimsundri
bar vott um sérvisku og útúrbom-
hátt. í besta falli gat ádeilan skoð-
ast sem meinlaust grín eða frumleg-
ir skáldaórar. Nú em viðhorfín allt
önnur; í raun gerbreytt frá ámnum
í kringum 1930. Heimurinn hefur
harðnað. Því fremur mun ádrepa
þessi koma fyrir sjónir sem nöturleg
kaldhæðni. Og lesendahópur höf-
undarins er ekki aðeins annar held-
ur líka annars konar; Stóra-Bret-
land er ekki lengur forysturíki og
bresk borgarastétt ber ekki lengur
heimsmenninguna á herðum sér.
Þrjár gamlar
gamansögur
Bókmenntir
Blaðaúrklipp-
um raðað í bók
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Nigel Blundell og Roger Boar:
Harmsögur og hildarleikir á 20.
öld.
Björn Jónsson þýddi.
Útg. Frjálst framtak 1988.
Frásagnir af náttúmhamfömm
og hörmulegum slysum, það er
kannski ekki vitlausara efni í bók
en gengur og gerist. Og hér er sagt
frá aðskiljanlegum hörmungum.
Hefst á eldgosinu í Mont Pelee á
Antillaeyjum árið 1902, jarðskjálft-
anum mikla í San Francisco 1906,
Titanic-slysinu árið 1912 og sagt
frá loftfömnum R101 og Hinden-
burg, svo að aðeins sé vikið að
fyrstu köflunum til að byija með.
Það er sjálfsagt innbyggt í mann-
eskjuna að hafa áhuga á að lesa
um slíka atburði, veitir kannski ein-
hveija kitlandi óttatilfinningu sem
allir geta kallað fram, að minnsta
kosti sé kröftuglega eða lýsandi
sagt frá.
Einnig er fjallað um eitmnarfár
í írak, ýmsa vonda jarðskjálfta
gegnum tíðina, mannskæða elds-
voða og flugslys. Sumt af þessu er
það uýtt í tímanum að í minni er.
Því er fróðlegt að sjá, hvort þessi
frásögn eykur eitthvað við það sem
við munum. í mínu. tilviki gerðist
það nú varla. Til að mynda frásögn-
in af hinu ferlega flugslysi á Tene-
rife 1977, þegar olíuborpallurinn
Alexander Kielland sökk á Norð-
ursjó 1980, þar em eiginlega bara
tíundaðar frásagnir blaða og af-
skaplega litlu við bætt.
Kaflamir em þó dálftið misjafnir
hvað þetta snertir, má nefna flug-
slysið við Potomac-fljót árið 1982,
þar er ítarlegar farið í málið en í
mörgum öðram kaflanna og eykur
það gildi hans sem slíks.
Stúdentar
vilja stokka
upp dag-
vistarkerfíð
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt samhljóða á síðasta
fúndi Stúdentaráðs Háskóla ís-
lands, sem haldinn var Smmtu-
daginn 8. desember.
„Stúdentaráð Háskóla íslands
skorar á Reykjavíkurborg og stjóm-
völd að taka höndum saman við að
stokka upp dagvistarkerfið. Stúd-
entaráð hvetur eindregið til þess
að tekið verði upp eitt kerfi í dag-
vistun og varpað verði fyrir róða
hinni stífu skiptingu í leikskólavist-
un og dagheimilisvistun. Það er
orðið löngu tímabært að taka upp
eitt kerfi, með sveigjanlegum vist-
unartíma.
Stúdentaráð hvetur borgaryfir-
völd til þess að miða sína dagvistar-
uppbyggingu við slíkt kerfi og Stúd-
entaráð hvetur menntamálaráð-
herra til að endurskoða núverandi
lög og reglur um dagvistun, þannig
að þessi uppstokkun verði auðveld-
ari.
Eins og staðan er í dag era marg-
ir stúdentar á biðlistum eftir því
að komast að í dagvistarkerfínu.
Orsakir þessa vanda' em marg-
þættir. Að mati Stúdentaráðs myndi
uppstokkunin auðvelda uppbygg-
ingu dagvistarkerfisins og flýta
lausn þess vanda sem stúdentar
eiga við að etja.
Geti fleiri stúdentar notað þjón-
ustu dagvistarkerfisins í breyttri
mynd en í núverandi heilsdagsvist-
un eða leiksskólavistun er það
heppilegri kostur. Stúdentaráð telur
einnig að með þessu kerfi yrði auð-
veldara að hverfa alfarið frá 3 ára
hámarksreglunni, sem nú er í gildi.“
Það er vissulega réttlætanlegt
að gleyma ekki hörmUngum og
hrakfömm. Svo virðist sem höfund-
ar telji að menn geti dregið lærdóm
af flestum þessum atburðum, hvort
sem það em náttúruhamfarir eða
almennar slysfarir. Hús eiga að
vera traustari, það á að treysta eld-
vamir, byggja stíflur á réttan hátt,
gæta almennt meira öryggis. Það
er auðvitað alveg rétt. Á hinn bóg-
inn verður ekki séð að þessi slys
og skaðar hafí kennt manneskjunni
annað en gera sér mat úr þeim í
frásögnum og bókum. Eins og þess-
ari, sem er svo hroðvirknislega unn-
in að mörgu leyti, að það er í besta
falli hægt að segja að hægt sé að
kalla þetta blaðaúrklippur sem hef-
ur verið raðað saman og gefnar út
á bók. Lítið að græða á því ef ekki
er reynt að skyggnast dýpra. En
það er aldeilis ekki gert hér.
Þýðing Bjöms Jónssonar er
ósköp litlaus, en efnið býður ekki
upp á stór tilþrif heldur.
(^jtl540
Einbýli — raðhús
Garðabær: óskum eftir einbhúsi
fyrir traustan kaupanda. Æskileg staö-
setn.: Flatir, Hnoðraholt eða Arnarnes.
Fagrihjalli: 168 fm parhús. Seljast
tilb. að utan en fokh. að innan. Miðh.
Verð 6,9 millj. Endah. Verð 6,2 mlllj.
Vesturberg: 160 fm gott raðh. á
tveimur hæðum auk 30 fm bilsk. 4
svefnherb. Verð 9,5 millj.
Sunnuflöt: 415 fm einbhús á
tveimur hæðum auk 50 fm bílsk. Húsið
er ekki fullfrág. Talsv. áhv. Verð 13,5
mlllj.
Sævargarðar Seltjnes: Fal-
legt 190 fm tvfl. raðh. m. 25 fm innb.
bílsk. 4 svefnherb. Garðstofa. Fallegt
útsýni.
Daltún: 270 fnvgott parhús á þrem-
ur hæðum auk bílsk. 2ja herb. íb. í kj.
Skipti á 4ra-5 herb. íb. mögul.
Jórusel: 296 fm mjög fallegt einb-
hús með innb. bílsk. Verð 14,0 millj.
Vesturbær: 150fmmikiðendurn.
parh. Verð 7,0-7,5 millj.
4ra og 5 herb.
Gnoðarvogur: 100 fm góð efri
hæð 3 svefnherb. Stórar suðursv. Verð
6,5 millj.
Ljósheimar. Rúml. loofmágæt
íb. á 6. hæð í lyftuh. Þrjú svefnherb.
Parket. Sérinng. af svölum. Langtímal-
án áhv. Verð 5,2 millj.
Vesturgata: 100 fm risib. með
geymslurisi yfir. Laus strax. Verð 4,360
þús.
Álagrandi: 115 fm góð íb. á 2.
hæð. 3 rúmg. svefnherb. Suðursv. Góð
sameign. Ákv. sala. Verð 6,4 millj
Baldursgata: Rúml. 100 fm ib.
á 2. hæð í steinh. Töluv. endurn.
Engihjalli: 100 fm vönduð íb. á
4. hæð í lyftubl. Tvennar sv. Stórkostl.
útsýni. Góð sameign. Verð 5,5 millj.
Æsufell: 105 fm góð íb. á 2. hæð.
Parket. Suðursv. Verð 5,5 millj.
Drápuhlíd: 115 fm efri hæð í fjórb.
ásamt góðum bílsk. Verð 7,0 millj.
3ja herb.
Leifsgata — tvaer íb.: 90 fm-
íb. á 2. hæð. Öll endurn. auk bílsk. og
2ja herb. íb. í risi.
Víöimelur: 80 fm töluvert endum.
íb. á 2. hæð. Verð 4,5 millj.
Hjaröarhagi: Góð 90 fm íb. á
3. hæð. Suðursv. Laus strax. Verð 4,6
millj. n
Fannborg: Mjög glæsil. 90 fm íb.
á 3. hæð. Parket. Stórar suðursv. Stæðj
í bílhýsi. Útsýni. Verð 5,5 millj.
2ja herb.
Rekagrandi: Sérl. falleg 2ja herb.
íb. á 1. hæð. Parket. Þvhús á hæðinnk i
Sérgarður. Hagst. áhv. lán. Verð 3,9 millj. 3
Þingholtsstræti: Rúml. 30
endum. einstaklib. á 1. hæð. Verð 1,5 n
Hraunbær: 45 fm góð einstaklib
Sérinng. Verð 2,5 millj.
Hringbraut: 62 fm íb. á 3. ha
m. aukaherb. í rlsi. Laus um áramót,
Verð 3,6 millj.
Skúlagata: Mjög góð 50 fm ný-^
stands. íb. á 1. hæð. Verð 3,3 millj.
(^> FASTEIGNA
JAÍl MARKAÐURINf
Óðinsgötu 4
11540 - 21700
Jón Guömundsson sölustj.,
Leó E. Löve lögfr..
Olafur Stefánsson viðskiptafr.
m