Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
Náttból undir
vopnum tímans
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Matthías Johannessen:
DAGUR AF DEGI.
Almenna bókafélagið 1988.
Dagur af degi skiptist í átta kafla
og er bókin viðamikil eins og títt
er um bækur Matthíasar Johannes-
sen. Pjölbreytileiki hefur jafnan sett
svip á ljóðabækur Matthíasar og
gerir það enn. En þó er eins og ljóð-
in í Degi af degi séu skyldari en
áður. Tilbreytni í formi er enn fyrir
hendi. Andrúmið er aftur á móti
mjög iíkt.
Fjórði kaflinn er lengstur. í hon-
um eru mörg stutt ljóð, sum þeirra
minna á hversdagsljóð Matthíasar
úr öðrum bókum. Eitt slíkra ljóða
er Á fardögum, sem fjailar um
hverfulleik lífsins, aldurinn. Annað
nefnist Siddharta og kennir þá
lífsvisku að breyta ekki orðum í
örvar heldur blóm. Fyrra ljóðið er
raunsæiiegt í orða- og líkingavali,
hið síðara rómantískt. En fátt skilur
ljóðin að.
Einkenni margra ljóðanna í Degi
af degi er hljómur þeirra og hiynj-
andi. Matthías leggur æ ríkari
áherslu á byggingu ljóða sinna,
orðaval. List ljóðsins er honum
keppikefli, en það væri ólíkt honum
að hafa ekki eitthvað að segja.
Erindi Ijóðanna er sem fyrrum
brýnt.
Ljóð með þessum einkennum í
Qórða kafla eru til dæmis Augu
skógarins og Fögnuður. Sjöundi
kafli með ljóðinu Viðey á Sundum
er þannig líka. Sama má einnig
segja um til dæmis Haf þitt og vor
í fyrsta kafla. Þetta ljóð er áleitið,
ekki síst fyrir mjmdríki:
Ein hnígur sól til jökuls og sezt þar
við vængbreiðar skriður og feimnislaus túnin.
Seglhvít þokast sú minning til vesturs
er skip kveður land og þitt auga er hún.
Kviðguiir mávar í fölnandi ljósi
flökta sem hendur um iðandi þang.
Augu þín fyllast seglhvítu brosi
sól lýsir jónsmessudægrin svo löng.
Fugl safnar vori í vængbrotna dögun
hikandi geisli og skuggalaus tjömin.
Skip rís úr hafí sem bláni af degi
og sól fari eldi um logandi hjam.
Þriðji kafli og fimmti kafli eru
einkum með fomsagnaminnum. í
þeim kveða Gísli og Grettir og þar
er litast um á Staðarhóli. Meðal
einkunnarorða er vitnisburður úr
VANDAÐAR GJAFIR
SEMENDAST!
Áralöng reynsla og þekking okkar á leðri og skinnum,
tryggja þérfyrsta flokks vörur frá viðurkenndum fram-
leiðendum í Frakklandi, Þýskalandi og Ítalíu.
• Rúskinns- og leðurjakkar • Belti og hanskar.
á dömur og herra. Verð frá kr. 1.200.-
Verðfrá kr. 17.500.-
•Og margt fleira.
• Fjölbreytt úrval af töskum.
Verðfrákr. 3.900.-
Gæði, þekking og gott verð,
KAJAK,
Laugavegi 37 (við Faco)
sími 12012.
Matthías Johannessen
Fóstbræðra sögu um þá sem þótti
illt að eiga náttból undir vopnum
Þorgeirs. Sturlunga gerist aðgangs-
hörð og speglar ekki síður okkar
tíma en hið liðna.
í Við Sólarfall reisir Matthías
Johannessen Sturlu Þórðarsyni veg-
legan minnisvarða, ljóðið er í senn
ort á tignu máli, hljómmikið og
myndrænt. Þetta ljóð tengir saman
foma og nýja sköpun, tíma sem
þrátt fyrir allt em líkin „. . . nú
horfum við saman yfír margliðinn
dag/ og myrkrið breiðir líknandi
feld/ yfír valsáran draum eins og
nú/ þegar úlfamir þjappa svínun-
um/ saman við sólarfall þessa eilífa/
dags.“
Frásagnir Sturlu Þórðarsonar af
Solveigu og Sturlu Sighvatssyni
birtast á ný í Við sólarfall. Orð
Sturlu, „hvort gerðu þeir ekki Sol-
veigu?“, verða Matthíasi enn mátt:
ugt tákn um ást á grimmri öld. í
annarri útgáfu Hólmgönguljóða
(1985) verða sömu orð honum til-
efni ljóðs.
Argentínska skáldið Jorge Luis
Borges taldi að íslensk skáld ættu
að minna á hlutverk fommenningar
sinnar með tilvísunum til hennar,
sýna að hún væri enn lifandi með
þjóðinni. Lesandinn átti að mati
Borges að skynja návist arfsins, en
tilvísanimar að hljóma líkt og línur
úr samtímaljóði, renna saman við
túlkunaraðferðir skáldsins. Þannig
átti fom og ný menning að kallast
á í ljóði.
Matthías hefur oft beitt álíka
aðferðum og Borges taldi æskilegar
fyrir íslensk skáld. En hann hefur
líka gengið lengra en Borges boð-
aði. Að minnsta kosti í Degi af degi.
í sjötta kafía, Sprengjunni, er
tekinn upp þráður úr Hólmgöngu-
ljóðum (1960), Jörð úr ægi (1961)
og Fagur er dalur (1966). Þar er
með mælskum hætti ort um váboða
okkar tíma. Áttundi kafli, Tunglið
er spegill tímans, er enn til vitnis
um að Matthías heldur ótrauður
áfram hólmgöngu sinni við tíma og
samtíð og nýtir sér lærdóma Völu-
spár og annarra gamalla kvæða.
Bergmál frá ýmsum fyrri bókum
Matthíasar sem heyrist í Degi af
degi er þangað viljandi komið. Það
stingur ekki í stúf við meginþemu
nýju ljóðanna. Þetta gildir jáfnt
um„líkkistuhvítan febrúardag“ í
Febrúardegi, og „goðsögnina" í
Sprengjunni, svo að tvö dæmi séu
tekin.
Ljóðabækur Matthíasar Johann-
essen eru sumar langar og skiptast
í marga kafla. Þannig er nýja bók-
in og einnig Fagur er dalur, Mörg
eru dags augu (1972) og TVeggja
bakka veður (1981). Að sumum
lesendum getur hvarflað að ljóðin
séu eftir fleiri en eitt skáld, jafnvel
mörg. En þetta er ekki jafn áber-
andi og áður í Degi af degi. Ljóðin,
sem eins og fyrr segir bera fjöl-
breytni vitni, eru samstæð, heildar-
mynd þeirra skýr. Eins og allur
góður skáldskapur búa þau um sig
í huga lesandans, halda áfram að
lifa sínu lífi þar.
í Degi af degi ber óneitanlega
töluvert á háttbundnum ljóðum. En
þrátt fyrir strangleik forms á köfl-
um eru þessi ljóð ný vegna þess
að myndbeitingin er oftast nútíma-
leg. Matthías hefur þó síst af öllu
glatað þeim hæfíleika sínum að tjá
sig með einföldum orðum og f skýr-
um myndum sem leyna á sér. Með-
al þeirra ljóða sem minna lesanda
á þetta er Snerting, sem eins og
fleiri ljóð af þessu tagi í nýju bók-
inni búa yfír ljóðrænni mýkt og
töfrum endurtekningar:
Með hraða ljóssins
koma dauðar stjömur
í heimsókn til augna þinna.
Þau fagna
gestum sínum.
Þannig komst þú
einnig í heimsókn
og augu mín snertu
ljós þitt, augu mín
snerta ljós þitt,
en q'álf ertu horfín.
Ertþúí
húsgagnateit?
Ný sending af sófasettum meó hinu frábaara leðurlíki
„ Leður lúx", sem er ótrúlega Ifkt leðri.
Lltir: Svart eða brúnt. Einnig hornsófar.
Lítið við, það borgarsig.
VALHÚSGÖGN
Ármúla 8, símar 82275 og 685375.
Áskriftarsíminn er 83033