Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 16
Jónína Leósdóttir
Séra Sigurður Haukur hefur löngum verið umdeildur, enda þekktur fyrir að
segja skoðun sína afdráttarlaust. íþessari hispurslausu bók fjallar hann m.a.
um:
skemmtilega atburði frá æskuárunum í Ölfusi
fjölda samferðamanna
hinar „alræmdu“ poppmessur
sálarrannsóknir
læknamiðla
hestamennsku
brottrekstur frá útvarpi og sjónvarpi
Nýja Bókaútgáfan Sími 681268
Rangfærslur
Syavars Gésts-
sonar hraktar
eftir Guðmund
Magnússon
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, hefur sent fjölmiðlum at-
hugasemd um starfsemi Fóstur-
skólanefndar, sem skilaði áliti í
síðustu viku, og er tilefnið grein
mín hér í Morgunblaðinu miðviku-
daginn 14. desember sl. í athuga-
semd ráðherrans er að finna rang-
færslur og missagnir, sem ég tel
mikilvægt að leiðrétta. Þá tel ég
óhjákvæmilegt, að skýra nú frá því
opinberlega, hvernig menntamála-
ráðherra reyndi að eyðileggja starf
nefndarinnar með vinnubrögðum,
sem eru að ég hygg einsdæmi í
samskiptum opinberrar nefndar og
ráðherra.
I athugasemd Svavars Gestsson-
ar eru fjögur atnði sem ég þarf að
fara orðum um. í fyrsta lagi er það
furðulegur misskilningur ráðherr-
ans, að hér hafí verið nefnd á
mínum vegum sérstaklega að ráeða.
Ráðherrann talar í athugasemd
sinni annars vegar um „nefnd Guð-
mundar Magnússonar" og hins veg-
ar segir hann: „Guðmundi Magnús-
syni var falið að endurskoða lög
um Fósturskóla íslands ...“ Stað-
reyndin er sú, að hér var um opin-
bera nefnd að ræða, sem fyrrver-
andi menntamálaráðherra skipaði,
og auk fulltrúa ráðherra sátu í
henni fulltrúar tilnefndir af eftir-
töldum aðilum: Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, Fóstrufélagi íslands,
Fósturskólanum og Kennaraháskól-
anum. Engin ástæða er til að ætla
að ummæli ráðherrans séu til marks
um vanþekkingu hans, heldur er
hér augljóslega verið að reyna að
gera lítið út miklu starfí þessarar
mikilvægu nefndar. Get ég því mið-
ur ekki ímyndað mér, að það stafí
af öðru en því að formaður nefndar-
innar er flokksbundinn sjálfstæðis-
maður. Menntamálaráðherra verð-
ur að fara að skilja, að hann er
ekki aðeins ráðherra Alþýðubanda-
lagsins. Líta verður á viðfangsefni
menntamálaráðuneytisins öðru vísi
en með flokkspólitískum gleraug-
um.
Villandi ummæli
Annar þáttur í athugasemd Svav-
/
Canon SNAPPY
myndavélin er með fastan
skerpustilli, sjálfvirka
filmuþræðingu, sjálfvirka
ASA-stillingu og færir
filmuna til baka að filmunni
lokinni. Myndavélin gefur
Ijósmerki þegarsleppa þarf
að nota flass.. «
II10
VERÐ
m
Canon TOP SHOT
Myndavélin er alsjálvirk,
sjálfvirkur skerpusti 11 i r,
sjálfvirk filmufærsla, sjálfvirk
filmuþræðing, sjálfvírkt flass
þegar það á við og færir
filmuna til baka að filmunni
lokinni. 12m 24m. 36m.
VERÐ
Canon EOS
EOS 650 og 620 eru nýjustu
myndavélarnar frá Canon í dag.
Vélarnar eru sjálfvirkar eða
handvirkar, sjálfvirk skerpustilling
(sú besta). Hálfsjálfvirk =
(Hraðaforval eða Ijósopsforval)
Canon gæði.
VERÐ A MYNDAVELUM FRA KR. 2.500
MIKIÐ ÚRVAL MYNDAVÉLA OG FYGIHLUTA
VERÐ
OLL VERÐ MIÐAST VIÐ STAÐGREIÐSLU
„Nú skora ég á ráð-
herra að huga vandlega
að vinnubrögðum
sínum í sambandi við
álit F ósturskólanefnd-
ar. Fljótfærni og gam-
aldags, hallærisleg
flokkapólitík má ekki
hindra framgang
þeirra þýðingarmiklu
mála, sem nefndin Qall-
aði um. Ráðherra sem
þorir að horfast í augu
við eigin mistök og við-
urkenna þau hlýtur að
vaxa í augum fólks.“
ars Gestssonar, sem ég hnýt um,
er orðalagið „Nefndin náði ekki
samkomulagi", en þetta er gert að
þungaatriði í málflutningi ráðherr-
ans. Staðreyndin er sú, að nefndin
gerði tvær tillögur. Um aðra þeirra
voru fimm af sex nefndarmönnum
einhuga, um hina voru fjórir af sex
einhuga, einn sat hjá og einn var
andvígur. Það er því afar villandi
að tala um það án skýringa, að
nefndin hafí ekki náð samkomu-
lagi. Mjög algengt er að opinberar
nefndir komist ekki að einni niður-
stöðu og einstakir nefndarmenn
skili séráliti. í því sambandi má
minna á nefnd núverandi mennta-
málaráðherra um málefni Ríkisút-
varpsins, en þar skilaði einn nefnd-
armanna séráliti: Ekki sendi ráð-
herra frá sér yfírlýsingu um að sú
nefnd hefði „ekki náð samkomu-
lagi“, heldur hélt hann þegar í stað
blaðamannafund til að skýra frá
niðurstöðunum.
Ráðherra segir í athugasemd
sinni, að fósturskólanefnd hafí ekki
skilað drögum að lagafrumvarpi um
fóstrumenntun eins og ætlast hafí
verið til. Hér er sannleikur málsins
sniðgenginn frjálslega. Nefndin
komst að þeirri niðurstöðu, að ekki
væri ástæða til að setja sérstök lög
um menntun starfsfólks á dagvist-
um og jafnframt lagði hún til, að
núverandi lög um Fósturskóla ís-
lands yrðu numin úr gildi innan
fimm ára. Ákvæði um menntun
fóstra skyldu sett í lög um Kennara-
háskóla íslands og ákvæði um
menntun fóstruliða í reglugerð við
lög um framhaldsskóla. I ljósi þessa
verður ekki annað séð en, að orða-
lag ráðherrans miði vísvitandi að
því að koma blekkingum og óhróðri
um nefndina á framfæri.
Loks telur Svavar Gestsson það
ámælisvert að fulltrúar aðstoðar-
fólks á dagvistum hafí ekki setið í
nefndinni. Enn á ný er athugasemd
ráðherrans út í hött. í fyrsta lagi
eru engir fóstruliðar enn starfandi,
enda lýtur tillaga nefndarinnar að
því að hefja starfsnám fyrir fóstru-
liða í framhaldsskólum. Á það er
ennfremur að líta, að aðstoðarfólk
á dagvistum er nú yfirleitt félags-
bundið i almennum verkalýðsfélög-
um og hefur ekki haft með sér
skipulagt samstarf. Ætla verður að
sjónarmið þess hafí verið ágætlega
kynnt af fulltrúum Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Fóstrufé-
lags íslands í nefndinni.
Skemmdarverk ráðherra
Ég sagði í upphafí að ráðherra
hefði reynt að eyðileggjá starf Fóst-
urskólanefndar með einstæðum
hætti. Þar skírskota ég til þess, að
inn á fund nefndarinnar 15. nóvem-
ber sl. kom bréf með fyrirsögninni
„v/breytinga á lögum um Fóstur-
skóla íslands: Alit að
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988