Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 21

Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 21 Ferðablað The Times; Island lofsungið sem ferðamannaparadís HEFURÐU HEYRT ÞAÐ NÝJASTA? Öllum TOSHIBA örbylgjuofnum fylgja 3 valin áhöld fram til jóla. Og eins og áður án endurgjalds: Hvað mat og diykk varðar segir höfundur að íslensk matargerðarlist sanni í eitt skipti fyrir öll yfirburði sjávarrétta úr köldum sjó. Hann kveð- ur matargerðarlist hafa tekið stórstígum framförum á undanföm- um árum og að afleiðingin sé sú að í Reykjavík megi finna marga bestu Lundúnum. Frá Andrési Magnússyni, fréttaritara Morgunblaðsins. GREINAR um ísland birtust um sl. helgi i sérstöku ferðablaði, sem Lundúnadagblaðið The Times gefur út á sunnudögum. Almennt var umfiöllun blaðsins íslandi mjög vinsamleg, en í blaði þessu er ekki van- inn að skafa utan af hlutunum. Það sem helst var fundið að var islenskt verðlag og vöntun á tijám, næturlífi og bjór. Síðu var varið í íslandsumflöllun- ina, en hún byggðist á tveimur grein- um og ítarlegum minnispunktum fyr- ir væntanlega ferðalanga. Mikið um fyrirspurnir hjá Plugleiðum Hjá skrifstofu Flugleiða í Lundún- um fengust þær upplýsingar, að mik- ið hefði verið hringt og óskað upplýs- inga um ísland vegna greina þessara. Sérstaklega kvað starfsfólkið hafa verið spurst fyrir um laxveiði á ís- landi, en því miður liggja litlar upplýs- ingar á lausu um þau mál. Starfs- fólki Flugleiða bar saman um að við- brögð við greinum af þessu tagi væru ávallt mikil og að slík skrif skiluðu yfirleitt meiri árangri en beinar aug- lýsingar. Fyrri greinin í ferðablaðinu var almenn umfjöllun um Reykjavfk og hafði höfundur ekkert nema gott um höfuðborgina að segja. Það sem greinahöfundi finnst greinilega eftir- tektarverðast eru heitu pottamir í laugunum, Tjömin, Þingholtin og íslensk matargerðarlist, sem hann hrósar í hástert í fyrmefndum minn- ispunktum. Þrátt fyrir að höfundur kvarti nokkuð undan verðlaginu og nefni sem dæmi að komflögupakki kosti um 200 krónur (á Bretlandi kostar pakkinn á bilinu 35—70 krónur) minnist hann á Laugaveginn sem prýðisverslunargötu, þar sem fá megi pijónavöru, skartgripi, bækur af öllu tagi og góðgæti eins og kavíar og graflax. I framhaldi af bókaúrvalinu er nefnt hversu læsi og almenn menntun séu á háu stigi: íslendingar lesi enn fomsögumar eins og að drekka vatn og tali þar að auki ensku reiprennandi. Höfundur segir Tjömina vera óum- deilanlegt djásn Reylqavfkur og hefur greinilega hrifist af þeirri ró og feg- urð sem finna má í miðju borgarinnar. Hin greinin fjallar um veiði á ís- landi og á höfundur vart orð til að lýsa hrifningu sinni á veiði í íslensk- um ám og vötnum. Náttúrufegurð segir hann einstaka en ber hana þó saman við það sem gerist í Norður- Skotlandi til þess að menn hafi ein- hveija viðmiðun. Kvartað undan náttúru- spjöllum vegna ljótra húsa í lok veiðigreinarinnar fjallar höf- undur stuttlega um íslenskt dreifbýli, sem hann segir fallegt ef frá séu talin þorp þau og sumarbústaðir, sem misbjóði fegurðarskyninu. Þá nefnir hann að náttúmvemdarsinnar kunni að fá fyrir bijóstið við hvalstöðina í Hvalfirði. Þrátt fyrir þessa vankanta kemst höfundur að þeirri niðurstöðu að kostimir yfirgnæfi gallana og lýk- ur máli sínu á að segjá að ísland sé enginn venjulegur staður til þess að glíma við konung fiskanna, laxinn. { minnispunktunum má finna ýms- ar gagnlegar staðreyndir, sem og ábendingar höfundar. Helst er mælt með Hótel Sögu fyrir þá, sem not- færa sér pakkatilboð Flugleiða um helgarferð til íslands, en fyrir þá, sem ferðast á eigin vegum, er mælt með Hótel Borg, sem þeir segja í senn hrífandi og sérkennilegt. Þá var SVR hrósað fyrir ódýra og góða þjónustu. Matargerðarlistinni hrósað í hástert fiskiéttastaði heimsins. Hann varar fólk þó við því að á bestu veitinga- stöðunum kunni gestimir að þurfa að sjá á bak 50 sterlingspundum (um 4.000 krónum) á mann, sem er meira en gerist á allra dýrustu veitingastöð- um Lundúna. í hádeginu er sérstaklega mælt með Við Tjömina. Vilji menn sérís- lenskt hlaðborð, sem og hefðbundn- ari rétti er bent á Hótel Loftleiðir, en mest lof hlýtur þó Lækjarbrekka, sem sögð er undursamlega vinalegur veitingastaður og matreiðslumeistar- inn er sagður snillingur. Til kvöldverðar er mælt með Grill- inu á Hótel Sögu vegna útsýnisins. Þá er Við sjávarsíðuna hlaðin lofi og sagt að vart sé hægt að fá ferskari fisk auk þess sem lambið sé frábært eftir meðhöndlun þriggja af bestu kokkum borgarinnar. Loks er frá því sagt að á Amarhóli starfi einn áhrifa- mesti matreiðslumeistari Reykjavík- ur, Skúli Hansen, við kraftaverk- asmíði dags daglega og em lesendur hvattir til þess að reyna krabbakæfu í Madeira-hlaupi eða léttsteiktan svartfugl úr eldhúsi hans. Listin ekki skilin útundan Þá telur höfundur fslenskt listalíf ekki vera af verri sortinni. Sérstak- lega hvetur hann fólk til þess að fara f Listasafn íslands, þó ekki væri nema til þess að skoða húsið, sem hann segir hafa verið gert einstaklega fal- lega upp til þess að þjóna hinu nýja hlutverki sínu. Greinilegt er að hann hefur einnig hrifist af innanstokks- munum. Þá telur hann höggmyndir þær, sem piýða bæinn, vera til sér- stakrar fyrirmjmdar. Einnig nefnir hann vikulega tónleika Sinfóníu- hljómsveitarinnar, sem og íslensku óperuna, sem hann segir frábæra. íslenskar leiðbeiningar og uppskriftir. Matreiðslunámskeið hjá Dröfn H. Farestveit, hús- stjórnarkennara, sér- menntaðri í matreiðslu í örbylgjuofnum. (slensk námskeiðsgögn. Þér er boðið að ganga í Toshiba uppskriftaklúbb- inn. Meira en 14 gerðir ofna - Verð við allra hæfi. Góð greiðslukjör. Kaupið fullkominn ofn til framtíðamotkunar. Einar Farestveit&Co.hf. BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BILASTÆÐI >■ - þar er fjörió og jólastemmningin Þar eni 500 búöir, 5000 bílastæói og fínt aó versla!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.