Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 26

Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 Konv $ UÍ í bókinni er auk flugmannatals, saga FIA og myndir úr flugsögu íslendinga. Útgefandi: Bókin fæst í eftirtöldum bókaverslunum: MÁL OG MENNING, Laugavegi 18 BÓKAVERSLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR, Austurstræti 18 PENNINN, Kringlunni, Hallarmúla og Austurstræti SALA TIL FÉLAGSMANNA FÉLAG ÍSL. ATVINNUFLUGMANNA FER FRAM Á SKRIFSTOFU FÍA Háaleitisbraut 68 • Sími 35485 [ rúmlega hálfa öld hefur gullsmíðastofa Kjartans Ásmundssonar haft mikið úrval gull og demantsskartgripa á boðstólum. Aldrei fyrr hefur úrvalið verið meira og allt eru það gæðademantar sem fluttir eru inn frá Antwerpen, miðstöð demantsviðskipta í heiminum. Ef þú leitar að fallegri gjöf sem gleður ástvin, - þá Jíttu við hjá okkur. 'e/n/m/œr ARTAN ÁSMUNDSSON GU LLS M IÐ U R Aðalstræti 7 101 Reykjavík Áskriftarsíminn er 83033 De Niro og Grodin fara á kostum i Tímahraki, sem og reyndar allur hinn firábæri leikhópur. Stríð milli stranda Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Tímahrak — „Midnight Run“ Leikstjóri Martin Brest. Hand- rit George Gallo. Tónlist Danny Elfinan. Kvikmyndatökustjóri Donald Thorin. Aðalleikendur Robert De Niro, Charles Grod- in, John Ashton, Dennis Farina, Joe Pantoliano, Richard For- ony, Robert Miranda, Jack Ke- hoe. Bandarísk. Universal 1988. í þessu eldhressa og heilsubæt- andi hanastéli gaman- og spennu- myndar, leikur De Niro fýrrver- andi lögreglumann sem nú fæst við að hafa uppá eftirlýstum glæpamönnum. Næsta verkefni hans er að hafa uppá endurskoð- andanum Grodin, sem gerði sér lítið fyrir og snuðaði mafíuna um litlar 15 milljónir dala. En það eru fleiri en De Niro á eftir þessum framtakssama hagfræðingi. Ma- fíósinn Farina vill að sjálfsögðu góma kauða, sem auk þess að hafa haft af honum stórfé er allt- of kunnugur innviðum glæpa- starfseminnar. Það veit einnig hópur sambandslögreglumanna undir stjóm Kottos, og þá vill Ashton, starfsbróðir De Niros, fá sinn skerf af verðlaunafénu sem lagt er til höfuðs Grodin. Svo það er fríður flokkur úr ýmsum áttum sem er á hælum þeirra félaga, eftir að 'De Niro hefur uppá Grodin í fylgsni hans í New York. Og nú eiga þeir æsi- legt ferðalag fyrir höndum, þvert yfír Bandaríkin, frá New York til Kalifomíu. Með Mafíuna, FBI, og Ashton, lánlausasta einkaspæjara sögunnar, á hælunum lenda þeir í einni lífshættunni á fætur ann- arri. Eru ferðafélagamir og flutn- ingatækin öll hin litskrúðugustu Brest er sannkallaður snillingur að flétta saman ærslagangi og magnaðri spennu án þess að út- koman verði smekklaus enda- leysa. Og ef eitthvað er þá tekst honum enn betur upp að þessu sinni en í Beverly Hills Cop I., þar sem þessi tvö myndform skörðuðust nokkuð áberandi í annars ágætri mynd. Ofbeldið er líka mun vægara í Tímahraki og oftast hægt að meðhöndla það á gamansaman hátt. Handrit Gallos er útsmogið, fyndið, kryddað skýrum og skondnum persónum og lifandi, bráðsmellnum sam- tölum. Leikhópurinn er stórkost- legur, ekki veikan hlekk að fínna. De Niro tekur þennan sauðþráa hausaveiðara léttum tökum og hinn stórleikari myndarinnar, Grodin, afgreiðir hinn íhugula, mátulega heiðarlega flóttamann af slfku kómísku innsæi og öryggi að Kvikmyndaakademían ætti að gefa honum gaum, þó ekki væri nema á þorranum. Samleikur þeirra er með miklum ágætum, gagnkvæm fyrirlitning sem þróast í e.k. vináttu, allavega virðingu. Og aukaleikararnir gefa þeim lítið eftir, gott handrit gefíir þeim Ashton, Kotto, og ekki síst þeim Pantoliano og Farina, færi á að sýna hvað í þeim býr. Þeir grípa tækifærið fegins hendi. Tímahrak kemur þægilega á óvart, bæði bráðskemmtileg og spennandi, vel gerður Hollywood- sjarmör á allan hátt. Þó hún flok- kist kannski ekki undir stórvirki er ekkert útá hana að setja sem stundargaman. Morgunblaðið/Sverrir Sigríður Lóa Jónsdóttir, forstöðumaður Trönuhólaheimilisins, veitir viðtöku ávísun upp á 100.000 krónur frá félögum í Rotary Reykjavík-Breiðholt, íklæddum jólasveinabúningum. Rotary Reykjavík-Breiðholt: Gáfu 100 þúsund til einhverfra barna FÉLAGAR í Rotaryklúbbnum Reykjavfk-Breiðholt gáfii nýlega 100 þúsund krónur til reksturs Trönuhólaheimilisins fyrir ein- hverf böm. Einnig hefur verið komið fyrir söfiiunarbauk f versl- unarmiðstöðinni f Glæsibæ og mun það fé einnig renna til heimilisins. Að sögn Sigurðar Más Helgason- ar, Rotaiyfélaga í Reylqavík-Breið- holt, var féð sem afhent var í síðustu viku komið frá þeim fyrirtækjum sem aðstöðu hafa í Glæsibæ, endurgjald fyrir jólasveinshlutverk hans í versl- unarmiðstöðinni. Einnig er boðið upp á myndatökur af bömum með jóla- sveininum í Glæsibæ og eru 100 krón- ur af gjaldi fyrir hveija myndatöku settar í söfnunarbauk fyrir einhverf böm.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.