Morgunblaðið - 22.12.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
Konv
$ UÍ
í bókinni er auk flugmannatals,
saga FIA og myndir
úr flugsögu
íslendinga.
Útgefandi:
Bókin fæst
í eftirtöldum
bókaverslunum:
MÁL OG MENNING,
Laugavegi 18
BÓKAVERSLUN
SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR,
Austurstræti 18
PENNINN, Kringlunni, Hallarmúla og Austurstræti
SALA TIL FÉLAGSMANNA FÉLAG ÍSL. ATVINNUFLUGMANNA
FER FRAM Á SKRIFSTOFU FÍA Háaleitisbraut 68 • Sími 35485
[ rúmlega hálfa öld hefur gullsmíðastofa Kjartans Ásmundssonar haft mikið
úrval gull og demantsskartgripa á boðstólum.
Aldrei fyrr hefur úrvalið verið meira og allt eru það gæðademantar sem
fluttir eru inn frá Antwerpen, miðstöð demantsviðskipta í heiminum.
Ef þú leitar að fallegri gjöf sem gleður ástvin, - þá Jíttu við hjá okkur.
'e/n/m/œr
ARTAN ÁSMUNDSSON GU LLS M IÐ U R
Aðalstræti 7 101 Reykjavík
Áskriftarsíminn er 83033
De Niro og Grodin fara á kostum i Tímahraki, sem og reyndar
allur hinn firábæri leikhópur.
Stríð milli stranda
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Tímahrak — „Midnight Run“
Leikstjóri Martin Brest. Hand-
rit George Gallo. Tónlist Danny
Elfinan. Kvikmyndatökustjóri
Donald Thorin. Aðalleikendur
Robert De Niro, Charles Grod-
in, John Ashton, Dennis Farina,
Joe Pantoliano, Richard For-
ony, Robert Miranda, Jack Ke-
hoe. Bandarísk. Universal 1988.
í þessu eldhressa og heilsubæt-
andi hanastéli gaman- og spennu-
myndar, leikur De Niro fýrrver-
andi lögreglumann sem nú fæst
við að hafa uppá eftirlýstum
glæpamönnum. Næsta verkefni
hans er að hafa uppá endurskoð-
andanum Grodin, sem gerði sér
lítið fyrir og snuðaði mafíuna um
litlar 15 milljónir dala. En það eru
fleiri en De Niro á eftir þessum
framtakssama hagfræðingi. Ma-
fíósinn Farina vill að sjálfsögðu
góma kauða, sem auk þess að
hafa haft af honum stórfé er allt-
of kunnugur innviðum glæpa-
starfseminnar. Það veit einnig
hópur sambandslögreglumanna
undir stjóm Kottos, og þá vill
Ashton, starfsbróðir De Niros, fá
sinn skerf af verðlaunafénu sem
lagt er til höfuðs Grodin.
Svo það er fríður flokkur úr
ýmsum áttum sem er á hælum
þeirra félaga, eftir að 'De Niro
hefur uppá Grodin í fylgsni hans
í New York. Og nú eiga þeir æsi-
legt ferðalag fyrir höndum, þvert
yfír Bandaríkin, frá New York til
Kalifomíu. Með Mafíuna, FBI, og
Ashton, lánlausasta einkaspæjara
sögunnar, á hælunum lenda þeir
í einni lífshættunni á fætur ann-
arri. Eru ferðafélagamir og flutn-
ingatækin öll hin litskrúðugustu
Brest er sannkallaður snillingur
að flétta saman ærslagangi og
magnaðri spennu án þess að út-
koman verði smekklaus enda-
leysa. Og ef eitthvað er þá tekst
honum enn betur upp að þessu
sinni en í Beverly Hills Cop I.,
þar sem þessi tvö myndform
skörðuðust nokkuð áberandi í
annars ágætri mynd. Ofbeldið er
líka mun vægara í Tímahraki og
oftast hægt að meðhöndla það á
gamansaman hátt. Handrit Gallos
er útsmogið, fyndið, kryddað
skýrum og skondnum persónum
og lifandi, bráðsmellnum sam-
tölum. Leikhópurinn er stórkost-
legur, ekki veikan hlekk að fínna.
De Niro tekur þennan sauðþráa
hausaveiðara léttum tökum og
hinn stórleikari myndarinnar,
Grodin, afgreiðir hinn íhugula,
mátulega heiðarlega flóttamann
af slfku kómísku innsæi og öryggi
að Kvikmyndaakademían ætti að
gefa honum gaum, þó ekki væri
nema á þorranum. Samleikur
þeirra er með miklum ágætum,
gagnkvæm fyrirlitning sem þróast
í e.k. vináttu, allavega virðingu.
Og aukaleikararnir gefa þeim lítið
eftir, gott handrit gefíir þeim
Ashton, Kotto, og ekki síst þeim
Pantoliano og Farina, færi á að
sýna hvað í þeim býr. Þeir grípa
tækifærið fegins hendi.
Tímahrak kemur þægilega á
óvart, bæði bráðskemmtileg og
spennandi, vel gerður Hollywood-
sjarmör á allan hátt. Þó hún flok-
kist kannski ekki undir stórvirki
er ekkert útá hana að setja sem
stundargaman.
Morgunblaðið/Sverrir
Sigríður Lóa Jónsdóttir, forstöðumaður Trönuhólaheimilisins, veitir
viðtöku ávísun upp á 100.000 krónur frá félögum í Rotary
Reykjavík-Breiðholt, íklæddum jólasveinabúningum.
Rotary Reykjavík-Breiðholt:
Gáfu 100 þúsund
til einhverfra barna
FÉLAGAR í Rotaryklúbbnum
Reykjavfk-Breiðholt gáfii nýlega
100 þúsund krónur til reksturs
Trönuhólaheimilisins fyrir ein-
hverf böm. Einnig hefur verið
komið fyrir söfiiunarbauk f versl-
unarmiðstöðinni f Glæsibæ og mun
það fé einnig renna til heimilisins.
Að sögn Sigurðar Más Helgason-
ar, Rotaiyfélaga í Reylqavík-Breið-
holt, var féð sem afhent var í síðustu
viku komið frá þeim fyrirtækjum sem
aðstöðu hafa í Glæsibæ, endurgjald
fyrir jólasveinshlutverk hans í versl-
unarmiðstöðinni. Einnig er boðið upp
á myndatökur af bömum með jóla-
sveininum í Glæsibæ og eru 100 krón-
ur af gjaldi fyrir hveija myndatöku
settar í söfnunarbauk fyrir einhverf
böm.