Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 32

Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 32
1 32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 ......... ■ ■■ ■ :::: ........ -............... ■ ■ ......... ■ - ..........................................- ...................... .......• ..........................••••■ • Réttur stuðningur við höfuð og hnakka Heilsukoddi Bay Jacobsen veitir höfði og hnakka réttan stuðning á meðan svefns nýtur. Þegar svefni léttir gætir þess hve þægilegt er að höfuðið hefur legið rétt. Enginn hálsrígur eða eymsli sem geta leitt til spennu og vöðvabólgu þegar til lengdar lætur. Með koddanum fylgir koddaver úr 100% bómull, sem bægir óhreinindum frá sér. Reyndu heilsukodda Bay Jacobsen. 30 daga. skilafrestur. Útsölustaðir: Hreiðrið, Faxafeni 12, Rvk., Útskálar, Rauðarárstíg 14, Rvk., Bústoð, Keflavík, Mállngaþjónustan, Akranesl, Húsgagnaloftlð, ísafirði, Hátún, Sauðárkróki, Vörurbœr,Akureyri, Aldan, Seyðisfirði, Höskuldur Stefánsson, Reyðarfirðl, KASK, Höfn, Reynisstaðir, Vestmannaeyjum, Sportbœr, Selfossi. BAY JACOBSEN' Fjaöurmagnaöur eldvarinn sva/npur. lœftrásakerfi sem tryggir lofistreymi um koddann. brother. TÖLVUPRENTARAR Hágæða nálaprentari. Allir Brother prentararnir eru með serial og paralleltengi. VISA vildarkjör - Engin útborgun. Eitt mesta úrval af tölvuprenturum á landinu. ss SJ/. SKIPHOLTI 9, © 622455 & 24255 Laserprentari Prentari fyrir heimilistölvuna. Prentari fyrir bókhaldstölvuna. Við Lei&styttuna 1938 ca. 10 þús. manns, eða fjórði hver Reykvíkingnr. Reykvíkingar fögnuðu þeim degi Siglingasaga Sjómannadagsráðs komin út NÝÚTKOMIN bók Ásgeirs Jak- obssonar, Siglingarsaga Sjó- mannadagsráðs, er saga sjó- mannasamtakanna, Sjómanna- dagsins og almenn sjómanna- saga. Þar er birtur kafli úr for- ystugrein Morgunblaðsins fyrsta Sjómannadaginn, þar sem ítarlega voru rakin öll væntanleg stefiiumál Sjó- mannasamtakanna, sem þá voru hin sígildu: öryggismál, end- urnýjun skipaflotans, skólamál og bygging minnisvarða á leiði „óþekkta íslenzka sjómanns- ins“. (Dvalarheimilisbygging varð ekki aðalmál fyrr en 1941-42.) Forystugrein blaðsins ásamt mynd, sem hér fylgir af mann- íjöldanum við Leifsstyttu vottar einnig afstöðu manna til sjó- mannastéttarinnar á þessum árum. Þar segir svo eftir að lýst hefur verið að mannfidl sjó- mannastéttarinnar sé hlutfidls- lega álíka og gerist á stríðstímum með hernaðarþjóð- um: „Ástæðan er sú að höfuðatvinnu- vegur þjóðarinnar er svo áhættu- samur, að sjómennirnir, sem þenn- an atvinnuveg stunda, leggja líf sitt í hættu á svipaðan hátt og her- menn annarra þjóða í hemaði. Veðráttan við íslandsstrendur er svo duttlungafull, að hún getur á svipstundu breytt spegilsléttum haffletinum í ólgandi hafrót. Þá er Lárus Salomonsson að ræsa keppendur í stakkasundi. Keppt var fram á höfii í þennan tíma. * Bifreiðaeftirlitið lagt niður um áramót: Bílprófum um allt land verð- ur miðstýrt frá Reykjavík Bifreiðaeftirlitsmenn óttast að veigamikilum hluta verkefiia þeirra verði ekki sinnt sem skyldi fi-á áramótum. Frá þeim tima hefur þorra bifreiðaeftirlitsmanna verið sagt upp störfum enda mun Bifreiðaskoðun íslands h/f þá taka við ökutækjaskoðun. Prófdeild Bifreiðaeftirlitsins mun starfa eftir sem áður og verða starfsmenn á landinu öllu átta tals- ins, að sögn Erlings Gunnlaugssonar formanns Félags bifreiðaeftirlits- manna, fimm með aðsetur I Reykjavík en þrír í öðrum landshlutum. Þeir, sem aðsetur hafa í Reykjavík, munu sjá um próf f Keflavík, Sel- fossi og Vestmannaeyjum. Einn starfsmaður mun hafa aðset- ur á Akranesi og prófa á Vesturlandi og á Vestfjörðum; annar mun hafa aðsetur á Akureyri og prófa á Norð- urlandi vestra og eystra. Þá er ráð- gert að ráða mann í hlutastarf sem hafi aðsetur á Eskifirði og prófi á Austurlandi. Skipulagning og ákvörð- un prófdaga verður á hendi yfir- manns í Reykjavík. Við núgildandi fyrirkomulag eru bifreiðaeftirlits- menn í fullu starfí á þessum prófstöð- um. Erling kveðst telja ljóst að ferða- kostnaður vegna þessara manna muni jafngilda launum fyrir nokkra starfsmenn á fámennisstöðum, auk þess sem hætt sé við mismunun eftir búsetu, þannig að ungmenni í dreif- býli geti þurft að bfða jafnvel vikum saman eftir því að fá að taka bílpróf. Þá sagði Erling Gunnlaugsson að engin svör hefðu fengist um hvetjir muni í stað bifreiðaeftirlitsmanna annast aflestur ökumæla díselbif- reiða, frá þeim tfma sem Bifreiða- skoðun íslands h/f tekur til starfa, en á þeim aflestri byggist innheimta þungaskatts. Eins sé ljóst að hvorki lögregla né aðrir geti annast könnun á ástandi bifreiða á vettvangi um- ferðarslysa. Erling Gunrilaugsson kvaðst óttast að frá áramótum muni það heyra sögunni til að bifreiðaeftirlitsmenn taki bíla til skyndiskoðunar og að sú breyting hafi það í för með sér að bflar muni skila sér verr til skyldu- skoðunar en áður. Bifreiðaeftirlitsmenn á landinú eru nú um 50 talsins. Erling segir að vilyrði hafi verið gefín um að þeim þeirra, sem hafi réttindi bifvélavirkja, verði útveguð vinna við hið nýja fyrir- tæki og sé nú unnið að þeim málum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.