Morgunblaðið - 22.12.1988, Qupperneq 32
1
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
......... ■ ■■ ■ :::: ........ -............... ■ ■ ......... ■ - ..........................................- ...................... .......• ..........................••••■ •
Réttur stuðningur við höfuð og hnakka
Heilsukoddi Bay Jacobsen veitir höfði og hnakka réttan stuðning
á meðan svefns nýtur. Þegar svefni léttir gætir þess hve þægilegt
er að höfuðið hefur legið rétt. Enginn hálsrígur eða eymsli sem
geta leitt til spennu og vöðvabólgu þegar til lengdar lætur.
Með koddanum fylgir koddaver úr 100% bómull, sem bægir
óhreinindum frá sér. Reyndu heilsukodda Bay Jacobsen.
30 daga. skilafrestur.
Útsölustaðir: Hreiðrið, Faxafeni 12, Rvk., Útskálar, Rauðarárstíg 14, Rvk.,
Bústoð, Keflavík, Mállngaþjónustan, Akranesl, Húsgagnaloftlð, ísafirði, Hátún,
Sauðárkróki, Vörurbœr,Akureyri, Aldan, Seyðisfirði, Höskuldur Stefánsson,
Reyðarfirðl, KASK, Höfn, Reynisstaðir, Vestmannaeyjum, Sportbœr, Selfossi.
BAY JACOBSEN'
Fjaöurmagnaöur
eldvarinn sva/npur.
lœftrásakerfi sem
tryggir lofistreymi
um koddann.
brother.
TÖLVUPRENTARAR
Hágæða nálaprentari.
Allir Brother prentararnir eru með
serial og paralleltengi.
VISA vildarkjör - Engin útborgun.
Eitt mesta úrval af tölvuprenturum á landinu.
ss
SJ/.
SKIPHOLTI 9, © 622455 & 24255
Laserprentari
Prentari fyrir heimilistölvuna.
Prentari fyrir bókhaldstölvuna.
Við Lei&styttuna 1938 ca. 10 þús. manns, eða fjórði hver Reykvíkingnr.
Reykvíkingar
fögnuðu þeim degi
Siglingasaga Sjómannadagsráðs komin út
NÝÚTKOMIN bók Ásgeirs Jak-
obssonar, Siglingarsaga Sjó-
mannadagsráðs, er saga sjó-
mannasamtakanna, Sjómanna-
dagsins og almenn sjómanna-
saga. Þar er birtur kafli úr for-
ystugrein Morgunblaðsins
fyrsta Sjómannadaginn, þar
sem ítarlega voru rakin öll
væntanleg stefiiumál Sjó-
mannasamtakanna, sem þá voru
hin sígildu: öryggismál, end-
urnýjun skipaflotans, skólamál
og bygging minnisvarða á leiði
„óþekkta íslenzka sjómanns-
ins“. (Dvalarheimilisbygging
varð ekki aðalmál fyrr en
1941-42.)
Forystugrein blaðsins ásamt
mynd, sem hér fylgir af mann-
íjöldanum við Leifsstyttu vottar
einnig afstöðu manna til sjó-
mannastéttarinnar á þessum
árum. Þar segir svo eftir að
lýst hefur verið að mannfidl sjó-
mannastéttarinnar sé hlutfidls-
lega álíka og gerist á
stríðstímum með hernaðarþjóð-
um:
„Ástæðan er sú að höfuðatvinnu-
vegur þjóðarinnar er svo áhættu-
samur, að sjómennirnir, sem þenn-
an atvinnuveg stunda, leggja líf
sitt í hættu á svipaðan hátt og her-
menn annarra þjóða í hemaði.
Veðráttan við íslandsstrendur er
svo duttlungafull, að hún getur á
svipstundu breytt spegilsléttum
haffletinum í ólgandi hafrót. Þá er
Lárus Salomonsson að ræsa keppendur í stakkasundi. Keppt var
fram á höfii í þennan tíma.
*
Bifreiðaeftirlitið lagt niður um áramót:
Bílprófum um allt land verð-
ur miðstýrt frá Reykjavík
Bifreiðaeftirlitsmenn óttast að veigamikilum hluta verkefiia þeirra
verði ekki sinnt sem skyldi fi-á áramótum. Frá þeim tima hefur þorra
bifreiðaeftirlitsmanna verið sagt upp störfum enda mun Bifreiðaskoðun
íslands h/f þá taka við ökutækjaskoðun. Prófdeild Bifreiðaeftirlitsins
mun starfa eftir sem áður og verða starfsmenn á landinu öllu átta tals-
ins, að sögn Erlings Gunnlaugssonar formanns Félags bifreiðaeftirlits-
manna, fimm með aðsetur I Reykjavík en þrír í öðrum landshlutum.
Þeir, sem aðsetur hafa í Reykjavík, munu sjá um próf f Keflavík, Sel-
fossi og Vestmannaeyjum.
Einn starfsmaður mun hafa aðset-
ur á Akranesi og prófa á Vesturlandi
og á Vestfjörðum; annar mun hafa
aðsetur á Akureyri og prófa á Norð-
urlandi vestra og eystra. Þá er ráð-
gert að ráða mann í hlutastarf sem
hafi aðsetur á Eskifirði og prófi á
Austurlandi. Skipulagning og ákvörð-
un prófdaga verður á hendi yfir-
manns í Reykjavík. Við núgildandi
fyrirkomulag eru bifreiðaeftirlits-
menn í fullu starfí á þessum prófstöð-
um. Erling kveðst telja ljóst að ferða-
kostnaður vegna þessara manna
muni jafngilda launum fyrir nokkra
starfsmenn á fámennisstöðum, auk
þess sem hætt sé við mismunun eftir
búsetu, þannig að ungmenni í dreif-
býli geti þurft að bfða jafnvel vikum
saman eftir því að fá að taka bílpróf.
Þá sagði Erling Gunnlaugsson að
engin svör hefðu fengist um hvetjir
muni í stað bifreiðaeftirlitsmanna
annast aflestur ökumæla díselbif-
reiða, frá þeim tfma sem Bifreiða-
skoðun íslands h/f tekur til starfa,
en á þeim aflestri byggist innheimta
þungaskatts. Eins sé ljóst að hvorki
lögregla né aðrir geti annast könnun
á ástandi bifreiða á vettvangi um-
ferðarslysa.
Erling Gunrilaugsson kvaðst óttast
að frá áramótum muni það heyra
sögunni til að bifreiðaeftirlitsmenn
taki bíla til skyndiskoðunar og að sú
breyting hafi það í för með sér að
bflar muni skila sér verr til skyldu-
skoðunar en áður.
Bifreiðaeftirlitsmenn á landinú eru
nú um 50 talsins. Erling segir að
vilyrði hafi verið gefín um að þeim
þeirra, sem hafi réttindi bifvélavirkja,
verði útveguð vinna við hið nýja fyrir-
tæki og sé nú unnið að þeim málum.