Morgunblaðið - 22.12.1988, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988
Teiknisamkeppni grunnskólanemenda:
30 verðlaunamyndir
sýndar í Gerðubergi
30 MYNDIR grunnskólanemenda í borginni verða til sýnis í
Gerðubergi til 3. janúar. Myndirnar hafa hlotið verðlaun eða
viðurkenningu í teiknisamkeppni um umferðaröryggi sem
nemdenur Fellaskóla hafa gengist fyrir.
Keppt var í Qórum aldurs- fyrirtæki í borginni gáfu verð-
flokkum: 6 og 7 ára, 8 og 9 ára, launaféð.
10-12 ára og 13-15 ára. Þrenn Teiknisamkeppnin var liður í
aðalverðlaun voru veitt í hveijum marg þættu umferðarátaki sem
flokki: 10, 7 og 4 þúsund krón- staðið hefur í Fellaskóla í haust.
ur. Einnig voru veitt níu 2 þús- Tilefni þess var að nemandi skól-
und króna aukaverðlaun. Nokkur ans lést í umferðarslysi í haust.
Morgunblaðið/Bjami
Guðný Sævinsdóttir og Harpa Hauksdóttir afhenda Evu Heiðu
Birgisdóttir fyrstu verðlaun í flokki 13-15 ára.
Morgunblaðið/RAX
Frá undirskrift samningsins. F.v. Jón M. Smith gjaldkeri FRAMA, Ingólfúr M. Ingól&son formaður
FRAMA, Ingi R. Helgason forstjóri Brunabótarfélagsins og Guðmundur Albertsson tryggingafræðingur.
Frami og Brunabót semja um
tryggingar fyrir leigubílstjóra
ÞANN 20. desember var undirritaður samningur milli Brunabótafé-
lags íslands hf. og Bifreiðasfjórafélagsins FRAMA, um víðtæka
hópslysatryggingu. Hópslysatryggingin, sem tekur gildi 1. janúar,
nær til allra félagsmanna FRAMA, star&fólks á skri&tofú félags-
ins, allra barna félagsmanna og afleysingabílstjóra.
Forsaga málsins er sú, að
FRAMI bauð snemma árs 1987
út slysatryggingar fyrir alla
leigubflstjóra. Meðan á samnings-
umleitunum stóð gerðist FRAMI
umboðsaðili fyrir Brunabótafélagið
gagnvart öllum tryggingargrein-
um sem einstaklingar í FRAMA
óskuðu eftir, þar á meðal bifreiða-
tryggingum Hefur sú samvinna að
sögn aðilanna verið með ágætum.
Sá samningur sem var undirrit-
aður þann 20. desember fjallar
hins vegar um slysatrygginguna
sem var boðin út. Meginatriði
samningsins eru þessi:
1. Hópslysatiygging á félags-
mönnum FRAMA þar sem dánar-
bætur eru frá kr. 416.000,- að kr.
3.000.000,- eða eftir fjölskyldu-
stærð. Hámarksörorkubætur eru
kr. 7.084.350,- og dagpeningar kr.
15.000,- á viku sem greiðast frá
fyrsta degi.
2. Slysatrygging barna og full-
gildra félagsmanna. Hámarksör-
orkubætur eru kr. 1.000.000,- og
slysakostnaður allt að kr. 50.000,-.
3. Sérstök slysatrygging er fyrir
afleysingabflstjóra með tvöfoldum
bótaupphæðum venjulegrar slysa-
tfyggingar launþega.
Ingi R. Helgason forstjóri
Brunabótafélgsins sagði, að þessi
samningur hefði mikið fordæmis-
gildi, þar sem hann leiðir í ljós
kosti hópslysatryggingar fram yfír
einstaklingstryggingamar. Það
væri í raun ekki hægt að bera
þessi iðgjöld saman.
Samningsupphæðin er 5 milljón-
ir króna með söluskatti, en félags-
menn FRAMA eru um 600 talsins.
Rætt við Ólínu Þorvarðardóttur um bókina Bryndísi
BRYNDÍS, saga Bryndisar Schram, virðist ætla að verða ein af
metsölubókunum í ár, ef marka má lista dagblaða og bóksala.
Hvort orsökin er forvitni, hnýsni eða slúðurþörf greinir menn á
um, en Ólína Þorvarðardóttir, sem skri&ði bókina segir markmið
sitt hafa veríð að kynna manneskjuna Bryndisi, þá manneskju sem
býr að baki þeirrí fmynd sem við okkur blasir i Qölmiðlunum.
Ólína er sjálf þekkt andlit úr
fréttum sjónvarpsins og hún var
spurð hvort hún þekkti af eigin
raun þá tilfinningu að vera dæmd
af ókunnugum án þess þeir þekktu
hana af öðru en andlitinu í fréttun-
um.
„Já, eftir að ég byijaði hjá sjón-
varpinu fór ég að átta mig á hversu
grunnt er á fyrirframskoðunum
fólks um þá sem eru þekktir. Þetta
er eins og að vera lokuð inni í
boxi til sýnis fyrir aimenning, aldr-
ei 1 aðstöðu til að gefa af sér það
sem þyrfti. Bryndís hefur orðið
óþyrmilega fyrir barðinu á þessu,
alltaf verið skoðuð eins og mynd
á vegg og ekki tekið tillit til þess
að persónuleiki hennar hefur bæði
vídd og lit. þjóðþekkt fólk er oft
vegið og metið á öðrum forsendum
en aðrir. Ég vil þó taka skýrt fram
að bókin er ekkert vamarrit fyrir
Bryndísi, hún hefur einskis að iðr-
ast. Bókin er hugsuð sem fróðleik-
ur fyrir þá sem vilja kynnast mann-
eskjunni sem þeir hafa haft fyrir
augunum svo lengi.“
Þú varst nemandi Bryndísar í
menntaskóla, varð hún þér fyrir-
mynd?
„Mér þótti vænt um Bryndísi
sem kennara, það ríkti gagnkvæm
virðing milli hennar og nemenda.
Ég held ég hafí ekki tekið hana
mér til fyrirmyndar, en kannski
var hún lifandi dæmi um að hægt
er að lifa lífínu annars staðar en
bak við eldavélina eða á kafí í
bleyjubölunum og þannig má vera
að hún hafí orðið mér fordæmi.
Mér gafst líka kostur á að kynn-
ast henni bæði í leik og starfí þar
sem ég var hjá henni í leiklist í tvö
ár og við vorum á sýningaflakki
með öðrum MÍ-ingum. Þetta var á
þeim árum sem mig dreymdi um
að verða ieikkona en Bryndís fékk
mig ofan af því til allrar ham-
ingju."
Dreymdi þig ekkert um rithöf-
undarferil?
Morgunblaðið/Bjami
Ólína Þorvarðardóttir
„Jú, mikil ósköp. í æskudraum-
unum ætlaði ég að verða píanó-
snillingur, dansdrottning, heims-
fræg leikona og stórkostlegur rit-
höfundur, en með auknum þroska
gerði ég mér grein fyrir því að ég
var ekki sá stórkostlegi snilíingur
sem ég hélt og lagði frægðardrau-
mana á hilluna."
Þetta er þá ekki upphafið að
glæstum rithöfundarferli?
„Skriftimar eru raunar það eina
sem ég hef aldrei alveg getað látið'
frá mér. Ég hef verið sískrifandi
og fór í fréttamennsku vegna þess
að þar sá ég fram á að geta lifað
af þessari áráttu. Það var ekki síst
það sem freistaði þegar ég var
beðin að skrifa þessa bók. Þama
blöstu við 300 óskrifaðar síður sem
mér var frjálst að fylla, mér leið
eins og skíðamanni efst í drifhvítri
skíðabrekku. Þama gafst líka kær-
komið tækifæri til að hoppa út úr
knöppu formi fréttamennskunnar
og láta blekið renna. Ég lít ekki á
þetta sem upphaf að neinum ferli,
ég er blaðamaður sem skrifar við-
talsbók, það er allt og sumt. En
ég á undurfögur ljóð frá unglings-
árunum í skúffunni og hver veit
hvað ég geri úr þeim í ellinni."
Óttastu ekkert að upp frá þessu
verði alltaf iitið á þig sem konuna
sem skrifaði Biyndísi?
„Nei, ég held að þegar fram líða
stundir gleymist mitt nafn í sam-
bandi við þessa bók. Bækur lifa í
minni fólks sjálfra sín vegna. Það
er hvorki höfundurinn né viðfangs-
efnið sem skiftir máli heldur verk-
ið sjálft, hvort það skilur eitthvað
eftir og hvort fólk nær að draga
af því lærdóm." FB
Kirkjugarðar:
Strætísvagna-
ferðir um jólin
EINS OG undanfarin ár munu
starfsmenn kirkjugarða
Reykjavikurprófostsdæmis að-
stoða fólk sem kemur tíl að huga
að Ieiðum ástvina sinna fyrir jólin.
Á Þorláksmessu og aðfongadag
verða talstöðvabilar dreifðir um
Fossvogskirkjugarð fólki til að-
stoðar og einnig verða sérstakar
strætisvagnaferðir i Gufúnes-
kirkjugarð á aðfongadag.
Vagnamir fara tvær ferðir og bíða
meðan farþegar fara í garðinn. Farið
verður frá Lækjartorgi kl. 10.30 og
14.00, frá Hlemmi kl. 10.35 og 14.05
og frá Grensásstöð kl. 10.46 og
14.15.
í Suðurgötugarði og Gufunesgarði
verða starfsmenn einnig til aðstoðar
og vill skrifstofa Kirkjugarða
Reykjavíkur beina því til fólks að
hafa samband við skrifstofuna og fá
uppgefið leiðisnúmer áður en farið
er í garðana.
Félag um skjala-
sljórn stoftiað
Sljórn Félags um skjalastjórn. Frá vinstrí: Krístin H. Pétursdóttír, Ragnhildur Bragadóttir, Jóhanna
Gunnlaugsdóttír, Krístín Olafsdóttir, Svanhildur Bogadóttir og Krístin Geirsdóttir.
STOFNFUNDUR Félags um
skjalastjóm var haldinn nýlega.
Tilgangur félagsins er m.a. að
efla þekkingu og skilning á
skjalastjórn hjá einstaklingum,
fyrirtækjum og opinberum aðil-
um. Ennfremur að efla tengsl
þeirra sem starfo við skjalasöfn
og stuðla að samvinnuu þeirra á
mÚli. Félagið er opið öllum sem
vilja vinna að markmiðum félags-
Verkið sjálft er það sem máli skiptir
ins. Stofiifélagar eru þegar orðn-
ir rúmlega 50 talsins.
Á stoftifundinum voru samþykkt
lög hins nýja félags og kosin stjóm.
Stjómina skipa: Kristfn Ólafsdóttir
formaður, Svanhildur Bogadóttir
varaformaður, Kristín H. Péturs-
dóttir ritari, Kristín Geirsdóttir
gjaldkeri, Ragnhildur Bragadóttir
meðstjómandi og Jóhanna Gunn-
laugsdóttir varamaður. Ýmsir
vinnuhópar munu starfa á vegum
félagsins í samræmi við markmið
félagsins og er gert ráð fyrir að
starf þeirra hefjist í janúar nk.