Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 36

Morgunblaðið - 22.12.1988, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988 ERLENT Bandaríkin: Fimm daga hátíð við forsetaskiptin Miklar skrúðgöngur og veislur í höfuðborginm Washington. Frá ívari Guðmundsayni, fréttaritara Morgunblaðsins. FIMM daga hátíðarhöld eru fyrirhugnð hér í Washington í janúar er George Bush tekur við embætti forseta Bandaríkjanna. Það verða „brauð og leikir“ fyrir unga sem aldna, skrúðgöngur, veisl- ur og alls tíu dansleikir sama kvöldið í helstu gistihúsum höfuð- borgarinnar þann 20. janúar, daginn sem Bush sver embættis- eiðinn. Fyrir þá athöí'n verður byggður pallur fyrir framan þing- höllina, þar sem forseti Hæstaréttar sljórnar athöfhinni. Hátíðin hefst þann 18. janúar við Lincoln-minnismerkið. Efnt verður til mikillar skrúðgöngu við Stjómarskrárhöllina og haldnar tvær miklar veislur. Verður önnur í aðaljámbrautarstöðinni við þing- hólinn en stöðin hefir verið end- umýjuð og var verkinu hraðað í tilefni af embættistökunni. 19. janúar verður hátíðarsýning í Kennedy-leikhúsinu á bökkum Potomac-fljótsins til heiðurs til- vonandi forsetafrú. Skrautsýning- ar verða síðari hluta dags og um kvöldið í Stjómarskrárhöllinni. Þá„ verður fyrirmönnum boðið til mót- töku í nýrri byggingu sögusafnsins við 8. stræti. 20. janúar, daginn, sem George Bush tekur við forsetaembættinu, verður fyrst guðsþjónusta í Jó- hannesarkirkjunni og síðan skrúð- göngur, m.a. um Frelsistorgið og í Lafayette-lystigarðinum. Um kvöldið verða tíu dansleikir í helstu gistihúsum borgarinnar, þar af einn fyrir ungt fólk 21. janúár verður m.a. bama- hátíð í Stjómarskrárhöllinni en herlegheitunum lýkur með bæna- stund í dómkirkjunni í Washing- ton. Lundúnalögregla lokar götu þar sem ungur maður var skotinn í maga af írskum hryðjuverkamanni. Bretland: Limdúnalögregla finnur vopnabúr IRA-manna hæfi sitt í Englandi þar sem þeir njóta síður samúðar. London. Reuter. BRESKA lögreglan fann í gær sprengjuverksmiðju og vopnabúr á vegum hryðjuverkamanna írska lýðveldishersins (IRA) í húsi í suður- hluta Lundúna. Fundurinn jók mjög á ótta yfirvalda um að IRA, sem berst fyrir endalokum breskra yfirráða á Norður-írlandi, hyggist nú koma af stað öldu sprengjutilræða í Englandi. Lögregla hóf þeg- ar leit að tveim mönnum sem álitnir eru hafa búið í húsinu og grunað- ir eru um tengsl við hryðjuverkasamtökin. sprengiefni sem IRA-menn hafa oft notað á Norður-írlandi. Sérsveit lög- reglunnar, er fæst við hermdar- verkamenn, var kölluð á vettvang og kom í ljós að minnst þrír menn höfðu búið í húsinu undanfama viku. Talsmaður lögreglu sagði ljóst að mennimir hefðu stundað sprengju- gerð í húsinu og ekki væri útilokað að þeir hefðu þegar komið einhveij- um þeirra fyrir. Lögregla hefur dreift ljósmyndum af mönnunum tveim og segir þá báða mjög hættulega. Hefur al- menningur verið varaður við grun- samlegum hlutum eins og yfírgefn- um pokum og kössum á almanna- færi. Sumir af leiðtogum IRA- samtakanna hafa sagt að ein sprengja í Englandi hafí jafn mikil áhrif og 100 sprengjur á Norður- írlandi. Hópar hermdarverkamann- anna, sem oftast eru fímm saman, eiga þó erfiðara með að stunda at- Vopnafundurinn varð fyrir tilvilj- un. Skömmu fyrir miðnætti á þriðju- dag braust ungur maður inn í bíl fyrir utan hús í Clapham-hverfí í Suður-Lundúnum. Maður, sem að líkindum hefur sofíð í bílnum, hóf skothríð og særði þjófínn illa í maga. Síðan flýði maðurinn á brott ásamt öðrum manni en lögregla var kvödd á staðinn. Er hún rannsakaði húsið, sem bíllinn stoð við, fundust þar tæki til sprengjugerðar. Einnig voru þar vélbyssur og mikið af Semtex- Bretland: Viský og ekki viský St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frbnannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. í síðustu viku lauk sex ára baráttu skoskra vískýframleiðenda fyr- ir þvi, að innan Evrópubandalagsins mættu einungis brennd vin af ákveðnum styrkleika kallast viský. Frá og með áramótum má ekk- ert viský vera veikara en 40% innan EB. Viskýframleiðendumir töldu, að Þingmaður Verkamannaflokksins, veikari tegundir kæmu óorði á raunverulegt viský. Þeir telja, að þessi ákvörðun ráðherranefndar EB muni koma í veg fyrir, að fram- leitt verði lélegt viský, er skaði það orð, sem fer af gæðum drykkjarins. Samband skoskra viskýframleið- enda lýsti þegar í stað yfír ánægju sinni með þessa ákvörðun. Bill Bewsher, framkvæmdastjóri þess, sagði, að þessi ákvörðun ylli því, að skoskt viský yrði viðurkennt um allt bandalagið sem gæðavara. En gleðin yfír þessari ákvörðun er alls ekki óblandin í Skotlandi. George Faulkes, sagði, að raun- veruleg ástæða ákvörðunarinnar væri vinsældir veikara viskýsins. í kjördæmi hans er framleitt eitt vin- sælasta veika viskýið. Samband framleiðenda veiks viskýs lýsti því jrfír, að þetta væri fráleit og afleit ákvörðun hjá ráð- herranefndinni. Sala á ódýrari tegundum viskýs, með styrkleika allt að 37,2%, hefur stöðugt aukist á síðustu 15 árum bæði í Bretlandi og annars staðar í Evrópu. Samvinnufyrirtækið Co- Op, sem er stærsti vínsmásali í Skotlandi og á 450 vínbúðir, studdi samband framleiðenda veiks vi- skýs. Talsmaður fyrirtækisins vísaði því á bug, að veika viskýið væri lélegra, og sagði, að það ætti við um þessa vöru eins og aðra, að hún seldist einungis, ef við- skiptavinurinn vildi kaupa hana. Ákvörðun ráðherranefndarinn- ar, sem talin er verða til þess að sala á sterku viskýi aukist, kom nokkuð á óvart, vegna þess að ta- lið var, að landbúnaðarráðherra íra væri henni mótfallinn en írar fram- leiða mikið af veiku viskýi. Sagan segir, að breski landbúnaðarráð- herrann, John McGregor, hafi sannfært hinn irska starfsbróður sinn yfír einum sterkum. j:. m. / m m \ # irmk * l \ i Æwsmrk' . Y' ° \ k* w \ \ > || \ /M 1 \ tan T áJm K F . TB""“ V *iltyar } m % * fk v'' # n 1 HHg■' ■ m -á-'-^ . flR. 'a | ~..- v • ■ U w&y' , 1 M ”i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.